DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7018.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Watercolour Reflections

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Fabel. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með víðu hálsmáli og perluprjóni í köntum. Stærð S - XXXL.

DROPS 223-24
DROPS Design: Mynstur fa-465
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350 g litur 114, ljós perlugrár
150-150-150-150-200-200 g litur 904, lavender
150-150-150-150-200-200 g litur 623, bleik þoka

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón og perluprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7018.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PERLUPRJÓN (fram og til baka):
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið síðan umferð 2.

PERLUPRJÓN (í hring):
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið síðan umferð 2.

RENDUR:
Prjónið rendur þannig:
* Prjónið með 1 þræði í litnum ljós perlugrár og 1 þræði í litnum lavender í 4 cm, prjónið með 1 þræði í litnum ljós perlugrár og 1 þræði í litnum bleik þoka í 4 cm *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð fram og til baka í 2 stykkjum sem saumuð eru saman eins og útskýrt er í uppskrift.
Framstykkið er með víðu opi í hálsi. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / hringprjón neðan frá og upp. Peysan er með köntum í perluprjóni og allt stykkið er prjónað úr 2 þráðum Fabel. Prjónið er snúra sem er þrædd upp og niður í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 80-86-94-102-110-120 lykkjur á hringprjón 5,5 með einum þræði í litnum ljós perlugrár og 1 þræði í litnum lavender (= 2 þræðir).
Peysan er prjónuð í RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan PERLUPRJÓN yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 5 cm. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓNI í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið um 1 lykkju í hvorir hlið með 7-7-7-8-8-8 cm millibili alls 5 sinnum = 70-76-84-92-100-110 lykkjur. Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm, fellið af 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg = 68-74-82-90-98-108 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorir hlið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið nú af miðju 26-28-30-32-34-36 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í byrjun á næstu umferð frá hálsi þannig: 1 lykkja 1 sinni = 20-22-25-28-31-35 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm og fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 80-86-94-102-110-120 lykkjur á hringprjón 5,5 með einum þræði í litnum ljós perlugrár og 1 þræði í litnum lavender (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað perluprjón allar lykkjur. Prjónaðar eru rendur eins og á bakstykki. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 5 cm. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið. Fækkið um 1 lykkju í hvorir hlið með 7-7-7-8-8-8 cm millibili alls 5 sinnum = 70-76-84-92-100-110 lykkjur. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, prjónið næstu umferð þannig – frá réttu: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón yfir næstu 28-31-35-39-43-48 lykkjur, prjónið perluprjón yfir næstu 12 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 28-31-35-39-43-48 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram í sléttprjóni, 1 kantlykkju í garðaprjóni og perluprjóni svona, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm, fellið af 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg = 68-74-82-90-98-108 lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm skiptist stykkið og hvort framstykki/öxl er prjónað til loka fyrir sig. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 28-31-35-39-43-48 lykkjur, prjónið perluprjón eins og áður yfir næstu 6 lykkjur, setjið síðustu 34-37-41-45-49-54 lykkjur á þráð.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 34-37-41-45-49-54 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og perluprjóni þar til stykkið mælist 48-50-52-53-55-57 cm. Setjið nú ystu 10-11-12-13-14-15 lykkjur mitt að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn.
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 20-22-25-28-31-35 lykkjur eftir á öxl. Prjónið í sléttprjóni þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón 5,5 = 34-37-41-45-49-54 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og perluprjóni þar til stykkið mælist 48-50-52-53-55-57 cm. Setjið nú ystu 10-11-12-13-14-15 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn.
Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 20-22-25-28-31-35 lykkjur eftir á öxl. Prjónið í sléttprjóni þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

ERMI:
Fitjið upp 41-43-45-47-49-51 lykkjur á sokkaprjóna 5,5 með 1 þræði í litnum ljós perlugrár og 1 þræði í litnum lavender (= 2 þræðir9.
Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 5 cm, prjónið sléttprjón og rendur eins og á framstykki og á bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING.
Aukið út með 5-5-4½-3½-3½-3 cm millibili alls 9-9-10-11-11-12 sinnum = 59-61-65-69-71-75 lykkjur. Þegar stykkið mælist 53-52-51-49-48-45 cm, fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju þar til 5 cm eru eftir neðst = klauf.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið mitt að framan og frá réttu. Prjónið upp ca 91 til 101 lykkjur í kringum háls (meðtaldar lykkjur af þræði), á hringprjón 5,5 með 1 þræði í litnum ljós perlugrár og 1 þræði í litnum lavender.
Prjónið perluprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Haldið áfram þar til kantur í hálsmáli mælist 2 cm, fellið af með sléttum lykkjum.

SNÚRA:
Prjónað er fram og til baka með 2 sokkaprjónum nr 5,5 með 1 þræði í litnum ljós perlugrár og 1 þræði í litnum lavender. Fitjið upp 4 lykkjur á sokkaprjóna 5,5.
Prjónið 4 lykkjur slétt, * ekki snúa stykkinu, heldur færið lykkjurnar yfir á hina hliðina á prjóninum, færið þráðinn aftan við 4 lykkjur, herðið á þræði og prjónið 4 lykkjur aftur slétt frá réttu *, prjónið frá *-* þar til snúran mælist ca 120 til 130 cm, fellið af og festið þráðinn. Þræðið snúruna upp og niður í skiptinguna á milli stykkis og kant í hálsmáli, byrjið mitt að framan.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Denise wrote:

Pas de proposition ? Peut-être est-ce une question idiote, je vais demander autour de moi.

27.03.2024 - 17:09

country flag Denise wrote:

Bonjour, je viens de terminer le pull en taille XL et aig 6 (je tricote serré). Pas de soucis, il me va bien mais il me reste une pelote de chaque. Ma question : comment fixer le cordon au col? Merci

26.03.2024 - 14:27

DROPS Design answered:

Bonjour Denise, enfilez-le en le passant alternativement sur l'endroit et sur l'envers tout autour de l'encolure, en commençant après la bordure des devants sur l'endroit, puis passez-le sur l'envers, repassez-le sur l'endroit quelques cm plus loin et continuez ainsi en terminant par le côté gauche du devant, après la bordure devant. Bon tricot!

02.04.2024 - 10:25

country flag Marie-Hélène wrote:

Bonsoir Êtes vous sur que les couleurs indiquées (lavande, brume de rose et gris) soient bien les couleurs du modèle photo ? Car mon tricot est très loin de ressembler à la photo niveau coloris.

18.01.2023 - 22:36

DROPS Design answered:

Bonjour Marie-Hélène, tout à fait, mais notez que la luminosité le jour de la photo peut modifier l'apparence, que les couleurs varient d'un écran à l'autre, et qu'il peut y avoir des nuances entre les différents bains des différentes couleurs, d'autant que les différentes couleurs des imprimés ne vont pas être automatiquement au même endroit pour chacune; mais les couleurs sont bien les bonnes. Bon tricot!

19.01.2023 - 10:49

country flag Lajla Thomasen wrote:

Hvis jeg vil strikke den i baby merino med to tråde, hvor mange nøgler skal jeg så bruge i alt. Vil strikke den ensfarvet.

03.11.2022 - 17:09

DROPS Design answered:

Hej Lajla, læg antal gram i Fabel sammen i din størrelse. Brug garnomregneren. Vælg Fabel, skriv antal gram og vælg 1 tråd. Så får du garnforbruget i Baby Merino og du kan lægge det dobbelt som vi har gjort i Fabel :)

04.11.2022 - 09:04

country flag Marieregine wrote:

Bjr Je tricote beaucoup de modèles drops avec des laines drops Je trouve que le modèle watercolour réflexions a 3 erreurs Il est écrit ce pull se tricote de haut en bas alors qu'il se tricote de bas en haut Sur le diagramme il n'est pas indiqué que le corps est ceintré La plus grave et qu'il n'y a pas assez de fabel uni pour fabriquer nous-même nos pelotes à deux fills Pour la taille S il manque 1 pelote de 50g de fabel uni je vous remercie de votre réponse

08.08.2022 - 18:22

DROPS Design answered:

Bonjour Marieregine et merci pour votre fidélité; effectivement, le pull se tricote de bas en haut, la correction a été faite dans le titre; le schéma est standard, effectivement, on ne voit pas vraiment les diminutions dans le schéma lui-même mais les mesures indiquées en bas et avant les emmanchures reflètent ces diminutions sur les côtés. Quant à la quantité, nous n'avons pas encore eu de retour à ce propos, aviez-vous bien la bonne tension tout du long, à la fois en largeur mais aussi en hauteur? Merci!

09.08.2022 - 09:05

country flag Petra wrote:

Hallo, ich verstehe leider das Vorderteil nicht. Was wird denn an Maschen still gelegt? Was ist mit in Richtung vorderer Rand zum Halsausschnitt gemeint? Werden die Maschen am Halsausschnitt still gelegt? Der Pulli ist so schön, aber den Schritt bekomme ich nicht hin. Vielleicht können Sie hier helfen? Vielen Dank und viele Grüße Petra

20.05.2021 - 10:34

DROPS Design answered:

Liebe Petra, wenn Sie jedes Vorderteil separat stricken, dann legen Sie die Maschen am Anfang der Reihe von dem Halsausschnitt still, dh beim linken Vorderteil am Anfang einer Rückreihe/beim rechten Vorderteil am Anfang einer Hinreihe stricken Sie diese Maschen und legen Sie sie still, und danach ketten Sie die Maschen ab. Kann es Ihnen weiterhelfen?

20.05.2021 - 12:35

country flag Ann Litchfield wrote:

Is there a child's pattern like this, granddaughter wants to match her Mummy. Thank you.

19.05.2021 - 19:44

DROPS Design answered:

Dear Ann, unfortunately we do not have the children sized version of this pattern. You can look through our children's jumper patterns here, and select something similar in shape, like THIS for example and use it as a base for your modifications. Happy Knitting!

20.05.2021 - 00:29

country flag Amanda Karlsson wrote:

Är det garnerna i beskrivningen som är använda i mönstret eller är det andra färger? I så fall vilka färger används? Älskar färgerna som är med på bilden.

07.04.2021 - 09:49

DROPS Design answered:

Hej Amanda. Det är färgerna som står i mönstret som är på bilden. Mvh DROPS Design

07.04.2021 - 10:46

country flag Monica wrote:

Var är mönstret?

13.03.2021 - 08:06

DROPS Design answered:

Hei Monica. Oppskriften ligger der nå. mvh DROPS design

15.03.2021 - 14:42

country flag Angelica wrote:

Jättefin modell, men var är mönstret? 😃

12.03.2021 - 14:53

DROPS Design answered:

Hei Angelica. Ja, det skal vi få gjort asap. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på at det manglet. mvh DROPS design

15.03.2021 - 13:44