Helen Stenman skrifaði:
Hej nu är jag klar med min black forest kofta. En fråga till bara.. ska jag blocka den eller bara lägga den med fuktig duk över? Mvh Hrlén
14.06.2026 - 21:34DROPS Design svaraði:
Hei Helen. Om du føler at du må vaske den før bruk, kan du vaske den etter garnets vaskeanvisning. Om du blocker den, så pass på at ikke bladmönster blir strukket og flate. mvh DROPS Design
15.06.2026 - 08:08
Helen Stenman skrifaði:
Tusen tack för all hjälp. Fantastiskt att ni har denna service🤗
22.05.2026 - 13:25
Helen Stenman skrifaði:
Hej, jag skulle bli så glad om ni kan besvara min fråga jag ställde igår, angående om man räknar 45 maskor till första markeringen, för raglan med de första 5 framkantsmaskorna inräknade? Eller först sticka de 5 framkantsmaskorna o sedan räkna 45 maskor tii första markeringen??
22.05.2026 - 11:03DROPS Design svaraði:
Hej Helen. Du räknar 45 maskor inklusive de första 5 framkantsmaskorna. Mvh DROPS Design
22.05.2026 - 11:33
Helén Stenman skrifaði:
Hej igen En fråga angående raglan srtl XL. När man ska sätta de 4 markörerna, Räknar man de 45 m inklusive de 5 framkantsmaskorna till första markören? Eller är det 5 framkantsmaskor och 45 m till första markören och då blir det 50 m Mvh Helén Jag har räknat 45 m inklusive 5 framkantsmaskor till första markören.
21.05.2026 - 20:25
Helén Stenman skrifaði:
Hej, nu har jag gjort diagrammet klart på black forest memories kofta, strl XL. Behöver hjälp m raglan. Det står så här..Samtidigt på första v ökar man i XL 0 ggr på höjden och vad menas m höjden? Och sedan vart 4de v 5 ggr. (Står inget om höjden då) Ska jag då på strl XL börja med att öka vart 4de v och strunta i vart annat v 0 ggr på höjden? Vill inte behöva dra upp, om jag gör fel då garnet är lite lurvigt.😁 Mvh Helén
21.05.2026 - 10:20DROPS Design svaraði:
Hej Helen, ja det stemmer, du har 273 m øger på hver 4:e varv totalt 5 ggr (i höjden...) = (8x5=40m) 273+40=313 maskor :)
21.05.2026 - 10:50
Helén Stenman skrifaði:
Hej, jag har gjort halskant o knapphål o ska börja på oket o ska följa diagram A 2 L Börjar man m avig följt m omsl, en räta ett oms en avig o en rät. Fortsätter tills 8m o gör A3 avig, omsl, rät, omslag avig o 5 kantm. Hur gör jag när jag stickar tillbaks och hur ökar jag? Ska jag öka en m före A2 början och hur då? Hur stickar jag avigvarvet efter det första. Har ni inte en enklare förklaring på mönstret. Behöver hjälp att förstå mönstret
04.05.2026 - 13:12DROPS Design svaraði:
Hei Helén. Du har 93 masker, strikk 5 framkantsmaskor i rätstickning, så strikkes det etter diagram A.2 (= avig följt m omsl, en räta ett oms en avig o en rät). Gjenta dette totalt 20 ganger = det er nå strikket over 85 masker. Strikk deretter etter A.3 (= avig följt m omsl, en räta ett oms en avig) + 5 framkantsmaskor i rätstickning = det er nå strikket over 93 masker og økt med 42 masker/omslag. Fra avigsidan: Stick omslagene vridet rätt (det ska inte bli hål. På pinne 3-4 økes det ikke, men på pinne 5 økes det igjen - Husk: Les diagramteksten på hvordan det økes. mvh DROPS Design
04.05.2026 - 13:55
Elisabeth S skrifaði:
Hej Jeg er lige begyndy på cardigan og jeg forstår ikke helt forklaringenp å diagrammerne ...jeg strikker str. L..Diagram A 3 er det vrangpinden ? og A 2 er Retsiden..? Venlig hilsen Elisabeth
27.01.2025 - 10:47DROPS Design svaraði:
Hei Elisabeth. Nei. Jakken strikkes ovenfra og ned og når du starter med bærestykket strikker du 5 stolpemasker + strikk A.2 20 ganger (start nederst til høyre på diagrammet) + strikk diagram A.3 + strikk 5 stolpemasker = 93 masker + 42 kast. Snu arbeidet og strikk fra vrangen og 2. pinne i diagrammene (blank rute = vrang, rute med strek = rett). Kastene strikkes vridd rett (det skal ikke bli hull). Nå leser du diagrammene fra venstre mot høyre. Les mer om hvordan diagrammer strikkes under TIPS & HJELP - DROPS Leksjoner - Les en oppskrift - Hvordan lese strikkediagrammer. mvh DROPS Design
27.01.2025 - 14:22
Rosa skrifaði:
Hvis vi tager str. S som eksempel. I halskanten står der at man skal slå 85 masker op, inklusive 5 kantmasker i hver side. Vil det sige at man skal slå 95 masker op i alt?
07.04.2024 - 18:47DROPS Design svaraði:
Hej Rosa. De 5 kantmasker er inkluderet (medregnet) i de 85 masker :)
09.04.2024 - 11:06
Marianne Marianne Mogensen skrifaði:
Hej, er kommet til bærestykket, str. XXL, har strikket A2 rapporter a 4 masker afsluttet med A1 (med udtagninger i alt 6 m pr rapport) Så står der: strik A3 rapporter 3 m ? er det fra retsiden, eller starter mønster A3 fra vrang-siden ? er lidt forvirret over forklaringen
22.01.2023 - 12:44DROPS Design svaraði:
Hei Marianne. Litt usikker på hva du mener med "afsluttet med A1". Om du strikker Bærestykket skal ikke A.1 strikkes (A.1 strikkes kun ved halskant), men du skal avslutte med A.3. mvh DROPS Design
23.01.2023 - 14:12
MARIE JOSE GALERAND skrifaði:
J'ai un problème avec le diagramme. Est-ce que l'on fait A3 seulement à la fin des rangs ou bien A2 et A3 tout le long du rang Merci
23.10.2022 - 17:40DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Galerand, vous répétez A.2 sur l'endroit jusqu'à ce qu'il reste 8 mailles et terminez par A.3 + les 5 m de bordure devant, et sur l'envers, vous commencez par A.3 (lisez les diagrammes de gauche à droite) et répétez A.2. Bon tricot!
24.10.2022 - 09:16
Blackforest Memories Cardigan#blackforestmemoriescardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, laskalínu og blaðamynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 226-4 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2 og A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 199 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 189 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 31,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 31. og 32. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis 30. og 31. hver lykkja og 31. og 32. hver lykkja slétt saman. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í – í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 2 síðustu lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9½-10-8½-9-9½-9½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 85-89-93-97-101-105 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 4 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð (= 18-19-20-21-22-23 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið 3 fyrstu lykkjurnar í A.1 (þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins í hvorri hlið) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan og endið eftir 1 umferð frá röngu. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð (= 18-19-20-21-22-23 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.3 (= 3 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.2 og A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 199-209-219-273-285-297 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 10-10-10-15-15-15 cm frá prjónamerki við hálsmál. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í fyrstu umferð eru auknar út 6-4-2-0-4-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 205-213-221-273-289-301 lykkjur. Nú eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Þessi prjónamerki eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu og prjónamerkin eru sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar: Teljið 35-37-38-45-49-52 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 36-36-38-50-50-50 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 59-63-65-79-87-93 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 36-36-38-50-50-50 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 35-37-38-45-49-52 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= framstykki). Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 0-2-3-0-2-3 sinnum á hæðina og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 5-5-5-5-4-5 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 245-269-285-313-337-365 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón án útaukningar með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til berustykkið mælist 20-22-24-25-27-29 cm frá prjónamerki við hálsmál. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 40-44-46-50-55-60 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 69-77-81-89-99-109 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 48-52-56-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 40-44-46-50-55-60 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 165-181-193-209-233-253 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 27 cm frá skiptingu í öllum stærðum. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú á að auka út lykkjum til að stroffið sem prjóna á síðar dragi ekki stykkið saman. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 24-28-28-32-36-38 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 189-209-221-241-269-291 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 48-52-56-62-64-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-60-66-72-76-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi – þ.e.a.s. mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi -sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3 cm millibili alls 3-3-3-4-4-4 sinnum á hæðina = 50-54-60-64-68-72 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 38-36-34-35-33-32 cm frá skiptingu (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-14-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 38-40-42-44-46-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLIN! Ermin mælist ca 44-42-40-40-39-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blackforestmemoriescardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.