Momo Vaut skrifaði:
Je finis les coutures du pull et vous demande s il faut coudre ou pas les poignets en côtes des manches, ce n est pas précisé. De même, il me reste presque 3pelotes de Nord et 2,5 pelotes mohair 🤭. Étonnant ! Meilleurs Voeux 2022 🥳
04.01.2022 - 11:36DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Vaut, les manches se tricotent en rond jusqu'à l'arrondi, raison pour laquelle aucune couture n'est indiquée, si vous les avez tricotées en rangs, alors oui, il vous faudra faire la couture (et elles se tricotent de bas en haut et non de haut en bas, la correction va être faite, merci). Bonne continuation!
04.01.2022 - 12:01
Jacqueline skrifaði:
Ik snap het minderen niet. In mijn beleving loopt de trui dan taps toe en blijft deze zoals op het getekende patroon staat niet recht. Klopt dit? Kan iemand mij hier een uitleg over geven?
24.11.2021 - 20:37DROPS Design svaraði:
Dag Jacqueline,
Je mindert alleen na de boordsteek. De boordsteek brei je ook in een dunnere naald. Om vervolgens de panden recht te laten lopen moet je steken minderen. (Als het werk taps naar boven loopt, zou er in de zijnaden geminderd worden en dat is niet het geval.
26.11.2021 - 17:07
Lynne Zafiropoulos skrifaði:
Do I need to block before sewing together or after the garment is finished?
22.11.2021 - 14:43DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Zafiropoulos, some knitters do, some other don't... just request advices from your DROPS store or other knitters in our DROPS workshop. Happy knitting!
22.11.2021 - 16:21
Jacqueline skrifaði:
Ik wil graag patroon arctic Moon gaan breien. Maar ik begrijp niet zo goed waarom ik met een rondbreinaald moet breien. Kan ik deze trui niet breien met rechte naalden? Ik begrijp dit niet helemaal. Sorry
19.11.2021 - 13:50DROPS Design svaraði:
Dag Jacqueline,
Deze trui zou je inderdaad ook op rechte naalden kunnen breien. Bij de mouwen moet je dan aan elke kant een extra steek opzetten als kantsteek. Deze kantsteken vallen dan weg bij het in elkaar zetten van de trui.
Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.
23.11.2021 - 12:43
Angela skrifaði:
Salve .mi potete aiutare sono in difficolta ,devo diminuire 50 maglie in modo uniforme il mio ferro ne contiene 134 ho diminuito come suggerito dal suggerimento ma nn mi combacia mai
07.11.2021 - 20:15DROPS Design svaraði:
Buonasera Angela, deve diminuire in modo alternato come indicato nel suggerimento. Buon lavoro!
10.11.2021 - 22:54
Lucija Jancar skrifaði:
Hello, I do not quite understand the decrese tip 2. Does it aplly for the 20 stitches that were slipped on the stitch holder? How many stitches do i cast off and what exactly does it mean Decrease for neck inside 3 stitches towards mid front. Tkank you
22.09.2021 - 21:32DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Jancar, this decrease tip will be used when decreasing for neck, ie after you have slipped the middle sts on a thread/st holder for neck you will finish each shoulder separately decreasing 1 stitch towards neck a total of 4 times = as under decrease tip-2: at the end of the row from RS on left shoulder (front piece)/at the beg of rhe row from RS on right shoulder (front piece). Happy knitting!
23.09.2021 - 08:44
Camilla Søndergaard skrifaði:
So happy this model was amongst the winners for tje 21/22 winter collection. It's on my to-do list for sure
27.08.2021 - 15:33
Liubov Vorotyntseva skrifaði:
Na spacer
25.08.2021 - 19:03
Heidi Nerurkar skrifaði:
Superchic! Dieses Modell fällt sofort ins Auge.
24.08.2021 - 14:34
Avely skrifaði:
Snowflake fall
04.08.2021 - 10:00
Arctic Moon#arcticmoonsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nord og DROPS Kid-Silk eða DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-4 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 122 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 46) = 2,7. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna til skiptis ca hverja og aðra hverja lykkju og aðra hverja lykkju og 3. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2: Lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur við miðju að framan: Fækkið lykkjum í lok umferðar frá réttu þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju sléttprjón og 2 lykkjur garðaprjón. Fækkið lykkjum í byrjun á umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, 1 lykkja slétt, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið út umferðina eins og áður. 1 lykkja garðaprjón og 2 lykkjur sléttprjón halda áfram við miðju að framan þar til öxlin hefur verið prjónuð til loka. Þær lykkjur sem eftir eru halda áfram í mynstri eins og áður. ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndast göt. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 122-134-142-154-174-186 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Nord og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir), eða 1 þræði DROPS Flora og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 20 cm í öllum stærðum. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 46-50-54-58-66-70 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 76-84-88-96-108-116 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 fyrstu lykkjurnar í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af fyrir handvegi í hvorri hlið. Fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni og 1 lykkja 0-1-1-1-2-2 sinnum = 66-72-76-84-94-102 lykkjur. Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm. Setjið nú miðju 20-20-20-28-28-28 lykkjurnar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 23-26-28-28-33-37 lykkjur. Fækkið nú lykkjum fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 lykkju 4 sinnum = 19-22-24-24-29-33 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: Fitjið upp 122-134-142-154-174-186 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 2 kantlykkjur í garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 20 cm í öllum stærðum. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 46-50-54-58-66-70 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 76-84-88-96-108-116 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 fyrstu lykkjurnar í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af fyrir handvegi í hvorri hlið. Fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni og 1 lykkja 0-1-1-1-2-2 sinnum = 66-72-76-84-94-102 lykkjur. Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið nú af miðju 26-26-26-34-34-34 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 19-22-24-24-29-33 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Stykkið skiptist þegar fellt er af fyrir ermakúpu og síðan er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 48-48-52-52-56-56 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 14 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónað er sléttprjón. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2-0-2-0-0-0 lykkjur jafnt yfir = 46-48-50-52-56-56 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið út með 5-4½-4-3½-3½- 3 cm millibili alls 7-8-9-9-9-10 sinnum = 60-64-68-70-74-76 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-49-49-48-45-44 cm, fellið af með 3 lykkjum hvoru megin við prjónamerki (= 6 lykkjur færri mitt undir ermi), prjónið síðan ermina fram og til baka. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1 sinni, síðan eru felldar af þær lykkjur sem eftir eru = 44-48-52-54-58-60 lykkjur. Ermin mælist alls 53-52-52-51-48-47 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju þar til 20 cm eru eftir neðst niðri = klauf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra öxlina og frá réttu og prjónið upp ca 96-108 lykkjur með hringprjón 4,5 í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði og stillið af að fjöldi lykkja sé deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið stroff í 8 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #arcticmoonsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.