DANIELA skrifaði:
Non capisco come si esegue il motivo COSTA/LEGACCIO con i ferro circolare. grazie per la risposta
07.09.2023 - 10:04DROPS Design svaraði:
Buonasera Daniela, la lavorazione delle COSTE A MAGLIA LEGACCIO è solo in piano, per cui deve lavorare tutte le maglie a diritto. Buon lavoro!
07.09.2023 - 23:17
Lorraine Simard skrifaði:
Je ne comprends pas le diagramme. Il s’agit seulement d’augmentations et non de point fantaisie. Comment ça peut donner 14 motifs de 5 mailles. Y a-t-il eu une correction que je ne vois pas?
29.12.2022 - 14:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Simard, le diagramme correspond aux augmentations de l'empiècement, il se tricote au 1er rang sur 5 mailles, on augmente 2 mailles (cf 2ème symbole) on a ainsi 7 mailles au 2ème rang. Quand vous devez tricoter 14 fois les 5 m de A.1 = 70 m, vous avez 14 x 7 = 98 mailles quand A.1 est terminé. Bon tricot!
02.01.2023 - 11:58
Rosa Barth skrifaði:
Ik overweeg deze trui te breien met Drops Nepal. Zouden jullie mij dat ook adviseren of komt het model dan minder goed uit?
14.12.2022 - 16:15DROPS Design svaraði:
Dag Rosa,
Qua dikte is het patroon prima te vervangen door DROPS Nepal. Alleen Nepal is zwaarder dan Air. DROPS Air is een heel licht blowgaren. Het werk wordt dus wel wat zwaarder.
15.12.2022 - 21:53
Ann skrifaði:
Forstår ikke fellingen på ermene . Står det skal felles for hver 7 cm 4 ganger. Det går ikke opp med cm på ermene. Skal de være runde og ikke cm?
05.03.2022 - 18:31DROPS Design svaraði:
Hej Ann, du feller når ærmet måler 3, 10, 17 og 24 cm. God fornøjelse!
09.03.2022 - 10:14
Mille skrifaði:
Kan man ikke strikke flæsen direkte på trøjen, så man ikke skal sy den på til sidst? Jeg tænker at strikke maskerne op langs mærketråden.
08.12.2021 - 20:44DROPS Design svaraði:
Hej Mille, det kan du sikkert, men vi kan desværre ikke hjælpe dig med at skrive opskriften om. Du kan sikkert selv løse det, eller så spørg din DROPS forhandler :)
09.12.2021 - 09:27
Giovanna skrifaði:
Buongiorno, non riesco a capire come vada attaccata la balza. Nelle istruzioni c'è scritto che durante il lavoro del corpo bisogna passare un filo lungo tutte le maglie, ma poi non mi è chiaro come questo filo sia utilizzato per attaccare la balza. Potreste spiegarmelo meglio o realizzare un video? Grazie mille.
27.11.2021 - 13:14DROPS Design svaraði:
Buonasera Giovanna, la balza viene lavorata a parte e poi cucita al maglione da segnapunti a segnapunti. Buon lavoro!
08.12.2021 - 19:19
Ingrid Thyberg skrifaði:
Stickar 122/128 Förstår inte minskningarna på ärmen. Minska var 8 cm 4 ggr blir 32 cm. (Exkl de redan 3 cm som är stickade) Men sedan står att man ska sticka tills att ärmen mäter 29 cn
13.11.2021 - 20:43
Red Hibiscus#redhibiscusjumper |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og pífu. Stærð 3-12 ára.
DROPS Children 41-5 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 68 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 9,7. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 9. og 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað áfram í hring á hringprjón, ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónuð pífa sem er saumuð niður á framhlið á peysuna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 64-68-68-72-72-76 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið stroff í 3 cm (= kantur í hálsmáli). Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1-2-7-3-8-4 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 65-70-75-75-80-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 13-14-15-15-16-16 mynstureiningar með 5 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka hafa verið auknar út 26-28-30-30-32-32 lykkjur = 91-98-105-105-112-112 lykkjur. Þegar stykkið mælist 5-6-6-6-7-7 cm, þræðið 1 merkiþræði í gegnum allar lykkjur á prjóni. Merkiþráðurinn merkir lykkjurnar sem eru notaðar þegar pífan er saumuð niður á peysuna. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 7-7-7-8-9-9 cm. Prjónið nú þannig: 1-1-0-0-1-1 lykkja slétt, A.1 yfir næstu 90-95-105-105-110-110 lykkjur (= 18-19-21-21-22-22 mynstureiningar með 5 lykkjum), prjónið 0-2-0-0-1-1 lykkjur slétt. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka hefur verið aukið út um 36-38-42-42-44-44 lykkjur = 127-136-147-147-156-156 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 12-12-12-13-15-15 cm. Prjónið nú þannig: 1-1-1-1-1-1 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 125-135-145-145-155-155 lykkjur (= 25-27-29-29-31-31 mynstureiningar með 5 lykkjum), 1-0-1-1-0-0 lykkjur slétt. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka hafa verið auknar út 50-54-58-58-62-62 lykkjur = 177-190-205-205-218-218 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 15-15-16-17-18-19 cm, í síðustu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 176-188-196-200-212-220 lykkjur. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 26-28-29-30-32-33 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 52-56-58-60-64-66 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44 lykkjur á nýjan þráð (= ermi) og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið síðustu 26-28-29-30-32-33 lykkjur (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 116-124-128-136-144-148 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist ca 16-20-23-25-26-27 cm (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm til loka máls). Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 8-8-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! = 124-132-136-144-152-156 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Klippið þráðinn og festið. Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52 cm frá öxl. ERMI: Setjið 36-38-40-40-42-44 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-7-8-9-10-11 cm millibili alls 4 sinnum í öllum stærðum = 34-36-38-40-42-44 lykkjur eftir. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 20-25-29-31-35-38 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út um 6-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING! Ermin mælist ca 23-28-32-35-39-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. PÍFA: Pífan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna og saumuð niður á peysuna. Fitjið upp 46-50-54-54-58-58 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið nú áfram í sléttprjóni þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): * prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð og endið með 2 lykkjur slétt. Nú hefur verið aukið út um 22-24-26-26-28-28 lykkjur og það eru 68-74-80-80-86-86 lykkjur í umferð. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið, uppslátturinn er prjónaður brugðið (það eiga að myndast göt). UMFERÐ 3 (= rétta): * Prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð og endið með 2 lykkjur slétt. Nú hafa verið auknar út 22-24-26-26-28-28 lykkjur og það eru 90-98-106-106-114-114 lykkjur í umferð. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið, uppslátturinn er prjónaður brugðið (það eiga að myndast göt). Prjónið síðan sléttprjón (þ.e.a.s. sléttar lykkjur frá réttu og brugðnar lykkjur frá röngu). Prjónið þar til stykkið mælist ca 6-6-6-7-7-7 cm og stillið af að næsta umferð sé frá röngu. * Prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið. Snúið og fellið laust af í næstu umferð frá réttu – fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING. FRÁGANGUR: Pífan er saumuð niður á framhlið á peysu, frá öxl að öxl. Saumið pífuna niður meðfram merkiþræði sem var settur í berustykkið, með smáu spori. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #redhibiscusjumper eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 41-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.