DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Maple Wood Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum og fölsku klukkuprjóni. Stærð S – XXXL.

DROPS 206-49
DROPS Design: Mynstur z-864
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-150-150-150-200-200 g litur 2020, ljóst nougat
100-100-100-100-150-150 g litur 618, nougat
50-50-100-100-100-100 g litur 607, ljós brúnn
50-50-50-50-50-50 g litur 100, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-75-75-75-75-100 g litur 20, ljós beige
50-50-50-50-75-75 g litur 12, beige
25-25-25-25-50-50 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir rúllukant.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 6-6-7-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 81 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið þeim 73 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 15) = 4,9.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

RENDUR:
ATH: Allar rendur eru prjónaðar með 1 þræði Alpaca (A) og 1 þræði Kid-Silk (KS) = 2 þræðir.
RÖND 1: 6-6-6½-6½-7-7 cm með natur (A) og ljós beige (KS).
RÖND 2: 2 umferðir með ljós nougat (A) og natur (KS).
RÖND 3: 2 umferðir með natur (A) og ljós beige (KS).
RÖND 4: 6-6-6½-6½-7-7 cm með ljós nougat (A) og natur (KS).
RÖND 5: 2 umferðir með ljós nougat (A) og ljós beige (KS).
RÖND 6: 2 umferðir með ljós nougat (A) og natur (KS).
RÖND 7: 6-6-6½-6½-7-7 cm með ljós nougat (A) og ljós beige (KS).
RÖND 8: 2 umferðir með ljós nougat (A) og beige (KS).
RÖND 9: 2 umferðir með ljós nougat (A) og ljós beige (KS).
RÖND 10: 6-6-6½-6½-7-7 cm með ljós nougat (A) og beige (KS).
RÖND 11: 2 umferðir með nougat (A) og ljós beige (KS).
RÖND 12: 2 umferðir með ljós nougat (A) og beige (KS).
RÖND 13: 6-6-6½-6½-7-7 cm með nougat (A) og ljós beige (KS).
RÖND 14: 2 umferðir með nougat (A) og beige (KS).
RÖND 15: 2 umferðir með nougat (A) og ljós beige (KS).
RÖND 16: 6-6-6½-6½-7-7 cm með nougat (A) og beige (KS).
RÖND 17: 2 umferðir með ljós brunmelerad (A) og ljós beige (KS).
RÖND 18: 2 umferðir með nougat (A) og beige (KS).
RÖND 19: Prjónið með ljós brúnn (A) og ljós beige (KS) til loka.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki).
Í næstu umferð (ranga) eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9½-9½-8½-8½-9-9½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 81-85-89-95-99-101 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 5 með 1 þræði í litnum natur Alpaca og 1 þræði í litnum ljós beige Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið nú rúllukant þannig: Prjónið 1 umferð frá réttu og 1 umferð brugðið frá röngu.
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu þar sem aukið er út um 15-15-15-17-25-27 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 96-100-104-112-124-128 lykkjur. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 4 lykkjur slétt. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Prjónið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan og mynstur þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 4 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir næstu 5-6-7-9-12-13 lykkjur (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið A.2 (= 11 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið 4 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið A.2 (= 11 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið 18-20-22-26-32-34 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið A.2 (= 11 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið 4 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið A.2 (= 11 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið sléttprjón yfir næstu 5-6-7-9-12-13 lykkjur, prjónið A.3 (= 4 lykkjur) og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= framstykki).
Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram með mynstur fram og til baka og aukið svona út í annarri hverri umferð alls 15-18-21-22-23-24 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning sem útskýrð var að ofan) = 216-244-272-288-308-320 lykkjur.
Aukið síðan einungis út á framstykki og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri) í annarri hverri umferð alls 5-5-3-4-5-7 sinnum = 236-264-284-304-328-348 lykkjur. A.1 til A.3 er endurtekin á hæðina. Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 38-42-44-48-53-57 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 46-52-58-60-62-64 lykkjur á 1 þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 68-76-80-88-98-106 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 46-52-58-60-62-64 lykkjur á 1 þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 38-42-44-48-53-57 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 156-172-184-200-224-244 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 41-45-48-52-58-63 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðum á fram- og bakstykki). Nú eru 74-82-88-96-108-118 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.
Prjónið síðan mynstur þannig:
Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 4 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir næstu 25-29-31-35-40-44 lykkjur, prjónið A.4 (= 5 lykkjur), prjónið 6-6-8-8-10-12 lykkjur sléttprjón (= í hlið), prjónið A.4 (= 5 lykkjur), prjónið 58-66-70-78-88-96 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 (= 5 lykkjur), prjónið 6-6-8-8-10-12 lykkjur sléttprjón (= í hlið), prjónið A.4 (= 5 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir næstu 25-29-31-35-40-44 lykkjur, prjónið A.3 (= 4 lykkjur) og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Þegar fram- og bakstykki mælist 5 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri).
Aukið svona út með 6 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 172-188-200-216-240-260 lykkjur.
Prjónið áfram þar til fram- og bakstykki mælist 29 cm frá skiptingu í öllum stærðum (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Prjónið 1 umferð frá röngu þar sem aukið er út um 12-12-12-16-16-16 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 184-200-212-232-256-276 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 2 umferðir sléttprjón yfir allar lykkjur. Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 46-52-58-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 52-58-66-68-72-76 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón og rendur alveg eins og á fram- og bakstykki.
Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4½-3½-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 8-10-13-14-15-16 sinnum = 36-38-40-40-42-44 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 40-39-37-35-34-32 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd) – ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-46-48-50 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 5. Prjónið 2 umferðir með sléttprjóni. Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = stingið hægri prjóni í gegnum lykkjuna frá fyrri umferð, prjónið 1 lykkju slétt og sleppið lykkjunum af prjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-49

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Claudie wrote:

Bonjour ! Quand je reprends les mailles pour les manches et que je relève 6 mailles, j'obtiens deux trous sous les bras, cela me désespère et voilà trois fois que je défais mon ouvrage . Je me demande aussi où je dois placer un marqueur avant de faire les diminutions pour les manches. Pouvez-vous m'aider s'il vous plait ? Merci d'avance ! Bien cordialement, Claudie

12.12.2020 - 21:02

DROPS Design answered:

Bonjour Claudie, cette leçon montre, avec la photo 18B comment relever les mailles des manches dans celles montées sous les manches - vous pouvez relever une maille avant la 1ère des 6 + 1 après la dernière des 6 et diminuer ces mailles dès le 1er tour - ou bien utilisez la technique de la photo 18A en montant les 6 mailles, vous pourrez ensuite faire la couture sous les manches (cf vidéo). Votre marqueur doit se trouver au milieu de ces 6 mailles = c'est le milieu sous la manche. Bon tricot!

14.12.2020 - 08:32

country flag Claudie wrote:

Bonjour ! Quelle quantité de laine faut-il en drop alpaca et en kid silk pour faire le gilet d'une seule couleur ? D'avance merci beaucoup pour votre réponse ! Claudie

29.10.2020 - 10:51

DROPS Design answered:

Bonjour Claudie, nous avons uniquement les quantités correspondantes aux rayures présentées et ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande individuelle, vous pouvez additionner chaque couleur pour votre taille - vous aurez probablement besoin d'un peu moins - votre magasin DROPS devrait pouvoir vous aider. Bon tricot!

29.10.2020 - 13:42

country flag Hanne wrote:

Jeg har problemer med raglanfellingen og antall masker. Det står under bærestykke at mønster følges hver 2. Linje. Men dette får jeg ikke til å stemme. Det legges jo til masker så antallet stemmer ikke ved å følge oppskriften. Hva er det jeg ikke forstår?

17.11.2019 - 11:56

DROPS Design answered:

Hej Hanne, mønsteret du strikker i hver raglanovergang forandres ikke. Du tager ud til raglan på hver side af diagrammerne (8 udtagninger på hver 2. pind). De nye masker strikkes videre i glatstrik. God fornøjelse!

03.12.2019 - 15:13

country flag Christina Rådelius wrote:

My favourite!

12.08.2019 - 19:56

country flag Sabine Koehler wrote:

Da ich ein absoluter Jacken-Fan bin, ist die einer meiner Favoriten. Und dann diese schoenen Farben! Bin schon gespannt auf die Anleitung!

23.07.2019 - 11:25