Dripping Diamonds Cardigan#drippingdiamondscardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-38 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 82 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 16,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 16. og 17. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu með ca 9½-9½-10-9-9-9 cm millibili. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-92-92-98-98-98 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 4,5 með Paris. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út 5-5-5-18-18-18 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 97-97-97-117-117-117 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Byrjið frá réttu og prjónið eftir mynsturteikningu í mismunandi stærðum þannig: STÆRÐ S - M - L: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 10 lykkjur, A.2 yfir næstu 6 lykkjur (= framstykki), 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), A.3 yfir næstu 5 lykkjur, A.4 yfir næstu 20 lykkjur, A.2 yfir næstu 6 lykkjur (= bakstykki), 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), A.3 yfir næstu 5 lykkjur, A.5 yfir næstu 11 lykkjur og endið með 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Nú hafa verið auknar út 8 lykkjur =105-105-105 lykkjur í umferð. STÆRÐ XL - XXL - XXXL: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.6 yfir næstu 5 lykkjur, prjónið A.4 yfir næstu 10 lykkjur, A.2 yfir næstu 6 lykkjur (= framstykki), 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), A.3 yfir næstu 5 lykkjur, A.4 yfir næstu 30 lykkjur, A.2 yfir næstu 6 lykkjur (= bakstykki), 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), A.3 yfir næstu 5 lykkjur, A.4 yfir næstu 10 lykkjur, prjónið A.7 yfir næstu 6 lykkjur og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Nú hafa verið auknar út 8 lykkjur = 125-125-125 lykkjur í umferð. ALLAR STÆRÐIR: Haldið áfram með þetta mynstur og fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Á framstykki og bakstykki er aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu, á meðan á ermum er aukið út með 1 uppslætti hvoru megin við lykkjur á ermi (laskalína er alltaf með 2 lykkjur sléttprjón). Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu). ATH! Í umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður brugðið svo það myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni á ermum. Á framstykki og bakstykki eru útauknar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina, eru 177-177-177-197-197-197 lykkjur í umferð. Haldið svona áfram með mynstur, þ.e.a.s. mynstrið endurtekur sig eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Í hvert skipti sem prjónaðar eru 20 umferðir á hæðina, er pláss fyrir 1 mynstureiningu fleiri af A.4 á vinstra framstykki, 2 mynstureiningar fleiri með A.4 á breidd á bakstykki og 1 mynstureining af A.4 á hægra framstykki. Þegar aukið hefur verið út alls 22-22-27-27-27-32 sinnum, eru 273-273-313-333-333-373 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 21-21-26-26-26-30 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 43-43-48-53-53-58 lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki), setjið næstu 56-56-66-66-66-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 75-75-85-95-95-105 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 56-56-66-66-66-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 43-43-48-53-53-58 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 173-187-197-217-225-249 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 6-8-8-8-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út. Prjónið 1 umferð frá röngu eins og áður, en nýjar lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni (þ.e.a.s. brugðið í þessari umferð). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður þar til 8 lykkjur eru eftir á undan sléttprjónuðum lykkjum undir ermi, prjónið mynstur A.8 yfir 8 lykkjur (fyrsta umferð á að vera umferð merkt með ör í mynsturteikningu A.8/A.9), prjónið 6-8-8-8-12-14 lykkjur í sléttprjóni, prjónið mynstur A.9 yfir 7 lykkjur, haldið áfram með mynstur eins og áður þar til 8 lykkjur eru eftir á undan sléttprjónuðum lykkjum í hlið, prjónið A.8 yfir 8 lykkjur, prjónið 6-8-8-8-12-14 lykkjur sléttprjón, prjónið A.9 yfir 7 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður þar til 5 lykkjur eru eftir og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur á hæðina. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerki – sjá ÚTAUKNINGU-2 = 4 lykkjur fleiri. Aukið svona út með 7 cm millibili alls 4 sinnum = 189-193-213-233-241-265 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 32-34-31-33-35-33 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á hringprjón 5 og fellið af með sléttum lykkjum. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 56-56-66-66-66-76 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-8-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 62-64-74-74-78-90 lykkjur. Prjónið 2-2-3-3-4-4 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn. Skiptið til baka yfir á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 og fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #drippingdiamondscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.