Jutta Schmid skrifaði:
Guten Tag, kann es sein das in dieser Anleitung gar kein Diagramm gezeigt wird?
10.01.2023 - 18:59DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Schmid, das Diagram A.1 finden Sie neben der Maßskizze, unter den Ärmel, es wird über 2 Maschen und 6 Reihen gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
11.01.2023 - 09:24
Helga Eitel skrifaði:
Leider muss ich nochmals eine Frage stellen: Kann es sein dass das Diagramm falsch ist? Nach Ihrer Mitteilung würde ich mit einer Rd. linke Maschen beginnen u. nach Diagramm mit rechten Maschen. Ebenso Rd. 4 müsste mit linken Maschen anstatt rechten Maschen gestrickt werden. Ich blicke da nicht mehr durch.
11.11.2022 - 12:12DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Eitel, Diagram lesen Sie von unten nach oben, dh 1. Reihe A.1 ist 2 linke Maschen, dann 2. + 3. Reihe (1 re, 1 li) und 4. Reihe ist 2 rechte Maschen. Hier lesen Sie mehr über Diagramme. Viel Spaß beim stricken!
14.11.2022 - 08:49
Helga Eitel skrifaði:
Modell 41/16, die Angaben der betreffenden Größen, getrennt durch / und - irritieren mich etwas. Ich bin mir nicht ganz sicher wieviel Maschen ich zu Beginn für die Halsblende für Größe 104-110 anschlagen muss. Sind es 80 oder 84? Ich bedanke mich für Ihre Mühe.
09.11.2022 - 18:12DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Eitel, dieses Modelle wird eigentlich entweder in Größe 3/4 Jahre = 98/104 cm oder in Größe 5/6 Jahre = 110/116 cm. Messen Sie einen Pullover von dem Kind, und vergleichen Sie mit den in der Maßskizze, so finden Sie die best passende Größe - hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!
10.11.2022 - 10:55
Helga Eitel skrifaði:
Leider verstehe ich das Diagramm nicht ganz. Es ist nach Anleitung ein Perlmuster. Wenn ich mit 2 M. links beginne wie geht es dann weiter? Gilt das für die ganze Runde? Wie beginne ich die Runde 2? Perlmuster in Runden kenne ich bisher nicht. Bitte helfen Sie mir weiter. Danke im Voraus.
02.11.2022 - 16:46DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Eitel, so stricken Sie A.1 in der Runde: 1. Runde: alle Maschen links; 2. + 3. Runde: *1 Masche rechts, 1 Masche links *, von *-* wiederholen; 4. Runde: alle Maschen rechts - diese 2 Maschen und 4 Runden wiederholen. Viel Spaß beim stricken!
03.11.2022 - 09:38
Beate skrifaði:
Formuleringen \"Fortsett med mønster og glattstrikk uten økninger til arbeidet måler x cm fra oppleggskanten\" er litt misvisende, synes jeg. For jeg gjorde som det stod, men da jeg så på bildet av målene lenger ned i oppskrifta skjønte jeg at jeg hadde strikket for kort før jeg felte til ermene. Det bør stå x cm fra der mønsteret begynner/vrangborden til halsen slutter, eller evt. justere tallene, ellers blir jo dette feil. Oppleggskanten er jo der man legger opp maskene!
04.09.2022 - 12:56
Inger Corneliussen skrifaði:
Jeg har kjøpt 300g garn til genser 3/4 år og har brukt ikke fullt 150 g. Dette er ikke så ok synes jeg!
04.07.2022 - 12:29
Therese skrifaði:
Hei! Kan dere rette opp feilen i oppskriften? Så slipper folk å lure i 2-3 dager på hva som er rett og hva som er vrang………
27.05.2022 - 13:38DROPS Design svaraði:
Hej Therese. Tack för info, detta är nu rättat. Mvh DROPS Design
27.05.2022 - 14:29
Detlev Bäuerlein skrifaði:
Hallo, ist es möglich Garne einer Gruppe gemeinsam zu verstricken? Z.B. Merino Extrafein mit Muskat? Danke für Ihre Nachricht.
19.02.2022 - 15:40DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Bäuerlein, ja sicher, wenn Sie 2 Fäden der Garngruppe B zusammen stricken, dann bekommen Sie ca 1 Faden der Garngruppe D - hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!
21.02.2022 - 09:20
Tula skrifaði:
Hei. Jeg ser at dere har skrevet at x = rett for diagramet, men det er jo også blank rute. X skal vel da være vrang?
15.10.2021 - 16:15DROPS Design svaraði:
Hei Tula, Det er riktig. x = vrang. God fornøyelse!
18.10.2021 - 07:20
Open Breeze#openbreezesweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og áferðamynstri. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 41-16 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 5,4. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. og 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan. Aukið út á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt. Þ.e.a.s. aukið út um 2 lykkjur við hvert prjónamerki og alls 8 lykkjur í umferð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni á ermum og jafnóðum inn í A.1 á framstykki og bakstykki. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið lykkjuna með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 3,5 með DROPS Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 90-94-98-102-106-110 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, teljið 14 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 31-33-35-37-39-41 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Það eru 31-33-35-37-39-41 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á bakstykki. Prjónið síðan A.1 yfir lykkjur á framstykki og bakstykki og sléttprjón yfir lykkjur á ermum og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur og sléttprjón, JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalína í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 16-17-18-19-20-21 sinnum hvoru megin við öll prjónamerkin (meðtalin útaukning eins og útskýrt er í fyrstu umferð) = 218-230-242-254-266-278 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1 á framstykki og bakstykki og sléttprjón á ermum. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 46-48-50-52-54-56 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 63-67-71-75-79-83 lykkjur mynstur (= framstykki), setjið næstu 46-48-50-52-54-56 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 63-67-71-75-79-83 lykkjur mynstur (= bakstykki). Framstykki, bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 136-144-152-160-168-176 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.1 yfir allar lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 16-19-22-24-27-30 cm (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð sléttprjón og aukið út 8-8-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 144-152-160-168-176-184 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið stroff í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Klippið þráðinn og festið. Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-56 cm frá öxl. ERMI: Setjið til baka 46-48-50-52-54-56 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 5 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 51-53-55-57-59-61 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 5 nýjum lykkjum undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2½-3-3½-4-4½ cm millibili alls 7 sinnum í öllum stærðum = 37-39-41-43-45-47 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 20-24-27-31-34-38 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 3-5-3-5-3-5 lykkjur jafnt yfir = 40-44-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING! Ermin mælist ca 23-27-30-35-38-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #openbreezesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 41-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.