Barbara skrifaði:
Buongiorno, vorrei fare questo maglione con 1 fili DROPS deligh e 1 filo di Fabel, per taglia L che quantità mi consigliate? grazie
25.10.2022 - 10:31DROPS Design svaraði:
Buonasera Barbara, può leggere a questo link le indicazioni per cambiare filato. Buon lavoro!
25.10.2022 - 19:24
Susanne Månskans skrifaði:
Jag har just stickat hals kanten och undrar varför ni inte valt att vika ner den och sticka fast den i sista varvet resår? Det måste ju bli enklare än att sy fast den senare, och snyggare...
23.03.2022 - 10:09DROPS Design svaraði:
Hei Susanne. På den genseren er det blir valgt å brette vrangborden øverst i halsen ned på innsiden av plagget og så sy vrangborden fast slik at det blir en dobbel halskan. Men du kan fint gjøre det du selv ønsker, for å få det slik du mener blir penest. mvh DROPS Design
28.03.2022 - 11:19
Helene Levesque skrifaði:
Échantillon : mes17 mailles x 22 rangs me donne 10 cm de largeur mais seulement 6.5 cm de hauteur ? Comment corriger ceci ? Merci beaucoup !
15.02.2022 - 13:17DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Levesque, vous tricotez bien en DROPS Alaska? Essayez de laver votre échantillon (pensez à bien vérifier les consignes d'entretien) pour vérifier si ça change quelque chose mais à priori, vous tricotez trop serré, essayez avec des aiguilles plus grosses jusqu'à ce que vous ayez les bonnes mesures - cf faq. Bon tricot!
15.02.2022 - 17:01
Es Den Nie skrifaði:
Bij het breien van de mouwen (het begin) krijg ik onder elke mouw twee gaatjes namelijk aan weerszijden van de opgezette steken. Hoe kan ik dit voorkomen? Hoe kan ik de gaatjes die er nu al zijn mooi wegwerken? Bij voorbaat dank voor uw antwoord.
31.01.2022 - 00:22DROPS Design svaraði:
Dag Es,
Wat ik soms wel doe is een extra steek opnemen en deze in de volgende naald samen breien. Je kan die gaatjes ook aan het eind dichtstoppen met een draad en stopnaald.
02.02.2022 - 09:19
Alexander skrifaði:
Hallo Ich würde gerne diese Arbeit stricken. Bin nun aber irritiert was die Fotos betrifft bzw. die Anleitung. Für mich sieht es auf dem Foto so aus, als würde das Muster A.1 über den Rumpf und die Ärmel laufen. In der Anleitung wird das Muster jedoch schon in der Passé komplett verarbeitet. Oder verstehe ich die Anleitung falsch?
27.01.2022 - 21:07DROPS Design svaraði:
Lieber Alexander, sorry für die späte Antwort - sollten Sie die richtige Maschenprobe in der Höhe haben, dann wird A.1 nur an der Passe gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
13.05.2022 - 09:09
Solveig Sukke Pettersen skrifaði:
Hei, kan man bruke drops Nepal til denne oppskriften (jeg har ti nøster liggende)? Eller, hva vil forskjelle være på å bruke Alaska eller Nepal?
07.01.2022 - 14:38DROPS Design svaraði:
Hej Solveig, ja du kan bruge DROPS Nepal, den tilhører samme gruppe som Alaska, prøv vores garnomregner så får du garnforbruget i din størrelse!
13.01.2022 - 11:50
Adriana skrifaði:
Hello. I'm working this pattern in size xl and i'm having trouble with the second increase. I have 128 stiches on the needles and I need to increase with 46 stiches. 128 divided by 46 is 2,78. So how often do i add a new stich? After every 2nd stich? Please advise. Thank you
01.12.2021 - 18:12DROPS Design svaraði:
Dear Adriana, read more about how to increase evenly here, ie increase approximately after alternately every 2nd and 3rd stitch, make sure you are increasing the correct number of stitches (and not too many). Happy knitting!
02.12.2021 - 08:48
Piera skrifaði:
Mi piacerebbe molto fare questo modello per mio marito, però avrei bisogno di farlo con il collo un po' meno accollato perchè purtroppo a mio marito danno molto fastidio i maglioni o le magliette accollate. Come potrei fare? Grazie per l'attenzione Piera
16.09.2021 - 14:22DROPS Design svaraði:
Buongiorno Piera, per un'assistenza così personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
17.09.2021 - 10:03
Atlanterhavsveien#atlanterhavsveiensweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki, norrænu mynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 224-9 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-92-96-100-104 lykkjur á hringprjón 5 með litnum ljós grár í DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 9-9-9-11-11-11 cm. Kantur í hálsi er síðar brotinn saman tvöfaldur og við frágang verður hann ca 4-4-4-5-5-5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-30-30-32-34-34 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 112-118-122-128-134-138 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi). Prjónið berustykkið eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3-3-4-4-4-4 cm, aukið út um 36-38-42-46-46-50 lykkjur jafnt yfir - munið eftir ÚTAUKNING = 148-156-164-174-180-188 lykkjur. Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-8-8 cm, aukið út um 32-36-40-42-42-46 lykkjur jafnt yfir = 180-192-204-216-222-234 lykkjur. Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm, prjónið A.1 hringinn (= 30-32-34-36-37-39 mynstureiningar með 6 lykkjum). JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan. Sjá LEIÐBEININGAR, munið eftir ÚTAUKNING og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Ör-1: Aukið út 42-48-54-54-60-66 lykkjur jafnt yfir = 222-240-258-270-282-300 lykkjur (nú er pláss fyrir 37-40-43-45-47-50 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjur). Ör-2: Aukið út 24-30-36-36-36-42 lykkjur jafnt yfir = 246-270-294-306-318-342 lykkjur (nú er pláss fyrir 41-45-49-51-53-57 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjur). Ör-3: Aukið út 10-10-10-18-22-30 lykkjur jafnt yfir = 256-280-304-324-340-372 lykkjur. Prjónið sléttprjón án útaukningar með litnum grár þar til stykkið mælist 20-24-26-26-28-30 cm frá prjónamerki við háls. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 52-58-64-66-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir næstu 76-82-88-96-102-114 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 52-58-64-66-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið sléttprjón yfir síðustu 76-82-88-96-102-114 lykkjur (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-176-192-208-224-248 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru mitt undir hvorri ermi = 82-88-96-104-112-124 lykkjur á milli prjónamerkja. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, prjónamerkin eru notuð þegar fækka á lykkjum í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón (með litnum ljós grár) fram að fyrsta prjónamerki. Umferðin byrjar nú við þetta prjónamerki. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 6-6-6-7-7-7 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 6-6-6-7-7-7 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3 sinnum í hvorri hlið = 148-160-176-196-212-236 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 30 cm frá skiptingu í öllum stærðum. Nú eru eftir ca 6-6-6-7-7-7 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi stykkið saman eru nú lykkjur auknar út eins og útskýrt er að neðan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-32-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 176-192-212-236-256-284 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6-6-6-7-7-7 cm . Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 52-58-64-66-68-72 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi með litnum ljós grár = 58-64-72-74-78-82 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós grár. Þegar stykkið mælist 3-3-2-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3-2½-2½-2-2 cm millibili alls 9-11-14-14-15-16 sinnum = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 39-38-36-35-34-32 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6-6-6-7-7-7 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-10-8-10-12-10 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 48-52-52-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6-6-6-7-7-7 cm . Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 45-44-42-42-41-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffi í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #atlanterhavsveiensweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 224-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.