DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter's Night Enchantment Jacket

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 219-13
DROPS Design: Mynstur u-913
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL – XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-700-750 g litur 53, koksgrár
200-200-200-250-250-300 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Marble NR 629: 7-7-8-8-9-9 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), mínus kantlykkjur og kantlykkjur að framan (t.d. 2 kantlykkjur og 10 kantlykkjur að framan) og deilið þeim 92 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 29) = 3,2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 3. hverja lykkju (lykkjum er ekki aukið út yfir kantlykkjur).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi ca önnur hver og 3. hver lykkja slétt saman (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur).

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, þá er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkjuna í umferð. Byrjið frá réttu með litinn koksgrár og prjónið 12-13-14-15-15-16 sléttar lykkjur framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 25-27-29-31-31-33 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 37-40-43-46-46-49 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 49-53-57-61-61-65 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 61-66-71-76-76-81 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 73-79-85-91-91-97 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar út umferðina (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.2). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast, þá kemur flíkin til með að verða of stutt og handvegur of lítill – þetta er hægt að jafna til með því að prjóna auka umferð með jöfnu millibili í einlitu einingunum.
Ef prjónað er of laust, þá verður flíkin of löng og handvegur of stór, þá er hægt að prjóna færri umferðir með jöfnu millibili í einlitu einingunum.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi þannig:
S: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki mitt undir ermi, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum koksgrár, prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman með litnum koksgrár (= 2 lykkjur færri).
M, L, XL, XXL og XXXL: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum koksgrár, prjónið lykkjuna með prjónamerki í slétt með litnum koksgrár og prjónið síðan 2 lykkjur snúnar slétt saman með litnum koksgrár (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT Í KANTI Í HÁLSMÁLI:
Þegar kantur í hálsmáli mælist ca 3 cm, fellið af fyrir 1 hnappagati í hægri hlið í kanti í hálsmáli (séð þegar stykkið er mátað).
Fellið af frá fréttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur brugðið saman, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Að lokum eru kantar að framan prjónaðir.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 104-108-112-116-120-124 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með litnum koksgrár. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri hlið – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á hringprjón 4.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 6 lykkjur (hér á að sauma kant að framan síðar), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 92-96-100-104-108-112 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 29-29-33-33-37-41 lykkjur jafnt yfir þessar 92-96-100-104-108-112 lykkjur – sjá ÚTAUKNING, prjónið síðan stroff eins og áður yfir næstu 5 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.

Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 6 lykkjurnar, sláið 1 sinni uppá prjóninn (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, svo ekki myndist gat), prjónið brugðið til baka yfir allar lykkjur, en kantlykkjur (ysta lykkjan í hvorri hlið á stykki) er prjónuð í garðaprjóni og uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat = 123-127-135-139-147-155 lykkjur á prjóni.
Setjið 1 prjónamerki á eftir kantlykkju í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef ekki er óskað eftir upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI.

BERUSTYKKI:
Prjónið 0-0-2-2-4-6 umferðir sléttprjón með litnum koksgrár og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.
Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 30-31-33-34-36-38 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 (þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 alveg eins. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 og A.2 eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING:

STÆRÐ S, M og L:
Ör-1: Aukið út 36-38-42 lykkjur jafnt yfir = 159-165-177 lykkjur (nú er pláss fyrir 26-27-29 mynstureiningar með 6 lykkjum).
Ör-2: Aukið út 64-58-66 lykkjur jafnt yfir = 223-223-243 lykkjur (nú er pláss fyrir 11-11-12 mynstureiningar með 20 lykkjum).
Ör-3: Aukið út 32-40-36 lykkjur jafnt yfir = 255-263-279 lykkjur (nú er pláss fyrir 63-65-69 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Ör-4: Aukið út 30-34-36 lykkjur jafnt yfir = 285-297-315 lykkjur (nú er pláss fyrir 47-49-52 mynstureiningar með 6 lykkjum).
Ör-5: Aukið út 24-30-36 lykkjur jafnt yfir = 309-327-351 lykkjur (nú er pláss fyrir 51-54-58 mynstureiningar með 6 lykkjum).
Ör-6 (á einungis við um M og L, þar sem í S skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar áður en þessi mynsturbekkur byrjar): Aukið út um 4-4 lykkjur jafnt yfir = 309-331-355 lykkjur (nú er pláss fyrir 41-44 mynstureiningar með 8 lykkjum í M og L).

STÆRÐ XL, XXL og XXXL:
Ör-1: Aukið út 44-48-52 lykkjur jafnt yfir = 183-195-207 lykkjur (nú er pláss fyrir 30-32-34 mynstureiningar með 6 lykkjum).
Ör-2: Aukið út 42-48-54 lykkjur jafnt yfir = 225-243-261 lykkjur (nú er pláss fyrir 37-40-43 mynstureiningar með 6 lykkjum).
Ör-3: Aukið út 18-20-22 lykkjur jafnt yfir = 243-263-283 lykkjur (nú er pláss fyrir 12-13-14 mynstureiningar með 20 lykkjum).
Ör-4: Aukið út 60-64-68 lykkjur jafnt yfir = 303-327-351 lykkjur (nú er pláss fyrir 75-81-87 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Ör-5: Aukið út 54-54-60 lykkjur jafnt yfir = 357-381-411 lykkjur (nú er pláss fyrir 59-63-68 mynstureiningar með 6 lykkjum).
Ör-6: Aukið út 30-30-30 lykkjur jafnt yfir = 387-411-441 lykkjur (nú er pláss fyrir 64-68-73 mynstureiningar með 6 lykkjum).
Ör-7: Aukið út 8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 395-419-451 lykkjur (nú er pláss fyrir 49-52-56 mynstureiningar með 8 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
Prjónið þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá prjónamerki í hálsmáli. ATH: Í sumum stærðum kemur til með að standa eftir nokkrar umferðir í A.2 þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar – afgangur af A.2 er þá prjónað til loka á fram- og bakstykki og ermum.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 46-50-53-58-64-70 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 63-66-72-82-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 91-99-105-115-127-139 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 63-66-72-82-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 46-50-53-58-64-70 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 195-211-227-247-275-299 lykkjur.
Prjónið A.2 til loka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – passið uppá að mynstrið passi fallega yfir A.2 á berustykki, en hafið í huga að mynstrið gengur ekki jafnt upp undir ermum í öllum stærðu þegar síðasta umferð í A.2 er prjónuð til loka.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð og aukið jafnframt út um 0-2-4-2-4-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.3 (þannig að mynstrið byrjið og endi alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 195-213-231-249-279-303 lykkjur í umferð. Nú er pláss fyrir 32-35-38-41-46-50 mynstureiningar A.3 með 6 lykkjum.
Endurtakið A.3 á hæðina þar til stykkið mælist ca 27 cm frá skiptingu í öllum stærðum, en endið eftir umferð með «doppum».
Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að A.3 að loka máli.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.4 (séð frá réttu), prjónið A.4 þar til 1 lykkja er eftir í umferð (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu) og fækkið jafnframt um 0-2-4-2-4-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 195-211-227-247-275-299 lykkjur í umferð. Nú er pláss fyrir 48-52-56-61-68-74 mynstureiningar A.4 með 4 lykkjum.

Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 33 cm frá skiptingu. Afgangur af fram- og bakstykki er prjónaður með litnum koksgrár.
Prjónið 1 umferð brugðið þar sem aukið er út um 41-45-45-49-57-61 lykkjur jafnt yfir = 236-256-272-296-332-360. Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragið stykkið saman.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður.

ERMAR:
Setjið 63-66-72-82-82-86 lykkjur frá þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-10 lykkjum undir ermi = 69-72-80-90-92-96 lykkjur.
Setjið nú 2 prjónamerki í stykkið (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar):

S:
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi á milli miðju 6 lykkja, teljið 34 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju = 34 lykkjur eftir í umferð á eftir lykkju með prjónamerki í.

M, L, XL, XXL og XXXL:
Byrjið mitt undir ermi í miðju á 6-8-8-10-10 lykkjum, setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju á eftir miðju, teljið 35-39-44-45-47 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju = 35-39-44-45-47 lykkjur eftir í umferð á eftir lykkju með prjónamerki í.

ALLAR STÆRÐIR:
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið mitt undir ermi er notað þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónamerkið mitt á ermi er notað þegar telja á út hvar mynstrið á að byrja.
Prjónið síðan MYNSTUR jafnframt því sem prjónuð er ÚRTAKA mitt undir ermi eins og útskýrt er að neðan – lestu allan kaflann um ermi áður en þú prjónar áfram:

MYNSTUR:
Byrjið umferð mitt undir ermi og prjónið A.2 til loka alveg eins og á fram- og bakstykki, en teljið út frá miðju á ermi hvar mynstrið á að byrja – lykkjan með prjónamerki mitt á ermi á að passa með lykkju merktri með stjörnu í A.2 (lykkjum er fækkað undir ermi jafnframt því sem mynstrið er prjónað).
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 hringinn alveg eins. A.3 er endurtekið á hæðina þar til ermin mælist ca 35-34-32-31-29-28 cm frá skiptingu, en endið eftir umferð með “doppum”. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið A.3 síðan að óskaðri lengd. Prjónið síðan A.4 hringinn.

ÚRTAKA:
Jafnframt þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 9-10-13-17-18-19 sinnum = 51-52-54-56-56-58 lykkjur.
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka og úrtaka hefur verið gerð til loka mælist ermin 41-40-38-37-35-34 cm frá skiptingu. Afgangur af ermi er prjónaður með litnum koksgrár.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-8-10-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 60-60-64-64-64-68 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 45-44-42-41-39-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN (þegar stykkið er mátað):
Prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni ca 148-156-160-164-168-172 lykkjur meðfram miðju að framan á hringprjón 3 með litnum koksgrár (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4).
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í ca 3 cm – stillið af að kantur að framan er jafn breiður og breiddin á 6 lykkjum sem felldar voru af í kanti í hálsmáli. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið alveg eins og vinstri kantur að framan, en eftir ca 1 til 1½ cm er fellt af fyrir 6-6-7-7-8-8 hnappagötum jafnt yfir. Neðsta hnappagatið á að staðsetja ca 8 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið ca 7-7-7-8-8-8 cm frá hnappagati í kanti í hálsmáli. ATH: Það er fallegast að fella af fyrir hnappagötum í brugðinni einingu (séð frá réttu) með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og síðan að prjóna 2 lykkjur brugðið saman.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat.

FRÁGANGUR:
Saumið kant efst á kanti að framan fallega í kant í hálsmáli innan við 1 kantlykkju með sauminn inn að röngu.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 08.11.2021
DROPS TALA, Marble NR 629: 7-7-8-8-9-9 stk.

Mynstur

symbols = koksgrár
symbols = natur
symbols = útauknings umferð
symbols = miðjulykkja
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 219-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Adrie Verdaasdonk wrote:

Hoe kan je van halsdeelmarkeerder tot 30cm komen als je op die hoogte nog niet de juiste aantal steken voor je indeling armen en lijf komt? Je bent over de 30cm als je ter hoogte van de pijl 7 van A.2 patroon als je de juiste aantal steken hebt. Ik zie op de foto dat de indeling veel eerder zit dan wat uitgelegd is.

15.08.2023 - 12:23

DROPS Design answered:

Dag Adrie,

Het model op de afbeelding heeft maat S aan. Als je een andere maat breit, kan de indeling ietsje anders zijn. Heb je de stekenverhouding gecontroleerd en kan het zijn dat je minder steken in de hoogte hebt op 10 cm, dan aangegeven bij de stekenverhouding in het patroon?

16.08.2023 - 19:23

country flag Evie wrote:

Hoe brei je patroon A3 heen en terug zonder elke keer een witte draad te moeten afknippen. De naturel steek zit nu steeds in de averechtse naald. Het begin van de natureldraad staat dan klaar voor de rechte naald, maar in het patroon staat de naturelsteek voor de averechtse naald. Dan moet je dus steeds de draad afknippen om verder te kunnen, of lees ik het verkeerd?

11.01.2023 - 09:51

DROPS Design answered:

Dag Evie,

De draad die je niet gebruikt kun je inderdaad meenemen, ook op een averechte naald. Dit kun je doen door afwisselen de rechter naald boven en onder de niet gebruikte draad te steken. In deze video kun je ook een beetje zien hoe dat werkt (hoewel er in deze video ook gebreid wordt met de andere draad.

12.01.2023 - 20:08

country flag Andreas wrote:

Hello. I am making the XL size, but I made it longer. From the end of neck until the end down measures 80cm. Is there a specific formula to count the stitches I have to pick up for the side bands? For example , 1 stitch for every horizontal row? or something else?

14.11.2022 - 09:28

DROPS Design answered:

Dear Andreas, this video shows how to pick up sts along the sides - but since you will work here ribbing K2, P2, you might require more sts - it might be wise to make first a small swatch with ribbing edge and then calculate how many stitches you require to avoid rib to tighten piece. Happy knitting!

14.11.2022 - 10:29

country flag Yvonne Havelaar wrote:

Hallo, ik ben de Scandinavische vest voor mijn aan het breien. Ik heb de hals en de pas nu gebreid en kom nu op het punt van de mouwgaten, maar ik kom veelste veel steken te kort. Dus mijn vraag is nu zijn de patronen alleen heen gaan getekend of ook teruggaan? Nu brei ik ze alleen heengaand en dan terug zoals ze zich voordoen.

01.06.2022 - 12:24

DROPS Design answered:

Dag Yvonne,

In de telpatronen zijn alle steken aangegeven, dus zowel van de heengaande als de teruggaande naald.

04.06.2022 - 21:56

country flag Connie Enghoff wrote:

Hej, Jeg har strikket hele cardigan 219-13 og skal til forkanter. Min mand prøver den da det er en herretrøje. Men knaphuller er i den forkerte side. Dette kan jeg ikke ændre da der er lavet et knaphul i halskanten. Det står meget tydeligt at knaphuller skal være i højre side. ??? Er det ikke en fejl? Meget ærgerligt da det er en model til min forretning!

26.11.2021 - 09:01

DROPS Design answered:

Hej Connie, det kan jeg godt se. Knaphullet er også på højre side på billedet. Det er samme model som 217-9 til dame, så det må være derfor.

29.11.2021 - 14:53

country flag Anita wrote:

Auf den Bildern ist der Kragen länger als 3 cm, wie in der Beschreibung angeben. Scheint auch eine Reihe dazwischen gestrickt zu sein. Jedenfalls passt die Beschreibung nicht zum Bild.können Sue mir da helfen. Danke.

17.10.2021 - 13:54

DROPS Design answered:

Liebe Anita, oh ja stimmt, es git ein Typo in die deutsche Anleitung, Rippenmuser beim kragen soll 5 cm sein - Korrektur erfolgt. Danke für den Hinweis. Viel Spaß beim stricken!

18.10.2021 - 09:11

country flag Martin wrote:

Bei "Material" ist von 8 Knöpfen für XL-XXL-XXXL die Rede. Nun soll in der Halsblende ein Knopfloch gemacht werden, in der rechten Blende sollen noch 8 Knopflöcher gemacht werden, insgesamt also 9 Knopflöcher. Auf den Fotos (vmtl Größe M) sehe ich nur 7 Knöpfe. Ich vermute, dass die Anleitung im Bereich "rechte Blende" fehlerhaft ist (ein Knopfloch zu viel) - können Sie dies bestätigen, bzw. mir die korrekte Anzahl an Knöpfen für Größe XXL nennen? Vielen Dank!

09.10.2021 - 15:56

DROPS Design answered:

Lieber Martin, danke für den Hinweis, unser Designteam wird die Knopflöcher mal prüfen.

11.10.2021 - 07:24

country flag Karin Verland wrote:

Jeg har bestilt garnet hos jer i dag, og vil gerne have opskriften med i print, da jeg ikke har en printer. Drops 219-13

06.07.2021 - 23:47

DROPS Design answered:

Hej Karin, du har fået en bekræftelse-mail fra butikken som tager sig af din ordre. Skriv direkte til butikken, så kan du sikkert få opskriften med :)

07.07.2021 - 08:00

country flag Christina Kuronen wrote:

Im Diagramm A2 Größe XL ist ein Stern = Mittelmasche zu sehen. Ich weiß nicht, was dieser bedeutet.Vielen Dank für Ihre Hilfe

28.02.2021 - 13:49

DROPS Design answered:

Liebe Frau Kuronen, dieser Stern wird für die Ärmel benutzt, siehe ÄRMEL, MUSTER - diese Lektion erklärt, wie man ein Muster/Diagram in der Mitte (Stern) platziert. Viel Spaß beim stricken!

01.03.2021 - 09:32