DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8910.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lacey Laurels

Prjónuð húfa og sjal úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað með stroffi og blaðamynstri í hálfu klukkuprjóni.

DROPS 203-14
DROPS Design: Mynstur z-874
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
SJAL: Ein stærð
Hæð: Mælt meðfram miðju = ca 65 cm.
Breidd: Mælt meðfram efri hlið frá hlið að hlið = ca 195 cm.

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
450-450 g litur 9025, heslihneta

HÚFA:

STÆRÐ:
S/M – L/XL
Höfuðmál: Ca 54/56 – 58/60 cm.

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-100 g litur 9025, heslihneta

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

SJAL:
STÆRÐ:
Hæð: Mælt meðfram miðju = ca 65 cm.
Breidd: Mælt meðfram efri hlið frá hlið að hlið = ca 195 cm.

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
400 g litur 9025, heslihneta

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm.
ATH: Vegna lykkjufjölda er gott að skipta lykkjunum á nokkra hringprjóna í sama grófleika.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8910.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1B og A.3B.
Sjal: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

MYNSTURTEIKNING:
Þessi uppskrift inniheldur nokkrar mynsturteikningar. Það getur auðveldað að klippa út mynsturteikningarnar og raða þeim í flokka í réttri röð (sjá skiptingu í sjálfri uppskriftinni).

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 122 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 12,2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 12. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca 11. og 12. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir í sjali):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum hvoru megin við miðju lykkju, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 81 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan og miðju lykkju (= 5 lykkjur), deilið þeim fjölda lykkja sem eftir er 76 lykkjur með 2 (til að finna út lykkjufjölda hvoru megin við miðju lykkju = 38 lykkjur) og deilið 38 lykkjum með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera í hvorri hlið (t.d. 18) = 2,1.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca aðra hverja lykkju.
Ekki er aukið út yfir kantlykkjur eða miðju lykkju. Ef fækka á lykkjum þá eru lykkjurnar prjónaðar saman 2 og 2.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 120-126 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5-6 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 132-154 lykkjur.
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3. Prjónið A.3B hringinn (= 6-7 mynstureiningar með 22 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.3B hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 16-17 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-14 lykkjur jafnt yfir = 144-168 lykkjur.
Prjónið A.1B hringinn. JAFNFRAMT í síðustu umferð í A.1B er fækkað um 16-24 lykkjur jafnt yfir = 128-144 lykkjur. Prjónið A.1B einu sinni til viðbótar á hæðina. JAFNFRAMT í síðustu umferð í A.1B eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 64-72 lykkjur.
Prjónið síðan sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í annarri hverri umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 þar til 8 lykkjur eru eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 26-27 cm ofan frá og niður.

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón og prjónað er ofan frá og niður. Vegna lykkjufjölda er gott að skipta lykkjunum á nokkra hringprjóna með sama grófleika þegar þar að kemur.

SJAL:
Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 3 með Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt (= ranga).
Prjónið og aukið út þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni (= 4 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni (uppslátturinn er prjónaður brugðið svo að það myndist gat), sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni (= 2 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón fram að miðju lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni (= 4 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni (uppslátturinn er prjónaður brugðið svo að það myndist gat), sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni (= 2 lykkjur fleiri).
Endurtakið umferð 3 og 4 þar til 83 lykkjur eru í umferð og síðasta umferðin er prjónuð frá réttu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið næstu umferð sem er umferð 4 (= ranga) og aukið jafnframt út 17 lykkjur jafnt yfir hvoru megin við miðju lykkju (aukið út alls 34 lykkjur í umferð) – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 119 lykkjur í umferð.

Prjónið mynsturteikningu A.1 og A.2 frá réttu þannig:
Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A yfir 2 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.1B yfir 52 lykkjur (26 sinnum á breidd), prjónið A.1C yfir 3 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.2A yfir 3 lykkjur, prjónið A.2B yfir 52 lykkjur (26 sinnum á breidd), prjónið A.2C yfir 2 lykkjur og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar síðasta umferð í A.1 og A.2 er eftir, eru 159 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð og fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir hvoru megin við miðju lykkjuna (fækkið alls 10 lykkjur jafnt yfir og aukið út um 2 lykkjur í mynsturteikningu) – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 151 lykkjur.

Prjónið mynsturteikningu A.3 og A.4 frá réttu þannig:
Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.3A yfir 14 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.3B yfir 44 lykkjur (2 sinnum á breidd), prjónið A.3C yfir 15 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.4A yfir 15 lykkjur, prjónið A.3B yfir 44 lykkjur (2 sinnum á breidd), prjónið A.4C yfir 14 lykkjur og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar síðasta umferð í A.3 og A.4 er eftir, eru 263 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð og aukið jafnframt út um 43 lykkjur jafnt yfir hvoru megin við miðju lykkjuna (aukið út alls 86 lykkjur jafnt yfir + 2 lykkjur í mynsturteikningu = 351 lykkjur.

Prjónið mynsturteikningu A.1 og A.2 frá réttu þannig:
Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A yfir 2 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.1B yfir 168 lykkjur (84 sinnum á breidd), prjónið A.1C yfir 3 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.2A yfir 3 lykkjur, prjónið A.2B yfir 168 lykkjur (84 sinnum á breidd), prjónið A.2C yfir 2 lykkjur og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar síðasta umferð í A.1 og A.2 er eftir, eru 391 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð og aukið jafnframt út um 1 lykkju jafnt yfir hvoru megin við miðju lykkjuna (aukið út alls 2 lykkjur jafnt yfir + 2 lykkjur í mynsturteikningu) = 395 lykkjur.

Prjónið nú A.1 og A.2 einu sinni til viðbótar á hæðina, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu:
Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A yfir 2 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.1B yfir 190 lykkjur (95 sinnum á breidd), prjónið A.1C yfir 3 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.2A yfir 3 lykkjur, prjónið A.2B yfir 190 lykkjur (95 sinnum á breidd), prjónið A.2C yfir 2 lykkjur og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar síðasta umferð í A.1 og A.2 er eftir, eru 435 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð og fækkið jafnframt um 11 lykkjur jafnt yfir hvoru megin við miðju lykkjuna (fækkið alls 22 lykkjur jafnt yfir og aukið út 2 lykkjur í mynsturteikningu) = 415 lykkjur.

Prjónið mynsturteikningu A.5 og A.6 frá réttu þannig:
Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.5A yfir 14 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.5B yfir 176 lykkjur (8 sinnum á breidd), prjónið A.5C yfir 15 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.6A yfir 14 lykkjur, prjónið A.5B yfir 176 lykkjur (8 sinnum á breidd), prjónið A.6C yfir 15 lykkjur og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar síðasta umferð í A.5 og A.6 hefur verið prjónað til loka eru 523 lykkjur í umferð.

Prjónið mynsturteikningu A.7 og A.8 frá réttu þannig:
Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.7A yfir 18 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.7B yfir 32 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.7C yfir 176 lykkjur (8 sinnum á breidd), prjónið A.7D yfir 33 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.8A yfir 32 lykkjur, prjónið A.7C yfir 176 lykkjur (8 sinnum á breidd), prjónið A.8C yfir 33 lykkjur, prjónið A.8D yfir 18 lykkjur og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar síðasta umferð í A.7 og A.8 er eftir, eru 593 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð og aukið jafnframt út um 72 lykkjur jafnt yfir hvoru megin við miðju lykkjuna (aukið út alls 144 lykkjur jafnt yfir + 2 lykkjur í mynsturteikningu = 739 lykkjur.

Prjónið mynsturteikningu A.1 og A.2 frá réttu þannig:
Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A yfir 2 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.1B yfir 362 lykkjur (181 sinni á breidd), prjónið A.1C yfir 3 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.2A yfir 3 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.2A yfir 3 lykkjur, prjónið A.2B yfir 362 lykkjur (181 sinnum á breidd), prjónið A.2C yfir 2 lykkjur og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar síðasta umferð í A.1 og A.2 er eftir, eru 779 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð og aukið jafnframt út um 1 lykkju hvoru megin við miðju lykkjuna (aukið út alls 2 lykkjur jafnt yfir + 2 lykkjur í mynsturteikningu = 783 lykkjur.

Prjónið nú A.1 og A.2 einu sinni á hæðina, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A yfir 2 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.1B yfir 384 lykkjur (192 sinnum á breidd), prjónið A.1C yfir 3 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.2A yfir 3 lykkjur, prjónið A.2B yfir 384 lykkjur (192 sinnum á breidd), prjónið A.2C yfir 2 lykkjur og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar síðasta umferð í A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka eru 825 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 65 cm meðfram miðju lykkju. Fellið af eins og útskýrt er að neðan.

TEYGJANLEGUR AFFELLINGARKANTUR:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, * stingið vinstri prjóni inn í 2 lykkjur á hægri prjóni frá vinstri til hægri og prjónið lykkjurnar slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Festið enda.

FORMUN:
Bleytið stykkið og leggið það til í rétt form eftir réttu máli.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.09.2019
Ný mynsturteikning: A.5A, A.5B, A.5C, A.6A og A.6C (umferð 27,31 og 35).
Yfirfarið á vefsvæði: 08.04.2021
Mynsturteikning A.1 og A.2 hefur verið leiðrétt - Mynsturtákn í 2 efstu umferðunum hefur verið skipt út.

Mynstur

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir næstu lykkju
symbols = 2 lykkjur snúnar brugðið saman
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið eins og útskýrt er í mynsturteikningu (það eiga að myndast göt)
symbols = aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er í mynsturteikningu (það eiga ekki að myndast göt)
symbols = fækkið um 2 lykkjur til vinstri þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri)
symbols = fækkið um 2 lykkjur til hægri þannig: Prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri)
symbols = fækkið um 4 lykkjur þannig: lyftið 3 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman, steypið 3 lyftu lykkjunum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 4 lykkjur færri)
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Lacey Laurels

Paulinette, United States

Scialle foglie verdi

Giancarla, Italy

Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (78)

country flag MAry Jane MAjor wrote:

I found it impossible to maintain the proper number of stitches for each row and finally gave up; it seemed that the very thin yarn and repeated yarn overs made errors unavoidable no matter how hard I tried. I might not have gotten into this project had it been labelled as advanced or difficult and I suggest it be so labelled for those considering it in the future.

19.05.2020 - 11:58

country flag Melanie wrote:

Bonjour, après avoir répéter 4 fois .. et mis sur papier .. je me retrouve avec le même problème .. je suis sur la partie où l’on tricote les diagrammes À.5. A.6 . Après avoir fait le rang 25 pour le diagramme A6C je me retrouve avec 41 mailles.. . au rang 26 de la grille A6C on doit travailler sur 40 mailles ? Je n’arrive pas à trouver mon erreur.. pouvez vous m’aider ? J’interprète peut être mal le diagramme ?

16.04.2020 - 20:32

DROPS Design answered:

Bonjoru Mélanie, avez-vous bien fait les 6 jetés (7 avec celui de la fin du motif) et diminué 1 fois 1 m et 2 fois 2 m au rang 25? Vérifiez que vous avez bien 22 m dans le A.5B précédent, le jeté au début de A.6C au rang 25 doit être maintenant la dernière maille du A.5B juste avant A.6C- essayez de placer un marqueur entre chaque diagramme pour bien vérifier le bon nombre de mailles à chaque fois, également entre chaque A.5B. En espérant que ceci vous aide. Bon tricot!

17.04.2020 - 08:36

country flag Leonie Zock wrote:

In A5A, A5C, A6A en A6C heb ik telkens dat er meer steken zijn dan in het patroon staat aangegeven, Als ik dan minder tot het 'goede' aantal en ik draai het werk om verder te gaan heb ik weer te weinig steken. Er zit iets verkeerd in het patroon ben ik bang?

05.04.2020 - 22:19

DROPS Design answered:

Dag Leonie,

Ik heb de telpatronen nagekeken en het aantal steken uitgerekend. Als je de telpatronen volgt en aan het eind (dus nadat je A.5 en A.6 hebt gebreid, dan zou het moeten kloppen. Na A.5 en A.6 heb je in totaal 106 steken gemeerderd. Alleen de omslagen aan de buitenkant van A.5 en A.6 zorgen voor meerderingen. De rest van de omslagen worden gecompenseerd door minderingen. Controleer nog even goed de telpatronen om te kijken of je niet iets over het hoofd hebt gezien.

16.04.2020 - 12:17

country flag Ellis wrote:

A3B is not aligning properly when I knit row 2 of that section; because the graph is not perfectly symmetrical, there is one fewer knit before I do the purl in row 2. Is there a fix for this? Or do we just knit that graph backwards on the wrong rows?

02.04.2020 - 00:55

DROPS Design answered:

Dear Ellis, not sure to understand what you mean here sorry, you should have in each A.3B: 11 stitches in stocking st, knit 1 in stitch under the next stitch on first row/ purl from WS on 2nd row, 10 stitches in stocking stitch so that there will be 21 sts between each leaf+ after the leaf in A.3A : 10 sts = 21 sts before next leaf in first A.3B and before the leaf in A.3C you have 11 sts + 10 sts after leaf in last A.3B = 21 sts between each leaf. Hope this helps. Happy knitting!

02.04.2020 - 08:36

country flag Ellis wrote:

On the shawl row where one increases to 119, what style of increase should they use? a yarn over? thanks!

29.03.2020 - 16:50

DROPS Design answered:

Dear Ellis, increase by making yarnovers and then knitting them twisted in the next row. Happy Knitting!

29.03.2020 - 22:27

country flag Melanie wrote:

Bonjour, j'aimerai savoir si les corrections sont directement présentes sur les Diagrammes concernés ou faut-il vous les demander et vous nous les envoyez par mail ? Merci pour votre réponse. Melanie

24.03.2020 - 20:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mélanie, si vous aviez déjà imprimé les explications avant la date des corrections, il est recommandé de les imprimer à nouveau (ou imprimez seulement les corrections, au choix), sinon, les explications contiennent les corrections. Bon tricot!

25.03.2020 - 09:50

country flag Ingrid wrote:

Ik heb nog nooit eerder met een rondbreinaald gewerkt. Aan het begin van het patroon wordt geadviseerd om meerdere rondbreinaalden te gebruiken i.v.m. het grote aantal steken. Ik zie dat het totale breiwerk 825 steken gaat tellen. Hoeveel rondbreinaalden heb ik dan nodig, of zijn er dan nog andere mogelijkheden om deze grote hoeveelheid steken te kunnen hanteren. Alvast bedankt, Ingrid

20.03.2020 - 20:15

DROPS Design answered:

Dag Ingrid,

Er zijn zogenaamde kabelverbinders verkrijgbaar om meerdere rondbreikabels aan elkaar te zetten, zodat je een hele lange draad kunt maken waar je veel steken op kunt zetten. Dit is waarschijnlijk de meest geschikte oplossing hiervoor. Op deze pagina kun je diverse kabells en verbinders vinden om een lange rondbreinaald te kunnen maken.

27.03.2020 - 13:48

country flag Jacqueline wrote:

Bonjour, je pense qu’il y a un problème avec la grille A.4C dès le premier rang. En effet, lorsqu’on termine les 44 mailles de À.3B et que l’on suit avec la grille À.4C, il manque 1 maille (10 mailles du diagramme À.3B et 10 mailles du diagramme À.4C = 20 mailles) alors qu’il en faudrait 21 . Qu’en pensez-vous ? Bien à vous. Jacqueline

12.01.2020 - 21:51

DROPS Design answered:

Bonjour Jacqueline, je ne suis pas bien sûre de comprendre, avant de tricoter A.3/A.4 vous devez avoir 151 m et donc tricoter ainsi: 2 m end, A.3A (14 m), A.3B (44 m), A.3C (15 m), 1 m cenrale, A.4A (15 m), A.3B (44 m), A.4C (14 m), 2 m end = 2+14+44+15+1+15+44+14+2= 151 m. Donc, dès le 1er rang, on a le bon nombre de mailles. Bon tricot!

13.01.2020 - 10:14

country flag Stassinopoulos wrote:

Bonjour, j'ai un doute sur le début du châle. Il y a 2 mailles, au point mousse, et ensuite c'est du jersey endroit ? Merci.

26.12.2019 - 14:48

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Stassinopoulos! Au debut de l'ouvrage, sur l'endroit vous avez 2 mailles de bordure au point mousse, les autres mailles sont en jersey endroit. Sur l'envers vous avez 2 mailles de bordure au point mousse, les autres mailles sont en jersey envers. Bon tricot!

30.12.2019 - 14:51

country flag Jacqueline wrote:

Bonjour, je pense qu’il y a un problème avec la grille A.4C dès le premier rang. En effet, lorsqu’on termine les 44 mailles de À.3B et que l’on suit avec la grille À.4C, il manque 1 maille (10 mailles du diagramme À.3B et 10 mailles du diagramme À.4C = 20 mailles) alors qu’il en faudrait 21 . Qu’en pensez-vous ? Bien à vous. Jacqueline

25.12.2019 - 14:07