Helga Eitel skrifaði:
Ich habe sehr viel Safran-Wolle und würde gerne diesen Pullunder stricken. Geht das? Vielleicht mit 2 Fäden? Muskat-Wolle habe ich ebenso viel übrig. Gibt es da eine Möglichkeit zur Verwendung für diese Anleitung? Ich freue mich über eine Antwort. Helga Eitel
06.08.2022 - 09:19DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Eitel, Safran gehört der Garngruppe A und ist für Sky (Garngruppe B) keine Alternative; aber Muskat könnte gerne passen (ist auch Garngruppe B), benutzen Sie den Garnumrechner um die neuen Garnmenge kalkulieren zu lassen - beachten Sie nur, daß Ihre Maschenprobe stimmt. Viel Spaß beim stricken!
08.08.2022 - 08:27
Rannveig Björnsdóttir skrifaði:
Hæ Ætla prjóna uppskrift “DROPS Design: Mynstur sk-145” vesti sem prjónað er í stykkjum Ætla að prjóna það allt í sléttprjóni. Get ég prjónað það í hring ? Kemur það eins út ?
06.05.2022 - 14:52DROPS Design svaraði:
Blessuð Rannveig. Það ætti alveg að ganga að prjóna vestið í hring upp að handvegi ef þú ætlar að sleppa klauf í hliðum. Gangi þér vel.
09.05.2022 - 11:20
Christine skrifaði:
May you explain this part, I am confused: bind off for the armholes at the beginning of each row as follows: 3 stitches 1 time, 2 stitches 2-2-2-3-3-3 times on each side = 80-88-96-102-114-128 stitches. Then decrease 1 stitch on each side 8-11-14-16-21-27 times – read DECREASE TIP-2 = 64-66-68-70-72-74 stitches.
02.05.2022 - 17:58DROPS Design svaraði:
Dear Christine, you will now cast off at the beginning of every row on each side 3 sts 1 time = 3 sts at the beg of next 2 rows, then 2 sts 2 or 3 times = 2 sts at the beg of next 4 or 6 rows - Decrease now 1 stitch on each side on every RS row a total of 8 to 27 times (see size). Happy knitting!
03.05.2022 - 09:01
Sdenc skrifaði:
En el diagrama y la explicación escrita, presentan varios números seguidos … corresponde a el número de puNtos de acuerdo a las tallas ?? SML ??
29.03.2022 - 13:12DROPS Design svaraði:
Hola Sdenc. efectivamente, cada número se corresponde a una talla. Esta lección te ayudará a resolver tus dudas sobre las tallas: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=24&cid=23
29.03.2022 - 20:35
Åse skrifaði:
Hei! Jeg vil gjerne lage denne i XS. Jeg begynte med S, men den ser veldig stor ut. Har dere maskeantall til XS eller hvordan kan jeg enklest regne ut det?
23.03.2022 - 21:53
Karin skrifaði:
Hallo, welche anschlag und abkett variante würdet ihr hier empfehlen? Besten Dank
29.12.2021 - 17:31
Annegret Schlipf skrifaði:
Es wäre schön, wenn Sie bei der Anleitung hinzufügen, welche Größe das Kleidungsstück hat, welches das Model trägt. Z. B, das Model hat Größe 36 und trägt hier ein Kleidungsstück in Größe 40. Dann könnte man sich ein besseres Bild machen, wie das Strickstück ausfällt. Ich hätte meines dann eine Nummer größer gestrickt. Etwas ärgerlich Ansonsten bin ich sehr zufrieden mit euren Anleitungen, vielen Dank
15.12.2021 - 09:41DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Schlipf, um die beste passende Größe zu finden, messen Sie eine ähnliche Kleidung, die Sie gerne haben und vergleichen Sie mit den Maßen in der Skizze. Mehr lesen Sie noch hier. Viel Spaß beim stricken!
15.12.2021 - 11:51
Anne Vikkelsø Rasmussen skrifaði:
Den ser dejlig nem ud.
09.11.2021 - 05:43
Joyce skrifaði:
Beste mensen , Ik wil bij dit patroon Drops Cotton Merino wol gebruiken heb 10 bolletjes al in huis..hoeveel bollen van dit garen heb ik nodig bij dit truitje in XL maat? Kom er niet echt uit namelijk..met vriendelijke groeten, Joyce.
12.10.2021 - 01:00DROPS Design svaraði:
Dag Joyce,
Hiervoor kun je eenvoudig de garenvervanger gebruiken. Hiervan vindt je een link onderaan de materialenlijst bij het patroon. We hebben daarnaast ook een artikel op de site staan waarin uitgelegd is hoe je garen kunt vervangen met een ander garen en hoe je dit uitrekent. Zie hier.
13.10.2021 - 08:05
Hilde skrifaði:
Kan dit ook met 2 naalden gebreid worden ipv een rondbreinaald? Of is er een specifieke reden voor het gebruik van een rondbreinaald?
10.10.2021 - 09:44DROPS Design svaraði:
Dag Hilde,
Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.
13.10.2021 - 08:50
Sky so Blue#skysoblueslipover |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með köntum í stroffprjóni og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-53 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 118 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 4,9. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um handveg): Lykkjum er fækkað að innanverðu við 2 lykkjur. Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 síðustu lykkjurnar slétt. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Vegna fjölda lykkja er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp fyrir kant í stroffprjóni í kringum handvegi og í hálsmál. BAKSTYKKI: Fitjið upp 118-130-138-150-166-182 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 24-28-28-30-34-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 94-102-110-120-132-146 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum = 80-88-96-102-114-128 lykkjur. Fækkið síðan um 1 lykkju í hvorri hlið 8-11-14-16-21-27 sinnum – sjá ÚRTAKA-2 = 64-66-68-70-72-74 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 34-34-36-36-38-38 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 14-15-15-16-16-17 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, stykkið mælist nú 25-26-27-28-29-30 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handvegi. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 118-130-138-150-166-182 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 24-28-28-30-34-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 94-102-110-120-132-146 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum = 80-88-96-102-114-128 lykkjur. Fækkið síðan um 1 lykkju í hvorri hlið 8-11-14-16-21-27 sinnum – sjá ÚRTAKA-2 = 64-66-68-70-72-74 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, setjið miðju 28-28-30-30-32-32 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 14-15-15-16-16-17 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, stykkið mælist nú 25-26-27-28-29-30 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handvegi. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Byrjið undir ermi og saumið hliðarsauma innan við kantlykkju – skiljið eftir ca 6 cm fyrir klauf. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við annan axlasauminn. Prjónið upp með stuttum hringprjón 3,5 ca 100 til 120 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) innan við 1 lykkju í kringum allt opið í hálsmáli (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið frá réttu við hliðarsauminn undir handvegi. Notið stuttan hringprjón 3,5 og prjónið upp ca 124 til 152 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #skysoblueslipover eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-53
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.