DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Sky yarn
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1470.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4410.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Sky so Blue

Prjónað vesti / slipover úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með köntum í stroffprjóni og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 227-53

#skysoblueslipover

DROPS Design: Mynstur sk-145
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-200-200-200-250-250 g litur 15, vatnsblár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1470.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4410.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) :
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 118 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 4,9. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um handveg):
Lykkjum er fækkað að innanverðu við 2 lykkjur. Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig:
Prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 síðustu lykkjurnar slétt.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Vegna fjölda lykkja er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp fyrir kant í stroffprjóni í kringum handvegi og í hálsmál.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 118-130-138-150-166-182 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 24-28-28-30-34-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 94-102-110-120-132-146 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum = 80-88-96-102-114-128 lykkjur. Fækkið síðan um 1 lykkju í hvorri hlið 8-11-14-16-21-27 sinnum – sjá ÚRTAKA-2 = 64-66-68-70-72-74 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 34-34-36-36-38-38 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 14-15-15-16-16-17 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, stykkið mælist nú 25-26-27-28-29-30 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handvegi. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 118-130-138-150-166-182 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 24-28-28-30-34-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 94-102-110-120-132-146 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum = 80-88-96-102-114-128 lykkjur. Fækkið síðan um 1 lykkju í hvorri hlið 8-11-14-16-21-27 sinnum – sjá ÚRTAKA-2 = 64-66-68-70-72-74 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, setjið miðju 28-28-30-30-32-32 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 14-15-15-16-16-17 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, stykkið mælist nú 25-26-27-28-29-30 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handvegi. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Byrjið undir ermi og saumið hliðarsauma innan við kantlykkju – skiljið eftir ca 6 cm fyrir klauf. Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu við annan axlasauminn. Prjónið upp með stuttum hringprjón 3,5 ca 100 til 120 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) innan við 1 lykkju í kringum allt opið í hálsmáli (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.

KANTUR Í HANDVEGI:
Byrjið frá réttu við hliðarsauminn undir handvegi. Notið stuttan hringprjón 3,5 og prjónið upp ca 124 til 152 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 227-53

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #skysoblueslipover eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-53

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Jolanda skrifaði:

Is het mogelijk om dit patroon rond te breien? Ik heb voor dit patroon gekozen omdat ik Sky garen heb gekocht. Hartelijk bedankt voor uw reactie.

06.04.2025 - 19:16

DROPS Design svaraði:

Dag Jolanda,

Je kunt het voor- en achterpand in inderdaad in de rondte breien, daarvoor zet je het totaal aantal steken op minus de kantsteken. (Elk pand heeft een kantsteek aan beide kanten.) Vanaf de armsgaten zul je dan wel weer het werk heen en weer moeten breien.

09.04.2025 - 10:45

country flag Helen skrifaði:

Om jag vill byta från Sky till Soft tweed i västen Sky so blue, är det något särskilt jag behöver tänka på? Båda är i grangrupp B.

21.01.2025 - 19:00

DROPS Design svaraði:

Hej Helen, nej ikke ud over at du skal bruge lidt mere garn, prøv vores garnkalkulator :)

24.01.2025 - 09:47

country flag Mate skrifaði:

Descrizione con ferri lineari per chi non usa certi circolari ..

18.11.2024 - 13:45

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Mate, questo modello è lavorato in piano, quindi può utilizzare anche i ferri dritti. Buon lavoro!

20.11.2024 - 07:59

country flag Barbara skrifaði:

Sorry, das verstehe ich nicht: Rückenteil Armausschnitt: Ich habe zunächst in Gr. M 102 M, muss auf 88 M abnehmen. D. h. ich muss an jeder Seite 7 Maschen abnehmen. In der Anleitung steht „3 Maschen je 1 x beidseitig und dann 2 Maschen je 2-2-2-3-3-3 x beidseitig“. Wie soll das gehen? Was heißt je 2-2-2-3-3-3? Jede 2. bzw. jede 3. Reihe? Wenn ich einmal 3 und 6 mal 2 Maschen pro Seite abnehme komme ich auf 30 abgenommene Maschen.

24.10.2024 - 20:43

DROPS Design svaraði:

Liebe Barbara, in M wird man 3 Maschen beidseitig abketten, dann 2 Maschen 2 Mal beidseitig abketten so hat man: 102 Maschen - (3 M x 2 Seiten) - (2 Maschen x 2 Seiten x 2 Mal) = 88 Maschen übrig. Viel Spaß beim Stricken!

25.10.2024 - 08:03

country flag Nanett skrifaði:

Hvad str har modellen på? Mvh Nanett

11.10.2024 - 15:08

DROPS Design svaraði:

Hei Nanett. Str S eller M. Men for å finne den beste passform til deg/den som skal ha vesten, se målene i målskissen og deretter velg str. mvh DROPS Design

15.10.2024 - 14:30

country flag Sandra Van Loggerenberg skrifaði:

In the pattern for the neck the instruction is: knit up to 100 to 120 sts around the neck INSIDE 1 STITCH. Please explain what thus means. Many thanks.

11.08.2024 - 15:47

DROPS Design svaraði:

Dear Sandra, this means to pick up sts inside the 1 edge stitch of the edges. You can find a video on this here: https://www.garnstudio.com/video.php?id=59&lang=en. The number of stitches should be divisible by 4 (for the rib) and between 100 and 120 sts. You can choose how many depending on the desired width of the neck. Happy knitting!

11.08.2024 - 23:57

country flag Lena skrifaði:

Tar tillbaka frågan: jag blandade ihop maska av med minska 😂

06.07.2024 - 14:39

country flag Lena skrifaði:

Vid avmaskning för ärmhålen står det att man ska ”sticka 2 rätmaskor, lyft 1 maska av stickan…”. Då får man 2 maskor ” över” i kanten innan ärmhålen. Är det meningen?

06.07.2024 - 13:22

DROPS Design svaraði:

Hei Lena. I begynnelsen av pinnen strikker du 2 masker rett, så feller du 1 maske ( lyft 1 maska av stickan som om den skulle stickas rät, sticka nästa maska rät, drag den lyfta maskan över maskan som stickades). Du vil dermed ha "2 kantmasker" før du feller 1 maske. På slutten av pinnen når det gjenstår 4 masker, strikkes 2 masker rett sammen (=1 maske felt) og deretter strikkes de 2 siste maskene rett = 2 "kantmasker". mvh DROPS Design

09.07.2024 - 08:45

country flag Sandra Van Loggerenberg skrifaði:

The pattern states : cast off on EACH row to begin the sleeves but decrease tip 2 states that all decreases are worked on the right side. They seem to contradict one another. Please help.

13.06.2024 - 06:18

DROPS Design svaraði:

Hi Sandra, Casting off and decreasing are 2 different techniques. The casting off is for the bottom of the armholes, then the decreases shape the back and front pieces. Hope this helps and happy knitting!

13.06.2024 - 06:38

country flag Sandra Van Loggerenberg skrifaði:

I do not understand whether I must cast off only on the right side of the knitting ie every alternate row. Or whether I cast off on every row . Decrease tip 2 is difficult to understand. Please help. I am stuck.

12.06.2024 - 16:47

DROPS Design svaraði:

Dear Sandra, the pattern specifically stated, that all decreases should be done form the right side. Happy Knitting!

13.06.2024 - 01:33