Lisa skrifaði:
Jag har upptäckt ett fel i mönstret :när man kommer till resåren i nederkanten på koftan, står det på räta varvet : "två vridna rätmaskor, två rätmaskor" . Det ska väl vara "två vridna rätmaskor, två aviga maskor".
15.02.2023 - 09:09
Ann skrifaði:
Var finns diagram A. ? Hittar ingen bild eller diagram
16.09.2021 - 19:48DROPS Design svaraði:
Hej Ann. Du hittar diagram A.1 längst ner på mönstret, till höger om måttskissen. Mvh DROPS Design
17.09.2021 - 09:31
Alicia skrifaði:
Ya lo localicé , muchas gracias
05.09.2021 - 15:53
Alicia skrifaði:
Hola , mucha salud gracias por tan hermosos tejidos. Disculpen no encuentro el diagrama A 1
05.09.2021 - 15:49
Alena skrifaði:
Krásný kardigan
03.08.2021 - 17:56
Straight A#straightajacket |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og vösum. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-38 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig jölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 5,8. Í þessu dæmi er lykkjum fjölgað með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjur slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1 cm á eftir kanti í hálsi. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9½-9½-10-9-9-9 cm millibili. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út á berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka á hringprjóna, ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Annar helmingurinn af báðum vösunum er prjónaður á undan berustykkinu, þannig að hægt sé prjóna hann í stykkið. Vasinn er prjónaður fram og til baka og saumaður saman eins og útskýrt er í uppskrift. VASI (fyrri helmingur): Fitjið upp 24-24-26-26-28-28 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á sokkaprjóna 5 með DROPS Air. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 11-11-12-12-13-13 cm fellið kantlykkjur af = 22-22-24-24-26-26 lykkjur. Setjið lykkjur á þráð. Prjónið annan vasa alveg eins. Geymið vasana og prjónið berustykkið. Hinn helmingurinn af vösunum tveimur eru prjónaðir eftir að peysan hefur verið prjónuð til loka og frágangur er í lokin. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-92-96-100-104-108 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan næstu umferð þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, stroff (= 2 lykkjur snúnar slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Frá röngu er prjónað þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, stroff (= 2 lykkjur snúnar brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff í 9 cm (= kantur í hálsmáli). BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að framan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Fellt er af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 1-3-4-15-16-17 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 85-95-100-115-120-125 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 3 cm frá prjónamerki. Nú er prjónað þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón (= kantlykkjur að framan), A.1 yfir næstu 75-85-90-105-110-115 lykkjur (= 15-17-18-21-22-23 mynstureiningar með 5 lykkjum), endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka hafa verið auknar út 30-34-36-42-44-46 lykkjur = 115-129-136-157-164-171 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni þar til stykkið mælist 9-9-10-10-11-11 cm frá prjónamerki. Prjónið nú þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 0-2-1-1-2-1 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 105-115-125-145-150-160 lykkjur (= 21-23-25-29-30-32 mynstureiningar með 5 lykkjum), prjónið 0-2-0-1-2-0 lykkjur slétt og endið með 5 lykkjur garðaprjón. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka hafa verið auknar út 42-46-50-58-60-64 lykkjur = 157-175-186-215-224-235 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm frá prjónamerki. Prjónið nú þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni,1-0-1-0-2-0 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 145-165-175-205-210-225 lykkjur (= 29-33-35-41-42-45 mynstureiningar með 5 lykkjum), 1-0-0-0-2-0 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka hafa verið auknar út 58-66-70-82-84-90 lykkjur = 215-241-256-297-308-325 lykkjur. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 27-29-26-17-26-29 lykkjur jafnt yfir = 242-270-282-314-334-354 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni yfir kanta að framan þar til stykkið mælist ca 20-22-23-25-27-29 cm frá prjónamerki. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 39-44-45-49-54-58 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 68-78-80-88-98-106 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 39-44-45-49-54-58 lykkjur sem eftir eru slétt (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 158-178-186-202-226-246 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan. Prjónið þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá skiptingu. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið fyrstu 11-11-11-13-13-13 lykkjur eins og áður, setjið næstu 22-22-24-24-26-26 lykkjur á þráð (hinn helmingurinn af vasanum er prjónaður aðeins síðar), prjónið 22-22-24-24-26-26 lykkjur frá öðrum vasanum (passið uppá að prjóna áfram frá réttu vasanum), prjónið þar til eftir eru 33-33-35-37-39-39 lykkjur í umferð, setjið næstu 22-22-24-24-26-26 lykkjur á þráð (hinn helmingurinn af vasanum er prjónaður aðeins síðar), prjónið 22-22-24-24-26-26 lykkjur frá hinum vasanum (passið uppá að prjóna áfram frá réttu á vasanum) og prjónið síðustu 11-11-11-13-13-13 lykkjurnar í umferð eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist 24-24-25-25-25-25 cm. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú á að auka út lykkjur til að stroffið sem á að prjóna dragi ekki stykkið saman. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 34-34-38-42-46-50 lykkjur jafnt yfir = 192-212-224-244-272-296 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur snúnar brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Frá réttu er prjónað þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur snúnar slétt, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 12 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-52-56-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-5-3-2½-2-2 cm milliblil alls 4-5-7-10-10-11 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 32-30-30-29-28-26 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 10 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út um 6-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur snúnar slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 42-40-40-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. VASI: Prjónið fram og til baka á 2 sokkaprjóna. Setjið 22-22-24-24-26-26 lykkjur af þræði á hægra framstykki á sokkaprjóna 5. Í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið = 24-24-26-26-28-28 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til vasinn mælist 11-11-12-12-13-13 cm, fellið laust af. Prjónið vasann á vinstra framstykki á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið vasana innan við 1 kantlykkju í kringum allan vasann. Festið síðan vasana niður að innanverðu á peysu með nokkrum smáum sporum í bæði neðstu hornin (það á ekki að sjást frá réttu á peysu). Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #straightajacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.