Mima Suvalija skrifaði:
Kan oppskrift sendes i posten?
19.04.2024 - 21:31DROPS Design svaraði:
Hei Mima. Du kan laste ned oppskriften og skrive de ut. Har du ikke printer, kontakt ditt lokale bibliotekt, mulig de kan hjelpe. mvh DROPS Design
22.04.2024 - 13:00Laura Cole skrifaði:
Are there instructions for knitting in the round and steeking?
07.09.2023 - 17:31DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Cole, there is no extra pattern with steek stitches, but this video might help you. Happy knitting!
08.09.2023 - 07:51Ann skrifaði:
Picking up sts for the underarm, there appears to be an error. Size L 72 sts plus 8 from cast on = 80 sts. Moving on to the next point, markers and dividing we now appear to have 8 extra sts…. Where did they come from ?
08.01.2023 - 14:36DROPS Design svaraði:
Dear Ann, in this paragrah M, L, XL, XXL and XXXL:, L is now the 2nd size, ie insert 1 marker in the first stitch after the middle, count 39 stitches, insert 1 marker in next stitch = 39 stitches remain on round after stitch with marker = 1+39+1+39=80 sts. Happy knitting!
09.01.2023 - 10:16Melanie skrifaði:
Hallo, wird die passe in runden gestrickt und dann später aufgetrennt? Oder wird das Muster hin und zurück gestrickt?
09.10.2022 - 19:31DROPS Design svaraði:
Liebe Melanie, die Passe stricken Sie in Hin- und Rückreihen vom Anfang bis zur Ende, nur die Ärmel werden in Runden gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
10.10.2022 - 09:27Fernando skrifaði:
Hacen envíos de los materiales a Japón? Como hago para pedir y comprar los materiales? Gracias!
11.11.2021 - 01:28DROPS Design svaraði:
Hola Fernando, puedes consultar las tiendas con envío internacional en el siguiente enlace: https://www.garnstudio.com/findastore.php?s=w&cid=19
14.11.2021 - 19:11Fernando skrifaði:
Hola! Muchas gracias por tanta inspiración! Quiero preguntar si envían materiales a Japón. Me gustaría comprar de ustedes las llamas necesarias. Es posible? Como lo hago? Gracias!
11.11.2021 - 01:26JOHAN Catherine skrifaði:
Bonjour. J'ai imprimé le modèle de gilet 217-9. Mais les pages où se trouvent les diagrammes ne s'impriment pas. De même pour la page où se trouvent les dimensions du tricot. Pouvez vous le dire comment faire ? J'attends votre réponse pour commander la laine. Merci.
28.04.2021 - 10:38DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Johan, j'ai pu imprimer ce modèle pour tester et tout à bien fonctionné. Pensez à vérifier les paramètres de votre imprimante pour que toutes les pages soient imprimées, les diagrammes se trouvent sur les pages 7 et 8 et le schéma des mesures sur la page 9. Bon tricot!
28.04.2021 - 11:23Alison MacDonaldcan I skrifaði:
Can I have this pattern in English please? Mange tak. Alison
01.11.2020 - 13:02DROPS Design svaraði:
Dear Alison, you can change the language under the photo in the pattern. The UK English version is here: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=9894&cid=19
01.11.2020 - 16:10Sofia Broborg skrifaði:
Hej! Vart har A1 tagit vägen? Ni har skrivit att ni lagt ut det men det finns inte där, men två måttskisser i stället... 😅
29.09.2020 - 21:26DROPS Design svaraði:
Hej Sofia. A.1 finns precis över måttskissen (jag ser bara en måttskiss). Kanske du måste uppdatera sidan eller byta webläsare för att se det? Mvh DROPS Design
30.09.2020 - 07:11Lucia Van Den Berg skrifaði:
De telpatronen die bij dit vest staan kloppen niet met het patroon op de foto. Wanneer worden de goede telpatronen toegevoegd A1 ontbreekt in ieder geval.
28.09.2020 - 16:50DROPS Design svaraði:
Dag Lucia,
Inmiddels staan de juiste telpatronen erbij. A.1 staat links onderin bij de telpatronen.
10.10.2020 - 11:40
Winter's Night Enchantment Jacket |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 217-9 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 94 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 kantlykkjur) og deilið þeim 92 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 29) = 3,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kantlykkjur). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, þá er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkjuna í umferð. Byrjið frá réttu með koksgrár og prjónið 12-13-14-15-15-16 sléttar lykkjur framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 25-27-29-31-31-33 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 37-40-43-46-46-49 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 49-53-57-61-61-65 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 61-66-71-76-76-81 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 73-79-85-91-91-97 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar út umferðina (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.2). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast, þá kemur flíkin til með að verða of stutt og handvegur of lítill – þetta er hægt að jafna til með því að prjóna auka umferð með jöfnu millibili í einlitu einingunum. Ef prjónað er of laust, þá verður flíkin of löng og handvegur of stór, þá er hægt að prjóna færri umferðir með jöfnu millibili í einlitu einingunum. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi þannig: S: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki mitt undir ermi, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum koksgrár, prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman með litnum koksgrár (= 2 lykkjur færri). M, L, XL, XXL og XXXL: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum koksgrár, prjónið lykkjuna með prjónamerki í slétt með litnum koksgrár og prjónið síðan 2 lykkjur snúnar slétt saman með litnum koksgrár (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT í KANTI Í HÁLSMÁLI: Þegar kantur í hálsi mælist ca 1½ til 2 cm, fellið af fyrir 1 hnappagati í hægri hlið í kanti í hálsmáli (þegar stykkið er mátað). Fellið af frá fréttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur brugðið saman, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Að lokum eru kantar að framan prjónaðir. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-108-112-116-120-124 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með litnum koksgrár. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 6 lykkjur (hér á að sauma kant að framan síðar), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 92-96-100-104-108-112 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 29-29-33-33-37-41 lykkjur jafnt yfir þessar 92-96-100-104-108-112 lykkjur – sjá ÚTAUKNING, prjónið síðan stroff eins og áður yfir næstu 5 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 6 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, svo ekki myndist gat), prjónið brugðið til baka yfir allar lykkjurnar, en kantlykkjur (ysta lykkjan í hvorri hlið á stykki) er prjónuð í garðaprjóni og uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat = 123-127-135-139-147-155 lykkjur á prjóni. Setjið 1 prjónamerki á eftir kantlykkju í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef ekki er óskað eftir upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Prjónið 0-0-2-2-4-6 umferðir sléttprjón með litnum koksgrár og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 30-31-33-34-36-38 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 (þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 alveg eins. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 og A.2 eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING: STÆRÐ S, M og L: Ör-1: Aukið út 36-38-42 lykkjur jafnt yfir = 159-165-177 lykkjur (nú er pláss fyrir 26-27-29 mynstureiningar með 6 lykkjum). Ör-2: Aukið út 64-58-66 lykkjur jafnt yfir = 223-223-243 lykkjur (nú er pláss fyrir 11-11-12 mynstureiningar með 20 lykkjum). Ör-3: Aukið út 32-40-36 lykkjur jafnt yfir = 255-263-279 lykkjur (nú er pláss fyrir 63-65-69 mynstureiningar með 4 lykkjum). Ör-4: Aukið út 30-34-36 lykkjur jafnt yfir = 285-297-315 lykkjur (nú er pláss fyrir 47-49-52 mynstureiningar með 6 lykkjum). Ör-5: Aukið út 24-30-36 lykkjur jafnt yfir = 309-327-351 lykkjur (nú er pláss fyrir 51-54-58 mynstureiningar með 6 lykkjum). Ör-6 (á einungis við um M og L, þar sem í S skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar áður en þessi mynsturbekkur byrjar): Aukið út um 4-4 lykkjur jafnt yfir = 309-331-355 lykkjur (nú er pláss fyrir 41-44 mynstureiningar með 8 lykkjum í M og L). STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Ör-1: Aukið út 44-48-52 lykkjur jafnt yfir = 183-195-207 lykkjur (nú er pláss fyrir 30-32-34 mynstureiningar með 6 lykkjum). Ör-2: Aukið út 42-48-54 lykkjur jafnt yfir = 225-243-261 lykkjur (nú er pláss fyrir 37-40-43 mynstureiningar með 6 lykkjum). Ör-3: Aukið út 18-20-22 lykkjur jafnt yfir = 243-263-283 lykkjur (nú er pláss fyrir 12-13-14 mynstureiningar með 20 lykkjum). Ör-4: Aukið út 60-64-68 lykkjur jafnt yfir = 303-327-351 lykkjur (nú er pláss fyrir 75-81-87 mynstureiningar með 4 lykkjum). Ör-5: Aukið út 54-54-60 lykkjur jafnt yfir = 357-381-411 lykkjur (nú er pláss fyrir 59-63-68 mynstureiningar með 6 lykkjum). Ör-6: Aukið út 30-30-30 lykkjur jafnt yfir = 387-411-441 lykkjur (nú er pláss fyrir 64-68-73 mynstureiningar með 6 lykkjum). Ör-7: Aukið út 8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 395-419-451 lykkjur (nú er pláss fyrir 49-52-56 mynstureiningar með 8 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki í hálsmáli. ATH: Í sumum stærðum kemur til með að standa eftir nokkrar umferðir í A.2 þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar – afgangur af A.2 er þá prjónað til loka á fram- og bakstykki og ermum. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 46-50-53-58-64-70 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 63-66-72-82-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 91-99-105-115-127-139 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 63-66-72-82-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 46-50-53-58-64-70 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 195-211-227-247-275-299 lykkjur. Prjónið A.2 til loka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – passið uppá að mynstrið passi fallega yfir A.2 á berustykki, en hafið í huga að mynstrið gengur ekki jafnt upp undir ermum í öllum stærðu þegar síðasta umferð í A.2 er prjónuð til loka. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð og aukið jafnframt út um 6-8-10-8-10-10 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið fyrstu lykkjuna í A.3 (þannig að mynstrið byrjið og endi alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 201-219-237-255-285-309 lykkjur í umferð. Nú er pláss fyrir 33-36-39-42-47-51 mynstureiningar A.3 með 6 lykkjum. Endurtakið A.3 á hæðina þar til stykkið mælist ca 22 cm frá skiptingu í öllum stærðum, en endið eftir umferð með «doppum». Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að A.3 til loka. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið fyrstu lykkjuna í A.4 (séð frá réttu), prjónið A.4 þar til 1 lykkja er eftir í umferð (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu) og aukið jafnframt út um 2-0-2-0-2-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 203-219-239-255-287-311 lykkjur í umferð. Nú er pláss fyrir 50-54-59-63-71-77 mynstureiningar A.4 með 4 lykkjum. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 28 cm frá skiptingu. Afgangur af fram- og bakstykki er prjónaður með litnum koksgrár. Prjónið 1 umferð brugðið þar sem aukið er út um 45-49-53-57-65-69 lykkjur jafnt yfir = 248-268-292-312-352-380 lykkjur. Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragið stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 63-66-72-82-82-86 lykkjur frá þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum undir ermi = 69-72-80-90-92-96 lykkjur. Setjið nú 2 prjónamerki í stykkið (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): S: Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi á milli miðju 6 lykkja, teljið 34 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju = 34 lykkjur eftir í umferð á eftir lykkju með prjónamerki í. M, L, XL, XXL og XXXL: Byrjið mitt undir ermi á milli 6-8-8-10-10 lykkja, setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju á eftir miðju, teljið 35-39-44-45-47 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju = 35-39-44-45-47 lykkjur eftir í umferð á eftir lykkju með prjónamerki í. ALLAR STÆRÐIR: Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið mitt undir ermi er notað þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónamerkið mitt á ermi er notað þegar telja á út hvar mynstrið á að byrja. Prjónið síðan MYNSTUR jafnframt því sem prjónuð er ÚRTAKA mitt undir ermi eins og útskýrt er að neðan – lestu allan kaflann um ermi áður en þú prjónar áfram: MYNSTUR: Byrjið umferð mitt undir ermi og prjónið A.2 til loka á sama hátt og á fram- og bakstykki, en teljið út frá miðju á ermi hvar mynstrið á að byrja – lykkjan með prjónamerki mitt á ermi á að passa með lykkju merktri með stjörnu í A.2 (lykkjum er fækkað undir ermi jafnframt því sem mynstrið er prjónað). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 hringinn alveg eins. A.3 er endurtekið á hæðina þar til ermin mælist ca 34-32-31-29-28-26 cm frá skiptingu, en endið eftir umferð með “doppum”. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið A.3 síðan að óskaðri lengd. Prjónið síðan A.4 hringinn. ÚRTAKA: Jafnframt þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 12-13-16-20-20-20 sinnum = 45-46-48-50-52-56 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka og úrtaka hefur verið gerð til loka mælist ermin ca 40-38-37-35-34-32 cm frá skiptingu. Afgangur af ermi er prjónaður með litnum koksgrár. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-6-8-10-8-8 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-60-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 44-42-41-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN (þegar stykkið er mátað): Prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni ca 132-136-144-148-152-160 lykkjur meðfram miðju að framan á hringprjón 3 með koksgrár (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í ca 3 cm – stillið af að kantur að framan er jafn breiður og breiddin á 6 lykkjum sem felldar voru af í kanti í hálsi. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið á sama hátt og vinstri kantur að framan, en eftir ca 1 til 1½ cm er fellt af fyrir 6-6-6-7-7-7 hnappagötum jafnt yfir. Neðsta hnappagatið á að staðsetja ca 10 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið ca 7-7-7-8-8-8 cm frá hnappagati í kanti í hálsmáli. ATH: Það er fallegast að fella af fyrir hnappagötum í brugðinni einingu (séð frá réttu) með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og síðan að prjóna 2 lykkjur brugðið saman. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. FRÁGANGUR: Saumið kant efst á kanti að framan fallega í kant í hálsmáli innan við 1 kantlykkju með sauminn inn að röngu. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. Ertu búin að klára þetta mynstur? |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.