Hilda Van Dijk skrifaði:
Ik brei xxl en kom bij A2 3 steken te kort.Mijn stekenaantal is correct 264.Hoe dit op te lossen? Kom hier 3 steken te kort.
14.03.2022 - 17:18DROPS Design svaraði:
Dag Hilda,
Je breit 22 herhalingen van 12 steken en je breit het patroon van onder naar boven. Het zou wel moeten kloppen met het aantal steken. Misschien toch nog even natellen?
18.03.2022 - 08:28
Ayten skrifaði:
Hi, I want to learn if it is possible to add language Turkish. Your website is so successfull but it is difficult to follow pattern at foreign language. I will look forward your answer. Thanks
09.02.2022 - 07:45DROPS Design svaraði:
Dear Ayten, thanks for your request, however, nothing like this is planned yet. Happy knitting!
09.02.2022 - 13:34
Louisa skrifaði:
Bonjour , J'ai commandé à ma boutique en ligne , deux pelotes de Népal en bleu à la place des 3 pelotes d'Alaska noir. Est ce suffisant ?
12.12.2021 - 19:58DROPS Design svaraði:
Bonjour Louisa, 3 pelotes Alaska doivent être remplacées par 3 pelotes Nepal (elles ont approximativement le même métrage, à 5 m près). Consultez votre magasin pour toute assistance complémentaire, ils pourront vous aider, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
13.12.2021 - 10:10
Donatella skrifaði:
Risolto ok scusate
09.12.2021 - 18:55
Donatella skrifaði:
Buongiorno quando mando in stampa il modello manca una buona parte del testo a destra. C'è qualche problema nel sito? Ho provato in tutti i modi a settare la stampante ma il risultato è sempre lo stesso.....
09.12.2021 - 18:53DROPS Design svaraði:
Buonasera Donatella, non ci sono problemi con le impostazioni di stampa: provi a cambiare browser o a salvare il modello come .pdf. Buon lavoro!
10.12.2021 - 13:12
Sigrid skrifaði:
Hei, jeg har en utvekslingsstudent her i huset. Hun er fra Tyskland og dette er hennes første "Nirweger"
30.10.2021 - 19:40
Gabriele skrifaði:
Ich glaube, das wird mein erster Norweger :-)
29.08.2021 - 11:19
Suzy Brown skrifaði:
Lovely pattern. Should be named Alaskan beauty
09.08.2021 - 18:58
Angelina skrifaði:
Lovely pattern, but too short in lenght
04.08.2021 - 20:19
Nordic Nights#nordicnightssweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alaska eða DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og norrænu mynstri á berustykki. Stærð XS - XXL.
DROPS 226-6 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 3,2. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá skiptingunni á milli vinstri ermi og bakstykkis, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI. Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á stuttan hringprjón 5,5 með litnum svartur í DROPSA Alaska eða DROPS Nepal. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Skiptið yfir í litinn ljós brúnn í DROPS Alaska eða litinn kamel í DROPS Nepal og haldið áfram með stroff í 5 cm (= alls 11 cm stroff). Síðar á að brjóta kantinn í hálsi saman tvöfaldan og við frágang verður kanturinn ca 5 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-25-26-27-28-29 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 100-105-110-115-120-125 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós brúnn í DROPS Alaska eða litnum kamel í DROPS Nepal í 2-3-3-4-4-5 cm frá prjónamerki við hálsinn. Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 hringinn. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING: Ör-1: Aukið út 24-27-28-33-34-35 lykkjur jafnt yfir = 124-132-138-148-154-160 lykkjur. Ör-2: Aukið út 21-23-27-32-31-35 lykkjur jafnt yfir = 145-155-165-180-185-195 lykkjur (nú er pláss fyrir 29-31-33-36-37-39 mynstureiningar með 5 lykkjum). Ör-3: Aukið út 47-49-51-60-55-69 lykkjur jafnt yfir = 192-204-216-240-240-264 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2 hringinn (= 16-17-18-20-20-22 mynstureiningar með 12 lykkjum). Prjónið A.2 og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Eftir síðustu útaukningu í A.2 eru 224-238-252-280-300-330 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur. ATH: Ef prjónfestan er rétt á hæðina þá kemur til með að verða eftir ca 5-6-4-4-2-2 cm af A.2 þegar stykkið er síðar skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar – A.2 er prjónað til loka á fram- og bakstykki og ermum eins og útskýrt er síðar. Prjónið þar til berustykkið mælist 21-21-23-24-26-27 cm frá prjónamerki við hálsinn. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 44-47-48-56-60-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram með A.2 yfir næstu 68-72-78-84-90-100 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 44-47-48-56-60-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og haldið áfram með A.2 eins og áður yfir síðustu 68-72-78-84-90-100 lykkjurnar (= framstykki). Klippið þráðinn frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 148-160-172-184-200-220 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-8-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir annarri erminni. Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með A.2 hringinn – ATH: Prjónið eins langt og hægt er út að hvorri hlið undir ermum – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hliðum undir ermum. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós brúnn í DROPS Alaska eða litnum kamel í DROPS Nepal þar til stykkið mælist 26-28-28-28-28-29 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragist saman, aukið nú út lykkjur eins og útskýrt er að neðan: Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 40-44-48-52-56-60 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 188-204-220-236-256-280 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 44-47-48-56-60-65 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-8-10-10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi, með litnum ljós brúnn í DROPS Alaska eða litnum kamel í DROPS Nepal = 50-55-56-64-70-75 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-8-8-8-10-10 nýjar lykkjur undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með A.2 hringinn – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós brúnn í DROPS Alaska eða litnum kamel í DROPS Nepal. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-4-4-3-2½-2 cm millibili alls 3-3-3-5-6-7 sinnum = 44-49-50-54-58-61 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 34-35-33-33-31-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátaðu e.t.v. peysuna og prjónaðu að óskaðri lengd. Prjónaðu 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-15-14-18-18-19 lykkjur jafnt yfir = 56-64-64-72-76-80 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 41-41-39-39-37-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #nordicnightssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.