DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter's Night Enchantment

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 219-15
DROPS Design: Mynstur u-915
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL – XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-700-750 g litur 53, koksgrár
150-200-200-200-250-250 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka/fækka eigi jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d.28) = 3,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, prjónið í þessu dæmi ca aðra hverja og 3. hverja lykkju slétt saman.

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, þá er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt að aftan. Byrjið frá réttu með litnum koksgrár og prjónið 12-13-14-15-15-16 sléttar lykkjur framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-26-28-30-30-32 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 36-39-42-45-45-48 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 48-52-56-60-60-64 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-65-70-75-75-80 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 72-78-84-90-90-96 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.2). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast, þá kemur flíkin til með að verða of stutt og handvegur of lítill – þetta er hægt að jafna til með því að prjóna auka umferð með jöfnu millibili í einlitu einingunum.
Ef prjónað er of laust, þá verður flíkin of löng og handvegur of stór, þá er hægt að prjóna færri umferðir með jöfnu millibili í einlitu einingunum.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi þannig:
S: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki mitt undir ermi, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum koksgrár, prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman með litnum koksgrár (= 2 lykkjur færri).
M, L, XL, XXL og XXXL: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum koksgrár, prjónið lykkjuna með prjónamerki í slétt með litnum koksgrár og prjónið síðan 2 lykkjur snúnar slétt saman með litnum koksgrár (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 92-96-100-104-108-112 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum koksgrár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-28-32-32-36-40 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 120-124-132-136-144-152 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef ekki er óskað eftir upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI.

BERUSTYKKI:
Prjónið 0-0-2-2-4-6 umferðir sléttprjón með litnum koksgrár. Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 hringinn (= 30-31-33-34-36-38 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Haldið svona áfram með mynstur, en þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 alveg eins. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 og A.2 eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA:

STÆRÐ S, M og L:
Ör-1: Aukið út 36-38-42 lykkjur jafnt yfir = 156-162-174 lykkjur (nú er pláss fyrir 26-27-29 mynstureiningar með 6 lykkjum).
Ör-2: Aukið út 64-58-66 lykkjur jafnt yfir = 220-220-240 lykkjur (nú er pláss fyrir 11-11-12 mynstureiningar með 20 lykkjum).
Ör-3: Aukið út 32-40-36 lykkjur jafnt yfir = 252-260-276 lykkjur (nú er pláss fyrir 63-65-69 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Ör-4: Aukið út 30-34-36 lykkjur jafnt yfir = 282-294-312 lykkjur (nú er pláss fyrir 47-49-52 mynstureiningar með 6 lykkjum).
Ör-5: Aukið út 24-30-36 lykkjur jafnt yfir = 306-324-348 lykkjur (nú er pláss fyrir 51-54-58 mynstureiningar með 6 lykkjum).
Ör-6 (á einungis við um M og L, þar sem í S skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar áður en þessi mynsturbekkur byrjar): Aukið út um 4-4 lykkjur jafnt yfir = 306-328-352 lykkjur (nú er pláss fyrir 41-44 mynstureiningar með 8 lykkjum í M og L).

STÆRÐ XL, XXL og XXXL:
Ör-1: Aukið út 44-48-52 lykkjur jafnt yfir = 180-192-204 lykkjur (nú er pláss fyrir 30-32-34 mynstureiningar með 6 lykkjum).
Ör-2: Aukið út 42-48-54 lykkjur jafnt yfir = 222-240-258 lykkjur (nú er pláss fyrir 37-40-43 mynstureiningar með 6 lykkjum).
Ör-3: Aukið út 18-20-22 lykkjur jafnt yfir = 240-260-280 lykkjur (nú er pláss fyrir 12-13-14 mynstureiningar með 20 lykkjum).
Ör-4: Aukið út 60-64-68 lykkjur jafnt yfir = 300-324-348 lykkjur (nú er pláss fyrir 75-81-87 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Ör-5: Aukið út 54-54-60 lykkjur jafnt yfir = 354-378-408 lykkjur (nú er pláss fyrir 59-63-68 mynstureiningar með 6 lykkjum).
Ör-6: Aukið út 30-30-30 lykkjur jafnt yfir = 384-408-438 lykkjur (nú er pláss fyrir 64-68-73 mynstureiningar með 6 lykkjum).
Ör-7: Aukið út 8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 392-416-448 lykkjur (nú er pláss fyrir 49-52-56 mynstureiningar með 8 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
Prjónið þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki í hálsmáli. ATH: Í sumum stærðum kemur til með að standa eftir nokkrar umferðir í A.2 þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar – afgangur af A.2 er þá prjónað til loka á fram- og bakstykki og ermum.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 45-49-52-57-63-69 lykkjur eins og áður (= ½ bakstykki), setjið næstu 63-66-72-82-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 90-98-104-114-126-138 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 63-66-72-82-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 45-49-52-57-63-69 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 192-208-224-244-272-296 lykkjur.
Prjónið A.2 til loka – passið uppá að mynstrið passi fallega yfir A.2 á berustykki, en hafið í huga að mynstrið gengur ekki jafnt upp undir ermum í öllum stærðu þegar síðasta umferð í A.2 er prjónuð til loka.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 hringinn – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 0-2-4-2-4-4 lykkjur jafnt yfir = 192-210-228-246-276-300 lykkjur. Nú er pláss fyrir 32-35-38-41-46-50 mynstureiningar A.3 með 6 lykkjum.
Endurtakið A.3 á hæðina þar til stykkið mælist ca 27 cm frá skiptingu í öllum stærðum, en endið eftir umferð með «doppum».
Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að A.3 að loka máli.

Prjónið A.4 hringinn – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 0-2-4-2-4-4 lykkjur jafnt yfir = 192-208-224-244-272-296 lykkjur í umferð (nú er pláss fyrir 48-52-56-61-68-74 mynstureiningar A.4 með 4 lykkjum).
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 33 cm frá skiptingu. Afgangur af fram- og bakstykki er prjónaður með litnum koksgrár.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 40-44-44-48-56-60 lykkjur jafnt yfir = 232-252-268-292-328-356 lykkjur. Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 63-66-72-82-82-86 lykkjur frá þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum undir ermi = 69-72-80-90-92-96 lykkjur.
Setjið nú 2 prjónamerki í stykkið (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar):

S:
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi á milli miðju 6 lykkja, teljið 34 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju = 34 lykkjur eftir í umferð á eftir lykkju með prjónamerki í.

M, L, XL, XXL og XXXL:
Byrjið mitt undir ermi í miðju á 6-8-8-10-10 lykkjum, setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju á eftir miðju, teljið 35-39-44-45-47 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju = 35-39-44-45-47 lykkjur eftir í umferð á eftir lykkju með prjónamerki í.

ALLAR STÆRÐIR:
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið mitt undir ermi er notað þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónamerkið mitt á ermi er notað þegar telja á út hvar mynstrið á að byrja.
Prjónið síðan MYNSTUR jafnframt því sem prjónuð er ÚRTAKA mitt undir ermi eins og útskýrt er að neðan – lestu allan kaflann um ermi áður en þú prjónar áfram:

MYNSTUR:
Byrjið umferð mitt undir ermi og prjónið A.2 til loka alveg eins og á fram- og bakstykki, en teljið út frá miðju á ermi hvar mynstrið á að byrja – lykkjan með prjónamerki mitt á ermi á að passa með lykkju merktri með stjörnu í A.2 (lykkjum er fækkað undir ermi jafnframt því sem mynstrið er prjónað).
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 hringinn alveg eins. A.3 er endurtekið á hæðina þar til ermin mælist ca 35-34-32-31-29-28 cm frá skiptingu, en endið eftir umferð með “doppum”. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið A.3 síðan að óskaðri lengd. Prjónið A.4 hringinn.

ÚRTAKA:
Jafnframt þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 9-10-13-17-18-19 sinnum = 51-52-54-56-56-58 lykkjur.
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka og úrtaka hefur verið gerð til loka mælist ermin ca 41-40-38-37-35-34 cm frá skiptingu. Afgangur af ermi er prjónaður með litnum koksgrár.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-8-10-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 60-60-64-64-64-68 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 45-44-42-41-39-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.02.2021
Leiðrétting: FRAM- OG BAKSTYKKI: Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 hringinn - JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 0-2-4-2-4-4 lykkjur jafnt yfir = 192-210-228-246-276-300 lykkjur...

Mynstur

symbols = koksgrár
symbols = natur
symbols = útauknings umferð
symbols = miðjulykkja
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Winter's Night Enchantment

Даша Мосієнко, Finland

Winters Night Enchantment

Kris, United States

Winters Night Enchantment

Makala, United States

Winters Night Enchantment

Soft Stop, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS 219-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (43)

country flag Jennie wrote:

Hello, I am knitting the Large pattern and I have just split for sleeves, and I now have total of 224 stitches for the body but I am still finishing A.2 but I am on a 6 stitch repeat which doesn't work for 224 stitches. How do I work these? Thanks!

15.02.2024 - 16:16

DROPS Design answered:

Hi Jennie, You can either work the stitches which don't fit in stocking stitch under each sleeve or work part of a repeat of A.2 under each sleeve to give a slight "jump" in the pattern . Whichever you choose, make sure the main pattern is continued neatly from the yoke onto the body. Happy knitting!

16.02.2024 - 07:04

country flag Spiliotopoulos Andreas wrote:

Hello. I am making an XL size. Somehow I reached the division before arrow 7. So what should I do? Is it OK to increase 6+7 at the same time? Or something else? Thank you!

01.12.2023 - 12:23

DROPS Design answered:

Dear Mr Spiliotopoulos, your tension in height might not be right, you might then to adjust the increase round to match your tension and the required measurements adjusting to the number of sts required for the diagram/repeats. Happy knitting!

01.12.2023 - 15:36

country flag Nicole Cointeaux wrote:

Toutes mes excuses Je n’avais pas lu correctement les explications !IL est noté de faire la rehausse après les cotes 2/2 !

18.09.2023 - 16:35

country flag Nicole Vointeaux wrote:

Bonjour J’ai une question a propos de la rehausse dos ,elle se fait avec quelque rangs de jersey et après on doit tricoter l’empiètement , il n’y a donc pa d’encolure en cotes 2/2 , Peut-on tricoter la rehausse en cote s 2/2 ou bien tricoter en cotes2/2 après la rehausse Merci de me conseiller Nicole

18.09.2023 - 16:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vointeaux, la réhausse se tricote en jersey après le col (on tricote d'abord 5 cm de côtes, 1 tour en ajustant le nombre de mailles, puis on tricote cette réhausse en jersey, avant de commencer l'empiècement. Bon tricot!

18.09.2023 - 16:20

country flag Nicole wrote:

Je vais tricoter le modèle 219_15 et pouvez vous me dire comment choisir la bonne taille Le tour de poitrine étant de 89 cm Merci pour votre aide

12.08.2023 - 15:23

DROPS Design answered:

Bonjour Nicole, mesurez un vêtement dont la personne pour qui vous tricotez ce pull aime la forme, et comparez ces mesures à celles du schéma du bas de page, ce sera ainsi plus simple de trouver la bonne taille. - retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!

14.08.2023 - 09:13

country flag Michal wrote:

Hi Drops team, how do I divide for the body and sleeves section (for size M) when I reach 24cm yoke in length several rows before the last #6 arrow increase? I do have 324 stitches o the neeedles, not 328 as required for the body and sleeves division. thank you 😀

24.06.2023 - 11:00

DROPS Design answered:

Dear Michal, if you don't have the correct amount of stitches when reaching 24 cm of the yoke, then your vertical gauge is incorrect ( you have less rows per cm than you should, so you may be working more loosely than you should). Try the jumper and see if the length and width fits. If it does, simply increase 4 stitches evenly on the next row and then start dividing for the body and sleeves as explained in the pattern. Check from time to time that the pattern will not get interrupted. Happy knitting!

25.06.2023 - 13:44

country flag LOL wrote:

Bonjour Au niveau dos & devant, en XL, il me reste des rangs de A2 à faire. J'ai un souci car 244/8 mailles formant A2, est = à 30,50. Il me reste donc 4 mailles pour finir mon rang mais ça ne coïncide pas avec le début du rang suivant en milieu dos. Que faire ? Diminuer 4 mailles pour finir A2 ? Merci de votre aide

12.05.2023 - 17:48

DROPS Design answered:

Bonjour Lol, tricotez simplement le maximum de mailles en suivant A.2 jusqu'au milieu sous les manches, le motif ne tombera pas juste au début du tour et de l'autre côté, c'est normal. Vous augmenterez 2 m au 1er tour de A.3 pour tricoter A.3 en rond. Bon tricot!

15.05.2023 - 07:53

country flag LOL wrote:

Bonjour Comment éviter le décalage de couleur lorsqu'il n'y a qu'un seul rang ? Merci

13.04.2023 - 23:25

DROPS Design answered:

Bonjour Lol, le décalage des couleurs n'est pas possible à chaque tour, vous pouvez jouer un peu sur les fils en les tirant légèrement pour essayer de rapprocher la dernière maille du tour de la première. Bon tricot!

14.04.2023 - 07:55

country flag Nihal wrote:

Hei, how can I do jogless when I strat next row. I discovered that in the middle of knitting. I don't have so much experience. I need help.

20.12.2022 - 00:46

DROPS Design answered:

Dear Mrs Nihal, you can use the tip shown in this video for some of the rounds, but for other rounds in the pattern, there will be a slight jog between the rounds. Happy knitting!

20.12.2022 - 08:36

country flag Anna wrote:

Hallo, ich habe leider ein Problem beim Aufteilen in Rumpf/Ärmel… Ich komme in Größe M etwa bei Pfeil 4 an, wenn ich aufteilen soll ( ähnlich wie auf den Fotos), leider stimmt dann die Anzahl der Maschen für Rumpf und Ärmel dann nicht, weil ja eigentlich noch 2 Zunahme Runden folgen würden. Könnten Sie mir helfen dieses Problem zu lösen? Viele Grüße

11.12.2022 - 10:12

DROPS Design answered:

Liebe Anna, wenn Ihre Maschenprobe in der Höhe nicht stimmt (= 28 Reihe = 10 cm) dann sollen Sie die Zunahmen der Passe anpassen, wenn Sie weniger Reihen brauchen, dann sollen Sie öfter zunehmen und wenn Sie mehr Reihen brauche, dann sollen Sie mehr Reihen zwischen die Reihen mit Zunahmen stricken. Gerne kann Ihnen damit Ihr DROPS Händler - auch per Telefon oder per E-Mail- weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!

12.12.2022 - 09:28