DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10208.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Big Sky Country

Prjónuð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með ¾-löngum puffermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 223-23
DROPS Design: Mynstur sk-128
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150-200-200-200-250 g litur 13, ljós gallabuxnablár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-125-125-150 g litur 07, ljós himinblár

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10208.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 144 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 26) = 5,5.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 4. og 5. hverja lykkju og 5. og 6. Hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 5. og 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón upp að handveg. Síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að handveg, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 144-156-168-184-204-224 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Sky og 1 þræði KId-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 26-26-28-32-34-38 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 118-130-140-152-170-186 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 59-65-70-76-85-93 lykkjur (= í hvorri hlið á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar fella á af lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið.
Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af 8-8-10-10-12-12 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið síðan framstykki og bakstykki til loka hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 51-57-60-66-73-81 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Í fyrstu umferð byrjar affelling fyrir handveg.
Fellið lykkjur af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-1-1-2-3-4 sinnum og 1 lykkju 1-1-2-2-3-4 sinnum = 49-51-52-54-55-57 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-39-40-42-43-45 cm frá uppfitjunarkanti (framstykkið mælist ca 11-12-12-13-13-14 cm frá þar sem 8-8-10-10-12-12 lykkjur voru felldar af fyrir handveg), setjið miðju 11-11-12-12-13-13 lykkjurnar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan lykkjur af í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 13-14-14-15-15-16 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist alls 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

BAKSTYKKI:
= 51-57-60-66-73-81 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Í fyrstu umferð byrjar affelling fyrir handveg.
Fellið lykkjur af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-1-1-2-3-4 sinnum og 1 lykkju 1-1-2-2-3-4 sinnum = 49-51-52-54-55-57 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-39-40-42-43-45 cm frá uppfitjunarkanti (bakstykkið mælist ca 17-18-19-20-21-22 cm frá þar sem 8-8-10-10-12-12 lykkjur voru felldar af fyrir handveg), fellið af miðju 21-21-22-22-23-23 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan lykkjur af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 13-14-14-15-15-16 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist alls 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 40-40-44-44-48-48 lykkjur á sokkaprjóna 5 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 26-30-30-32-32-34 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 66-70-74-76-80-82 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi).
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til ermin mælist alls 34-33-32-31-30-28 cm. Fellið nú af 8-8-10-10-12-12 lykkjur mitt undir ermi (þ.e.a.s. 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 58-62-64-66-68-70 lykkjur. Prjónið síðan ermakúpu með puff. Prjónið sléttprjón fram og til baka og fellið lykkjur af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 6-7-6-4-3-3 sinnum og 1 lykkju 1-1-3-6-9-10 sinnum = 32-32-34-38-38-38 lykkjur.
Í næstu umferð er prjónað þannig: Prjónið 1-1-2-3-3-3 lykkjur slétt, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman yfir næstu 30-30-30-32-32-32 lykkjur (= 15-15-15-16-16-16 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 1-1-2-3-3-3 lykkjur = 17-17-19-22-22-22 lykkjur. Fellið af. Ermin mælist alls 44-44-45-45-46-46 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í við handveg – saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermum.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp ca 68-80 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) á stuttan hringprjón 5 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) innan við 1 lykkju í kringum hálsmál. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Dela wrote:

Hola, estoy haciendo este modelo en S y no termino de comprender la consigna del delantero para cerrar los puntos; tendría que cerrar 2 puntos (uno al principio y otro al final de la vuelta= 1*1) cada vuelta hasta que la labor midiese 37 cm desde el borde del montaje? O solamente cerrarlos la 1ª fila del delantero? Gracias por el patrón :)

03.04.2024 - 23:44

DROPS Design answered:

Hola Dela, en la talla S no tienes que cerrar dos puntos (en las instrucciones pone 0 así que te saltas ese paso). Tienes que cerrar 1 punto 1 vez, es decir, 1 punto al inicio de la fila por el lado derecho y 1 punto al inicio de la fila por el lado revés (1 en cada sisa). No tienes que cerrar más puntos que estos. Continuas trabajando en punto jersey sobre el resto de puntos hasta que la labor mida 37cm.

07.04.2024 - 23:35

country flag Karen Strandesen wrote:

I Jeres opskrift 223-23 under ærmer står der at der skal lukkes 2 masker af 7 gange i begyndelsen af hver pind på str. M. Derefter skulle der være 32 masker. Men der bliver lukket i alt 15 masker af og man begynder med 62 masker. Så vil man da slutte med 47 masker - eller er der noget her jeg har misforstået?

12.02.2024 - 23:45

DROPS Design answered:

Hej Karen, du har 62 masker lukker 2x7=14 og 1x1=1 i hver side 62-14-14-1-1 = 32 masker :)

22.02.2024 - 11:33

country flag Larissa wrote:

Bonjour. Pour ce modèle en particulier je voudrais savoir si je peux remplacer la DROPS SKY par n’importe quel fil du B. Je tiens à vous remercier de répondre à mes interrogations. Merci et bonne journée.

06.01.2024 - 04:53

DROPS Design answered:

Bonjour Larissa, tout à fait, utilisez le convertisseur pour connaître la quantité correspondante à votre taille pour chacune des qualités du groupe de fils B. Notez qu'il vous faudra également tricoter avec 1 fil Kid-Silk (ou un autre fil du groupe de fils A) et obtenir la même tension pour obtenir les mesures finales du schéma. Bon tricot!

08.01.2024 - 09:45

country flag Larissa wrote:

Bonjour. J’aimerais tricoter ce pull avec 1 fil, lequel me conseillez-vous ? J’ai essayé avec les fils proposés mais le résultat est catastrophique vu que je suis une grande débutante je n’arrive pas à travailler avec 2 fils. Merci

03.01.2024 - 18:12

DROPS Design answered:

Bonjour Larissa, pour tricoter avec 2 fils, il suffit juste de les tenir en même temps comme s'il n'y en avait qu'un seul, veillez juste à ce que votre tension soit juste, autrement dit vous devez avoir 14 mailles x 16 rangs jersey = 10 x 10 cm. Si vous voulez tricoter avec un seul fil, vous pouvez utiliser DROPS Melody, mais pensez à bien vérifier votre tension pour que les mesures finales soient justes. Bon tricot!

04.01.2024 - 08:04

country flag Larissa wrote:

Bonjour. J’aimerais faire ce pull mais en utilisant un fil de groupe C notamment Drops Air. Pour la taille S, quelle quantité me conseillez-vous? Merci

30.12.2023 - 13:39

DROPS Design answered:

Bonjour Larissa, Air n'est pas forcément une alternative à ce modèle en raison de la tension; essayez dans un premier temps si vous avez la bonne tension et si la texture vous convient, car l'ouvrage risque d'être un peu plus souple et aéré en ne tricotant qu'avec 1 fil Air. Si cela vous convient, calculez le métrage total nécessaire dans les 2 laines, et divisez la plus courte par le métrage d'une pelote Air pour avoir la quantité correspondante. Bon tricot!

02.01.2024 - 10:43

country flag Nina wrote:

Synes genseren er svært kort i str, med bare 26 cm fra oppleggskant opp til maskefelling ved ermet, kan dette stemme? Og vrangborden nederst blir jo så løs da det er flere masker der enn på selve bolen, helt motsatt enn andre mønster jeg har strikket etter. Endte med at jeg må rekke opp igjen nederst, strikke lenger vrangbord hvor jeg må ha færre masker.

28.03.2023 - 08:03

DROPS Design answered:

Hej Nina, ja det er en kort genser. Du finder målene i måleskitsen nederst i opskriften (du kan naturligvis altid forlænge den) :)

12.04.2023 - 15:00

country flag MDL wrote:

Hello! Thank you for this lovely pattern. Is that the correct amount listed of Sky to use? For example 150g (small/medium) is only 3 skeins /570m, whereas you call for 100g (4 skeins /848m) of Kid Silk. I feel it must be closer to 5 skeins of Sky for a sweater. Thank you for your time.

13.09.2022 - 23:06

DROPS Design answered:

Hi MDL, The amounts given are correct as you are using the 2 yarns simultaneously. Happy knitting!

14.09.2022 - 06:58

country flag Hyejeong wrote:

For sleeves, I’m confused that K1-1-2-3-3-3, Knit 2 and 2 stitches together over the next 30-30-30-32-32-32 stitches(= 15-15-15-16-16-16 stitches decreased)...

28.02.2022 - 17:12

DROPS Design answered:

Dear Hyejeong, work this row as follows from the right side: knit 1-1-2-3-3-3 (see size), then work K2 tog a total of 15-15-15-16-16-16 times (1-1-2-3-3-3 sts remain at the end of the row), knit these last 1-1-2-3-3-3 stitches. Does it sounds now ok to you? Happy knitting!

01.03.2022 - 09:26

country flag Marte wrote:

Hei, jeg ønsker å lage denne genseren med lange ermer (til håndleddet). Hvor mye ekstra garn trenger jeg da?

08.02.2022 - 15:03

DROPS Design answered:

Hej Marte, du skal nok bruge 2 ekstra nøgler DROPS Sky og 1 ekstra i DROPS Kid-Silk :)

09.02.2022 - 10:27

country flag Debora wrote:

Bonjour, je réalise ce modèle en M et je ne suis pas sûre de comprendre la consigne sur le devant pour rabattre emmanchures; faut-il diminuer de 6 m (2x (1x2+ 1x1) sur chaque rang ? Ou a partir des 51 m, continuer jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 39 cm depuis le montage ?

11.12.2021 - 18:18

DROPS Design answered:

Bonjour Debora, en taille M, rabattez pour les emmanchures 2 mailles au début des 2 rangs suivants (= 1 fois 2 m de chaque côté), puis 1 maille au début des 2 rangs suivants (1 fois 1 m de chaque côté) = il vous reste: 57-(2-2)-(1-1)=51 mailles. Les 39 cm sont ensuite mesurés depuis le rang de montage = depuis le bas du pull, lorsque vous avez monté les mailles. Bon tricot!

13.12.2021 - 09:15