DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Diamond Fire

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca eða DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, axlarsæti, klauf í hliðum og köðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 228-6
DROPS Design: Mynstur z-942
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-450-500-550-600 g litur 9026, blush

Eða notið:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-450-450-500-550 g litur 48, blush

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60-60-80-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1).

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 26) = 4,6.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður að klauf. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig að loka máli. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið laust upp 120-124-130-134-138-146 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Alpaca eða DROPS Baby Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 2,5. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 9 cm. Síðar á að brjóta kantinn saman tvöfaldan og við frágang þá verður kanturinn ca 4 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 26-26-24-24-24-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 146-150-154-158-162-166 lykkjur.
Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3.
Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti.
Fyrsta prjónamerki: Setjið fyrsta prjónamerki á undan fyrstu lykkju í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi). Síðan er byrjun á umferð alltaf við fyrsta prjónamerki.
Annað prjónamerki: Teljið 30-30-30-34-34-34 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Þriðja prjónamerki: Teljið 43-45-47-45-47-49 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Fjórða prjónamerki: Teljið 30-30-30-34-34-34 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Nú eru 43-45-47-45-47-49 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki.
Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja.

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Prjónið nú mynstur jafnframt því sem lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti eins og útskýrt er að neðan. Lestu allan kaflann áður en þú byrjar að prjóna! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
FYRSTA UMFERÐIN ER PRJÓNUÐ ÞANNIG:
Prjónið A.1 yfir axlalykkjurnar fram að 2. prjónamerki (= 30-30-30-34-34-34 lykkjur), aukið út á EFTIR 2. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2, prjónið sléttprjón yfir framstykki fram að 3. prjónamerki, aukið út á UNDAN 3. prjónamerki, prjónið A.1 yfir axlalykkjur fram að 4. prjónamerki (= 30-30-30-34-34-34 lykkjur), aukið út á EFTIR 4. prjónamerki, prjónið sléttprjón yfir bakstykki fram að fyrsta prjónamerki, aukið út á UNDAN 1. prjónamerki.
Nú hafa verið auknar út 4 lykkjur fyrir axlarsæti – lykkjur hafa verið auknar út á framstykki og á bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 24-26-28-32-34-36 sinnum = 242-254-266-286-298-310 lykkjur. Nú eru 91-97-103-109-115-121 lykkjur á framstykki / bakstykki og 30-30-30-34-34-34 lykkjur á hvorri öxl.
Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 8-8-9-10-11-11 cm eftir kant í hálsmáli.
Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING FYRIR ERMAR:
Færið hvert prjónamerki þannig að þessi 4 prjónamerki sitji nú á milli 2 lykkja þar sem ör í A.1 sýnir (= 2 prjónamerki á hvorri öxl).
Að auki er sett 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Þetta prjónamerki er ný merking fyrir byrjun á umferð, þar sem fyrsta prjónamerkið hefur verið fært til.
FYRSTA UMFERÐ ER PRJÓNUÐ ÞANNIG:
Prjónið A.2 (= 8 lykkjur – A.2 heldur áfram beint yfir kaðal í A.1), aukið út á EFTIR 1. prjónamerki, prjónið sléttprjón fram að 2. prjónamerki, aukið út á UNDAN 2. prjónamerki, prjónið A.3 (= 8 lykkjur – A.3 heldur áfram beint yfir kaðal í A.1), prjónið 1-4-1-4-1-4 lykkjur sléttprjón, A.4A (= 9 lykkjur), prjónið A.4B yfir næstu 72-72-84-84-96-96 lykkjur (= 6-6-7-7-8-8 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið A.4C (= 8 lykkjur), 1-4-1-4-1-4 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 8 lykkjur – A.2 heldur áfram beint fyrir kaðal í A.1), aukið út á EFTIR 3. prjónamerki, prjónið sléttprjón fram að 4. prjónamerki, aukið út á UNDAN 4. prjónamerki, prjónið A.3 (= 8 lykkjur – A.3 heldur áfram beint yfir kaðal í A.1), 1-4-1-4-1-4 lykkjur sléttprjón, A.4A (= 9 lykkjur), A.4B yfir næstu 72-72-84-84-96-96 lykkjur (= 6-6-7-7-8-8 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.4C (= 8 lykkjur) og endið með 1-4-1-4-1-4 lykkjur sléttprjón.
Nú hafa verið auknar út 4 lykkjur fyrir ermar. Þ.e.a.s. einungis er aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður áfram eins. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Haldið áfram með þetta mynstur og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 9-8-9-6-11-6 sinnum = 278-286-302-310-342-334 lykkjur.
Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 10-11-12-12-14-13 cm frá eftir kant í hálsmáli.
Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI:
Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjunum sitja mitt í A.2 og A.3
Í næstu umferð aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út alveg eins og áður, en nú er aukið út nákvæmlega á undan og á eftir A.2 og A.3 (þ.e.a.s. það er aukið út þegar 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki og þegar prjónaðar hafa verið 4 lykkjur á eftir prjónamerki).
Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 9-12-14-18-18-23 sinnum = 350-382-414-454-486-518 lykkjur.
Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar, mælist stykkið ca 16-18-20-23-25-28 cm frá kanti í hálsmáli.
Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 20-22-24-25-27-29 cm frá eftir kanti í hálsi – JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 8 lykkjur í umferð með því að fækka um 2 lykkjur í hverju A.2/A.3 (prjónið 4 lykkjur í sjálfum kaðlinum slétt saman 2 og 2) = 342-374-406-446-478-510 lykkjur í umferð.
Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 3-4-5-6-3-5 lykkjur á undan A.2 í byrjun á umferð, setjið næstu 68-74-82-90-94-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram með mynstur eins og áður yfir næstu 103-113-121-133-145-157 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 68-74-82-90-94-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og haldið áfram með mynstur eins og áður yfir síðustu 103-113-121-133-145-157 lykkjurnar (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 222-242-262-286-314-338 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum = 111-121-131-143-157-169 lykkjur á milli prjónamerkja. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – prjónamerkin eru notuð þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið.
Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: 11-16-15-21-22-28 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.4 eins og áður yfir næstu 89-89-101-101-113-113 lykkjur, 22-32-30-42-44-56 lykkjur sléttprjón (prjónamerkin sitja mitt í þessum lykkjum), haldið áfram með A.4 eins og áður yfir næstu 89-89-101-101-113-113 lykkjur, 11-16-15-21-22-28 lykkjur sléttprjón.
Haldið áfram með þetta mynstur hringinn þar til A.4 hefur verið prjónað alls 4-4-4-4-4-5 sinnum á hæðina frá þar sem A.4 byrjaði, síðan er fyrsta umferð prjónuð í A.4, þannig að mynstureiningin endar. Stykkið mælist nú ca 33-33-34-35-36-42 cm frá eftir kanti í hálsmáli.
Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 19 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli.
Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Nú skiptist stykkið við prjónamerkin fyrir klauf í hvorri hlið. Haldið eftir fyrstu 111-121-131-143-157-169 lykkjum á prjóni (= framstykki). Setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið framstykki til loka eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI:
= 111-121-131-143-157-169 lykkjur.
Til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman, aukið út lykkjur eins og útskýrt er að neðan.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 34-36-40-42-48-50 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 145-157-171-185-205-219 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjón.
UMFERÐ 2 (rétta): 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 10 cm. Fellið af frá réttu með garðaprjóni yfir garðaprjón, snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING!
Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
Setjið 111-121-131-143-157-169 lykkjur af þræði / hjálparprjóni á hringprjón 3.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 34-36-40-42-48-50 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 145-157-171-185-205-219 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): 3 kantlykkjur í garðaprjón, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjón.
UMFERÐ 2 (rétta): 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 10 cm. Fellið af frá réttu með garðaprjóni yfir garðaprjón, snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING!

ERMI:
Setjið 68-74-82-90-94-98 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-82-92-100-106-110 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjum undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 1½ cm millibili alls 3-5-8-12-15-18 sinnum og síðan með 4 cm millibili alls 4-4-4-3-2-0 sinnum = 62-64-68-70-72-74 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 36-34-33-33-32-30 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm.
Fellið af með snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING!
Ermin mælist ca 44-42-41-41-40-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.09.2021
Leiðrétting í mynsturteikningu texti í mynsturtákni 5 og 6.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið vinstri lykkjuna við 2 lykkjur á kaðlaprjóni slétt (lykkjan er prjónuð frá bakhlið á stykki), síðan er síðasta lykkjan prjónuð slétt þannig að hún liggur á ská framan við hinar 2 lykkjurnar
symbols = útaukning fyrir axlarsæti
symbols = útaukning á ermi
symbols = útaukning á berustykki
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Diamond Fire

F.Galley, France

Diamond Fire

Laïla, France

Diamond Fire

Ingrid, Belgium

Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (70)

country flag Marion wrote:

Bonjour, pour l'augmentation de l'empiècement, il faut "augmenter 8 mailles comme avant, mais cette fois, juste avant et juste après chaque A.2 et A.3". Ça prête à confusion dans la mesure où "avant" on n'augmentait que de 4 mailles par tour. Pour plus de clarté, il faudrait peut-être simplifier la phrase en disant "augmenter 8 mailles : cette fois, juste avant et juste après chaque A.2 et A.3". Qu'en pensez-vous ? Merci pour votre aide. Marion

23.04.2024 - 14:57

DROPS Design answered:

Bonjour Marion, les augmentation se font comme auparavant - cf AUGMENTATIONS-2, avant ou après le marqueur mais vous augmentez cette fois juste avant / juste après chaque A.2 / chaque A.3. Bon tricot!

23.04.2024 - 15:22

country flag Coni wrote:

Bei diamond fire, steht bei ärmelzunahmen... 8 mal je 4 maschen in die Höhe zunehmen. Bei mir sind es dann 286 Maschen. Aber nach 8 mal zunehmen ist das Muster 4A,B,C noch lange nicht fertig. Wie muss ich das verstehen?

16.04.2024 - 17:32

DROPS Design answered:

Liebe Coni, die Ärmelzunahmen werden glatt rechts gestrickt, wie die Ärmel, dh die Diagramme stricken Sie wie zuvor. Viel Spaß beim Stricken!

17.04.2024 - 08:48

country flag Elly wrote:

Trui niet fijn om te dragen, omdat het voorpand net zo hoog is als het ru pand. Dit zorgt voor een lelijke bobbel bij de hals. Heel jammer. Verder heb ook ik de ervaring dat ik het steken aantal van een maat groter moest gebruiken. Omdat de hals zo lelijk is vraag ik om een oplossing voor de voorkant. Graag jullie reactie.

26.03.2024 - 19:05

country flag Florence wrote:

Bonjour, dans quel sens faut-il suivre les diagrammes ? Peut-être qu’avec des aiguilles circulaires il faut les lire de droite à gauche ? Merci

25.03.2024 - 18:05

DROPS Design answered:

Bonjour Florence, les diagrammes se lisent toujours de droite à gauche sur l'endroit et donc en rond sur aiguille circulaire - plus d'infos ici. Bon tricot!

02.04.2024 - 10:10

country flag Florence wrote:

Bonjour, merci pour tous ces jolis modèles que je tricote facilement mais pas cette fois, là j’en suis à Augmentations manches, on nous dit de tricoter A2 au-dessus de A1, que cela continue la torsade. Mais cela veut il dire que la torsade A2 sera dans le sens contraire de A1 ?

25.03.2024 - 17:49

DROPS Design answered:

Bonjour Florence, les torsades de A.1 vont continuer dans le même sens, la 1ère va être tricotée en suivant A.2 et la 2ème torsade de A.1 en tricotant A.3 ainsi, le sens continue comme avant. Bon tricot!

02.04.2024 - 10:06

country flag Anita wrote:

Meerderen mouwen voor xxl staat voor deze maat 6 keer herhalen met 334st terwijl xl 11 keer op dat punt moet meerderen met aan het eind 342 st . Klopt dit wel, ik heb er twijfels bij of dit klopt. Hoe zit dit?

09.03.2024 - 16:36

DROPS Design answered:

Dag Anita,

Ja, dat klopt. Je meerdert in totaal 11 keer voor de mouwen op de raglan en je hebt dan op de hele naald (dus op de panden en mouwen) 342 steken staan.

10.03.2024 - 09:49

country flag Christina wrote:

I am knitting Medium. Can you please give me the amount of stiches for respective section when I have reached 374 stiches before the split. For the Braids I have 6x4; for shoulders I have 54x2; for back and front 121x2, totally 374. Is this correct? And, I start with 4 stiches before A.2. Are these 4 included in the following 74 to put on a wire? Or is it 4 to knit and thereafter 74 on a wire? PS can all try to use english? Would save time for all.

27.02.2024 - 07:06

DROPS Design answered:

Dear Christina, that's correct - the 4 sts before the first A.2 at the beginning of the round belong to sleeve and will be put on a thread for sleeve (a total of 74 sts including these 4 sts). Happy knitting!

27.02.2024 - 09:16

country flag Zsófi wrote:

Hungarian version is incorrect at yoke, it says decresing should be done in each A.2/A.4 instead of A.2/A.3 A magyar változat helytelenül írja le a vállrész fogyasztását, az A2/A4-es mintára írja, az A2/A3 helyett.

05.02.2024 - 20:38

country flag Barbara wrote:

Can your not delete comments you do not like? It would help others to decide on whether spending awful lot of time on knitting this. Constructive criticism improves the site. Do not censor your knitters!

23.01.2024 - 20:39

country flag Chris wrote:

Modell 228-6\r\nPå bilden är mönsterstickningen på fram- och bakstycke. I beskrivningen är det på ärmarna

09.01.2024 - 08:14