Maylis Delest skrifaði:
Bonjour Je n’arrive pas a démarrer le tricot. Je tricote du 5 ans. Si je suis l’échantillon il y a 17mailles pour 10cm 64 mailles /17 mailles cela fait environ 37 cm En tirant j’arrive à 42 cm mais la tête d’un enfant de 5 ans c’est 50cm Comment trouver les 8cm restant sachant qu’en plus on tricote en théorie avec des aiguilles 4mm …. Quelqu’un peut il m’aider ? Merci d’avance.
20.01.2025 - 16:37DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Delest, vos 64 mailles doivent se retrouver autour du cou et par conséquent ne doivent pas être plus larges que la tête; si votre rang de montage est trop serré, n'hésitez pas à utiliser une aiguille plus grosse / 2 aiguilles / 2 fils (ou autre technique) pour le montage puis tricotez les côtes - si votre tension est juste, l'enfant pourra y passer la tête facilement. Bon tricot!
21.01.2025 - 09:24
Germana skrifaði:
Spiegazioni chiare e misure perfette!!! Grazie, con i vostri modelli anche senza grande esperienza si può fare un capo bellissimo.
24.11.2024 - 13:15
Päivi Ilonen skrifaði:
Miten luodaan apulangan silmukoiden tilalle 6 silmukkaa?
25.10.2024 - 20:35DROPS Design svaraði:
Hei, katso esim. seuraava DROPS oppitunti sivuiltamme: Neulomisen perusteet: Silmukoiden luominen kerroksen loppuun.
29.10.2024 - 16:34
Marjorie skrifaði:
Bonjour, je souhaite faire une réhausse de dos. Comment est ce qu il faut que je m'y prenne? Est ce qu il y a un autre modèle enfant avec les explications pour faire une réhausse? Merci de votre réponse. Cordialement
23.10.2024 - 20:58
Marjorie skrifaði:
Bonjour, je souhaite faire une réhausse de dos. Comment est ce qu il faut que je m'y prenne? Est ce qu il y a un autre modèle enfant avec les explications pour faire une réhausse? Merci de votre réponse. Cordialement
23.10.2024 - 20:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Marjorie, vous pouvez vous inspirer d'un modèle similaire avec rehausse (nous n'avons pas de mot-clé pour ce type de modèle, il vous faudra consulter les différents modèles de type pull empiècement arrondi de haut en bas, éventuellement pour adulte pour recalculer au prorata). Bon tricot!
24.10.2024 - 09:19
THELIN skrifaði:
Sur ce modèle et d'après mon échantillon, j'ai 84 mailles après les 12 d'augmentation. Je dois faire le diagramme A1, bon d'accord. Mais il manque un texte, car je me retrouve d'après vos indications avec 224 mailles, mais comment faire? Je suis bloquée dans un pull pour ma petite fille. Il doit être fini pour le 24 décembre! C'est la première fois que j'achète sur votre site, mais je suis un peu perdue... merci de m'aider.
06.12.2023 - 14:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Thelin, vous tricotez la 5ème taille soit 9/10 ans, correct? Vous allez donc tricoter 14 fois A.1 tout le tour (14 x 6 mailles au 1er tour= 84 mailles), vous allez augmenter comme indiqué dans le diagramme (en faisant 1 jeté alternativement au début /à la fin de chaque A.1, jeté tricoté torse au tour suivant); Quand A.1 est terminé, vous avez 16 m dans chaque A.1 x 14 motifs = 224 mailles. Bon tricot!
06.12.2023 - 16:09
Fabienne STASIAK skrifaði:
Par quel fil puis je remplacer "drops air" Merci par avance
02.11.2023 - 18:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Stasiak, vous pouvez utiliser un autre fil du groupe de fils C ou bien 2 fils du groupe A tricotés ensemble, utilisez notre convertisseur pour voir toutes les alternatives possibles et les nouvelles quantités correspondantes. Bon tricot!
03.11.2023 - 06:26
Rosemarie Zimmermann skrifaði:
Eine schöne Anleitung für die Mütze "Merry Star" ! Ich nutze ausserdem gern die Videos, sie sind sehr informativ und erleichtern mir häufig die Handarbeit. Danke!
20.12.2022 - 23:33
Teresa skrifaði:
Gracias por su contestacion pero aun me quedan dudas. 1. El ancho total del cuello son 18 cm o 36 cm? 2. El ancho del cuerpo (espalda + delantero) son 44 o 88 cm? 3. Al salirme que tengo que montar más puntos, cómo los reparto en el diagrama A1 del dibujo. Gracias
07.12.2022 - 14:33DROPS Design svaraði:
Hola Teresa, puedes ver en el diagrama las medidas de la mitad del contorno de las diferentes partes del cuerpo. 18 cm es la mitad del cuello; el contorno del cuello es 36 cm. El contorno del cuerpo es 88 cm. Puedes aumentar el número de pts para montar, asegurándose de aumentar una cantidad de pts que sea múltiple de 6 (añadiendo 1 o más repeticiones de A.1). Puedes montar más puntos desde el cuello o puedes aumentar los puntos después de trabajar el cuello y al comenzar el canesú, para que el cuello no quede demasiado ancho.
11.12.2022 - 20:48
Teresa skrifaði:
En el modelo merry stars la medida del cuerpo para talla 13/14 es 88 cm (44x2) cierto? Es que si hago el calculo con la muestra que dicen de 18 puntos por 10 cm serian 82 cm para 148 puntos que quedan despues de separar las mangas. Tengo que adaptar mi muestra (22 puntos x 10 cm) y voy comprobando todos los calculos. No puedo hacerlo con agujas del 5 que sí me dan los 18 puntos pero queda el punto demasiado abierto. Gracias
05.12.2022 - 18:58DROPS Design svaraði:
Hola Teresa, tu tensión es algo más prieta que la utilizada en el patrón ( 17pts = 10cm), por lo que, si estás trabajando con el mismo hilo, vas a tener que cambiar los cálculos del patrón para alcanzar las medidas del diagrama. Puedes ver aquí cómo hacer los cálculos para el patrón: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=25&cid=23
06.12.2022 - 18:54
Merry Stars#merrystarssweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa og jólasveinahúfa fyrir börn úr DROPS Air. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, með hringlaga berustykki og snjókristallamynstri. Húfan er prjónuð í sléttprjóni með stroffi. Stærð 2 – 14 ára. Þema: Jól.
DROPS Children 41-4 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 10. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 9. og 10. hver lykkja slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-3 (á við um húfu): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Endurtakið við hvert prjónamerki. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 60-64-64-68-68-72-76 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með litnum gallabuxnablár í DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-8-14-10-16-12-14 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 66-72-78-78-84-84-90 lykkjur. Prjónið nú eftir mynsturteikningu A.1 (= 11-12-13-13-14-14-15 mynstureiningar með 6 lykkjum). ATH! Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð og lestu LEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 176-192-208-208-224-224-240 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt með litnum gallabuxnablár, þar sem fækkað er um 4-8-12-8-12-4-8 lykkjur jafnt yfir = 172-184-196-200-212-220-232 lykkjur. Haldið áfram með litnum gallabuxnablár og sléttprjón þar til stykkið mælist ca 15-15-16-17-18-19-20 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 25-27-29-30-32-33-34 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 50-54-58-60-64-66-68 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 25-27-29-30-32-33-34 lykkjur sem eftir eru slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 112-120-128-132-140-144-148 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og með litnum gallabuxnablár. Prjónið þar til stykkið mælist ca 16-20-23-25-26-27-28 cm frá skiptingu (eða óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4-4 cm að loka máli). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3-3-3-4-4-4-4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Klippið þráðinn og festið. Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 42-44-46-46-48-50-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum gallabuxnablár. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 3-5-6-7-8-9-10 cm millibili alls 4 sinnum í öllum stærðum = 34-36-38-38-40-42-46 lykkjur eftir. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 15-20-24-26-30-34-37 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4-4 cm að loka máli. Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út 6-4-6-6-4-6-2 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING! Ermin mælist ca 18-23-27-30-34-38-41 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, frá stroffi og upp að topp á húfu. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 96-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum natur í DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4-5-5-6-6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 84-88-92-96-100 lykkjur. Skiptið yfir í litinn gallabuxnablár og prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18-19-19-19-20 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 0-4-2-0-4 lykkjur jafnt yfir = 84-84-90-96-96 lykkjur. Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið með 14-14-15-16-16 lykkjur á milli prjónamerkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-3 (= 6 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-2-2-3-3 sinnum. Fækkið síðan lykkjum í 6.-7.-7.-7.-7. hverri umferð alls 10-10-11-11-11 sinnum = 12 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist alls ca 50-52-54-56-58 cm og prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 6 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þráðinn og festið vel. DÚSKUR: Gerið einn dúsk ca 5 cm að þvermáli með litnum natur. Saumið dúskinn niður efst á húfu. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #merrystarssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 41-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.