DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Fresh Lime

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð 2-12 ára.

DROPS Children 41-12
DROPS Design: Mynstur ai-037-bn
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200-200-250-250-300 g litur 12, mosagrænn
PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni (= 2 lykkjur fleiri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg, síðan skiptist stykkið og framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna. Stykkið skiptist þegar fellt er af fyrir ermakúpu og prjónað er síðan fram og til baka. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 112-120-128-132-140-148 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air.
Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5.
Prjónið sléttprjón hringinn.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 19-21-24-27-30-31 cm, prjónið næstu umferð þannig – fellið nú af fyrir handvegi og framstykkið/bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig:
Fellið af fyrstu 6 lykkjurnar fyrir handveg, prjónið 50-54-58-60-64-68 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 6 lykkjur og prjónið síðustu 50-54-58-60-64-68 lykkjur (= bakstykki). Prjónið nú áfram yfir lykkjur á bakstykki þannig:

BAKSTYKKI:
Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1 sinni = 44-48-52-54-58-62 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 31-34-38-42-46-48 cm, fellið af miðju 18-20-22-24-26-28 lykkjur fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig (= 13-14-15-15-16-17 lykkjur eftir á hvorri öxl).
Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð við háls = 12-13-14-14-15-16 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 33-36-40-44-48-50 cm (= 14-15-16-17-18-19 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins.

FRAMSTYKKI:
Setjið til baka 50-54-58-60-64-68 lykkjur frá framstykki á hringprjón 5.
Prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 29-31-35-38-42-43 cm = 44-48-52-54-58-62 lykkjur.
Setjið nú miðju 14-16-18-18-20-22 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig (= 15-16-17-18-19-20 lykkjur eftir á hvorri öxl).
Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1-1-1-2-2-2 sinnum = 12-13-14-14-15-16 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 33-36-40-44-48-50 cm (= 14-15-16-17-18-19 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins.

ERMI:
Fitjið upp 32-34-36-38-40-42 lykkjur á sokkaprjóna 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan strofff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið sléttprjón. Setjið prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING.
Aukið svona út með 2-3-3½-4-4-4½ cm millibili alls 7-7-7-7-8-8 sinnum = 46-48-50-52-56-58 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 24-28-32-35-39-42 cm, fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (= 6 lykkjur felldar af mitt undir ermi), prjónið síðan ermakúpu fram og til baka. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig:
Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 1-1-2-2-2-2 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorir hlið þar til ermin mælist 28-33-37-41-45-49 cm, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 29-34-38-42-46-50 cm. Prjónið aðra ermi alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við annan axlasauminn frá réttu og prjónið upp ca 48 til 74 lykkjur (deilanlegt með 2) í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þráðum) á hringprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið stroff í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsi að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsi. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 41-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Isabelle Poinsot wrote:

Le diagramme me semble de taille adulte car les mensurations ne correspondent pas à celles indiquées dans le texte.

08.02.2024 - 22:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Poinsot, les mesures sont les mêmes dans les explications et dans le schéma, vous avez bien 4 cm de côtes au début, 19-21-24-27-30-31 cm avant les emmanchures et 33-36-40-44-48-50 cm de hauteur totale, soit 14-15-16-17-18-19 cm de hauteur d'emmanchures. Bon tricot!

20.02.2024 - 09:35

country flag Hilde wrote:

Wat word er bedoeld bij het stukje over achterpand, met ‘tegelijkertijd’?? Tegelijkertijd afkanten…. Is het niet zo dat je heen breit en in het begin 2 steken afkant de pen uit breit en dan de pen terug ook in het begin 2 steken afkant en dan de pen uit breit?

26.08.2023 - 21:58

DROPS Design answered:

Dag Hilde,

Het woord tegelijkertijd is misschien een beetje overbodig. Je breit heen en weer over het achterpand in tricotsteek en je kant inderdaad aan het begin van elke naald af voor het armsgat.

27.08.2023 - 16:53

country flag Rita Maas wrote:

Waarom moet je bij het meerderen van de mouw een markeerdraad plaatsen ? Waarom niet aan elke kant van de naald steeds een steek meerderen ?

07.05.2023 - 14:43

DROPS Design answered:

Dag Rita,

De mouw wordt in de rondte gebreid en daardoor zou je op een gegeven moment niet meer goed kunnen zien waar het midden onder van de mouw is. Door een markeerdraad te plaatsen en deze mee te laten lopen tijdens het breien, is dat wel duidelijk en weet je precies waar je moet meerderen.

08.05.2023 - 20:44

country flag Patty Walk wrote:

On the sleeve bind offs do you bind off 3 stitches or are the 2 stitches 2 times and 1 stitch 1 time the three bind off stitches?

20.01.2023 - 13:51

DROPS Design answered:

Dear Mrs Walk, you first cast off 3 sts on each side of marker thread, then 2 sts at the beginning of next 4 rows (2 sts 2 times on each side) and then 1 stich at the beg of next 2-4 rows (1-2 times on each side), then cast off 2 sts at the beginning of next 2 rows (both from RS and from WS) until piec measures the given measurement for the size (juste make sure you cast off the same number of sts on each side), then cast off 3 sts at the beg of next 2 rows and cast off the remaining sts. Happy knitting!

20.01.2023 - 16:39

country flag Leonor wrote:

Hola! Estoy tejiendo este patrón y empecé a tejer en redondo el cuerpo desde abajo hacia arriba como dice en las indicaciones. Pero no entiendo la parte donde dice que se cierran puntos para hacer por separado el delantero de la espalda ¿cierro puntos desde el mismo tejido en redondo? O son dos piezas? No queda claro desde donde se empieza a cerrar ya que es un tejido circular. Gracias

24.01.2022 - 04:35

DROPS Design answered:

Hola Leonor, despues de cerrar para las sisas, tienes 2 piezas separadas, mira el video AQUI. De este momento tejes el delantero y la espalda por separado, de ida y vuelta. Saludos!

26.01.2022 - 08:24

country flag Elzaan Faria wrote:

I simply LOVE this pattern, it is the exact type I require as I'm not one for "fashiony" attire, but I need it in bigger sizes for my daughter and myself. Is this pattern available in adult sizes? I have browsed Jumpers for adults, but couldn't find one that looks like this. This jumper has a matching Cardigan (jacket) - I would greatly appreciate that one in adult sizes too, please? Thank you for a really wonderful website!

27.12.2021 - 10:48

DROPS Design answered:

Dear Elzaan, we don't make personalized patterns. We have an ample collection of women jumpers starting from size XS, where you will probably find something similar or at least of your liking. Happy knitting!

31.12.2021 - 19:54

country flag Ursula wrote:

Dankeschön :-)

09.11.2021 - 00:27

country flag Ursula wrote:

Wo ist das Diagramm, es fehlt immer noch?

07.11.2021 - 15:13

DROPS Design answered:

Liebe Ursula, wir werden es so schnell wie möglich beheben

07.11.2021 - 17:24