Buttercream Swirls Sweater#buttercreamswirlssweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með köðlum og kúlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 221-16 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka/fækka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 166 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 21 = 7,9. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkjuna með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.5. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg, síðan skiptist stykkið og framstykkið og bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig, fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna. Peysan er prjónuð út 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 166-182-190-208-230-254 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 21-21-21-25-25-25 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 187-203-211-233-255-279 lykkjur. Haldið svona áfram: Stærð S-M-L: Prjónið A.1 yfir fyrstu 16-20-22 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, A.3 (= 8 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.2 (4 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.4 (= 8 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.3, 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.4, 2 lykkjur brugðið, A.5 yfir síðustu 99-111-117 lykkjur. Stærð XL-XXL-XXXL: Prjónið A.1 yfir fyrstu 20-26-32 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, A.2 (= 4 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.3 (= 8 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.4 (= 8 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.3, 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A,4, 4 lykkjur brugðið, A.2, 2 lykkjur brugðið, A.5 yfir síðustu 125-141-159 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm fellið af fyrir handveg – stillið af að þetta sé umferð í oddatölu í umferð í A.2/A.3/A.4 (þetta er mikilvægt til að koma í veg að kaðlarnir séu prjónaðir frá röngu þegar bakstykkið og framstykkið er prjónað áfram): Fellið af fyrstu 3 lykkjurnar í umferð, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 98-106-110-122-134-146 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 77-85-89-99-109-121 lykkjur (= bakstykki) og fellið af síðustu 3 lykkjur í umferð. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka á prjóni. Setjið fyrstu 77-85-89-99-109-121 lykkjur á þráð og prjónið síðan yfir síðustu 98-106-110-122-134-146 lykkjur á framstykki. FRAMSTYKKI: = 98-106-110-122-134-146 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og haldið áfram með affellingu fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum og 1 lykkju 2-2-3-4-5-7 sinnum = 90-94-96-102-108-112 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, prjónið næstu umferð þannig – frá réttu: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 27-25-25-27-29-30 lykkjur, prjónið næstu 36-44-46-48-50-52 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 2 lykkjur yfir hver A.2 og 4 lykkjur yfir hvert A.3/A.4, prjónið síðustu 27-25-25-27-29-30 lykkjur (fækkað er um alls 10-14-14-14-14-14 lykkjur jafnt yfir alla kaðla). Í næstu umferð eru miðju 18-22-24-26-28-30 lykkjur settar á þráð = 31-29-29-31-33-34 lykkjur á hvorri öxl. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað við hálsmál í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 27-25-25-27-29-30 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 2 lykkjur yfir A.2 og 4 lykkjur yfir A.3/A.4 = 21-21-21-21-23-24 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: = 77-85-89-99-109-121 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og haldið áfram með affellingu fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 2-2-3-4-5-7 sinnum = 69-73-75-79-83-87 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm fellið af miðju 25-29-31-35-35-37 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju við hálsmál = 21-21-21-21-23-24 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Stykkið skiptist þegar fellt er af fyrir ermakúpu og er prjónað áfram fram og til baka. Fitjið upp 40-42-44-46-48-50 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 8 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 13 lykkjur jafnt yfir = 53-55-57-59-61-63 lykkjur. Prjónið síðan þannig: A.5 yfir fyrstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, A.2 (= 4 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.4 (= 8 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.2 (= 4 lykkjur), 2 lykkjur brugðið, A.5 yfir síðustu 12-14-14-16-16-18 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð, þetta er mitt undir ermi. Haldið áfram með mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið út með 3½-3-3-2½-2-1½ cm millibili alls 10-11-12-13-15-16 sinnum = 73-77-81-85-91-95 lykkjur. Þegar stykkið mælist 45-44-44-43-42-40 cm, fellið af 3 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki og lykkju með prjónamerki (= 7 lykkjur færri mitt undir ermi), prjónið síðan ermina fram og til baka. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 3 sinnum, 1 lykkja 1-2-2-3-4-6 sinnum. Síðan eru felldar af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 52 cm í öllum stærðum, fellið af 3 lykkjur 1 sinni, JAFNFRAMT sem fellt er af í síðasta skipti, fækkið um 4 lykkjur yfir lykkjur í A.4 og 2 lykkjur yfir lykkjur í hverju A.2. Í næstu umferð eru þær lykkjur sem eftir eru felldar af. Ermin mælist ca 53 cm í öllum stærðum. Prjónið aðra ermi á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. KANTUR Í HÁLSI: Byrjið í hlið við annan axlasauminn. Prjónið upp ca 80 til 90 lykkjur í kringum hálsinn (meðtaldar lykkjur af þræði) og deilanlegt með 2 á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #buttercreamswirlssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.