Dorte skrifaði:
Når arbejdet måle 7 cm. skal man tag masker ind bad på sokken. Men når jeg målet 7 cm. fra opslagskanten, så er det lige der hvor mønster rapporten slutter, kan det passe? Eller er det 7 cm. fra under ribkanten? Mvh. Dorte
06.05.2022 - 08:19DROPS Design svaraði:
Hej Dorte, ja det kan stemme at det er lige efter mønsteret :)
06.05.2022 - 14:05
Katharina Berg skrifaði:
Guten Tag, Diese Anleitung ist für das Garn 'Nord'. Inwieweit kann ich das Muster mit dem Garn 'Lima' stricken ? Da ich bei Lima ja weniger Maschen benötige, wie verändert sich dann das Muster?? Muß ich das dann irgendwie anpassen (und wenn ja, wie??). Vielen Dank!
15.01.2022 - 17:11DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Berg, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage umrechnen, aber gerne können Sie sich von einer anderen Anleitung inspirieren lassen, vielleicht kann Ihnen dieses Modell damit helfen. Viel Spaß beim stricken!
17.01.2022 - 08:19
Lucinda Dias skrifaði:
Obrigado pela dica ,irei aproveitar as informações . Lindas .
11.12.2021 - 20:16
Forest Spell#forestspellsocks |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaðir sokkar með norrænu mynstri / jólatrjám úr DROPS Nord. Stærð 35 - 43. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1553 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 72 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 9. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna 8. og 9. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1 (á við um marglitt mynstur): Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. LEIÐBEININGAR-2 (á við um hæl): Til að styrkja hælinn er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan úr og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. ÚRTAKA-1 (á við um mitt aftan á sokk): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 1 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt í þessum 4 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (á við um tá): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-14-16 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. SOKKUR: Fitjið upp 72-80-80 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum perlugrár í DROPS Nord. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 3 umferðir sléttprjón og fækkið jafnframt um 8 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 64-72-72 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt aftan á sokknum. Sjá LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.1 hringinn (= 8-9-9 mynstureiningar á breidd með 8 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, prjónið sléttprjón með litnum skógargrænn. JAFNFRAMT í 2. umferð er fækkað um 0-4-0 lykkjur jafnt yfir = 64-68-72 lykkjur. Þegar stykkið mælist 7 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 2-2½-2½ cm millibili alls 5 sinnum = 54-58-62 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 17-18-19 cm frá uppfitjunarkanti (eða að óskaðri lengd á legg). Prjónið nú hæl eins og útskýrt er að neðan. Haldið eftir fyrstu 13-14-15 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 28-30-32 lykkjur á þráð án þess að prjóna lykkjurnar (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 13-14-15 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 26-28-30 lykkjur fyrir hæl. Klippið þráðinn. Sjá LEIÐBEININGAR-2 og prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur með litnum skógargrænn í 5-5½-6 cm. Setjið eitt prjónamerki mitt í síðustu umferð – prjónamerkin eru notuð síðar til að mæla lengd á fæti frá. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 14-14-16 hællykkjur, prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hlið á hæl innan við 1 kantlykkju, prjónið sléttprjón yfir 28-30-32 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram annarri hlið á hæl innan við 1 kantlykkju = 68-72-80 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl, umferðin byrjar núna hér. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 28-30-32 lykkjur mitt ofan á fæti. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 28-30-32 lykkjur á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á UNDAN 28-30-32 lykkjum á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á EFTIR 28-30-32 lykkjum á fæti snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-8-10 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 14½-15½-17½ cm frá prjónamerki fyrir hæl – mælt undir fæti. Nú eru eftir ca 7½-8½-9½ cm til loka máls. Mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 4-0-4 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 56-56-64 lykkjur. Prjónið nú A.2 hringinn (= 7-7-8 mynstureiningar á breidd með 8 lykkjum). Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, mælist stykkið ca 18-19-21 cm frá prjónamerki á hæl – mælt undir fæti (nú eru eftir ca 4-5-6 cm að loka máli – prjónið e.t.v. sléttprjón með litnum perlugrár að óskuðu máli fyrir tá). Takið frá eldir prjónamerki og setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 28-28-32 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum perlugrár og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-8-10 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-2-1 sinnum = 16-16-20 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 8-8-10 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27 cm frá prjónamerki á hæl. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forestspellsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1553
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.