Helene skrifaði:
Kunne godt have ønsket mig lidt flere oplysninger om udtagning på mønster siden. "Nye masker strikkes løbende med i mønsteret" har betydet at jeg nu har 24 masker for meget på for- og bagstykke. Kan ikke finde ud af hvor fejlen er opstået og overvejer at finde en anden opskrift.
23.10.2021 - 10:04
Undine skrifaði:
Wieso werden die Ärmel auf Nadelspiel 5mm gestrickt und nicht wie der Pulli auf 4mm? Ein Fehler? Siehe Text unter : Ärmel
16.10.2021 - 11:09DROPS Design svaraði:
Liebe Undine. Dies ist ein Druckfehler, wir werden ihn so schnell wie möglich korrigieren. Bezieht sich auf eine 4mm Nadel .Viel Spaß beim Stricken
17.10.2021 - 19:37
Debora skrifaði:
Buonasera, vi segnalo un errore nella spiegazione in italiano nella parte dello sprone dove si riprendono le maglie dai lati delle spalle a sella e dei davanti e dietro. È un bellissimo modello con una costruzione per me inedita e molto interessante, grazie mille!
14.10.2021 - 17:02DROPS Design svaraði:
Buonasera Debora, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!
14.10.2021 - 21:46
Undine skrifaði:
Der Pulli ist in Größe L unten 57cm breit angegeben. Ist das nicht zu breit? Nach dem Foto scheint es dich ein eher körpernahe Schnitt zu sein. Andere Drops Pullover haben in Größe L unten höchstens 54cm. Bitte um Prüfung.
12.10.2021 - 13:33DROPS Design svaraði:
Liebe Undine, bei diesem Modell stimmen die 57 cm breit unten, wenn Sie den Pullover etwas enger möchten, schauen Sie die Größe M (= 51 cm unten). Viel Spaß beim stricken!
13.10.2021 - 07:28
Corrie skrifaði:
A classic wearable jumper, with lovely stitch to give interest. I would make and wear this.
09.08.2021 - 10:54
Gitte Nyhus skrifaði:
Skønt mønster :)
05.08.2021 - 09:26
Lisa skrifaði:
It should be named Morning Dew.
04.08.2021 - 00:09
Cotswolds Sweater#cotswoldssweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og axlarsæti. Stærð S - XXXL.
DROPS 226-12 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING-1: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 192 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 38) = 5,1. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt (prjónamerki situr í miðju á þessum lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki, bakstykki og axlarsæti. Síðan er hvort axlarsætið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig, áður en lykkjur af þráðum eru settar til baka á prjóninn og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir framstykki og bakstykkið (meðfram hliðum á axlarsætum). Síðan er afgangur af berustykki prjónaður í hring, jafnframt því sem lykkjur eru auknar út á ermum og framstykki og bakstykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 102-102-114-114-122-122 lykkjur á hringprjóna 3,5 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 2½ cm. AXLARSÆTI: Setjið fyrstu 33-33-39-39-43-43 lykkjur á þráð, setjið næstu 18 lykkjur á stuttan hringprjón 4, setjið næstu 33-33-39-39-43-43 lykkjur á þráð, setjið síðustu 18 lykkjur á þráð. Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 18 lykkjur í umferð, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið = 20 lykkjur. Kantlykkjur eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið fram og til baka yfir þessar 20 lykkjur í 8-8-10-10-11-11 cm, í síðustu umferð er felld af 1 kantlykkja í hvorri hlið = 18 lykkjur. Klippið þráðinn. Prjónið alveg eins yfir 18 lykkjur af þræði í hinni hliðinni. BERUSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hliðum á axlarsætum á hringprjón 4: Byrjið yst á öðru axlarsætinu, prjónið upp 17-17-20-20-24-24 lykkjur innan við kantlykkju í hlið á axlarsæti, prjónið 33-33-39-39-43-43 lykkjur af þræði slétt, prjónið upp 17-17-20-20-24-24 lykkjur innan við kantlykkju í hlið á axlarsæti (= 67-67-79-79-91-91 lykkjur á bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 16 lykkjur á öxl slétt, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið upp 17-17-20-20-24-24 lykkjur innan við 1 kantlykkju í hlið á axlarsæti, prjónið 33-33-39-39-43-43 lykkjur af þræði slétt, prjónið upp 17-17-20-20-24-24 lykkjur innan við 1 kantlykkju í hlið á axlarsæti (= 67-67-79-79-91-91 lykkjur á framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 16 lykkjur á axlarsæti slétt, setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju = alls 170-170-194-194-218-218 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Byrjun á umferð er í skiptingu á milli vinstri öxl og bakstykki. Prjónið nú mynstur eins og útskýrt er að neðan og síðan er aukið út fyrir ermi þannig: ÚTAUKNING Á ERMI: Aukið út um 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-1. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! PRJÓNIÐ MYNSTUR ÞANNIG: A.1A (= 3 lykkjur), A.1B yfir næstu 60-60-72-72-84-84 lykkjur (= 10-10-12-12-14-14 mynstureiningar með 6 lykkjum), endið með A.1C (= 4 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir lykkjur á ermi (þ.e.a.s. á milli 1. og 2. prjónamerkis), A.1A (= 3 lykkjur), A.1B yfir næstu 60-60-72-72-84-84 lykkjur (= 10-10-12-12-14-14 mynstureiningar með 6 lykkjum), endið með A.1C (= 4 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir lykkjur á ermi (þ.e.a.s. á milli 3. og 4. prjónamerkis). Þær 4 lykkjur með prjónamerki eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið út á ermum í annarri hverri umferð alls 9-6-10-8-10-6 sinnum = 36-30-38-34-38-30 lykkjur á milli prjónamerkja á ermum. Stykkið mælist nú ca 6-4-7-6-7-4 cm. Þegar útaukningar á ermi hafa verið gerðar til loka, haldið áfram með mynstur og útaukninga fyrir berustykki (nú eru 206-194-234-226-258-242 lykkjur í umferð). ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru auknar út 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði fyrir og eftir hverja af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-1. ATH! Til að mynstrið komi ekki til með að færast til er aukið út þannig: Aukið út um 1 lykkju í byrjun á umferð (= á eftir 4. prjónamerki), aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 1., 2. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á undan 4. prjónamerki í lok umferðar. Nú eru lykkjur auknar út á framstykki, bakstykki og á báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur á framstykki og bakstykki og í sléttprjóni á ermum. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 12-18-18-24-24-30 sinnum = 302-338-378-418-450-482 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 15-17-20-23-24-26 cm frá prjónamerki við hálsmál. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón eins og áður þar til stykkið mælist 18-20-21-23-24-27 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 91-103-115-127-139-151 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 60-66-74-82-86-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 91-103-115-127-139-151 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-66-74-82-86-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-216-240-264-288-312 lykkjur í umferð. Prjónið A.1B yfir allar lykkjur (= 32-36-40-44-48-52 mynstureiningar með 6 lykkjum). Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 24-24-25-25-26-25 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 38-42-48-52-58-62 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 230-258-288-316-346-374 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 6 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Setjið til baka 60-66-74-82-86-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 65-71-79-87-91-95 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðju lykkju undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4½-3-2-1½-1-1 cm millibili alls 6-8-11-14-15-16 sinnum = 53-55-57-59-61-63 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 30-29-26-25-23-21 cm frá skiptingu, nú er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1 lykkju = 54-56-58-60-62-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið yfir allar lykkjur í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist alls 54-55-53-54-53-54 cm frá yst á öxl og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cotswoldssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.