DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Vanilla District

Prjónuð peysa úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað með tvöföldum kanti í hálsmáli, stroffprjóni og áferðamynstri. Stærð XS - XXXL.

DROPS 227-11
DROPS Design: Mynstur x-468
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS/S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
600-650-700-750-850-950 g litur 02, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 60 - 80 cm fyrir áferðamynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60 - 80 cm fyrir stroff.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni/A.3 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir, svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í A.3.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp að handveg. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig að loka máli. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón neðan frá og upp að handveg, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna að loka máli.
Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í stroffprjóni, í hring á stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 144-168-180-192-216-240 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Alaska.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt.
Prjónið síðan A.1 hringinn (= 24-28-30-32-36-40 mynstureiningar með 6 lykkjum).
Setjið 1 prjónamerki í 2. lykkju í umferð og 1 prjónamerki í 74.-86.-92.-98.-110.-122. lykkju í umferð (= í hliðar á fram- og bakstykki – prjónamerkin sitja í 2. lykkju í A.1). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Þegar stykkið mælist 21 cm, prjónið A.2 hringinn. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan A.3 hringinn (= 24-28-30-32-36-40 mynstureiningar með 6 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 2-2-3-3-4-4 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, fellið af 5-5-7-7-9-9 lykkjur fyrir handveg (prjónamerki situr í miðju af þessum 5-5-7-7-9-9 lykkjum), prjónið 67-79-83-89-99-111 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af 5-5-7-7-9-9 lykkjur fyrir handveg, prjónið 67-79-83-89-99-111 lykkjur eins og áður (= bakstykki).
Bakstykkið og framstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 67-79-83-89-99-111 lykkjur.
Haldið áfram með A.3 fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-1-2 sinnum, 2 lykkjur 0-2-3-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 1-3-3-3-3-4 sinnum = 65-65-65-71-71-71 lykkjur eftir. Haldið áfram með A.3 með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af miðju 23-23-23-29-29-29 lykkjurnar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = 19 lykkjur eftir á öxl í öllum stærðum.
Prjónið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 67-79-83-89-99-111 lykkjur.
Haldið áfram með A.3 fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-1-2 sinnum, 2 lykkjur 0-2-3-3-4-5 sinnum og 1 lykkju 1-3-3-3-3-4 sinnum = 65-65-65-71-71-71 lykkjur eftir. Haldið áfram með A.3 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 48-50-52-53-55-57 cm, setjið miðju 9-9-9-15-15-15 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 19 lykkjur eftir á öxl í öllum stærðum.
Prjónið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 56-56-64-64-64-72 lykkjur á sokkaprjóna 5 með DROPS Alaska.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * 3 lykkjur slétt, 5 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff. Setjið 1 prjónamerki í 2. lykkju í umferð (= mitt undir ermi – prjónamerkið situr í miðju af 3 lykkjum slétt). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Þegar stykkið mælist 5 cm, fækkið allar 5 lykkjur brugðið til 4 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í byrjun á hverri brugðinni einingu = 49-49-56-56-56-63 lykkjur. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
þegar stykkið mælist 18 cm, fækkið allar 4 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið alveg eins = 42-42-48-48-48-54 lykkjur. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 21 cm, prjónið A.2 hringinn. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið síðan A.3 hringinn (= 7-7-8-8-8-9 mynstureiningar með 6 lykkjum).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23-23-22-22-23-23 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-2-3-2-1½-1½ cm millibili alls 9-12-9-12-15-8 sinnum, síðan er einungis aukið út í stærð XXXL með 1 cm millibili alls 7 sinnum = 60-66-66-72-78-84 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-48-48-47-46-44 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari axla og lengri ermakúpu).
Fellið nú af lykkjur mitt undir ermi, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 2-2-3-3-4-4 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, fellið af 5-5-7-7-9-9 lykkjur eins og áður og prjónið þær 55-61-59-65-69-75 lykkjur eins og áður.
Prjónið síðan ermakúpu á hringprjón 5 eins og útskýrt er að neðan.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3-3-2-3-3-2 sinnum og 1 lykkju 0-3-5-3-5-11 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56-57-58-57-58-59 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru.
Ermin mælist ca 57-58-59-58-59-60 cm ofan frá og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn.
Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á framstykki/bakstykki.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu mitt að aftan og prjónið upp ca 72-78-78-84-90-90 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 4,5 – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 6.
Byrjið í 2. umferð í A.2 og prjónið A.2 hringinn. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.1 hringinn þar til kantur í hálsmáli mælist ca 15-15-15-17-17-17 cm (meðtalið A.2). Prjónið 1 umferð sléttprjón.
Skiptið yfir á hringprjón 5 og fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING!
Brjótið niður stroffið að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli.
Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Grace Young wrote:

I just have one question about the decrease on the sleeve. I have almost completed it , my question is where it says decrease 2 stitches on each side till the piece measures 58 CMS ( I am knitting the third size) is it decrease 2 stitches at each side on every row or just once? Many thanks

24.09.2023 - 13:06

DROPS Design answered:

Hi Grace Young! You should cast off for sleeve cap 2 stitches at the beginning of every row on each side until the piece measures 58 cm. Happy knitting!

24.09.2023 - 16:52

country flag SandieForeman wrote:

Hi thanks for your response but it didn’t answer my question , the A3 pattern is a 3x3 repeat , as I increase 1 or 2 stitches in a row in either the knit or purl section it is no longer a 3x3 but a 3x4 etc so it throws out the pattern, how do I address that please?

21.04.2023 - 14:13

DROPS Design answered:

Dear Sandie, since they are under the sleeve it doesn't matter if they break the pattern. These stitches will be worked as an incomplete repeat of A.3 (until there is space for one more full repeat of A.3), while you will work over the rest of the stitches as before. Happy knitting!

23.04.2023 - 19:07

country flag Sandie Foreman wrote:

Hi How do I increase on the sleeves in the round and maintain the basketweave pattern ?

20.04.2023 - 17:32

DROPS Design answered:

Hi Sandie, The new stitches are worked into pattern A.3, either as knitted stitches or purled stitches as fits best. Happy knitting!

21.04.2023 - 07:33

country flag Sabine wrote:

Habe das Modell fertig gestellt und viel Freude bei dieser Arbeit gehabt. Die Beschreibung war sehr gut verständlich und der Pullover passt perfekt. Vielen lieben Dank für dieses wunderbare Strickmuster.

03.04.2023 - 16:27

country flag Hélène F wrote:

Bonjour à tous(tes) Bonjour Je tricote en magic loop la manche et le marqueur est placé sur la deuxième maille du début du tour. Lorsque je commencerai à augmenter de part et d’autre de celui-ci est ce qu’il se décalera sur la maille 3,4 et ainsi de suite et que, lorsque j’aurai terminé les augmentations ,le marqueur sera à 13 mailles du début de mon tour.

19.02.2023 - 15:13

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, si vous conservez cette disposition oui, à priori, mais vous pouvez aussi décaler le début de votre tour sur magic loop avant la maille avec le marqueur et augmenter ainsi sur la moitié des mailles avant de tricoter l'autre moitié, ainsi, le nombre de mailles augmentera régulièrement sur les 2 parties du tour/du magic loop. Bon tricot!

20.02.2023 - 10:08

country flag Hélène wrote:

Bonjour Je suis un peu perplexe. On nous mentionne dans le patron qu'il y a un point de blé dans la description du modèle, sauf que, lorsque j’exécute les grilles du motif, il me semble que c'est une alternance de points Jersey et de points mousse. Est-ce que je fais erreur? Bien à vous !

17.02.2023 - 17:17

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, ce modèle appartient à la rubrique des "points de riz" en raison du diagramme A.3 (alternance mailles endroit/mailles envers (= jersey endroit/jersey envers) en largeur et en hauteur, similaire au point de riz). Seul A.2 représente du point mousse (2 côtes mousse en l'occurence). Bon tricot!

20.02.2023 - 08:52

country flag Birgit Kowalczewski wrote:

Bei einer Länge von 36-37-38-39-40-41 cm für die Armausschnitte abketten, d.h. die nächste Runde wie folgt stricken: 2-2-3-3-4-4 Maschen vor der markierten Masche beginnen... Hallo, auf welche der sieben Markierungen bezieht sich das? Die erste Markierung sitzt in der zweiten Masche. Dann wäre ja der Armsausschnitt vorne. Oder lieg ich da falsch? Danke im Voraus für die Antwort!

10.12.2022 - 12:46

DROPS Design answered:

Liebe Frau Kowalczewski, es sind nur 2 Markierungsfaden, der 1. in der 2. Masche der Runde, und der 2. in der 74. Masche (in XS), oder in der 86. Masche (in S), usw. Viel Spaß beim stricken!

12.12.2022 - 09:11

country flag Ingrid wrote:

Hur är storlekarna? Min dotter är normalt storlek S, men här är det dubbelstrl XS/S. Eftersom storlekarna går upp ända till XXXL undrar jag om de är små i storlek så man kanske bör gå upp till storlek M?

14.09.2022 - 23:35

DROPS Design answered:

Hej Ingrid. Det bästa är att mäta en tröja din dotter har och så jämför du det med måtten i måttskissen för att sen välja den storlek som är närmast. Mvh DROPS Design

15.09.2022 - 10:49

country flag Maria wrote:

Buenas noches no entiendo muy bien la espalda, en concreto ,no sé cuántos puntos tengo que disminuir cada fila para las sisas, tengo la talla pequeña. Si tengo 67 puntos u resto 6 no me quedan 65 Gracias

31.03.2022 - 22:30

DROPS Design answered:

Hola Maria, cuando queden 67 puntos en la espalda, para la talla S, solo tienes que disminuir 1 vez 1 punto a cada lado. Por lo tanto, te quedan 65 puntos. El resto de disminuciones es para otras tallas.

06.04.2022 - 20:08

country flag Anne wrote:

Hallo, Ich weiß nicht, wie ich die zugenommenen Maschen beim Ärmel in das Muster 3 re, 3 li einfüge. Das kommt dann doch nicht hin. Können Sie mir eine Erklärung geben?

21.03.2022 - 07:54

DROPS Design answered:

Liebe Anne, am Anfang der Runde stricken Sie die neuen Maschen wie das vorrige Muster (wenn Sie mit rechten Maschen anfangen, dann soll die erste Zunahme links gestrickt werden), und am Ende der Runde stricken Sie die neuen Maschen wie das nächste Muster, dh wenn Sie die Runde mit 3 links stricken, stricken Sie die 3 ersten Zunahmen rechts. So wird sich das Muster in der Breite erweitern (es passt aber nicht mehr beim Übergang der Runden). Viel Spaß beim stricken!

21.03.2022 - 09:29