Graceful Cables |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa með laskalínu úr DROPS Air. Stykkið er heklað ofan frá og niður með köðlum og stuðlakrókalykkjum. Stærð XS - XXL.
DROPS 210-12 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR: Fyrsta umferð með stuðlum er hekluð frá réttu á stykki. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu á stykki. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá réttu á stykki. Haldið svona áfram fram og til baka, með til skiptis umferð með stuðlum frá réttu og einni umferð með fastalykkjum frá röngu. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma ekki í stað 1. stuðuls. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur ekki í stað 1. fastalykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. LASKALÍNA: Aukið er út hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermar (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið svona út á eftir prjónamerki þannig: Heklið 1 lykkju í fyrstu lykkju, heklið 2 lykkjur í næstu lykkju (= 1 lykkja fleiri). Aukið út á undan prjónamerki þannig: Heklið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 lykkjur í fyrstu lykkju (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja í næstu lykkju. Nýjar lykkjur eru heklaðar inn í mynstur A.1, þ.e.a.s. í annarri hverri umferð með stuðlum og fastalykkjum (á fram- og bakstykki eru fyrstu 4 útaukningar teiknaðar inn hvoru megin við mynsturteikningu A.2). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚRTAKA-1 (á við um ermar): Fækkið um 1 fastalykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Heklið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 FASTALYKKJUR SAMAN – sjá útskýringu að neðan, heklið 1 fastalykkju í hvora af næstu 2 fastalykkjum (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), heklið 2 fastalykkjur saman. HEKLIÐ 2 FASTALYKKJUR SAMAN: * Stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni uppá heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-2 (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig fækka á lykkjum jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (= t.d. 78 lykkjur) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 14) = 5,6. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að hekla til skiptis 4. og 5. hverja fastalykkju og 5. og 6. hverja fastalykkju saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Fyrst er berustykkið heklað, síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Að lokum er kantur í hálsmáli heklaður og lykkjum er fækkað jafnt yfir. Allt stykkið er heklað í hring, jafnframt er snúið við í hverri umferð – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. BERUSTYKKI: Heklið 78-78-82-86-90-94 loftlykkjur með heklunál 5 með Air – sjá LOFTLYKKJA, tengið þær í hring í lokin með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju sem var hekluð. UMFERÐ 1 (= frá réttu): Heklið 3 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, 1 stuðull í hverja og eina af 78-78-82-86-90-94 loftlykkjum í umferð, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, snúið stykkinu – munið eftir LEIÐBEININGAR. Setjið nú 4 prjónamerki frá röngu á stykki þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli bakstykkis og vinstri ermi), hoppið yfir næstu 8-8-8-10-10-12 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og framstykkis), hoppið yfir næstu 31-31-33-33-35-35 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og hægri ermi), hoppið yfir næstu 8-8-8-10-10-12 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og bakstykkis), nú eru 31-31-33-33-35-35 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki sem sett var í. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Setjið eitt prjónamerki í framstykki í fyrstu loftlykkjuröðina sem var hekluð. Berustykkið er núna mælt héðan! Í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, jafnframt er mynstrið heklað þannig: UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið * A.1 yfir fyrstu 8-8-8-10-10-12 lykkjur, næsta prjónamerki situr hér, A.1 yfir næstu 3-3-4-4-5-5 lykkjur, A.2 yfir næstu 25 lykkjur, A.1 yfir næstu 3-3-4-4-5-5 lykkjur, næsta prjónamerki situr hér *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið svona áfram fram og til baka með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í hverri umferð 11-13-15-17-19-20 sinnum og í annarri hverri umferð 4 sinnum í öllum stærðum (= alls 15-17-19-21-23-24 sinnum) = 198-214-234-254-274-286 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina, endurtakið A.3 yfir A.2 að loka máli. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð, heklið með mynstri þar til stykkið mælist 22-22-24-26-28-30 cm frá kanti í hálsmáli mitt að framan og niður – stillið af að næsta umferð sé umferð með fastalykkjum og sé hekluð frá röngu. Klippið frá. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Skiptingin á milli fram- og bakstykkis og erma er ekki lengur við prjónamerki. Í stærð XS, S og M byrjar umferð 1-1-1 lykkju á undan prjónamerki í byrjun á umferð (séð frá röngu) og í stærð L, XL og XXL byrjar umferðin nú 1-1-2 lykkjm á eftir prjónamerki í byrjun á umferð (séð frá röngu). Færið prjónamerki hingað og heklið næstu umferð í mynstri eins og áður): Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju á eftir nýju prjónamerki (= byrjun á umferð), heklið 1 loftlykkju (kemur í stað fyrstu fastalykkju í þessari umferð) heklið 6-6-6-8-8-10 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 40-44-48-50-54-56 lykkjur fyrir ermi, heklið yfir næstu 59-63-69-77-83-87 lykkjur (= framstykki), heklið 6-6-6-8-8-10 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 40-44-48-50-54-56 lykkjur fyrir ermi, heklið yfir næstu 59-63-69-77-83-87 lykkjur (= bakstykki), endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað hvert fyrir sig. Klippið frá. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 130-138-150-170-182-194 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið mitt í nýjar loftlykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 3-3-3-4-4-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Nú eru 65-69-75-85-91-97 lykkjur á milli prjónamerkja. Byrjið frá réttu í 3.-3.-3.-4.-4.-5. loftlykkju mitt undir ermi og heklið mynstur eins og áður – munið eftir LEIÐBEININGAR OG HEKLLEIÐBEININGAR. Þegar stykkið mælist 27-29-29-28-28-28 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé eftir eina umferð með stuðlum, þá er peysan tilbúin. Stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMAR: Festið þráðinn í 3.-3.-3.-4.-4.-5. loftlykkju mitt undir ermi og heklið A.1 hringinn eins og áður – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR og LEIÐBEININGAR. Heklið 1 lykkju í hverja af 3-3-3-4-4-5 lausum loftlykkjum sem voru heklaðar undir ermi = 46-50-54-58-62-66 lykkjur í umferð. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með ca 6-5-4-3-2-2 cm millibili (fækkið lykkjum í umferð með fastalykkjum) alls 5-6-7-9-10-11 sinnum = 36-38-40-40-42-44 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist 41-41-40-39-37-36 cm – stillið af að endað sé eftir umferð með stuðlum. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju og fækkið jafnframt um 14-12-12-12-12-12 fastalykkjur jafnt yfir í umferð – sjá ÚRTAKA-2 = 64-66-70-74-78-82 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (31)
Elena wrote:
Da come è spiegato non si capisce bene dove inserire i segnapunti. Se si "saltano" le maglie occorrono 98 punti (taglia XXL) . I fili devono essere inseriti alla dodicesima maglia, poi alla 35a e così via. Almeno credo...Grazie per il vostro bel sito!
14.04.2023 - 11:56DROPS Design answered:
Buonasera Elena, deve inserire i segnapunti dopo il numero di maglie indicato. Buon lavoro!
15.04.2023 - 10:22Lisa wrote:
Buongiorno, segnalo che la scritta: "Graceful Cables by DROPS Design. Maglione lavorato ai ferri con raglan in DROPS Air" è errata in quanto si tratta di un maglione lavorato all'uncinetto.
13.12.2022 - 09:47DROPS Design answered:
Buonasera Lisa, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!
14.12.2022 - 21:49Jennie Holmberg wrote:
Skall VARV 2 virkas med fastmaskor eller stolpar? Det står att det ska virkas på avigsidan, men att mönstret ska följas och raglan inledas.
06.08.2022 - 12:08DROPS Design answered:
Hei Jennie. Du har allerede heklet 78-78-82-86-90-94 luftmasker, satt disse til en ring og heklet 1 stav i hver av disse luftmaskene = ovale sirkelen du ser på diagrammet. Dette er beskrevet i selve oppskriften. Raden med ovale sirkel er også markert med en stjerne (*), så når du skal begynne å hekle etter diagrammet, starter du med å hekle 2. rad i diagrammet (der pilen peker / og der ikonene viser at du skal hekle fastmasker). Husk at arbeidet hekles rundt, samtidig som arbeidet vendes for hver omgang. mvh DROPS Design
15.08.2022 - 08:38Jennie Holmberg wrote:
Är mönstret detsamma fram och bak? Har ryggen samma mönster med flätor som bröstsidan?
03.08.2022 - 21:11DROPS Design answered:
Hej Jennie, ja ryggen har samma mönster :)
05.08.2022 - 11:50Mari wrote:
Jag förstår inte instruktionen för varv 2 där fastmaskor virkas enligt A1 inkl ökning. Vad betyder att virka ex antal enligt A1 respektive A2 på denna rad? Hur blandas A1 och A2?
23.01.2022 - 23:22DROPS Design answered:
Hei Mari. Hvilken størrelse hekler du og henviser du til et svar under Kommentarer / Spørsmål fra august når du skriver ex antal? Når du øker til raglan skal de nye maskene hekles inn i mønster A.1, det vil si 1 omgang med staver deretter 1 omgang med fastmasker (på for- og bakstykket er de første 4 økningene tegnet inn i hver side av diagram A.2). mvh DROPS Design
25.01.2022 - 13:09Sylvie wrote:
Bonjour, je voudrais faire ce pull en débardeur avec simplement une petite manche. Je démarre la manche et je l’arrête ça rendrait bien de faire comme ça? Pouvez-vous me dire combien de pelotes je prends en moins? Merci beaucoup!
08.10.2021 - 09:45DROPS Design answered:
Bonjour Sylvie, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, merci pour votre compréhension. Vous pouvez peut-être vous inspirer d'autres modèles existants; votre magasin saura vous assister, même par mail ou téléphone. Bon crochet!
08.10.2021 - 12:47Kristina wrote:
Hej! Opskriften er ekstremt forvirrende. Der mangler en forklaring på hvordan man kommer fra første række af A2 (de 25 masker) og videre rundt på mønsteret. Tallene fra runde 2 burde skrives ind for runde 3, runde 4 osv. Linjen "tag ud til raglan på hver omgang 11-13-15-17-19-20 gange og på hver 2.omgang 4 gange i alle størrelser (= totalt 15-17-19-21-23-24 gange) [...]" - hvordan tager man ulige antal ud? Og samtidig på hveranden omgang?
31.07.2021 - 21:29DROPS Design answered:
Hei Kristina. Anbefaler å lese godt igjennom oppskriften før man begynner, spesielt punktene under "FORKLARING TIL OPPSKRIFTEN" og se/lese på diagramforklaringene. Når du hekler 1. rad og A.2 (25 masker) skal det hekles videre med A.1 over X-antall masker (avhengig av hvilken str. du hekler). Ved raglanøkningene skal du i f.eks i str S øke ut 11 ganger på hver omgang, deretter 4 ganger på hver 2. omgang. Det økes 8 steder, altså 11+4 =15 økeomganger x 8 masker = 120 økte masker. Se gjerne videoen: Hvordan hekle fletter og relieffmasker mvh DROPS design
16.08.2021 - 11:00Nienke wrote:
Haak je het patroon A2 (de kabels) ook op het achterpand of moet ik hier gewoon stokjes haken?
09.02.2021 - 10:41DROPS Design answered:
Dag Nienke,
Ja, de kabels worden inderdaad ook op het achterpand gehaakt.
16.02.2021 - 15:53Camilla wrote:
Hvor ser jeg målene på de forskellige størrelser? På de fleste af jeres andre modeller kan man jo se målene på tegningen. Det står der også som en mulighed, men jeg kan ikke se en tegning eller mål nogen steder?
17.12.2020 - 21:40DROPS Design answered:
Hei Camilla. Målskissen med tall på de ulike størrelsene finner du nederst på oppskriften. mvh DROPS design
21.12.2020 - 13:04LAURENT Mathilde wrote:
Bonjour, Ça ne fait que peu de temps que je fais du crochet et j'ai voulu me lancer dans la réalisation de ce pull, cependant je suis plus une personne visuelle et je ne comprends pas comment le pull peut être réalisé en une seule fois ? J'en suis qu'à l'encolure mais je suis déjà perdu Le motif est-il répété dans le dos ? Quand est-ce-qu'on arrête de travailler en cercle ?
08.12.2020 - 18:55DROPS Design answered:
Bonjour Mme Laurent, cette leçon montre comment on tricote un pull de haut en bas, ce sera approximativement la même technique pour ce pull, on va crocheter en rond, en augmentant pour le raglan de cheque côté de chaque fil marqueur etc.. et en même temps suivre le diagramme avec la torsade devant et dans le dos (on répète les diagrammes de *-* tout le tour = dos et devant sont identiques). Bon crochet!
09.12.2020 - 06:47