DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blackforest Memories

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, laskalínu og blaðamynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 226-3
DROPS Design: Mynstur ks-188
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-225-225-250-275-300 g litur 36, vínrauður

Eða notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
175-200-200-225-225-275 g litur 23, vínrauður

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 60 - 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 60 - 80 cm fyrir stroff.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2).

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 190 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 31,7.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 31. og 32. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis 30. og 31. hver lykkja og 31. og 32. hver lykkja slétt saman.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í – í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan A.1 hringinn (= 19-20-21-22-23-24 mynstureiningar með 4 lykkjum) í 4 cm.
Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= miðja að framan). Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið A.2 hringinn (= 19-20-21-22-23-24 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 190-200-210-264-276-288 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 10-10-10-15-15-15 cm frá prjónamerki við hálsmál.
Prjónið 2 umferðir sléttprjón og aukið jafnframt út um 6-0-2-0-4-0 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 196-200-212-264-280-288 lykkjur.
Nú eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Þessi prjónamerki eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu og prjónamerkin eru sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar:
Teljið 30-31-33-40-44-46 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 36-36-38-50-50-50 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 60-62-66-80-88-92 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 36-36-38-50-50-50 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 30-31-33-40-44-46 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= ½ bakstykki).
Prjónið sléttprjón fram hringinn.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 0-2-3-0-2-3 sinnum á hæðina og síðan í 4. hverri umferð alls 5-5-5-5-4-5 sinnum.
Á eftir síðustu útaukningu eru 236-256-276-304-328-352 lykkjur í umferð.
Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til berustykkið mælist 20-22-24-25-27-29 cm frá prjónamerki við hálsinn.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 35-38-41-45-50-54 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki) setjið næstu 48-52-56-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 70-76-82-90-100-108 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 70-76-82-90-100-108 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 156-168-184-200-224-240 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hlið á stykki – mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónið sléttprjón yfir lykkjur á bakstykki fram að prjónamerki í hlið – umferðin byrjar nú við prjónamerkið. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 27 cm frá skiptingu í öllum stærðum.
Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Nú á að auka út lykkjum til að stroffið sem prjóna á síðar dragi ekki stykkið saman.
Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 24-26-28-30-34-36 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 180-194-212-230-258-276 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð í hring (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 48-52-56-62-64-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-60-66-72-76-80 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi – þ.e.a.s. mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi -sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3 cm millibili alls 3-3-3-4-4-4 sinnum á hæðina = 50-54-60-64-68-72 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-36-34-35-33-32 cm frá skiptingu (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis).
Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-14-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 38-40-42-44-46-48 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLIN! Ermin mælist ca 43-42-40-40-39-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja

symbols = í lykkjuna fyrir neðan þessa lykkju er prjónuð 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= 4 lykkjur fleiri)
symbols = prjónið 5 lykkjur sléttprjón

symbols = prjónið 5 lykkjur snúnar slétt saman (= 4 lykkjur færri)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið (það eiga ekki að myndast göt)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Maja E wrote:

Hello, this is a lovely sweater. Was the kid-silk used for the modeled sweater, or was it the brushed alpaca silk? Thank you.

19.11.2023 - 19:30

DROPS Design answered:

Dear Maja, Kid-Silk was used for the pattern in photos. Happy knitting!

20.11.2023 - 11:14

country flag Robi wrote:

Buonasera,e se volessi usare 1 filo Kid Silk e 1 Flora,come potrei fare?

07.04.2022 - 00:36

DROPS Design answered:

Buonasera Robi, deve dividere per 2 la quantità di filato di Kid-Silk e poi calcolare il metraggio che le serve per Flora. Buon lavoro!

07.04.2022 - 20:05

country flag Inmaculada wrote:

Sí en el canesú de la talla S aumenta hasta 196 puntos y luego colocamos 4 marcadores 30+36+69+36+30 = 192, sobran puntos

03.02.2022 - 19:06

DROPS Design answered:

Hola, marcapuntos estan insertados en los puntos, no entre los puntos. Saludos!

04.02.2022 - 14:26

country flag Lorena wrote:

"Dopo l’ultimo aumento ci sono 236-256-276-304-328-352 maglie sul ferro. Lavorare a maglia rasata senza aumenti, con 5 maglie per il bordo a maglia legaccio a ogni lato verso il centro davanti fino a quando il lavoro misura 20-22-24-25-27-29 cm dal segnapunti sul collo." Non ho capito questo passaggio e nelle immagini non si vedono le maglie legaccio. A quale lato si riferisce? verso il centro cosa significa? Grazie

30.01.2022 - 20:06

DROPS Design answered:

Buonasera Lorena, grazie per la segnalazione, abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!

31.01.2022 - 23:36

country flag Myriam DEVAUCHELLE wrote:

Merci beaucoup de votre réponse, j'ai bien compris cette fois

19.11.2021 - 09:32

country flag Myriam DEVAUCHELLE wrote:

Je fais la taille L. pour les raglans, selon vos explications, je comprends que de chaque côté des marqueurs j'augmente au total de 8 mailles, (3 tous les 2 tours et 5 tous les 4 tours) soit 16 mailles 4 fois ( 16 par marqueur), puisque 4 marqueurs. mais faut il bouger les marqueurs de place à chaque fois qu'on augmente?

18.11.2021 - 11:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Devauchelle, vous augmentez 8 mailles à chaque fois (2 pour chaque manche, pour le devant et le dos) - cf RAGLAN soit: 3 x tous les 2 tours + 5 x tous les 4 tours soit 3x8 m + 5 x 8 m = 212 m (après le motif) + 24 + 40=276 m. Faites bien suivre le marqueur à chaque fois pour que les augmentations soient toujours faites de chaque côté de la maille avec un marqueur. Bon tricot!

18.11.2021 - 17:13

country flag GILLIOT wrote:

Bonjour. pourriez vous me confirmer que pour le debut de l'empiecement je fais bien un tour de la premiere rangee ( je repete les 4 mailles)du diagramme A2 puis je continue le diagramme comme indique? merci de votre retour

16.11.2021 - 09:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gilliot, effectivement, pour l'empiècement, vous tricotez A.2 en répétant ces 4 mailles et en augmentant surtout comme indiqué dans le diagramme (au 1er rang, on augmente 2 mailles dans chaque A.2 = on aura 6 mailles dans chaque A.2 à la fin de ce 1er rang) - je ne suis juste pas sûre de bien comprendre votre formulation, en espérant avoir pu vous aider, sinon ,n'hésitez pas à reformuler, merci d'avance. Bon tricot!

16.11.2021 - 09:17

country flag Fina wrote:

Zie eerdere opmerking/vraag

19.10.2021 - 10:46

country flag Fina wrote:

Ik wil dit patroon, blackforest memories, graag breien met 1 draad alpaca en 1 draad kid silk in maat XL. Kunt u voor mij uitrekenen hoeveel wol ik van beide moet bestellen, ik kom er niet uit met de omrekentabel. Vrgr Fina

19.10.2021 - 10:44

DROPS Design answered:

Dag Fina,

In dat geval kun je DROPS Brushed Alpaca Silk invoeren bij 'te vervangen garen' in de garenvervanger. Bij de hoeveelheid geef je 225 gram op en 1 draad. De aangegeven hoeveelheden Kid-Silk en Flora kun je beide door de helft doen en vervolgens naar boven afronden. (Omdat Alpaca er niet bij staat in de resultaten heb ik Flora genomen omdat dit het meest in de buurt komt, dit vervang je dus één op één door Alpaca). Maak wel even een proeflapje en pas eventueel de naalddikte aan voor de juiste stekenverhouding.

19.10.2021 - 15:10

country flag Josephina wrote:

Kan ik dit patroon ook breien van 2 draden drops alpaca, of wordt het dan te dik of te zwaar. Of is 1 draad nepal of 1 draad air beter. Vrgr Josephina

25.09.2021 - 20:50

DROPS Design answered:

Dag Josephina,

Ja, dat kan prima. 2 draden DROPS alpaca komt overeen met een garendikte uit garengroep C. Maak wel eerst even een proeflapje en pas eventueel de naalddikte aan zodat de stekenverhouding klopt.

02.10.2021 - 12:50