Lis Mann skrifaði:
Spørgsmål vedr. justering af masker: på 3 linke står: tag 6 m ud, men ikke over hvor mange masker, så skal man bare slå 6 nye m op? Så hvordan skal det forstås? Vh Lis Mann
07.02.2025 - 10:22DROPS Design svaraði:
Hej Lis, jo du tager 6 masker ud over de næste 40 masker i din størrelse :)
12.02.2025 - 14:01
Nicoleta Langli skrifaði:
Jeg er en ny begynner og det er første gang starter med arbeid ovenfra! Jeg klarte å forstå oppskriften til slutt og det gikk kjempe fint Tusen takk Drops
09.01.2025 - 08:51
Mai Møller Pedersen skrifaði:
Kan jeg strikke denne børnetrøje med Mayflower Easy care som jeg allerede har? Mvh. Mai
21.11.2024 - 17:06DROPS Design svaraði:
Hej Mai, det tør vi ikke love. Du skal have 24 masker og 32 pinde på 10x10 cm, lav en strikkeprøve :)
22.11.2024 - 13:51
Eva Jorill Sumstad skrifaði:
Dette jakkemønsteret er helt supert. Enkelt forklart og veldig god passform. Jeg lurer på om dere har denne i damemodell?
10.11.2024 - 18:21DROPS Design svaraði:
Hei Eva Jorill, Hvis du søker på "Jakke dame" på toppen av sida, får du opp alle slike oppskrifter. Selv om vi ikke har akkurat denne oppskriften til damer, har vi mange forskjellige oppskrifter å velge i mellom, og noen er ganske like. God fornøyelse!
11.11.2024 - 12:03
Lis skrifaði:
En god og forståelig opskrift
11.08.2024 - 16:58
Cilli skrifaði:
Hallo. Ich möchte die Jacke für ein 4-5jähriges Kind stricken. Macht es Sinn, einfach nach der Passe auf Nadelstärke 2,5 weiter zu stricken? Damit die Jacke nicht zu breit wird? Vielen Dank
05.03.2024 - 15:56DROPS Design svaraði:
Liebe Cilli, am besten messen Sie eine Jacke, die das Kind passt, und vergleichen Sie mit der Maßskizze, welche Größe passt am besten, so brauchen Sie nichts zu umrechnen, und so hat die Jacke die richtigen Maßnahmen. Hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim Stricken!
06.03.2024 - 07:56
Claudia skrifaði:
Hola Estoy realizando la prenda talla 5/6 y al comenzar la labor dice empezar con 5 puntos punto musgos y luegos 2 derechos 2 reves y dice cuando resten 7 puntos terminas con 2 derechos y 5 musgos. Pero ya he contado varias veces y al llegar a los 7 puntos la combinacion me lleva a que deberia hacer 2 reves, agregos dos puntos mas entonces? Lo menciono por si se debe corregir el patron cuando son 104 +10 puntos
02.10.2023 - 00:38DROPS Design svaraði:
Hola Claudia, tienes 104 puntos, menos los 10 puntos en punto musgo (5 a cada lado) = 94 puntos. Si divides estos 94 puntos en el elástico, comenzando con 2 derechos y 2 reveses, debería quedarte 2 derechos al final, antes del punto en punto musgo. Los 104 puntos, como se indica en la labor, YA incluyen los 5 puntos en punto musgo a cada lado.
09.10.2023 - 00:35
Tineke skrifaði:
Oeps, mijn antwoord staat in de omschrijving.....te snel gelezen.
24.08.2023 - 17:53
Tineke skrifaði:
Minderen onder de mouw: is dit 2 steken samenbreien aan weerskanten van de markeerdraad onder de mouw?
23.08.2023 - 13:41DROPS Design svaraði:
Dag Tineke,
Bovenaan bij de instructies staat aangegeven hoe je mindert onder de mouw: Minder 1 steek aan elke kant van de markeerdraad als volgt: Brei tot er 3 steken over zijn voor de markeerdraad, 2 recht samen, 2 recht (de markeerdraad zit tussen deze 2 steken), 1 steek recht afhalen, 1 recht en haal de afgehaalde steek over de gebreide steek.
28.08.2023 - 07:15
Anne Grethe skrifaði:
Hvis man lukker af til knaphul fra retsiden når der er 3 masker tilbage, vil hullet da blive i venstre side af trøjen. Er dette ikke korrekt? Når man starter ved halsen strikkes en pind vrang derefter en pind ret. Skal man så strikke en vrangpind inden man strikker knaphul fra retsiden?
01.05.2022 - 22:35DROPS Design svaraði:
Hej Anne Grethe, når du strikke oppefra, så starter retpinden i venstre side, så du strikker ret hele vejen om til højre side hvor du lukker af til knaphul :)
03.05.2022 - 09:05
First Leaf Jacket#firstleafjacket |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað í stroffprjóni og með laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 41-10 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 18 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 4,5. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis 3. og 4. hver lykkja og 4. og 5. hver lykkja slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 6-6½-7-8-7½-7½ cm millibili. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja) i hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Prjónað er stroffprjón og aukið er út í stroffprjóni, síðan er prjónuð laskalína. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI / BERUSTYKKI: Fitjið upp 100-104-104-108-112-116 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón hringprjón 2,5 með DROPS Baby Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er næsta umferð prjónuð þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, stroffprjón (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið stroffprjón í 3 cm (= kantur í hálsmáli). Setjið 1 prjónamerki hér, stykkið er nú mælt héðan. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu, aukið út í byrjun á hverri brugðinni einingu – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 22-23-23-24-25-26 lykkjur fleiri) = 122-127-127-132-137-142 lykkjur. Haldið áfram í stroffprjóni (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 2½-2½-3-3-3-3½ cm frá prjónamerki, aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu, nú er aukið út í lok hverrar brugðinnar einingar (= 22-243-23-24-25-26 lykkjur fleiri) = 144-150-150-156-162-168 lykkjur. Haldið áfram í stroffprjóni (= 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 5-5-6-6-6-7 cm frá prjónamerki, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjur eru jafnaðar út eins og útskýrt er að neðan – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA! Þetta er gert til að 2 lykkjurnar sem eru prjónaðar slétt í hverri laskalínu haldi áfram beint yfir 2 lykkjur slétt frá stroffprjóni. Jafnið lykkjufjöldann þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, aukið út um 4-0-1-1-2-4 lykkjur / fækkið um 0-1-0-0-0-0 lykkjur yfir næstu 18-24-24-24-24-24 lykkjur, prjónið næstu 26 lykkjur slétt án þess að auka út eða fækka lykkjum, aukið út um 0-6-10-4-0-0 lykkjur / fækkið um 2-0-0-0-0-2 lykkjur jafnt yfir næstu 46-40-40-46-52-58 lykkjur, prjónið næstu 26 lykkjur slétt án þess að auka út eða að fækka lykkjum, aukið út um 4-0-1-1-2-4 lykkjur / fækkið 0-1-0-0-0-0 lykkjur yfir næstu 18-24-24-24-24-24 lykkjur, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Nú eru 150-154-162-162-166-174 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 4 prjónamerki í stykkið, þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar. Teljið 28-29-31-31-32-34 lykkjur frá miðju að framan, setjið 1. prjónamerki (= hægra framstykki). Teljið 24 lykkjur, setjið 2. prjónamerki (= ermi). Teljið 46-48-52-52-54-58 lykkjur, setjið 3. prjónamerki (= bakstykki). Teljið 24 lykkjur, setjið 4. prjónamerki (= ermi). Nú eru 28-29-31-31-32-34 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki (= vinstra framstykki). Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 15-16-17-18-19-20 sinnum = 270-282-298-306-318-334 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 15-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 43-45-48-49-51-54 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 54-56-58-60-62-64 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 76-80-86-88-92-98 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 54-56-58-60-62-64 lykkjur á nýjan þráð (= ermi) og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið síðustu 43-45-48-49-51-54 lykkjur (= framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 174-182-194-202-210-222 lykkjur í umferð. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist ca 16-20-23-25-26-27 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð sléttprjón og aukið út 18-18-18-22-22-22 lykkjur jafnt yfir = 192-200-212-224-232-244 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið), haldið áfram þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. Prjónið stroff í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Klippið þráðinn og festið. Stykkið mælist ca 36-40-44-48-50-52 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 54-56-58-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stutta hringprjóna 3 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-62-64-68-70-72 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2½-3½-3-4-4 cm millibili alls 6-7-6-8-7-8 sinnum = 48-48-52-52-56-56 lykkjur eftir. Prjónið síðan án úrtöku þar til ermin mælist 15-21-24-27-31-35 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Ermin mælist 18-24-27-31-35-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #firstleafjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 41-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.