Denise Fontaine skrifaði:
Que veut dire pour épaules droite et gauche, patron drops design 41 11 veste enfant : Placer en attente les 12 mailles côté encolure. Rabattre ensuite pour l’encolure: 1 fois 2 mailles et q fois 1 maille = 12 mailles pour l’épaule. Il y a 15 mailles côté épaules. Donc je dois rabattre les mailles qui sont en attente côté épaules et je pars mes rabats entre l’encolure et l’épaule?
04.03.2023 - 22:28DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Fontaine, Quand le devant mesure 29 cm (première taille) tricotez les 12 premières mailles sur l'endroit (devant droit)/sur l'envers (devant gauche) et mettez-les en attente sur un fil, terminez le rang, tournez et tricotez le rang suivant. Rabattez ensuite au début de chaque rang à partir de l'encolure (début de rang sur l'endroit pour le devant droit/début de rang sur l'envers pour le devant gauche): 2 mailles 1 fois puis 1 maille, 1 fois. il va vous rester 12 mailles pour l'épaule. Vous reprendrez pour le col les 12 m en attente et vous relèverez des mailles le long des mailles rabattues + jusqu'à l'épaule. Bon tricot!
06.03.2023 - 09:29
Christina Staepels skrifaði:
Beste, dit vestje wordt met een rondbreinaald gebreid, maar dit vind ik nogal moeilijk. Is het mogelijk om de beschrijving van deze mooie vest te krijgen, waarin ik rugpand en de voorpanden apart brei? Vriendelijke groeten
05.12.2021 - 20:26DROPS Design svaraði:
Dag Christina
Dit patroon zou je inderdaad ook wel op rechte naalden kunnen breien. Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.
07.12.2021 - 17:15
Tonya Brash skrifaði:
Question about sleeves: "Cast off at the beginning of each row as follows: 2 stitches 2 times ..." So 2 stitches twice at the beginning of each row? (4 stitches each side?) "Then cast off 2 stitches on each side until the sleeve measures 28-33-37-41-45-49 cm" Is this 2 stitches repeatedly, or just the once each side and then keep knitting straight? Numbers of stitches after each decrease would be very helpful, if possible please. Thank you!
18.11.2021 - 20:00DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Brash, you cast off at the beginning of the row on each side 2 stitches 2 times, this means 2 stitches at the beginning of next 4 rows (= you will cast off a total of 4 sts on each side over 4 rows). Then cast off 2 stitches at the beginning of each row on each side until sleeve measures the correct length, make just sure you cast off the same number of stitches on each side to get a symetrical sleeve cap. Happy knitting!
19.11.2021 - 07:14
Fresh Lime Jacket#freshlimejacket |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 41-11 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni (= 2 lykkjur fleiri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: 2 ára: 4, 10, 16, 22 og 28 cm 3/4 ára: 4, 11, 18, 24 og 30 cm 5/6 ára: 4, 12, 20, 27 og 34 cm 7/8 ára: 5, 13, 21, 29 og 37 cm 9/10 ára: 5, 14, 23, 32 og 41 cm 11/12 ára: 5, 15, 24, 33 og 42 cm LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna upp að handveg, síðan skiptist stykkið og framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna. Stykkið skiptist þegar fellt er af fyrir ermakúpu og prjónað er síðan fram og til baka. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 123-131-139-143-151-159 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff með byrjun frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff og garðaprjón þar til stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni, jafnframt í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju (lykkjum er ekki fækkað í kanti að framan) = 122-130-138-142-150-158 lykkjur. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 19-21-24-27-30-31 cm, prjónið næstu umferð þannig – fellið nú af fyrir handvegi og framstykkin/bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig: Prjónið 30-32-34-35-37-39 lykkjur, fellið af 6 lykkjur, prjónið 50-54-58-60-64-68 lykkjur, fellið af 6 lykkjur, prjónið síðustu 30-32-34-35-37-39 lykkjur. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Setjið fyrstu og síðustu 30-32-34-35-37-39 lykkjur á þráð og prjónið áfram yfir 50-54-58-60-64-68 lykkjur á bakstykki. BAKSTYKKI: Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1 sinni = 44-48-52-54-58-62 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-34-38-42-46-48 cm, fellið af miðju 18-20-22-24-26-28 lykkjur fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig (= 13-14-15-15-16-17 lykkjur eftir á hvorri öxl). Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð við hálsmál = 12-13-14-14-15-16 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 33-36-40-44-48-50 cm (= 14-15-16-17-18-19 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka fyrstu 30-32-34-35-37-39 lykkjur á hringprjón 5. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1 sinni = 27-29-31-32-34-36 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-31-35-38-42-43 cm, setjið ystu 12-13-14-14-15-16 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1-1-1-2-2-2 sinnum = 12-13-14-14-15-16 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 33-36-40-44-48-50 cm (= 14-15-16-17-18-19 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka síðustu 30-32-34-35-37-39 lykkjur á hringprjón 5. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1 sinni = 27-29-31-32-34-36 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-31-35-38-42-43 cm, setjið ystu 12-13-14-14-15-16 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1-1-1-2-2-2 sinnum = 12-13-14-14-15-16 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 33-36-40-44-48-50 cm (= 14-15-16-17-18-19 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. ERMI: Fitjið upp 32-34-36-38-40-42 lykkjur á sokkaprjóna 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan strofff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið sléttprjón. Setjið prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2-3-3½-4-4-4½ cm millibili alls 7-7-7-7-8-8 sinnum = 46-48-50-52-56-58 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-28-32-35-39-42 cm, fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (= 6 lykkjur felldar af mitt undir ermi), prjónið síðan ermakúpu fram og til baka. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 1-1-2-2-2-2 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorir hlið þar til ermin mælist 28-33-37-41-45-49 cm, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 29-34-38-42-46-50 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið tölur í vinstri kant að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt að framan, frá réttu og prjónið upp ca 57 til 83 lykkjur (deilanlegt með 2 + 1) í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þráðum) á hringprjón 4. Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli og saumið op í hvorri hlið við miðju að framan. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #freshlimejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 41-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.