Tina skrifaði:
Ich nehme bei Größe 9/10 in A1 doch in der 1. Runde nach 2 Maschen durch den Umschlag 1 zu. Das heißt das 39 Maschen dazukommen. Dann lande ich doch nicht bei 104 Maschen. 78 + 39 =107..\r\nWo liegt mein Denkfehler?
01.11.2024 - 20:43DROPS Design svaraði:
Liebe Tina, bei der 1. Runde in A.1 wird man jeweils 2 Maschen in jedem A.1 zunehmen, so sind es 8 Maschen in jedem von den 13 Rapporte = 8 x 13 = 104 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!
04.11.2024 - 07:43
Helia Prsts skrifaði:
Los diagramas no están correctos para alcanzar los puntos indicados,\r\nLes agradeceré verificar\r\nGracias
02.05.2022 - 17:38
Helia skrifaði:
En canesú al trabajar el diagrama A2 no logro llegar a los 120 puntos talla 2 , desde A1 Será un error? Gracias
02.05.2022 - 17:22
Undine skrifaði:
Gibt es ähnlich schlichte und schöne Anleitungen auch für Damen?
14.12.2021 - 11:04DROPS Design svaraði:
Liebe Undine, hier finden Sie Pullover mit Rundpasse und Patent davont einige ähnliche Modellen für Damen. Viel Spaß beim stricken!
14.12.2021 - 16:50
Shahrazan skrifaði:
Thank you for getting back but A1 has 4 increases. 2 knit 1 in the stitch below this stitch and 2 yarn overs. that will give you 4 increases for every 8 stitches. So by the end of the row you would have 110.
09.09.2021 - 15:33DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Shahrazan, the symbol to increase is the 4th symbol (= you can see it for example in the first st in A.2 and in the 9th st in A.3), the symbol used in A.1 is the next to last symbol = black oval = yarn over. Hope this will help. Happy knitting!
09.09.2021 - 17:24
Shahrazan skrifaði:
I think the increase amount after A1 for 3-4 size is incorrect. The patter says after completing A1 the total amount of stitches should be 88 stitches but you end up with around 100 stitches. I pulled apart the sweater 3 or 4 times and ended up with around 100 stitches.
08.09.2021 - 18:39DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Shahrazan, you increase 2 sts on the first row in A.1 , in size 3/4 you repeat A.1 a total of 11 times; ie you repeat the 6 sts in A.1 a total of 11 times = 66 sts; on this first row you increase 2 sts in each A.1 = 2 sts x 11 = 22 sts increased = 88 sts in total. And there are now 8 sts in each A.1. Can this help? Happy knitting!
09.09.2021 - 09:16
Forest Vines Kids#forestvinessweaterkids |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hásmáli, hringlaga berustykki og áferðamynstri með klukkuprjónslykkjum í berustykki. Stærð 2 til 12 ára.
DROPS Children 40-7 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 12. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 11. og 12. hver lykkja slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 60-64-66-68-70-72 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7 cm. Síðar er kanturinn í hálsi brotinn saman tvöfaldur og við frágang verður kanturinn ca 3 cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= miðja að framan) – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út um 0-2-0-4-8-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 60-66-66-72-78-78 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Prjónið síðan berustykkið eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið A.1 hringinn (= 10-11-11-12-13-13 mynstureiningar með 6 lykkjum). Eftir fyrstu umferð í A.1 eru 80-88-88-96-104-104 lykkjur í umferð. Prjónið A.1 til loka, síðan eru endurteknar 2 umferðir með stjörnu í A.1 þar til stykkið mælist 3-3-3-4-4-4 cm frá prjónamerki við háls. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú A.2 hringinn (= 10-11-11-12-13-13 mynstureiningar með 8 lykkjum). Eftir fyrstu umferð í A.2 eru 120-132-132-144-156-156 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 til loka, síðan eru endurteknar 2 umferðir með stjörnu í A.2 þar til stykkið mælist 6-7-7-8-8-9 cm frá prjónamerki við hálsmál. Nú er prjónað A.3 hringinn (= 10-11-11-12-13-13 mynstureiningar með 12 lykkjum). Eftir fyrstu umferð í A.3 eru 160-176-176-192-208-208 lykkjur í umferð. Prjónið A.3 til loka, síðan eru endurteknar 2 umferðir með stjörnu í A.3 þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá prjónamerki við hálsmál. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-4-14-8-4-14 lykkjur jafnt yfir = 168-180-190-200-212-222 lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerkið við hálsmál. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónið þannig: Prjónið 25-27-29-30-32-34 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 34-36-38-40-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 50-54-57-60-64-67 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 34-36-38-40-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 25-27-28-30-32-33 lykkur í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 112-120-126-132-140-146 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í aðra hlið á fram- og bakstykki – mitt í 6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 14-17-20-23-26-28 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á, dragi stykkið saman eru lykkjur auknar út eins og útskýrt er að neðan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 12-12-12-14-14-14 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 124-132-138-146-154-160 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-55 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 34-36-38-40-42-44 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 4 sinnum mitt á hæðina = 32-34-36-38-40-42 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 17-20-24-29-32-36 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 28-30-32-34-36-38 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING! Ermin mælist ca 22-25-29-34-37-41 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forestvinessweaterkids eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.