Katarzyna skrifaði:
Robię rozmiar XL. Po oddzieleniu dekoldu i umieszczeniu markerów nie znajdują się one pomiędzy dwoma oczkami prawymi (2 razy między prawymi i 2 razy między lewymi). Jak w takim razie wyrabiać reglan skoro w środku maja być 2 prawe oczka
14.04.2022 - 20:51DROPS Design svaraði:
Witaj Kasiu, po wykonaniu golfu, dalsza część swetra jest już przerabiana dżersejem prawym, wykonujesz reglan w wyznaczonych miejscach (wg wzoru). I może się zdarzyć, że linia reglanu nie jest przedłużeniem oczek prawych ściągacza (patrz zdjęcie). Miłej pracy!
15.04.2022 - 09:24
Fabiana skrifaði:
Come fisso i fili che sono rimasti liberi dopo aver ripreso le maniche?
22.12.2021 - 08:12DROPS Design svaraði:
Buonasera Fabiana, i fili liberi verranno fissati come gli altri fili alla fine del lavoro. Buon lavoro!
26.12.2021 - 22:57
Fausto skrifaði:
Alla fine del corpo c'è scritto di fare degli aumenti su un solo giro, prima di iniziare le coste. Ma nella spiegazione gli aumenti si fanno su due giri ( gettati sul primo e dritti ritorti sul secondo). Come devo fare? Grazie
18.12.2021 - 23:58DROPS Design svaraði:
Buongiorno Fausto, si eaatto, su un ferro lavora gli aumenti e su quello successivo li lavora a ritorto: gli aumenti servono per preparare la lavorazione del bordo a coste. Buon lavoro!
20.12.2021 - 08:18
Rosita skrifaði:
Buonasera, vorrei realizzare questo modello (tg.l)ma con un filato diverso, il filato karisma, che però si lavora con i ferri più piccoli,quindi non so come regolarmi sia per la taglia a cui fare riferimento,sia per la quantità necessaria di filato che mi occorrerebbe, grazie
16.11.2021 - 21:17DROPS Design svaraði:
Buonasera Rosita, provi a guardare questa lezione su come maneggiare i filati alternativi. Buon lavoro!
16.11.2021 - 22:03
MAURA skrifaði:
Non so lavorare con i ferri circolari, sarebbe possibile avere una breve spiegazione per lavorare con i ferri dritti?
29.09.2021 - 18:07DROPS Design svaraði:
Buonasera Maura, questo modello è stato progettato per essere lavorato in tondo: può adattarlo se preferisce, alla lavorazione in piano aggiungendo una maglia di vivagno per la cucitura. Buon lavoro!
07.10.2021 - 00:16
River Moss#rivermosssweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með háum kraga fyrir herra úr DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 224-3 |
|
------------------------------------------------------ UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING / ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 7,5. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca 6. og 7. hver lykkja og 7. og 8. hver lykkja slétt saman. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum og í hlið á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjón og ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 60-60-64-64-68-72 lykkjur á stuttan hringprjón 7 með DROPS Wish. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 9 cm. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á stuttan hringprjón 8 (skipt er yfir í lengri hringprjón þegar nægilega margar lykkjur eru á prjóni). Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 8-4-4-0-0-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING / ÚRTAKA = 52-56-60-64-68-68 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið hér – héðan er nú stykkið mælt. Setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Teljið 8-9-10-11-12-12 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki hér, teljið 10 lykkjur (= ermi) og setjið eitt nýtt prjónamerki hér, teljið 16-18-20-22-24-24 lykkjur (= framstykki) og setjið eitt prjónamerki hér, teljið 10 lykkjur (= ermi) og setjið eitt prjónamerki hér. Nú eru eftir 8-9-10-11-12-12 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki og fram að byrjun á umferð (= hálft bakstykki). Prjónið síðan sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 14-16-17-17-19-21 sinnum = 164-184-196-200-220-236 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið sléttprjón án útaukningar þar til stykkið mælist 22-24-25-26-27-28 cm frá prjónamerki á eftir kanti í hálsi. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki er prjónað þannig: Prjónið yfir fyrstu 25-27-29-30-34-37 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 32-38-40-40-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið yfir næstu 50-54-58-60-68-74 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 32-38-40-40-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 25-27-29-30-34-37 lykkjur í umferð (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 108-116-124-132-148-160 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist ca 5 cm frá skiptingu. Nú er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 9-9-5-10-5-7 cm millibili alls 2-2-3-2-2-2 sinnum = 100-108-112-124-140-152 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 30-30-31-32-33-34 cm frá skiptingu (nú eru eftir 6 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-12-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 108-120-124-136-152-164 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 6 cm. Sjá AFFELLING og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 32-38-40-40-42-44 lykkjur frá öðrum þræðinum á stuttan hringprjón 8 (skipt er yfir á sokkaprjóna þegar lykkjum hefur fækkað). Prjónið upp 1 nýja lykkju í hverja af 4-4-4-6-6-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið á fram- og bakstykki = 36-42-44-46-48-50 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist ca 2 cm frá skiptingu. Nú er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 6-4-4-3½-4-5 cm millibili alls 4-6-6-7-6-5 sinnum = 28-30-32-32-36-40 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 40-39-38-38-38-38 cm frá skiptingu (nú eru eftir 6 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-2-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 32-32-36-36-40-44 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 6 cm. Ermin mælist ca 46-45-44-44-44-44 cm frá skiptingu. Sjá AFFELLING og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rivermosssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 224-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.