Katarina Bergstrand skrifaði:
Hur kan det bli 88-100m runt halsen?
11.01.2025 - 12:20DROPS Design svaraði:
Hej Katarina, hvis du ikke får maskeantal til at stemme, så kan du justere det på første pind :)
14.01.2025 - 13:48
Mélanie skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas bien pour le devant, une fois avoir mis les 13 mailles en attente pour l'encolure, il est demandé de faire les dimminutions-2 pour l'encolure cependant ces diminutions sont de 2 mailles à chaque fois, mais on nous demande de diminuer 1 mailles 8 fois tout les 2 rangs pour avoir 15 mailles au total pour une épaule. Merci
21.11.2024 - 21:58DROPS Design svaraði:
Bonjour Mélanie, en taille S, vous aviez 59 mailles - les 13 mailles en attente, il vous reste 23 mailles pour chaque épaule, vous diminuez 8 fois 1 maille (cf paragraphe Diminuer 1 maille ainsi sous DIMINUTIONS-2: il vous reste 23-8=15 mailles pour chaque épaule. Bon tricot!
22.11.2024 - 09:43
Anita Dam Nissum skrifaði:
Jeg er i gang med Full Moon Romance trøje. \r\nJeg forstår ikke at der skal være 97 masker til ærme det er enormt stort ? \r\nNu er jeg nået til rib på ærmet og der har jeg 50 masker jf. opskriften men det er jo et kæmpe rib det bliver kommer slet ikke til at sidde tæt jeg kan have armen mindst 2 gange i den 😢 er der fejl i opskriften nogen der har strikket denne den ser ikke så løs ud på billed 🤷🏻♀️🤷🏻♀️
29.09.2024 - 19:38DROPS Design svaraði:
Hej Anita, det er pufærme i blusen, så ærmerne skal være vide. Strikker du i DROPS Air og har du 16 masker på 10 cm :)
10.10.2024 - 14:59
Marit Myrå skrifaði:
Det står at ermet skal strikkes til det er 29 cm, så en omgang med felling , deretter vrangbord 15 cm. Da skal ermet være 55 cm langt. Det stemmer ikke, blir jo mye kortere
03.11.2023 - 05:22DROPS Design svaraði:
Hei Marit, Det har du rett i. Ermet måler ca 44 cm. God fornøyelse!
03.11.2023 - 06:51
Sara skrifaði:
Hi, I am having issues at the sleeve start. For the small size, it said to cast on 16 then after the 2 stockinette rows and the first yarn over row, there should be 31 stitches total. I am not getting 31, I’m getting 23. Am I doing something wrong?
14.11.2022 - 20:32DROPS Design svaraði:
Hi Sara, On the third row you work 1 edge stitch then 1 yarn over, knit 1 until there is 1 stitch left, work 1 yarn over and 1 edge stitch. This increases the number of stitches by 15 (15 yarn overs), leaving you with 31 stitches. Happy knitting!
15.11.2022 - 07:03
Maria skrifaði:
Olen ompelemassa pääntie reunusta ( resori on siis valmis, ja nyt pitäisi ommella se kaksinkerroin). Ohjeessa sanotaan:"On tärkeää, että saumasta tulee joustava" Missään ei kuitenkaan kerrota/ näytetä miten ommellaan sellainen joustava sauma. Tai edes miten ylipäätään ommellaan tällainen sauma...Jos se on niin tärkeä luulisi ,että siihen löytyy joku ohjevideo, mutta en ole löytänyt mitään..
05.11.2022 - 19:58DROPS Design svaraði:
Hei, saumasta tulee joustava, kun ompelet sen löyhin pistoin. Älä myöskään ompele liian tiheään. Tarkista ompelun aikana, että sauma ei kiristä.
14.11.2022 - 17:57
Valeria skrifaði:
Ho bisogno di un aiuto. Sto lavorando una taglia L. Quando si iniziano le dimizioni per gli scalfi c'è scritto di diminuire 2 maglie ogni 0 ferri. Questo vuol dire che devo saltare il passaggio e passare direttamnete alla diminuzione di 1 maglia ogni 2 ferri per 9 volte, o che devo comunque eseguire i ferri indicati (4 in tutto) ma senza diminuzioni? Grazie mille
15.10.2022 - 00:21DROPS Design svaraði:
Buonasera Valeria, deve saltare il passaggio e continuare con le diminuzioni successive. Buon lavoro!
15.10.2022 - 12:44
Marja skrifaði:
Steekverhouding met naalden 4 of 5,5?
11.05.2022 - 15:19DROPS Design svaraði:
Dag Marja,
De stekenverhouding is met naald nr 5.5. (De boord wordt met naald 4 mm gebreid.)
14.05.2022 - 10:00
Noemi skrifaði:
Buongiorno, vorrei sapere se è possibile realizzare questo modello utilizzando il filato DROPS Melody. Grazie!
04.11.2021 - 14:27DROPS Design svaraði:
Buonasera Noemi, Melody è un filato diverso rispetto a quello richiesto nel modello, appartiene al gruppo filati D, Air al gruppo filati C. In ogni caso provi a lavorare un campione e veda se corrisponde a quello indicato. Buon lavoro!
04.11.2021 - 23:29
Julia skrifaði:
Hi, i am having troubles with instructions for sleeves for size m: AT THE SAME TIME cast on stitches for the sleeve cap at the end of each row on each side as follows: 3 stitches 5 times, 1 stitch 2 times etc, what does a time mean? Knit row, add 3, purl add 3, 5 times, or simply add at the end? I can only get 91 in the end if i K 1row, add 3, P 1row add 3, 5 times, so 30 stiches in total. Then, add 1 and so on. Thank you!
12.10.2021 - 18:12DROPS Design svaraði:
Dear Julia, in the 2nd size work as follows: *cast on 3 sts at the end of next row from RS, cast on 3 sts at the end of next row from WS*, work from *-* a total of 5 times, then *cast on 1 st at the end of next row from RS, cast on 1 st at the end of next row from WS*, work from *-* a total of 2 times etc... you will cast on on each side: 3 sts x 5 + 1 st x 2 + 2 sts x 1 + 4 sts x 1 = 23 sts cast on + 45 sts + 23 sts cast on = 91 sts. Hope this will help, happy knitting!
13.10.2021 - 07:50
Full Moon Romance#fullmoonromancesweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með puffermum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-14 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 93 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 91 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 14) = 6,5. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjónaðar eru til skiptist ca 5. og 6. hver lykkja og 6. og 7. hver lykkja slétt saman ÚRTAKA-2 (á við um handveg og hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 2 lykkjur þannig: Fækkið lykkjum í byrjun umferðar þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Fækkið um 1 lykkju þannig: Fækkið lykkju í byrjun á umferð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ÚRTAKA-3 (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig og prjónað er neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar ofan frá og niður – fyrst er prjónað fram og til baka þar til ermakúpan hefur verið prjónuð til loka, síðan er prjónað í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Síðan er stykkið sett saman með því að sauma öll stykkin saman. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring á hringprjóna. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 93-99-107-117-129-141 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka í 7 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 14-14-16-17-19-21 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 79-85-91-100-110-120 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fellið af 4-4-5-5-6-6 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 71-77-81-90-98-108 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum fyrir handveg í hverri umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 0-0-0-2-4-6 sinnum og 1 lykkju í annarri hverri umferð 6-8-9-8-7-7 sinnum (= 6-8-9-12-15-19 lykkjur færri í hvorri hlið) = 59-61-63-66-68-70 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 42-44-45-47-48-50 cm, setjið miðju 13-13-13-16-16-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir hálsmáli – munið eftir ÚRTAKA-2 (á hægri öxl er lykkjum fækkað í byrjun umferðar og á vinstri öxl er lykkjum fækkað í lok umferðar). Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð alls 8 sinnum í öllum stærðum = 15-16-17-17-18-19 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: Fitjið upp 93-99-107-117-129-141 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka í 7 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 14-14-16-17-19-21 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 79-85-91-100-110-120 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fellið af 4-4-5-5-6-6 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 71-77-81-90-98-108 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið lykkjum fyrir handveg alveg eins og á framstykki = 59-61-63-66-68-70 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 27-27-27-30-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er fækkað um 1 lykkju = 15-16-17-17-18-19 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 16-16-18-18-20-20 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 31-31-35-35-39-39 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið (uppslátturinn er prjónaður brugðið – það eiga að myndast göt). Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í öllum stærðum, prjónið 1 lykkju slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 45-45-51-51-57-57 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (uppslátturinn er prjónaður brugðið – það eiga að myndast göt). Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3-3-3-3-2-2 lykkjur 3-5-4-2-3-3 sinnum, 1 lykkja 2-2-4-3-6-9 sinnum og 3-2-2-2-2-2 lykkjur 2-1-1-5-3-2 sinnum og 4-4-5-5-6-6 lykkjur 1 sinni = 87-91-97-99-105-107 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Prjónið nú hringinn í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi þar sem fitjaðar voru upp 4-4-5-5-6-6 lykkjur í hvorri hlið á ermakúpu. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA-3. Fækkið lykkjum svona með ca 2-1½-1½-1½-1-1 cm millibili alls 13-14-16-16-18-18 sinnum = 61-63-65-67-69-71 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 29-28-28-27-25-23 cm. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 8-9-9-10-10-11 lykkjurnar, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 45-45-47-47-49-49 lykkjur og fækkið jafnframt um 15 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 8-9-9-10-10-11 lykkjur = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 15 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist alls ca 55-55-56-56-56-56 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við uppfitjunarkantinn á ermum og innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 88-100 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 4. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 10 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fullmoonromancesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.