Matilde wrote:
I diagrammerne A5 og A6 kan jeg ikke få maskeantallet til at gå op. Ifølge opskriften skal der strikkes 14, 176 og 15 masker på den ene side af midt-masken og 14, 176 og 15 masker på den anden side af midt-masken. Når man så vender striktøjet om for at strikke på vrangsiden, er der en maske for meget i begyndelsen og en maske for lidt i enden. I alle andre mønstre i opskriften er diagrammerne spejlet på hver side af midt-masken, men ikke her. Er der noget jeg overser?
20.03.2024 - 11:05Martina wrote:
Im Diagramm das 7. Symbol
11.01.2024 - 16:22DROPS Design answered:
Liebe Martina, dieses Symbol finden Sie z.B. in den Diagrammen A.3 bis A.8 beidseitig von den Blättern, hier sollen Sie einen Umschlag stricken, aber den wird dann verschränkt gestrickt, damit kein Loch entsteht. Viel Spaß beim stricken!
12.01.2024 - 07:40Martina wrote:
In dem Diagramm finde ich ein Symbol (ein schwarz ausgefüllter Kreis in einem Kästchen) welches ich nicht in der Strick Anleitung wiederfinde. Wird dieses nicht in der Strickanleitung verwendet? Danke
10.01.2024 - 21:17DROPS Design answered:
Liebe Martina, meinen Sie das 3. Symbol unter Diagrambeschreibung? das finden Sie in A.3, A.4,A.5 ..; für die Patentmaschen. Viel Spaß beim stricken!
11.01.2024 - 07:59Cristina wrote:
Buondì, non ho ben capito come fare a lavorare con due ferri, dovrei tagliare a metà il lavoro e poi cucire? Grazie
12.12.2023 - 16:08DROPS Design answered:
Buongiormo Cristina, non è necessario tagliare il lavoro, è semplicemente un consiglio dovuto al numero elevato di maglie: lavorando però con i ferri circolari può allungare i cavi unendo più cavi con gli appositi connettori. Buon lavoro!
21.12.2023 - 08:14Trui wrote:
De omslagen in rij 2 en 4 heb ik averecht gebreid, en omslagen van naald 1 en 3 heb ik recht gebreid. Hoe worden de omslagen naast de ribbelsteken gebreid? Links en rechts naast de middelste steek van de rij krijg ik een mooi gaatje, maar er zitten ook gaatjes aan beide kanten naast de eerste twee steken (ribbelsteek) van iedere rij. Op de foto zie ik die gaatjes niet terug, hoort dat wel? Ook opvallend: de gaatjes naast de ribbelsteek zijn aan de linkerzijde groter dan rechts. Hoe komt dat?
08.12.2023 - 20:32DROPS Design answered:
Dag Trui,
Ja, aan het begin van de naald horen ook gaatjes te zitten door de omslagen niet gedraaid te breien. Als je dit niet mooi vindt, kun je die omslagen ook gedraaid breien. Als je een omslag tussen een rechte en een averecht steek maakt, maak je eigenlijk een halve omslag, deze zou je bewust wat losser kunnen maken, zodat alle gaatjes gelijk worden.
10.12.2023 - 16:28Céline wrote:
Ok merci pour votre réponse, ce qui confirme qu'il y a bien une erreur dans les diagramme A5A-A5B-A5C-A6A-A6C car on ne voit qu'un jeté noir de chaque coté de la pointe (diminution de 4 mailles) au lieu de 2 jetés de chaque côté comme les autres schémas, merci d'en prendre note svp
14.11.2023 - 10:58DROPS Design answered:
Bonjour Céline, les diagrammes sont justes, vous avez 2 ovales blancs + 2 ovales noirs (1 de chaque côté de la diminution de 4 mailles) Pour chacun des derniers rangs d ces diagrammes, vous avez bien 2 jetés blancs pour compenser les triangles noirs et 4 jetés (2 blancs + 2 noirs) pour commencer les diminutions de 2 mailles faites 2 fois. Bon tricot!
14.11.2023 - 11:21Céline wrote:
Bonjour, en haut des diagrammes A5A,A5B,A5C,A6A,A6C, sur la point de la feuille, j'ai 5 mailles au début mais après les 4 diminutions et les 2 jetés noirs, je me retrouve avec 3mailles et non 5 comme indiqué, du coup je me retrouve avec 2 mailles de moins par motif, pouvez-vous vérifier qu'il n'y a pas d'erreur svp car j'ai recompté et pour mois 5-4dim + 2 jeté= 3, merci
14.11.2023 - 09:43DROPS Design answered:
Bonjour Céline, vous devez bien conserver votre nombre de mailles:vous devez avoir 2 jetés + 1 jeté, 1 diminution de 4 mailles, 1 jeté = autrement dit, vous diminuez 4 mailles et vous avez fait 4 jetés, le nombre de mailles reste bien le même. Bon tricot!
14.11.2023 - 10:54Birthe wrote:
Hallo! Wie werden beim Tuch in Reihe 3 die Umschläge aus Reihe 2 bzw. 4 gestrickt? Rechts, so dass Löcher entstehen oder rechts verschränkt, dass keine Löcher entstehen? Vielen Dank!
15.10.2023 - 10:51DROPS Design answered:
Liebe Birthe, die Zunahmen werden glatt rechts gestrickt, links bei den Rückreihen und rechts bei den Hinreihen. Viel Spaß beim stricken!
16.10.2023 - 09:39Donatella DeCicco wrote:
Can you please send the written version instead of the chart?
26.09.2023 - 01:55DROPS Design answered:
Dear Mrs DeCicco, we only have diagrams to this pattern, but this lesson might help you understanding how to read diagrams. Happy knitting!
26.09.2023 - 11:41
Lacey Laurels |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð húfa og sjal úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað með stroffi og blaðamynstri í hálfu klukkuprjóni.
DROPS 203-14 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1B og A.3B. Sjal: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. MYNSTURTEIKNING: Þessi uppskrift inniheldur nokkrar mynsturteikningar. Það getur auðveldað að klippa út mynsturteikningarnar og raða þeim í flokka í réttri röð (sjá skiptingu í sjálfri uppskriftinni). ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 122 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 12,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca 11. og 12. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir í sjali): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum hvoru megin við miðju lykkju, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 81 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan og miðju lykkju (= 5 lykkjur), deilið þeim fjölda lykkja sem eftir er 76 lykkjur með 2 (til að finna út lykkjufjölda hvoru megin við miðju lykkju = 38 lykkjur) og deilið 38 lykkjum með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera í hvorri hlið (t.d. 18) = 2,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca aðra hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kantlykkjur eða miðju lykkju. Ef fækka á lykkjum þá eru lykkjurnar prjónaðar saman 2 og 2. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 120-126 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5-6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 132-154 lykkjur. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3. Prjónið A.3B hringinn (= 6-7 mynstureiningar með 22 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3B hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 16-17 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-14 lykkjur jafnt yfir = 144-168 lykkjur. Prjónið A.1B hringinn. JAFNFRAMT í síðustu umferð í A.1B er fækkað um 16-24 lykkjur jafnt yfir = 128-144 lykkjur. Prjónið A.1B einu sinni til viðbótar á hæðina. JAFNFRAMT í síðustu umferð í A.1B eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 64-72 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í annarri hverri umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 þar til 8 lykkjur eru eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 26-27 cm ofan frá og niður. ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón og prjónað er ofan frá og niður. Vegna lykkjufjölda er gott að skipta lykkjunum á nokkra hringprjóna með sama grófleika þegar þar að kemur. SJAL: Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 3 með Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt (= ranga). Prjónið og aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni (uppslátturinn er prjónaður brugðið svo að það myndist gat), sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón fram að miðju lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni (uppslátturinn er prjónaður brugðið svo að það myndist gat), sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið umferð 3 og 4 þar til 83 lykkjur eru í umferð og síðasta umferðin er prjónuð frá réttu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið næstu umferð sem er umferð 4 (= ranga) og aukið jafnframt út 17 lykkjur jafnt yfir hvoru megin við miðju lykkju (aukið út alls 34 lykkjur í umferð) – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 119 lykkjur í umferð. Prjónið mynsturteikningu A.1 og A.2 frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A yfir 2 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.1B yfir 52 lykkjur (26 sinnum á breidd), prjónið A.1C yfir 3 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.2A yfir 3 lykkjur, prjónið A.2B yfir 52 lykkjur (26 sinnum á breidd), prjónið A.2C yfir 2 lykkjur og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar síðasta umferð í A.1 og A.2 er eftir, eru 159 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð og fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir hvoru megin við miðju lykkjuna (fækkið alls 10 lykkjur jafnt yfir og aukið út um 2 lykkjur í mynsturteikningu) – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 151 lykkjur. Prjónið mynsturteikningu A.3 og A.4 frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.3A yfir 14 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.3B yfir 44 lykkjur (2 sinnum á breidd), prjónið A.3C yfir 15 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.4A yfir 15 lykkjur, prjónið A.3B yfir 44 lykkjur (2 sinnum á breidd), prjónið A.4C yfir 14 lykkjur og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar síðasta umferð í A.3 og A.4 er eftir, eru 263 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð og aukið jafnframt út um 43 lykkjur jafnt yfir hvoru megin við miðju lykkjuna (aukið út alls 86 lykkjur jafnt yfir + 2 lykkjur í mynsturteikningu = 351 lykkjur. Prjónið mynsturteikningu A.1 og A.2 frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A yfir 2 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.1B yfir 168 lykkjur (84 sinnum á breidd), prjónið A.1C yfir 3 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.2A yfir 3 lykkjur, prjónið A.2B yfir 168 lykkjur (84 sinnum á breidd), prjónið A.2C yfir 2 lykkjur og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar síðasta umferð í A.1 og A.2 er eftir, eru 391 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð og aukið jafnframt út um 1 lykkju jafnt yfir hvoru megin við miðju lykkjuna (aukið út alls 2 lykkjur jafnt yfir + 2 lykkjur í mynsturteikningu) = 395 lykkjur. Prjónið nú A.1 og A.2 einu sinni til viðbótar á hæðina, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A yfir 2 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.1B yfir 190 lykkjur (95 sinnum á breidd), prjónið A.1C yfir 3 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.2A yfir 3 lykkjur, prjónið A.2B yfir 190 lykkjur (95 sinnum á breidd), prjónið A.2C yfir 2 lykkjur og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar síðasta umferð í A.1 og A.2 er eftir, eru 435 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð og fækkið jafnframt um 11 lykkjur jafnt yfir hvoru megin við miðju lykkjuna (fækkið alls 22 lykkjur jafnt yfir og aukið út 2 lykkjur í mynsturteikningu) = 415 lykkjur. Prjónið mynsturteikningu A.5 og A.6 frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.5A yfir 14 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.5B yfir 176 lykkjur (8 sinnum á breidd), prjónið A.5C yfir 15 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.6A yfir 14 lykkjur, prjónið A.5B yfir 176 lykkjur (8 sinnum á breidd), prjónið A.6C yfir 15 lykkjur og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar síðasta umferð í A.5 og A.6 hefur verið prjónað til loka eru 523 lykkjur í umferð. Prjónið mynsturteikningu A.7 og A.8 frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.7A yfir 18 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.7B yfir 32 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.7C yfir 176 lykkjur (8 sinnum á breidd), prjónið A.7D yfir 33 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.8A yfir 32 lykkjur, prjónið A.7C yfir 176 lykkjur (8 sinnum á breidd), prjónið A.8C yfir 33 lykkjur, prjónið A.8D yfir 18 lykkjur og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar síðasta umferð í A.7 og A.8 er eftir, eru 593 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð og aukið jafnframt út um 72 lykkjur jafnt yfir hvoru megin við miðju lykkjuna (aukið út alls 144 lykkjur jafnt yfir + 2 lykkjur í mynsturteikningu = 739 lykkjur. Prjónið mynsturteikningu A.1 og A.2 frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A yfir 2 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.1B yfir 362 lykkjur (181 sinni á breidd), prjónið A.1C yfir 3 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.2A yfir 3 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.2A yfir 3 lykkjur, prjónið A.2B yfir 362 lykkjur (181 sinnum á breidd), prjónið A.2C yfir 2 lykkjur og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar síðasta umferð í A.1 og A.2 er eftir, eru 779 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð og aukið jafnframt út um 1 lykkju hvoru megin við miðju lykkjuna (aukið út alls 2 lykkjur jafnt yfir + 2 lykkjur í mynsturteikningu = 783 lykkjur. Prjónið nú A.1 og A.2 einu sinni á hæðina, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A yfir 2 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.1B yfir 384 lykkjur (192 sinnum á breidd), prjónið A.1C yfir 3 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.2A yfir 3 lykkjur, prjónið A.2B yfir 384 lykkjur (192 sinnum á breidd), prjónið A.2C yfir 2 lykkjur og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar síðasta umferð í A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka eru 825 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 65 cm meðfram miðju lykkju. Fellið af eins og útskýrt er að neðan. TEYGJANLEGUR AFFELLINGARKANTUR: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, * stingið vinstri prjóni inn í 2 lykkjur á hægri prjóni frá vinstri til hægri og prjónið lykkjurnar slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Festið enda. FORMUN: Bleytið stykkið og leggið það til í rétt form eftir réttu máli. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Birthe wrote:
Hallo! Wie werden beim Tuch in Reihe 3 die Umschläge aus Reihe 2 bzw. 4 gestrickt? Rechts, so dass Löcher entstehen oder rechts verschränkt, dass keine Löcher entstehen? Vielen Dank!
15.10.2023 - 10:50