Halina skrifaði:
Czy ten wzór występuje również z rzędami skróconymi dla podniesienie tyłu dekoltu.
10.02.2024 - 22:01DROPS Design svaraði:
Witaj Halino, niestety nie, ale z łatwością wykonasz kilka dodatkowych rzędów z tyłu, aby go nieco podnieść. Powodzenia!
12.02.2024 - 09:11
Mie skrifaði:
Når havbrise er udsolgt, er der så andre farver, der kan matches med en farve i silk?
10.11.2022 - 22:39DROPS Design svaraði:
Hej Mie, ja du kan vælge at strikke sammen med en grøn i DROPS Flora eller DROPS Nord eller DROPS Baby Merino og stadigvæk få samme strikkefasthed :)
11.11.2022 - 13:28
Segalen skrifaði:
Bonjour. dans le modèle 215-23 je ne comprends pas comment vous obtenez 141 mailles pour la taille L. après 2 diminutions de chaque côté. Moi j' en obtient que 139. J' ai bien recompté je n ai pas oublié de jeté. Merci de votre réponse.
10.01.2021 - 09:25DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Segalen, vous devez avoir 161 m en taille L (et 141 m en taille S): les 7 m du début du rang sont diminuées à 5( = 2 m ens torse à l'end x 2), vous répétez 30 fois (1 m end, 1 jeté, 2 m env, 1 jeté) (= vous avez 150 m) et tricotez les 8 dernières m en diminuant 2 m = 5+150+6=161 m. Bon tricot!
11.01.2021 - 09:16
Gilles YENN skrifaði:
Comment faire une cote anglaise sur ce modèle
22.12.2020 - 16:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Yenn! Suivez les diagrammes A.1 à A.3. Voir diagrammes (A.1A, A.2A et A.3A) appropriés à la taille. Les diagrammes montrent tous les rangs du point fantaisie, vus sur l'endroit. Bon tricot!
22.12.2020 - 17:15
Nzina skrifaði:
Bonsoir pour les boutonnières on dit de tricoter jusqu'à 3 mailles avant la fin du rang. Est-ce que la maille lisière est incluse dans ces 3 mailles ou non ? Merci pour votre réponse. A bientôt.
24.11.2020 - 22:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Nzina, en fait il n'y a pas de mailles lisières à proprement parler vu qu'il n'y a pas de coutures, donc les 5 mailles de la bordure devant se tricotent au point mousse de chaque côté, et les boutonnières se font - en fin de rang - après les 2 premières des 5 m point mousse (= 2 m point mousse, jeté, 2 m ens à l'end, 1 m end). Bon tricot!
25.11.2020 - 07:49
Aschenbach, Ellen skrifaði:
Attraktiv!
06.06.2020 - 15:10
Forest Vines Jacket#forestvinesjacket |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og áferðamynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 215-23 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1A, A.2A og A.3A). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 165 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 155 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 23) = 6,7. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 6. og 7. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca 5. og 6. hver lykkja og 6. og 7. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir næsta hnappagati þegar kantur í hálsmáli mælist ca 8 cm. Þessi 2 hnappagöt eiga að passa yfir hvort annað þegar kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur. Fellið af fyrir 5-5-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 9½-10-8½-9-8-8 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 93-99-105-105-111-117 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff – munið eftir 2 HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 9 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: S, M og L: Prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 1 lykkja slétt, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt = 141-151-161 lykkjur í umferð (og fækkað hefur verið um 2 lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan). Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR! XL, XXL og XXXL: Prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 1 lykkja slétt, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt = 191-203-215 lykkjur í umferð (og fækkað hefur verið um 2 lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan). Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR! ALLAR STÆRÐIR: Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Setjið 1 prjónamerki innan við kant við miðju að framan. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 13-14-15-15-16-17 mynstureiningar með 10-10-10-12-12-12 lykkjur), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5-6-6-6-7-7 cm frá prjónamerki við háls, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 13-14-15-15-16-17 mynstureiningar með 10-10-10-12-12-12 lykkjur), prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Eftir fyrstu umferð í A.2 eru 197-211-225-255-271-287 lykkjur í umferð og þegar 2 fyrstu umferðir hafa verið prjónaðar til loka, endurtakið A.x á hæðina. Þegar stykkið mælist 10-12-12-13-14-14 cm frá prjónamerki við háls, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3A þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð (= 13-14-15-15-16-17 mynstureiningar með 14-14-14-16-16-16 lykkjur), prjónið A.3B (= 5 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Eftir fyrstu umferð í A.3 eru 249-267-285-315-335-355 lykkjur í umferð og þegar 2 fyrstu umferðirnar hafa verið prjónaðar til loka, endurtakið A.y á hæðina. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 18-20-22-23-24-26 cm frá prjónamerki við háls. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 0-6-4-2-2-6 lykkjur jafnt yfir = 249-273-289-317-337-361 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka (slétt frá réttu, brugðið frá röngu) með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 20-22-24-26-27-29 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 41-45-47-52-56-61 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 71-79-83-93-101-111 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki), setjið næstu 48-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fijtið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 41-45-47-52-56-61 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 165-181-193-213-233-253 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 27 cm frá skiptingu. Nú eru eftir 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 23-25-28-29-33-37 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 188-206-221-242-266-290 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-52-56-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverj af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-68-72-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku þegar ermin mælist 6 cm frá skiptingu = 50-54-60-64-68-70 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4 cm millibili alls 5-5-4-4-4-4 sinnum = 60-64-68-72-76-78 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 42-40-39-38-38-36 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 24-28-29-33-37-36 lykkjur jafnt yfir = 36-36-39-39-39-42 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 47-45-44-43-43-41 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið uppá kant í hálsmáli tvöfaldan að röngu og saumið niður með smáu, fallegu spori – passið uppá að hnappagötin 2 passi yfir hvort annað. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forestvinesjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.