Hanne skrifaði:
I den danske version er beskrivelsen af raglan forkert. Der står Tag 1 maske ind på hver….. skulle der ikke stå Tag en maske UD? Desuden står der øverst (overskriften) at der strikkes med rib i raglanudtagninger. Mens der i den norske version står “vrang i raglanudtagninger”
07.09.2024 - 22:46
Donbalak skrifaði:
J'ai tricoté un gilet top down il y a quelques années et j'aimerais savoir de quel modèle il s'agit (mon ordinateur ayant sauté je n'ai plus le modèle) Merci
06.06.2024 - 14:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Donbalak, retrouvez tous nos modèles de gilets et vestes tricotés de haut en bas ici, ajoutez des filtres si besoin pour affiner votre recherche. Bon tricot!
07.06.2024 - 08:10
LaureM skrifaði:
Mea culpa vous pouvez supprimer ma question précédente je suis fatigué et j’avais mal lu ! Par contre il me semble mais a vérifier qu’il y a une erreur dans la version française. Pour le premier rang endroit du col vous finissez par 3 mailles envers et 2 mailles endroits. Ce ne serait pas 3 mailles endroit à la fin plutôt ? Car je suis en taille M donc je monte 102 mailles et en recalculant tout le premier rang je tombe sur 101 mailles. Encore merci
05.06.2023 - 23:34DROPS Design svaraði:
C'est exact LaureM, merci pour votre retour, la correction a été faite. Bon tricot!
06.06.2023 - 09:29
LaureM skrifaði:
Bonjour, tout d’abord un grand merci pour le modèle ! J’ai une question car je ne comprend pas dutout le diagramme du A.1. En lisant vos explications je compte 6 mailles au total et non 8 et je ne vois aucune maille envers travaillée sur l’endroit. Pouvez vous m’éclairer ? Merci
05.06.2023 - 22:11DROPS Design svaraði:
Bonjour Laure et merci, le diagramme A.1 se tricote sur 8 mailles ainsi, vu sur l'endroit: 3 m envers, 2 m end, 3 m env; Sur l'envers, tricotez ainsi: 3 m end, 2 m env, 3 m end. Bon tricot!
06.06.2023 - 09:06
Penny Cole skrifaði:
Where on earth is the sizing chart on this pattern please
30.08.2022 - 13:57DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Cole, you will read more about sizes, measurements and chart here. Happy knitting!
30.08.2022 - 15:07
CARMEN CASTILLO skrifaði:
Canesú, delantero, ¿el raglan empieza con 12 puntos, aumento 22 veces un punto, me da 34 puntos? porque dice 48 puntos delantero (talla L)
02.01.2022 - 19:49DROPS Design svaraði:
Hola Carmen, el delantero tiene 40 puntos (incluyendo 3 derechos, 3 reveses). Los diagramas A.1 forman parte de las piezas delantera y espalda. Saludos!
05.01.2022 - 13:02
Josie skrifaði:
Bonjour. J'ai déjà réalisé un grand nombre de vos modèles. J'attends ma commande de LIMA mais je voudrais juste vous dire que j'aimerais réaliser des modèles sans utiliser d'aiguille circulaire ou double pointes. Pouvez-vous le signaler aux créateurs et créatrices. Merci
03.10.2021 - 01:29
Gitte Christensen skrifaði:
Hvor meget garn skal der bruge ved Str. XXL
29.09.2021 - 11:56DROPS Design svaraði:
Hej Gitte. 450 g DROPS Air till storlek XXL. Mvh DROPS Design
29.09.2021 - 12:02
Eva Bergqvist skrifaði:
Tack för svar! Nu förstår jag vad jag missat, de 8 maskorna A1. Uppfattade att de var intagningar som jag skulle vänta med till oket. Därför hoppade jag över dem. Gott att få klarhet. Har börjat sticka koftan utifrån ett annat mönster som jag inte blir förvirrad av. Men bra att få veta hur jag tänkte fel. Med vänlig hälsning, Eva
25.04.2021 - 11:50
Eva Bergqvist skrifaði:
Täck för svar. Jo, jag vet vad** betyder. Men har du räknat på mönstret för halskantens maskor. Jag har lagt upp 118 maskor. Men stickar jag halskantsmönstret, har också räknat ihop mönstret flera gånger. Varje gång blir resultatet 98, det fattas alltså mönster för 20 maskor. Hur stickar jag dessa? Med vänlig hälsning, Eva
20.04.2021 - 21:17DROPS Design svaraði:
Hej Eva. Du stickar halskanten såhär i storlek XL: 3 rm, 3 am, 2 rm, 12m (resårstickning), A1 (= 8 m), 2rm, 2 am, 2 rm, 2 am, 2 rm, A1 (= 8 m), 24 m (resårstickning), 2 rm, A1 (= 8 m), 2rm, 2 am, 2 rm, 2 am, 2 rm, A1 (= 8 m), 12 m (resårstickning), 2 rm, 3 am, 3 rm = 118 m. Mvh DROPS Design
21.04.2021 - 08:34
Lavender Pocket#lavenderpocketjacket |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air með laskalínu. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í stroffprjóni með útaukningu í laskalínu og ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 223-36 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 178 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 32) = 5,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur brugðið saman og prjónið 3 síðustu lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1½ cm frá uppfitjunarkanti. Fellið síðan af fyrir 7 næstu hnappagötum með ca 7½-8-8-8½-8½-9 cm millibili. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 8 lykkjur (= A.1) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 102-102-102-118-118-118 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu og miðju að framan: Prjónið 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 8-8-8-12-12-12 lykkjur, A.1 (= 8 lykkjur), 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 16-16-16-24-24-24 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, A.1, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 8-8-8-12-12-12 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt. Haldið svona áfram með stroff, þegar stykkið mælist ca 1½ cm fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 4 cm, setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan, í byrjun á umferð mitt að framan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið þannig – frá réttu: 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið (= kantlykkjur að framan), sléttar lykkjur yfir fyrstu 10-10-10-14-14-14 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 0-2-2-0-2-2 lykkjur ( = 10-12-12-14-16-16 lykkjur), A.1, 10 sléttar lykkjur, A.1, sléttar lykkjur yfir næstu 18-18-18-26-26-26 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 0-4-4-0-4-4 lykkjur (= 18-22-22-26-30-30 lykkjur), A.1, 10 sléttar lykkjur, A.1, sléttar lykkjur yfir næstu 10-10-10-14-14-14 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 0-2-2-0-2-2 lykkjur (= 10-12-12-14-16-16 lykkjur), 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt (= kantlykkjur að framan) = 102-110-110-118-126-126. Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið út í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu), alls 18-20-22-25-26-28 sinnum = 246-270-286-318-334-350 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið áfram án útaukninga þar til stykkið mælist 18-20-22-23-25-27 cm frá prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið fyrstu 42-46-48-52-56-59 lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki), setjið næstu 46-50-54-62-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 70-78-82-90-98-104 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 46-50-54-62-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 42-46-48-52-56-59 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hægra framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 166-182-194-210-230-246 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar lykkjur eru auknar út. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-1 = 4 lykkjur fleiri. Aukið svona út með 12 cm millibili alls 3 sinnum = 178-194-206-222-242-258 lykkjur. Þegar stykkið mælist 36-36-36-35-36-36 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 32-36-40-40-48-48 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 210-230-246-262-290-306 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið, kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið þannig – frá réttu: 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið og endið með 3 lykkjur slétt. Prjónið stroff svona í 6 cm, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 46-50-54-62-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjóna / sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-56-62-70-72-76 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 27-25-24-21-20-19 cm aukið út um 0-0-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir = 52-56-64-72-72-76 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Klippið þráðinn frá og festið. Ermin mælist ca 31-29-28-25-24-23 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. VASI: Fitjið upp 26-26-28-28-28-28 lykkjur á prjón nr 5,5 með Air. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Haldið áfram þar til stykkið mælist 12-12-13-13-14-14 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið síðan af. Prjónið annan vasa til viðbótar á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið vasana niður á hvort framstykkið, ca 1 cm yfir stroff og mitt á hvoru framstykki – sjá mynd. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lavenderpocketjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.