Marie skrifaði:
Bonjour, Concernant l'arrondi des manches, rabattre les 2 mailles se fait après la série de diminution ou bien juste avant la dimunution de 3 mailles avant la fin ? Merci pour votre réponse
24.01.2023 - 22:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Marie, après avoir rabattu les 6 m sous la manche, vous rabattez de chaque côté: 2 x 3 -4 m (cf taille) et 1, 2 ou 3 x 1 m puis vous rabattez 2 m de chaque côté jusqu'à ce que la manche mesure 50 cm - veillez à bien avoir rabattu autant de fois 2 m sur l'endroit et sur l'envers pour que la tête de manche soit symétrique, puis rabattez 3 m de chaque côté, et les mailles restantes. Bon tricot!
25.01.2023 - 12:01
Sara Kittelsen skrifaði:
Hei, kan dere sjekke maskeantallet på ermene etter øking. Jeg strikker str.M og får 50 msk. + 2 msk. X 8 økninger til å bli 66 Kanskje feil i min forståelse av oppskriften, men sjekk gjerne. Vh Sara
13.09.2022 - 07:30DROPS Design svaraði:
Hej Sara, i M starter du med 50 masker, tager 1 m ud 5 gange i hver side = + 10 = 60 masker :)
15.09.2022 - 15:33
Anne -Grete Andersen Aabo skrifaði:
Hvordan får man trøjen er til at holde op med at \"smitte\" af på andet tøj. Den \"fnulrer\" og da jeg er så glad for den, at jeg ønsker mig een mere, er jeg nødt til at have et svar på spørgsmålet om dette. Ellers et skønt let og varmt materiale. Bh Anne-Grete
24.08.2022 - 17:08DROPS Design svaraði:
Hej Anne-Grete, garn med løse fibre vil altid fnuldre mere eller mindre, jeg har selv flere i Air som fnuldrer meget lidt. Hvis du absolut ikke vil det, så kan du strikke den i DROPS Big Merino, eller DROPS Nepal eller DROPS Alaska som kan strikkes på samme strikkefasthed. God fornøjelse!
25.08.2022 - 15:41
Cheryl skrifaði:
Hei. Strikkes denne jakken med 1 eller 2 tråd? Jeg ville strikke denne i drops brushed alpaca silk som er på samme garngruppe som drops air.
28.06.2022 - 22:24DROPS Design svaraði:
Hej Cheryl, jakken strikkes i en tråd og du kan fint bruge DROPS Brushed Alpaca Silk. Strikkefastheden skal være 17 masker på 10 cm (ca pind 5) God fornøjelse!
29.06.2022 - 10:02
Carin skrifaði:
Hej! Kan jag sticka den i Merino extra fine? Går det att sticka runt och klippa upp i det garnet?
06.05.2022 - 21:08DROPS Design svaraði:
Hei Carin. Jakken "Serene Forest Cardigan" er strikket i DROPS Air, som er et tykkere garn enn DROPS Merino Extra Fine, så oppskriften vil ikke stemme med et tynnere garn. Har du sjekket DROPS Big Merino? DROPS Merino Extra Fine er superwash behandlet og fibrene vil nok ikke tove seg sammen så godt ved oppklipp enn et garn som ikke er superwash behandlet. Ville ikke ha klippet opp i dette garnet, ville ha vært redd at garnet skal skli fra hverandre og rakne. mvh DROPS Design
09.05.2022 - 08:42
Patricia skrifaði:
Dobrý den, nerozumim u pleteni prednych dilu. Jak je to ubirani. kolik ok spolu mi ma zustat na jehlici? 20 nebo 35? Muzete mi prosim poradit?
03.05.2022 - 06:35DROPS Design svaraði:
Dobrý den Patricia, předpokládám, že pletete velikost M. Jakmile uzavřete oka u průramků a průkrčníku a zároveň odložíte 15 ok na pomocnou jehlici, zůstane Vám 20 ok náramenice + 15 ok pom. jehlice. Odložených 15 ok využijete později pro pletení průkrčníku. Ať se daří!
03.05.2022 - 10:19
Ans skrifaði:
Ik zou zo graag het vestje serene forest cardigan breien maar ik kan niet werken met een rondbreinaald. Is het misschien mogelijk om dit vestje in losse panden te breien?
07.03.2022 - 10:48DROPS Design svaraði:
Dag Ans,
Ja, dit patroon zou je ok wel op rechte naalden kunnen breien. Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.
07.03.2022 - 13:20
Helena Pettersson skrifaði:
Vilken dum fråga jag ställde!! Ni behöver inte svara då jag sett att det går alldeles utmärkt att sticka fram o tillbaka även på en rundsticka!! ( har aldrig gjort det tidigare:) )
24.02.2022 - 17:35
Helena Pettersson skrifaði:
Hur kan man sticka fram och tillbaka på rundsticka som det står i mönstret? Går ju bara att sticka runt-runt vad jag kan förstå!
23.02.2022 - 22:01
Annika Östlund skrifaði:
Jag saknar storleksguide till modellen. Vilken storlek man ska välja beror ju på modell och mått dels på plagget dels på kroppen.
28.01.2022 - 18:08DROPS Design svaraði:
Hei Annika. Om du ser på cm målene på målskissen nederst på siden, velger du den str. du mener vil passe deg best. mvh DROPS Design
31.01.2022 - 13:43
Serene Forest Cardigan#sereneforestcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 226-27 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni (= 2 lykkjur fleiri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 5, 15, 25, 35 og 45 cm M: 5, 15, 25, 36 og 47 cm L: 5, 16, 27, 38 og 49 cm XL: 5, 14, 23, 31, 41 og 51 cm XXL: 5, 14, 23, 33, 43 og 53 cm XXXL: 5, 15, 25, 35, 45 og 55 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna upp að handveg, síðan skiptist stykkið og framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Stykkið skiptist þegar fellt er af fyrir ermakúpu og síðan er prjónað fram og til baka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 159-175-187-203-227-247 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff og garðaprjón þar til stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni, jafnframt í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju = 158-174-186-202-226-246 lykkjur. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, prjónið næstu umferð þannig – fellið nú af fyrir handveg og framstykkin/bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig: Prjónið 39-43-46-50-56-61 lykkjur, fellið af 6 lykkjur, prjónið 68-76-82-90-102-112 lykkjur, fellið af 6 lykkjur, prjónið síðustu 39-43-46-50-56-61 lykkjur. Hvert stykki er nú prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Setjið fyrstu og síðustu 39-43-46-50-56-61 lykkjur á þráð og prjónið síðan yfir 68-76-82-90-102-112 lykkjur á bakstykki. BAKSTYKKI: = 68-76-82-90-102-112 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 2 lykkjur 1-1-1-2-3-4 sinnum og 1 lykkja 0-2-3-4-6-7 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, fellið af miðju 24-26-28-30-32-34 lykkjur fyrir hálsmáli og axlirnar eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð við hálsmál = 19-20-21-21-22-23 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm (= 19-20-21-22-23-24 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka fyrstu 39-43-46-50-56-61 lykkjur á hringprjón 5. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: 2 lykkjur 1-1-1-2-3-4 sinnum og 1 lykkja 0-2-3-4-6-7 sinnum = 37-39-41-42-44-46 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, setjið ystu 14-15-16-17-18-19 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan lykkjur af í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 19-20-21-21-22-23 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm (= 19-20-21-22-23-24 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka síðustu 39-43-46-50-56-61 lykkjur á hringprjón 5. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: 2 lykkjur 1-1-1-2-3-4 sinnum og 1 lykkja 0-2-3-4-6-7 sinnum = 37-39-41-42-44-46 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, setjið ystu 14-15-16-17-18-19 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan lykkjur af í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 19-20-21-21-22-23 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm (= 19-20-21-22-23-24 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. ERMI: Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna/hringprjóna. Stykkið skiptist þar sem lykkjur voru felldar af fyrir ermakúpu og síðan er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 48-50-52-54-56-58 lykkjur á sokkaprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið sléttprjón. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 10-8-6-4-3½-2½ cm millibili alls 4-5-6-8-9-11 sinnum = 56-60-64-70-74-80 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-42-42-42-41-39 cm, fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (= 6 lykkjur felldar af mitt undir ermi), prjónið síðan ermina fram og til baka. ATH! Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari axla og lengri ermakúpu. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 3-3-3-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-2-3-3 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkju í hvorri hlið þar til ermin mælist 50 cm í öllum stærðum, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 51 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið tölur í vinstri kanti að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt að framan og frá réttu og prjónið upp ca 75-93 lykkjur (deilanlegt með 2 + 1) í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þráðum) á hringprjón 4. Prjónið stroff þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður efst í hálsi að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot og saumið saman op í hvorri hlið við miðju að framan. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sereneforestcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.