Ann Mathieson skrifaði:
Have checked swatch, am using Alaska, Aran.
10.04.2024 - 16:09
Ann Mathieson skrifaði:
I am knitting this pattern in Large. Have only 4 balls left, still sleeves and body to do. Swatch was correct. Have I enough wool or is there a mistake in quantity.
10.04.2024 - 13:49DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Mathieson, are you working with DROPS Air? If you used an alternative, did you check new matching amount with the yarn converter? Does your tension in both width and height match? ie 17 stitches x 22 rows even on yoke?
10.04.2024 - 14:03
Sharon skrifaði:
I’m making a medium size sweater
29.02.2024 - 22:57DROPS Design svaraði:
Dear Sharon, since you have 17 repeats of A.1 and, in each row with increases you have 1 increase per repeat of A.1, you should have 17 increases in each row with increases of the pattern. Happy knitting!
29.02.2024 - 23:10
Sharon skrifaði:
I keep getting off on my increases. Can you tell me for each increase row in the pattern how many stitches I should have? I’ve started over a few times because I seem to not have the correct number of stitches when I get to the second row using yellow. Thanks
29.02.2024 - 17:02DROPS Design svaraði:
Dear Sharon, the number of increases will depend on the size you are working. Could you specify your chosen size so that we can indicate the number of increases in each row?. Happy knitting!
29.02.2024 - 22:25
Véronique Lille skrifaði:
Bonjour à nouveau, dans ma question précédente, je me suis trompée, je voulais dire 114 divisé par 26 (4,38).
05.02.2024 - 03:01
Véronique Lille skrifaði:
Bonjour, je fais la grandeur L et pour l’encolure on doit augmenter de 26 mailles. Comme dans votre astuce, vous indiquez de diviser le nombre de maille total, soit 88 par le nombre d’augmentation 26. Le résultat n’est pas un nombre juste (3,38). Comment bien répartir mes augmentations? Je vous remercie à l’avance!
05.02.2024 - 00:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lille, dans cette leçon, nous expliquons comment augmenter (ou diminuer) à intervalles réguliers lorsque le résultat ne tombe pas juste. Bon tricot!
05.02.2024 - 09:44
Mia skrifaði:
Guten Tag, Gibt es die Anleitung auch in deutscher Sprache? Vielen Dank
02.01.2024 - 17:11DROPS Design svaraði:
Liebe Mia, klicken Sie auf dem dropdown Menu under die Fotos um die Sprache zu ändern und die deutsche Strickanleitung zu finden. Viel Spaß beim stricken!
03.01.2024 - 08:12
Lee skrifaði:
Where is the size chart ? How many yards of yarn for each size? I see it says 300 pearl gray for medium is that yards?
23.12.2023 - 14:32DROPS Design svaraði:
Dear Lee, the size chart is at the bottom of the pattern, after the pattern instructions and the knitting charts. All of the measurements there are in cm; you can see more information on the size charts here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=24&cid=17. In the materials section it specifies the amount of grams of each colour necessary for each size. For example, for an M size you need 300g of pearl gray and 50 gr of the rest of the colours. The amount of yards needed can be calculated taking into account the yardage of the yarn used (DROPS Air).You can see how to calculate this here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=14&cid=17. Happy knitting!
28.12.2023 - 18:50
Kristine skrifaði:
Hei Synes det er litt vanskelig å forstå målskissen. Hva er overvidden på gensere i de forskjellige størrelsene?
05.12.2023 - 18:58
Tina skrifaði:
Super schöner Pullover. Wolle liegt bereit :-) Warum wird der zunächst mit 100 Maschen gestrickt und dann auf 80 verringert? Falls man es tatsächlich so strickt wie werden am Ende die 80 Maschen nach dem umschlagen an die 100 angenäht? Danke .
03.10.2023 - 08:29DROPS Design svaraði:
Dear Tina, damit die Halsblende schön liegt, wird man in jeder Linksrippe abnehmen, dann nähen Sie den Kragen mit fast alle Maschen (also mit den 20 Maschen weniger) zusammen, die 3 linke Maschen werden zusammen mit den 2 linke Maschen angenäht. Viel Spaß beim stricken!
04.10.2023 - 07:22
Merry Trees#merrytreessweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa / jólapeysa úr DROPS Air. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, með hringlaga berustykki og jólatrjáamynstri. Stærð XS - XXL. Þema: Jól.
DROPS 228-47 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 5. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 95-100-105-110-115-120 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með litnum perlugrár í DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fækkið nú um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman = 76-80-84-88-92-96 lykkjur. Haldið áfram með stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið þar til stroffið mælist alls 12 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-16-18-26-28-30 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 84-96-102-114-120-126 lykkjur. Prjónið nú eftir mynsturteikningu A.1 (= 14-16-17-19-20-21 mynstureiningar með 6 lykkjum). ATH! Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð og lestu LEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 224-256-272-304-320-336 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt með litnum perlugrár, þar sem aukið er út um 8-0-0-0-4-8 lykkjur jafnt yfir = 232-256-272-304-324-344 lykkjur. Haldið áfram með litnum perlugrár og sléttprjón þar til stykkið mælist ca 20-22-23-25-27-29 cm frá prjónamerki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 34-38-40-44-49-53 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 68-76-80-88-98-106 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 34-38-40-44-49-53 lykkjur sem eftir eru slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 148-164-176-192-216-236 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og með litnum perlugrár. Prjónið þar til stykkið mælist 27-27-27-27-27-27 cm frá skiptingu (eða óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm til loka máls). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Klippið þráðinn og festið. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-52-56-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum perlugrár. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-6-4-3-2½-2½ cm millibili alls 5-6-8-11-11-12 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur eftir. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 38-36-36-35-34-32 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út 4-2-4-2-4-2 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 42-40-40-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Hægt er að brjóta uppá kantinn í hálsmáli þannig að hann verði tvöfaldur, eða það er líka hægt að nota hann sem háan kraga. Ef stykkið á að vera með tvöföldum kanti í hálsmáli þá er það gert þannig: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. HNÚTUR: Það á að gera hnút efst á hvert tré. Hnúturinn er hnýttur í kringum lykkju. Klippið 2 þræði af litnum gulur, ca 10 cm. Leggið þræðina saman, notið nál og þræðið þræðina í gegnum efstu gulu lykkjuna efst á tré, þannig að báðir þráðarendarnir liggi frá réttu á stykki, hvoru megin við lykkjuna. Hnýtið hnút, hnýtið síðan annan hnút, í gagnstæða átt – sjá teikningu. Klippið þræðina ca 1 cm langa. Endurtakið efst á öllum trjám. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #merrytreessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-47
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.