Marketa skrifaði:
Dobrý den, nerozumím nahazování ok. Nahazuje se pouze v jedné řadě a nebo ve dvou? A poprvé se nahazuje mezi 2 oky a pak za zadní nit v té jedné řadě? Děkuji za odpověď
15.05.2025 - 18:54
Nicole skrifaði:
Pourquoi tous les pulls d'homme sont tricotés de haut en bas ? J'aimerais pouvoir tricoter les dos et devants séparément Merci pour la réponse Niole
13.12.2022 - 18:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Nicole, cette façon de tricoter de haut en bas est largement appréciée par de nombreuses tricoteuses, raison pour laquelle nous proposons de nombreux modèles réalisés de cette façon, mais vous pouvez également retrouver des modèles tricotés de bas en haut. Bon tricot!
14.12.2022 - 07:52
Arnaud skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas le descriptif de l augmentation 2. Toutes ces augmentations se font sur 1 seul rang ? Que signifie A3 au dessus des 14 premières mailles puis A2 au dessus des 42 mailles suivantes. Merci de votre aide
21.11.2022 - 07:21DROPS Design svaraði:
Bonjour Arnaud, les augmentations décrites sous AUGMENTATIONS se font effectivement sur un même tour; cette leçon explique comment procéder. Tricoter A.3 au-dessus des 14 premières mailles, A.2 au-dessus des 42 suivantes signifie que vous devez tricoter les 14 premières mailles en suivant A.3 (= répétez 2 fois le diagramme), et répétez 7 fois A.2 (= 7 fois 6 mailles = 42 mailles). Bon tricot!
21.11.2022 - 10:32
Ana skrifaði:
He tejido este jersey y, después de lavarlo a mano con agua fría, cambió la densidad de puntos de 11p x 15v a 11p x 18v en una muestra de 10cm x 10cm. Recomendaría tenerlo en cuenta para el cálculo de la longitud de las prendas.
23.10.2021 - 20:28
Sailor Blues Sweater#sailorbluessweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 224-19 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 12. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki og ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 75-80-85-85-90-95 lykkjur á stuttan hringprjón 6 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm, fækkið öllum 3 lykkjum brugðið til 2 lykkjur brugðið = 60-64-68-68-72-76 lykkjur. Haldið áfram með stroff þar til kanturinn í hálsmáli mælist 18 cm. Síðar er kanturinn í hálsi brotinn niður tvöfaldur og við frágang þá mælist hann ca 9 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-6-7-12-13-19 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 65-70-75-80-85-95 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerki er aukið út þannig: FYRSTA ÚTAUKNING: Prjónið A.1 hringinn í umferð (= 13-14-15-16-17-19 mynstureiningar með 5 lykkjum). Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina hafa verið auknar út 26-28-30-32-34-38 lykkjur = 91-98-105-112-119-133 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 10-11-11-12-13-14 cm frá prjónamerki. ÖNNUR ÚTAUKNING: Prjónið A.3 yfir fyrstu 0-7-7-14-14-0 lykkjur (= 0-1-1-2-2-0 mynstureiningar með 7 lykkjum), prjónið A.2 yfir næstu 42-42-42-42-42-60 lykkjur (= 7-7-7-7-7-10 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.3 yfir næstu 7-0-7-0-7-7 lykkjur (= 1-0-1-0-1-1 mynstureiningar með 7 lykkjum), prjónið A.2 yfir næstu 42-42-42-42-42-66 lykkjur (= 7-7-7-7-7-11 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.3 yfir næstu 0-7-7-14-14-0 lykkjur (= 0-1-1-2-2-0 mynstureiningar með 7 lykkjum). Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina hafa verið auknar út 30-32-34-36-38-44 lykkjur = 121-130-139-148-157-177 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 16-18-19-21-22-24 cm frá prjónamerki. ÞRIÐJA ÚTAUKNING: Prjónið A.3 yfir fyrstu 0-7-0-7-0-7 lykkjur (= 0-1-0-1-0-1 mynstureiningar með 7 lykkjum), prjónið A.2 yfir næstu 54-48-66-60-78-78 lykkjur (= 9-8-11-10-13-13 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.3 yfir næstu 7-14-7-14-7-7 lykkjur (= 1-2-1-2-1-1 mynstureiningar með 7 lykkjum), prjónið A.2 yfir næstu 60-54-66-60-72-78 lykkjur (= 10-9-11-10-12-13 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.3 yfir næstu 0-7-0-7-0-7 lykkjur (= 0-1-0-1-0-1 mynstureiningar með 7 lykkjum). Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina hafa verið auknar út 40-42-46-48-52-58 lykkjur = 161-172-185-196-209-235 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá prjónamerki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 24-25-27-29-32-36 lykkjur eins og áður (= ½ bakstykki), setjið næstu 33-35-38-40-40-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 47-51-55-58-65-71 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 33-35-38-40-40-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 24-26-27-29-32-36 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 107-114-125-132-145-159 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Úrtakan í stærð S er nú lokið. Endurtakið úrtöku í stærð M, L, XL, XXL og XXXL þegar stykkið mælist 15 cm frá skiptingu = 103-106-117-124-137-151 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 29-29-30-30-30-30 cm frá skiptingu. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd - nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Aukið út um 21-22-23-24-27-29 lykkjur jafnt yfir = 124-128-140-148-164-180 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 33-35-38-40-40-46 lykkjur frá þræði í annarri hliðinni á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 6-6-8-8-8-8 nýju lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 39-41-46-48-48-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 7-6½-5-4-3½-3 cm millibili alls 6-6-8-9-9-10 sinnum = 27-29-30-30-30-34 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 44-43-41-40-39-37 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd – nú eru ca 5 cm að loka máli. Aukið nú út um 5-7-6-10-10-10 lykkjur jafnt yfir = 32-36-36-40-40-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 49-48-46-45-44-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sailorbluessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 224-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.