Barbara skrifaði:
Hallo, ich habe keine Schnittzeichnung gefunden, würde mir sehr helfen weil ich ein anderes Garn als in der Beschreibung nehme. Danke schön.
20.10.2022 - 18:31DROPS Design svaraði:
Liebe Barbara, eine Maßskizze finden Sie nach der schriftlichen Anleitung, zusammen mit den beiden Diagrammen A.1 und A.2 - Hier lesen Sie mehr über Maßskizze. Viel Spaß beim stricken!
21.10.2022 - 08:25
Sonia Gómez skrifaði:
Donde está el diagrama A. 1 y A. 2?
06.10.2022 - 11:18DROPS Design svaraði:
Hola Sonia, los diagramas están bajo la manga en el esquema del jersey.
06.10.2022 - 13:52
Lara skrifaði:
Buonasera, dopo i 18 cm. del collo dite che bisogna risvoltare il lavoro ma poi si continua così fino alla fine del maglione? non vedo che scrivete di risvoltare nuovamente. Grazie!
07.09.2022 - 16:57DROPS Design svaraði:
Buonasera Lara, esatto, deve risvoltare dopo il collo e poi procedere come indicato. Buon lavoro!
08.09.2022 - 21:05
Apple skrifaði:
Hello! The instructions for the neck says that once you reach 7.5", you should turn your work so that the right side becomes the wrong side. Does this mean that at 7.5" I should swap and begin purling the twisted knit stitches, and using twisted knit on the purl stitches? Or is this referring to something else? Thank you for the help
03.09.2022 - 00:49DROPS Design svaraði:
Dear Apple, yes, you need to purl over the twisted knit stitches in the previous row and work twisted knit over the purl stitches. Happy knitting!
04.09.2022 - 22:48
Jean skrifaði:
Hi, I am knitting the large size and on the yoke it says to increase 12 stitches to total 198 but 12 stitches on top of 180 would be 192. So, how many stitches should I increase at the end of the ribbed yoke please?
16.02.2022 - 13:17DROPS Design svaraði:
Dear Jean, size L is the 4th size in this pattern, this measn you cast on 124 sts, increase 31 sts = 155 sts, then increase again 31 sts = 186 sts and now increase 12 sts = 198 sts. Hope it can help. Happy knitting!
16.02.2022 - 13:48
Ping Xu Misfeldt skrifaði:
Kan det passe at halsdelen måles til 24cm lang. Er det ikke alt for lang? Den længste rullekrave jeg har måles kun 18cm.
09.02.2022 - 22:10DROPS Design svaraði:
Hej, Jo men det er de første 18 cm som bukkes ned :)
11.02.2022 - 07:57
Isabella Ottaviani skrifaði:
Buongiorno. Sono arrivata al punto in cui inizio lo sprone.C,è scritto di aumentare in modo uniforme ogni sezione con 1 maglia a rovescio a 2 maglie a rovescio. Taglia L percio avviate 124 maglie. Significa che ad ogni rovescio devo aumentare una maglia per arrivare a 2 maglie? perchè sono 62 maglie a rovescio e alla fine degli aumnti sarebbero piu di 155 maglie . Avete gia risposto ma anche la risposta non è chiara. grazie
12.01.2022 - 09:14DROPS Design svaraði:
Buonasera Isabella, deve aumentare a sezioni alterne (ogni seconda sezione a rovescio), non in tutte le sezioni a rovescio. Buon lavoro!
12.01.2022 - 22:47
Conny Hansen skrifaði:
Hej igen Der er selvfølgelig ikke fejl i opskrift, har nu fundet den fejl jeg selv har lavet. Undskyld ulejligheden😊
07.01.2022 - 11:18
Conny Hansen skrifaði:
Hej , jeg tror der er en fejl i opskriften. Har strikket bærestykke og skal slutte med 168 masker. Derefter tages 10 masker ud. Dette giver 178 masker, i opskrift står 190 masker. Ved ikke hvordan jeg skal komme videre når det ikke passer. Kan ikke gennemskue om det passer videre i opskriften.
06.01.2022 - 21:33
Monica skrifaði:
Ho realizzato questo capo col filato da voi indicato, taglia M , e’ venuto molto bene pero’ una volta indossato lo sprone davanti si alza e forma un rigonfiamento alla base del collo. Cosa ho sbagliato? Grazie
04.01.2022 - 10:27DROPS Design svaraði:
Buonasera Monica, probabilmente ha mantenuto una lavorazione più morbida durante la lavorazione dello sprone. Buon lavoro!
04.01.2022 - 21:01
Silver Touch#silvertouchsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, háum kraga, köntum í stroffprjóni og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.
DROPS 228-44 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING: Allar útaukningar eru gerðar frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir annarri hverri brugðinni einingu. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 168 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 2) = 84. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 84. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 83. og 84. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hái kraginn og berustykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður, að klauf. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. HÁR KRAGI: Fitjið upp 108-112-120-124-132-136 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 18 cm, snúið stykkinu þannig að það sem var nú réttan á stykkinu verður rangan á stykkinu. Þetta er gert til að stroffið líti alveg eins út frá réttu þegar það er brotið síðar niður. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 24 cm frá uppfitjunarkanti er kraginn tilbúinn. BERUSTYKKI: Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT. Aukið nú aðra hverja 1 lykkju brugðið til 2 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING = 135-140-150-155-165-170 lykkjur. Þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerki, aukið út þær 1 lykkja brugðið sem eftir er til 2 lykkjur brugðið = 162-168-180-186-198-204 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8 cm frá prjónamerki, prjónið mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ XS: Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 158 lykkjur. STÆRÐ S, M, L, XL og XXL: Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-10-12-18-30 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 170-190-198-216-234 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Færið prjónamerkin hingað. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm er mynstrið prjónað þannig: Prjónið 2-0-3-2-3-2 lykkjur slétt, prjónið A.1 þar til eftir eru 1-0-2-1-3-2 lykkjur (= 31-34-37-39-42-46 mynstureiningar með 5 lykkjum), prjónið 1-0-2-1-3-2 lykkjur slétt. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 220-238-264-276-300-326 lykkjur í umferð. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 9-9-10-11-12-13 cm, prjónið mynstur þannig: Prjónið 2-0-3-2-3-2 lykkjur slétt, prjónið A.2 þar til eftir eru 1-0-2-1-3-2 lykkjur (= 31-34-37-39-42-46 mynstureiningar með 7 lykkjum), prjónið 1-0-2-1-3-2 lykkjur slétt. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 282-306-338-354-384-418 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 13-13-15-16-18-20 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 40-43-47-50-56-62 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 60-66-74-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 81-87-95-101-112-125 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-66-74-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 41-44-48-51-56-63 lykkjur (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 178-194-210-226-248-274 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist ca 19-22-22-23-23-23 cm frá skiptingu. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru eftir ca 7 cm að loka máli. Nú skiptist stykkið í hvorri hlið þannig að það verða 89-97-105-113-124-137 lykkjur fyrir framstykki og bakstykki. Prjónið síðan hvort stykki til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 12-14-16-16-17-20 lykkjur jafnt yfir, en ekki yfir ystu 2 lykkjurnar í hvorri hlið = 101-111-121-129-141-157 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið nú stroff fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin brugðið, 2 kantlykkjur í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= rétta): 2 kantlykkjur í garðaprjóni *, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin slétt, 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir snúnar sléttar lykkjur, sléttum lykkjum yfir garðaprjón og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 51-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og bakstykki – munið eftir AFFELLING. ERMI: Setjið til baka 60-66-74-76-80-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-12-12-12 nýjum lykkjum undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 4-5-5-6-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið lykkjum undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-2½-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 7-10-13-14-15-16 sinnum = 54-56-58-60-62-64 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 30-32-30-30-28-26 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru eftir ca 9 cm að loka máli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir = 62-64-68-70-72-74 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist alls 39-41-39-39-37-35 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #silvertouchsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-44
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.