DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13530.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Purple Persuasion

Prjónað sjal úr DROPS Kid-Silk og DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað á ská í garðaprjóni og röndum.

DROPS 203-22
DROPS Design: Mynstur ks-160
Garnflokkur A + A + A eða D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Hæð: Mælt meðfram miðju = ca 55 cm.
Breidd: Mælt meðfram efri hlið frá hlið að hlið = ca 170 cm.

EFNI:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50 g litur 02, svartur
50 g litur 10, grár
25 g litur 09, ljós lavender
25 g litur 22, öskugrár
Og notið:
DROPS ALPACA f frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100 g litur 517, milligrár
50 g litur 2020, ljós kamel
50 g litur 3800, bleikfjólublár
50 g litur 4010, ljós lavender

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með garðaprjóni í 2 þráðum Kid-Silk og 1 þræði Alpaca (= 3 þræðir) = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: lengd 80 cm fyrir garðaprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13530.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

RENDUR:
KS = Kid-Silk. A = Alpaca.
Hæðin á röndunum er mæld í prjónstefnu (23 cm eins og útskýrt er að neðan jafngildir ca 50 umferðum garðaprjóni á hæðina með réttri prjónfestu).
Rendurnar eru prjónaðar þannig:
23 cm með 1 þræði ljós lavender KS + 1 þræði grár KS + 1 þræði ljós kamel A.
23 cm með 1 þræði öskugrár KS + 1 þræði grár KS + 1 þræði ljós lavender A.
23 cm með 1 þræði öskugrár KS + 1 þræði grár KS + 1 þræði milligrár A.
23 cm með 1 þræði svartur KS + 1 þræði grár KS + 1 þræði milligrár A.
23 cm (eða til loka) með 1 þræði svartur KS + 1 þræði grár KS + 1 þræði bleikfjólublár A.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar, prjónið stykkið fram og til baka á hringprjón frá horni á annarri hlið á sjalinu og út. Allt sjalið er prjónað í garðaprjóni með 2 þráðum Kid-Silk og 1 þræði Alpaca.

SJAL:
Fitjið upp 3 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði í litnum ljós lavender Kid-Silk + 1 þræði grár Kid-Silk + 1 þræði ljós kamel Alpaca (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu.
Prjónið síðan GARÐAPRJÓN og RENDUR – sjá útskýringu að ofan, jafnframt því sem aukið er út þannig:

UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið 1 slétta lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkja lykkju = 5 lykkjur.
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið allar lykkjur slétt.
UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóninum, sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 1 slétta lykkju.
UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið allar lykkjur slétt.
UMFERÐ 5 (ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóninum, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 slétta lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 1 slétta lykkju. Endurtakið umferð 2-5 þar til rendurnar hafa verið prjónaðar til loka, eða að óskaðri lengd. Fellið af eins og útskýrt er að neðan.

AFFELLING:
Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, * stingið vinstri prjóni inn í 2 lykkjur á hægra prjóni frá vinstri til hægri og prjónið lykkjurnar slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni. Klippið þræðina frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Þegar fellt er af með þessum hætti þá verður affellingarkanturinn teygjanlegri. Festið alla þræði.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Michèle wrote:

Ma question n’a pas été comprise je crois. Lors de la diminution nous diminuons sur les rangs pairs mais est-ce que nous tricotons les rangs impairs comme au début ?

31.10.2023 - 20:31

DROPS Design answered:

Bonjour Michèle, je ne comprends effectivement pas votre question, les rangs impairs soit les rangs 3 et 5 se tricotent différemment: au rang 3, on diminue au début du rang et on augmente à la fin du rang (le nombre de mailles reste le même) et au rang 5, on augmente à la fin du rang. Les rangs pairs se tricotent à l'endroit. Et vous répétez les rangs 2 à 5 tout le temps. Est-ce plus clair ou pouvez-vous nous indiquer ce qui vous préoccupe?

01.11.2023 - 15:05

country flag Michèle wrote:

Lorsque nous diminuons nous procédons comment, rang on fait la diminution et les rangs envers on suit le patron ?

31.10.2023 - 04:48

DROPS Design answered:

Bonjour Michèle, vous répétez les rangs 2 à 5, autrement dit, vous diminuez au début du rang 3 et en même temps, vous augmentez à la fin du rang 3; et vous augmentez à la fin du rang 5. Les rangs 2 et 4 se tricotent à l'endroit sans augmenter ni diminuer. Bon tricot!

31.10.2023 - 16:00

country flag Gunilla wrote:

Jag förstår inte heller hur det kan bli en trekant när man bara ökar hela tiden. Ska man aldrig avmaska på samma sätt som man har ökat när man har fått den så bred man vill ha den?

19.03.2023 - 15:00

DROPS Design answered:

Hei Gunilla. Jo, det blir et trekantig sjal om du følger oppskriften. Strikk en liten prøvelapp og du vil fort se at det blir trekantig. mvh DROPS Design

20.03.2023 - 13:41

country flag Suzanne Ruel wrote:

Combien de mailles faut-il monter pour faire ce châle?

05.10.2022 - 15:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ruel, on monte 3 mailles pour commencer le châle - cf CHÂLE: Monter 3 mailles avec l'aiguille circulaire 7 et 1 fil Kid-Silk lavande clair + 1 fil Kid-Silk gris + 1 fil Alpaca chameau clair (= 3 fils). - et réponse ci-dessous. Bon tricot!

06.10.2022 - 08:02

country flag Suzanne, Ruel wrote:

Combien de mailles faut-il monter pour faire ce modèle? À moins qu’il faille augmenter jusqu’à obtenir le nombre de mailles qu’il faut?! Je ne comprends pas votre manière de procéder.

05.10.2022 - 00:32

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ruel, ce châle se tricote en commençant par une des pointes, en diagonale jusqu'à l'autre pointe, montez 3 mailles et augmentez tous les rangs sur l'envers (on répète les rangs 2 à 5) et tous les 4 rangs sur l'envers (à chaque fois que vous tricotez le rang 3), vous diminuez au début du rang. En même temps, tricotez les rayures mentionnées. Bon tricot!

05.10.2022 - 08:15

country flag Kathie BERGER wrote:

I am struggling with the instructions for row 3: this works fine with an odd number of stitches but not for even numbers as there is never just one stitch left to complete the instructions.EG. WIth 5 stitches, if you knit 2 then 2, 1 is left to complete the instructions but with 6, you knit 2 together then 2 together and then there are 2 left. I am completely lost. (Sorry I am a beginner). Please help.

24.09.2022 - 01:12

DROPS Design answered:

Dear Mrs Berger, you will always increase 2 sts by working row 5 (2 sts at the end of the row from WS), but when working row 3 you won't increase: you decrease 1 st at the beg of the row then increase 1 st at the end of the row (before the last stitch) = the number of sts remain the same; when working row 5, work until 2 sts remain and finish the row with YO, K1, YO, K1 (you increase 2 sts). Happy knitting!

26.09.2022 - 09:04

country flag Åsa wrote:

Förstår inte hur sjalen blir trekantig, alltså får likadan spets i båda ändarna

19.02.2022 - 21:30

DROPS Design answered:

Hei Åsa. Om du gjentar 2.-5. pinne vil du få et trekantet sjal. Ikke 100% lik i hver side, men et trekantet sjal. mvh DROPS Design

21.02.2022 - 13:01

country flag Hanna wrote:

Jag förstår inte avmaskningsinstruktionen. Hur många varv kommer det ta innan man har maskat av alla maskor? Ska man sticka enligt *-* genom hela varvet och sen igen när man är på rättsida?

02.10.2019 - 21:40

DROPS Design answered:

Hej. Det tar bara ett varv att maska av dem, se gärna denna video där vi visar hur man gör. Lycka till!

03.10.2019 - 10:42

country flag Annesophie T wrote:

Je souhaiterais faire ce modèle mais sans varier les couleurs, quelle quantité de kidsilk et alapca acheter?

07.08.2019 - 10:45

DROPS Design answered:

Bonjour Annesophie, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir ajuster chacun de nos modèles à chaque demande, comme ce modèle a été tricoté avec des rayures, nous avons seulement la quantité totale pour chaque couleur. Vous pouvez additionner toutes les couleurs pour avoir une idée de la quantité totale. Votre magasin DROPS pourra fort probablement vous aider si besoin. Bon tricot!

07.08.2019 - 12:50