DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

So Charming

Settið samanstendur af: Kjól fyrir skírn eða nafnagjöf, heklaður ofan frá með laskalínu og opnu sólfjaðramynstri úr DROPS Safran. Hekluð húfa með blómaferningum og sólfjaðrakanti úr DROPS Safran. Stærð 0-2 ára.

DROPS Baby 29-3
DROPS Design: Mynstur e-075-by
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------
KJÓLL:
Stærð: 0/6 - 6/12 - 12/18 mán (2) ára
Stærð í cm: 52/68 - 68/80 - 80/86 (92)
Öll lengdin:
35-40-44 (49) cm (kjóll með venjulegri lengd)
67-72-76 (81) cm (síður kjóll)

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-200 (200) g litur 17, hvítur (fyrir kjól með venjulegri lengd)
350-400-450 (500) g litur 17, hvítur (fyrir síðan kjól)

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 stuðlar á breidd og 8 umferðir með áferðamynstri á hæðina verði 10 x 10 cm.
A.1B mælist 5,5 cm á breidd og umferð 1-4 í A.1B mælist ca 4 cm á hæðina.
DROPS PERLUTALA, Blóma (hvít) NR 600: 3 st í öllum stærðum.
FYLGIHLUTIR: Ca 2,5-3 metrar silkiborði (ca 15 mm breiður).

HÚFA:
Stærð: 0/6 - 6/12 - 12/18 mán (2) ára
Höfuðmál: 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50) cm

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-100-100 (100) g litur 17, hvítur

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 hálfir stuðlar á breidd og 19,5 umferðir á hæðina verði 10 x 10 cm.
1 blómaferningur mælist 11 x 11 cm í stærð 0/6 + 6/12 + 12/18 mán og 12 x 12 cm í stærð 2 ára.
FYLGIHLUTIR: ca 1 meter silkiborði (ca 5 mm breiður).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um kjól):
Í byrjun hverrar umferðar með fastalykkjur er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju.
Þegar heklað er í hring endar umferðin með 1 keðjuluykkju í loftlykkju frá byrjun umferðar.
Þegar heklað er fram og til baka endar umferðin með 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar með stuðlum.
Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Þegar heklað er í hring endar umferðin með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar.
Þegar heklað er fram og til baka endar umferðin með 1 stuðul í loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar með fastalykkju.

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um húfu):
Í byrjun hverrar umferðar með hálfum stuðlum er fyrsta hálfa stuðlinum skipt út fyrir 2 loftlykkjur, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun umferðar.
Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkju, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur saman þannig: Heklið 1 fastalykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næstu fastalykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fastalykkju.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 hálfan stuðul með því að hekla 2 hálfa stuðla í sömu lykkju.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 fastalykkju/stuðul með því að hekla 2 fastalykkjur/stuðla í sömu lykkju.

ÚTAUKNING-2:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 136 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 57) = 2,4. í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis í ca aðra hverja og 3. hverja lykkju.

ÁFERÐAMYNSTUR:
* 1 umferð fastalykkjur, 1 umferð stuðlar *, endurtakið frá *-* (1 umferð fastalykkjur + 1 umferð stuðlar = 1 umferð áferðamynstur).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að aftan eftir klauf á baki, síðan er stykkið heklað áfram í hring að óskaðri lengd (venjuleg lengd á kjól eða síður kjóll) – sjá útskýringu að ofan.

BERUSTYKKI:
Heklið 94-99-104 (104) loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 3,5 með Safran.
Fyrsta umferðin er hekluð þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, * 1 fastalykkja í hverja og eina af 3 næstu loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju *, endurtakið frá *-* þar til 0-1-2-2 loftlykkjur eru eftir og endið með 1 fastalykkju í hverja af 0-1-2-2 síðustu loftlykkjum = 70-74-78 (78) fastalykkjur í umferð.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig (byrjið við miðju að aftan – ATH: EKKI er heklað þegar prjónamerkin eru sett í): Hoppið yfir 10-11-12 (12) fastalykkjur (= hægra bakstykki, séð þegar flíkin er mátuð), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 13 fastalykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 20-22-24 (24) fastalykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 13 fastalykkjur (= ermi) og setjið síðasta prjónamerki í næstu fastalykkju (nú eru 10-11-12 (12) fastalykkjur í vinstra bakstykki á eftir síðasta prjónamerki.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM!
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið næstu umferð frá réttu þannig:
Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, en í hverja fastalykkju með prjónamerki í eru heklaðir 2 stuðlar + 2 loftlykkjur + 2 stuðlar = 82-86-90 (90) stuðlar í umferð.
Heklið nú ÁFERÐAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan (heklað er fram og til baka með 1 fastalykkju/stuðul í hverja lykkju frá fyrri umferð, en í hverja umferð með fastalykkjum frá röngu eru heklaðar 2 loftlykkjur yfir 2 loftlykkjur frá fyrri umferð í laskalínu).
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu (þ.e.a.s. í umferð með stuðlum) er aukið út fyrir laskalínu þannig: Heklið 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga í hverri laskalínu (= 16 stuðlar fleiri í umferð – ATH: Heklið um báða loftlykkjubogana). Endurtakið útaukningu í hverri umferð frá réttu, alls 4-5-5 (6) sinnum = 146-166-170 (186) lykkjur í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er hekluð 1 umferð með fastalykkjum frá röngu eins og áður (með 2 loftlykkjum yfir 2 loftlykkjur frá fyrri umferð).
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 20-23-24 (26) stuðlum (= hægra bakstykki), hoppið yfir næstu 33-37-37 (41) fastalykkjur (= ermi), heklið 8-6-10 (10) LAUSAR loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 40-46-48 (52) fastalykkjum (= framstykki), hoppið yfir næstu 33-37-37 (41) fastalykkjur (= ermi), heklið 8-6-10 (10) LAUSAR loftlykkjur og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 20-23-24 (26) fastalykkjum (= vinstra bakstykki). Berustykkið er nú tilbúið og stykkið er nú heklað í hring.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Byrjið frá miðju að aftan með réttuna út (byrjun á umferð = miðja að aftan) og heklið 1 umferð með fastalykkjum (heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul frá fyrri umferð og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju undir hvorri ermi – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR) = 96-104-116 (124) fastalykkjur í umferð. Heklið nú þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, en aukið út 6-4-4 (8) stuðla jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 og 2 = 102-108-120 (132) stuðlar.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul.
UMFERÐ 3 (= gataumferð fyrir silkiborða): * 1 stuðul í fyrstu/næstu fastalykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 34-36-40 (44) stuðlar með 2 loftlykkjur á milli hverra.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga = 136-144-160 (176) fastalykkjur.
UMFERÐ 5: Heklið fastalykkjur og aukið út 57-61-57 (53) fastalykkjur jafnt yfir = 193-205-217 (229) fastalykkjur.
Heklið nú mynstur hringinn eins og útskýrt er í A.1, þ.e.a.s. heklið A.1A yfir fyrstu lykkju, heklið nú 16-17-18 (19) mynstureiningar með A.1B.
Þegar umferð 1-5 hefur verið hekluð einu sinni, endurtakið umferð 2-5 þar til stykkið mælist ca 23-28-32 (37) cm frá öxl ef kjólinn er heklaður sem er með venjulegri lengd eða þar til stykkið mælist ca 35-40-44 (49) cm frá öxl ef kjóllinn er heklaður langur – ATH: Passið uppá að endað sé eftir eina heila mynstureiningu á hæðina. Heklið nú þannig (fylgið útskýringum fyrir kjól með venjulegri lengd eða síðum kjól):

KJÓLL MEÐ VENJULEGRI LENGD:
Endurtakið umferð 2-5 í A.2A og A.2B alveg eins þar til heklaðar hafa verið alls 3 mynstureiningar á hæðina með A.2 (eða að óskaðri lengd). Klippið frá og festið enda.
Kjóllinn mælist ca 35-40-44 (49) cm frá öxl og niður.

SÍÐUR KJÓLL:
Endurtakið nú umferð 2-5 í A.2A og A.2B alveg eins þar til heklaðar hafa verið alls 8 mynstureiningar á hæðina með A.2 (eða að óskaðri lengd). Klippið frá og festið enda.
Síður kjóll mælist ca 67-72-76 (81) cm frá öxl og niður.

BÁÐIR KJÓLARNIR:

JÖFNUN Í HÁLSMÁLI:
Til að flíkin passi betur er hekluð smá upphækkun aftan við hnakka. Setjið 1 prjónamerki í lykkjuna í hverju “horni” í hálsmáli, þ.e.a.s. í byrjun á hverri laskalínu og 1 prjónamerki við miðju að framan.
Heklið með heklunál 3,5 með Safran þannig:
Byrjið við miðju að aftan og heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til eftir er 1 lykkja á undan lykkju með prjónamerki í, heklið 1 hálfan stuðul í næstu lykkju, 1 stuðul í lykkju með prjónamerki í og 1 hálfan stuðul í næstu lykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til eftir er 1 lykkja á undan næstu lykkju með prjónamerki í, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, 1 stuðull í lykkju með prjónamerki í og 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, heklið nú 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til eftir eru 4-5-5 (5) lykkjur á undan prjónamerki við miðju að framan. Snúið stykkinu og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju til baka að miðju að aftan, en við hvert prjónamerki eru heklaðar 3 fastalykkjur saman, þ.e.a.s. heklið 1 fastalykkju í hálfa stuðulinn, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fastalykkju í næsta hálfa stuðul, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar 4 lykkjur á heklunálinni (= 2 fastalykkjur færri). Klippið nú frá og endurtakið frá miðju að aftan að miðju að framan og til baka aftur að miðju að aftan í hinni hliðinni.

TÖLUKANTUR AÐ AFTAN:
Heklið meðfram vinstra opi á miðju baki þannig: 1 fastalykkja um hverja fastalykkjuumferð og 2 fastalykkjur um hverja stuðlaumferð. Heklið alls 4 umferðir fastalykkjur fram og til baka, klippið frá og festið enda.
Meðfram hægra opi við miðju að aftan eru hekluð hnappagöt þannig (byrjið frá réttu við hálsmál): Heklið 3 fastalykkjur (1 fastaalykkja í fastalykkjuumferð og 2 fastalykkjur um stuðlaumferð), 4 loftlykkjur (= 1 hnappagat), hoppið yfir ca 1 cm, heklið síðan fastalykkjur að ca miðju á kanti að framan, 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið fastalykkjur þar til eftir er 1 cm á kanti að framan, 4 loftlykkjur og festið með 1 fastalykkju í síðustu lykkju. Klippið frá og festið enda. Saumið tölur í kantinn í vinstri hlið.

PICOTKANTUR Í KRINGUM HÁLSMÁL:
Heklið í kringum hálsmál þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn, klippið frá og festið enda.

SÓLFJAÐRAMYNSTUR Í KRINGUM ERMI:
Heklið í kringum op á ermi þannig: 1 fastalykkja í hverja af 8-6-10 (10) lykkjur mitt undir ermi og 1 fastalykkja í hverja og eina af 33-37-37 (41) fastalykkjur yfir ermi = 41-43-47 (51) fastalykkjur í umferð. Heklið síðan þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, en aukið 1-5-1 (0) stuðla jafnt yfir = 42-48-48 (51) stuðla.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul.
UMFERÐ 3 (= gataumferð fyrir silkiborða): * 1 stuðul í fyrstu/næstu fastalykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 14-16-16 (17) stuðlar með 2 loftlykkjum á milli hverra.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga, en 7-3-3 (7) sinnum í umferð er einungis heklaðar 2 fastalykkjur um loftlykkjuboga = 49-61-61 (61) fastalykkjur.
Heklið nú mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.1A og A.1B alveg eins og á fram- og bakstykki = 4-5-5 (5) sólfjaðrir í umferð. Þegar umferð 1-5 hefur verið hekluð einu sinni, klippið frá og festið enda. Endurtakið í kringum hina ermina.

SILKIBORÐI:
Þræðið silkiborða upp og niður í gegnum gataumferð undir berustykki – byrjið og endið við miðju að framan og hnýtið slaufu við miðju að framan.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Húfan samanstendur af 3 blómaferningum sem saumaðir eru saman í lengju. Síðan er heklaður hringur sem verður aftan á húfunni og er saumaður að sjálfri húfunni. Síðan er heklaður kantur neðst á húfuna áður en sólfjaðrakantur er heklaður framan á húfuna.

BLÓMAFERNINGUR:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3 með Safran og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan í hring eins og útskýrt er í A.3 – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR OG ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar A.3 hefur verið heklað til loka eru 22 hálfir stuðlar meðfram hverri hlið og 2 loftlykkjur í hverju horni. Ferningurinn mælist ca 11 x 11 cm og endar nú í stærð 0/6 + 6/12 + 12/18 mán. Klippið frá og festið enda í þessum stærðum. Í stærð 2 ára er hekluð ein umferð til viðbótar eins og útskýrt er að neðan.

STÆRÐ (2) ÁRA:
Heklið 2 loftlykkjur (jafngilda 1 hálfur stuðli), heklið síðan 1 hálfan stuðul í hvern hálfan stuðul frá fyrri umverð (um loftlykkjuboga í horni eru heklaðir 2 hálfir stuðlar + 2 loftlykkjur + 2 hálfir stuðlar), endið umferð með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun umferðar. Nú eru 26 hálfir stuðlar meðfram hverri hlið og 2 loftlykkjur í hverju horni. Ferningurinn mælist nú ca 12 x 12 cm. Klippið frá og festið enda.

Heklið 2 blómaferninga til viðbótar í öllum stærðum. Leggið 3 ferningana í röð á eftir hverjum öðrum og saumið saman tvo og tvo með smáu, fínlegu spori – saumið með einu spori í hverja lykkju.

HRINGUR AFTAN Á HÚFU (þetta stykki er saumað við ferningana):
Heklið 4 loftlykkjur og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
Heklið síðan þannig – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR OG ÚTAUKNING:
UMFERÐ 1: 9 hálfir stuðlar um hringinn.
UMFERÐ 2: 2 hálfir stuðlar í hverja lykkju = 18 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 3: * 1 hálfur stuðull í fyrstu/næstu lykkju, 2 hálfir stuðlar í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 27 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 4: * 1 hálfur stuðull í hvora af 2 fyrstu/næstu lykkjum, 2 hálfir stuðlar í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 5: * 1 hálfur stuðull í fyrstu/næstu lykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 hálfir stuðlar með 2 loftlykkjum á milli hverra.
UMFERÐ 6: * 2 hálfir stuðlar um fyrsta/næsta loftlykkjuboga, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 54 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 7: * 1 hálfur stuðull í hverja af 5 fyrstu/næstu lykkjum, 2 hálfir stuðlar í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 63 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 8: * 1 hálfur stuðull í hverja af 6 fyrstu/næstu lykkjum, 2 hálfir stuðlar í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 72 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 9: * 1 hálfur stuðull í hverja af 7 fyrstu/næstu lykkjum, 2 hálfir stuðlar í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 81 hálfir stuðlar. Stærð 0/6 mánaða endar hér (stykkið mælist ca 10 cm að þvermáli).
UMFERÐ 10: * 1 hálfur stuðull í hverja af 8 fyrstu/næstu lykkjum, 2 hálfir stuðlar í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 90 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 11: * 1 hálfur stuðull í fyrstu/næstu lykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 45 hálfir stuðlar með 2 loftlykkjum á milli hverra.
UMFERÐ 12: Heklið 2 hálfa stuðla um hvern loftlykkjuboga = 90 hálfir stuðlar. Stærð 6/12 + 12/18 mánaða endar hér (stykkið mælist ca 12 cm að þvermáli).

STÆRÐ (2) ÁRA:
UMFERÐ 13: * 1 hálfur stuðull í hverja af 9 fyrstu/næstu lykkjum, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 99 hálfir stuðlar. Stærð (2) ára endar hér (stykkið mælist ca 13 cm að þvermáli).

FRÁGANGUR:
Saumið aðra langhliðina á lengjunni með ferningunum við hringinn með 1 spori í hverja lykkju – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Nú á að vera op neðst niðri á húfunni 9-18-18 (15) lykkjur.

KANTUR NEÐST NIÐRI Á HÚFU:
Byrjið frá réttu með 1 keðjulykkju í ysta hornið á röðinni með ferningunum og heklið síðan meðfram öllum neðri kantinum á húfunni með 1 fastalykkju í hverja lykkju 57-66-66 (71) fastalykkja, snúið stykkinu. Heklið síðan 0-0-1 (2) umferðir með 1 hálfum stuðli í hverja lykkju JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-0 (1) hálfum stuðli jafnt yfir = 57-66-66 (72) hálfur stuðull. Heklið 1 umferð með stuðlum (heklið 1 stuðul í hverja lykkju). Að lokum er hekluð 0-0-1 (2) umferðir með hálfum stuðlum og 1 umferð með fastalykkjum. Klippið frá og festið enda.

SÓLFJAÐRAKANTUR FRAMAN Á HÚFU:
Byrjið frá röngu neðst niðri í horni framan á húfu og heklið þannig – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR:
UMFERÐ 1 (= ranga): 1 keðjulykkja í ystu lykkju, 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli), heklið síðan 1 stuðul í hverja lykkju/umferð með hálfum stuðlum, 2 stuðlar um hverja stuðlaumferð neðst niðri á húfu og 1 stuðul um hvern loftlykkjuboga í hornum á ferningum = ca 80-80-84 (100) lykkjur, snúið við.
UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið eina umferð með fastalykkjum þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 81-81-81 (99) lykkjur (deilanlegt með 6 + 3) – LESIÐ ÚRTAKA/ÚTAUKNING.
Heklið síðan sólfjaðrakant eins og útskýrt er í A.4. Þegar A.4 hefur verið heklað til loka. Klippið frá og festið enda.

Þræðið silkiborða upp og niður í gegnum stuðlaumferð neðst niðri á húfu og alveg út að sólfjaðrakanti.
Ef óskað er eftir meiri skreytingu þá er einnig hægt að þræða silkiborða upp og niður í gegnum stuðlaumferð framan á húfu. Þessi silkiborði er ekki hnýttur þannig að endarnir eru brotnir inn í húfuna og saumaðir niður á röngu á stykkinu.

Mynstur

symbols = þessi umferð er útskýrð í uppskrift
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja í toppinn á picot
symbols = fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = loftlykkja
symbols = 1 picot: 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð
symbols = 1 picot: 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð
symbols = stuðull um loftlykkjuboga
symbols = stuðull í lykkju frá fyrri umferð
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar
symbols = fastalykkja er hekluð í þennan stuðul
symbols = 4 loftlykkjur, heklið 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju (umferðin byrjar og endar við punkt)
symbols = keðjulykkja í lykkju
symbols = umferðin byrjar með 1 fastalykkju í fyrstu fastalykkju frá byrjun fyrri umferðar, en heklið frá bakhlið fyrri umferðar. Endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju
symbols = fastalykkja í lykkju, en heklið frá bakhlið fyrri umferðar (ll-bogar sem heklaðir voru í þessari umferð eiga að liggja aftan við blaðið frá fyrri umferð
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju + 1 fastalykkju um fyrstu loftlykkju/loftlykkjuboga og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá byrjun umferðar
symbols = hálfur stuðull í lykkju/um loftlykkjuboga
symbols = 1 fastalykkja + 1 hálfur stuðull + 1 stuðull + 1 loftlykkja + 1 stuðull + 1 hálfur stuðull + 1 fastalykkja um fyrstu/næstu loftlykkju
symbols = 3 stuðlar + 1 loftlykkja + 3 stuðlar í sömu fastalykkju
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum + 3 stuðlum + 1 loftlykkju + 4 stuðlum í fyrstu lykkju og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar
symbols = 4 stuðlar + 1 loftlykkja + 4 stuðlar í sömu fastalykkju
symbols = tvíbrugðinn stuðull
symbols = 4 loftlykkjur, beygið stuðlahópinn fram og látið loftlykkjubogann leggjast aftan við stuðlahópinn
symbols = 5 loftlykkjur, beygið stuðlahópinn fram og látið loftlykkjubogann leggjast aftan við stuðlahópinn
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkju mitt í stuðlahóp frá 4. umferð
symbols = 1 picot: Heklið 1 fastalykkju um fyrstu/næstu loftlykkju, 2 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í fyrstu loftlykkju sem var hekluð
symbols = þessi umferð er síðasta umferð í húfu á undan A.4
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 29-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (80)

country flag Lenette Lötzsch Hansen wrote:

Jeg har brug for hjælp til at forstå det første stykke af opskriften på dåbskjolen 29-3 fra drops. Jeg kan bare ikke få maske antal til at være rigtigt.

15.02.2024 - 08:42

DROPS Design answered:

Hej Lenette, Hvilken størrelse hækler du, hvor mange masker har du og hvor er du i diagrammet?

23.02.2024 - 10:48

country flag Emma wrote:

När jag ska virka rapporter blir klänningen bara mindre o mindre. Det verkar krångla på Varv 4 När jag gör stolpar i de st från Varv 3 o sen en fm i lm-bågen. Då går klänningen ihop.

11.02.2024 - 11:15

DROPS Design answered:

Hej Emma, hvilket diagram jobber du med?

23.02.2024 - 09:39

country flag Anna wrote:

Hej. Jeg er ved kjolen i 0-6 måneder. I diagrammet a1, hvor mange picoer skal jeg ende med efter en omgang på række 1?

10.02.2024 - 01:37

DROPS Design answered:

Hej Anna, du skal have 4 picoter over hver rapport (muslinge) i A.1 :)

22.02.2024 - 10:59

country flag Michella wrote:

Viftekanten om ærmet. Fastmasker i alle masker - skal der hækles over stangmaskerne i begge sider så de bliver trukket sammen pga fastmasker på begge sidder af dem eller hækles fastmasker i dem?

16.01.2024 - 21:59

country flag Elena wrote:

I am sorry but I don't understand the first row from FAN EDGE IN THE FRONT OF THE HAT, at all. Can you provide more details about that row? Thank you

03.01.2024 - 20:20

DROPS Design answered:

Dear Elena, starting from WS you will work along the squares, start with 1 sl st in the corner, then work 3 chains (to replace 1st treble crochet (UK-English)), then work along the bottom edge previously made / in each stitch along the opening for face - crochet 2 treble crochets in each treble crochet row on each side (bottom edge), and.1 treble crochet in each stitch / around each chain space along the squares / the opening for face. Happy crocheting!

04.01.2024 - 08:22

country flag Michella wrote:

Bærestykke: Der står at 1. Række med stangmasker skal hækles fra retsiden. Jeg har lavet en række lm og en række fm. Er næste række så ikke vrangsiden?

18.12.2023 - 16:07

DROPS Design answered:

Hej Michella, rækken med fastmasker hækles fra vrangen, så rækken med st hækles fra retsiden :)

19.12.2023 - 14:52

country flag Elena wrote:

What is the raglan line in cm for this model? I need to calculate a bit different because my gauge swatch is 21 st wide/10 cm and 7 textured rows in height. Thanks

14.12.2023 - 10:23

DROPS Design answered:

Dear Elena, you will find all measurements for each size in the chart - you can then calculate froom the your own tension and the written pattern/the measurements for the appropriate size. Happy crocheting!

14.12.2023 - 16:11

country flag Vibeke wrote:

Kan det passe at på str. 6/12 skal der kun 6 læse lm men på den mindste 8? Næste række hækles således fra retsiden: Hækl 1 stangmaske i hver af de første 20-23-24 (26) stangmasker (= højre rygstk), spring over de næste 33-37-37 (41) fastmasker (= ærme), hækl 8-6-10 (10) LØSE luftmasker, hækl 1 stangmaske i hver af de næste 40-46-48 (52) fastmasker (

04.10.2023 - 08:58

DROPS Design answered:

Hei Vibeke. Det kan stemme ja. Det er for at mønstret skal gå opp i de ulike størrelsene. mvh DROPS Design

16.10.2023 - 11:29

country flag Gemma wrote:

Hi, Where the pattern says to stitch into the top of the picot for row 2 chart A1b, what is classified as the top? Do you go around the chain stitches?? Also at the start of down 2 chart A1b would.i.be correct that you need to chain 5, including the 2 from A1A,

13.07.2023 - 07:46

DROPS Design answered:

Dear Gemma, for the top of the picot you can work in the third chain stitch o between the 3 chain stitches and the treble crochet. On round 2 of the chart A.1, you start with 3 chain stitches in A.1A and 3 chain stitches in A.1B, then 1 double crochet/ single crochet in the top of the picot, 5 chain stitches and 1 double crochet/ single crochet in the top of the picot. Happy crochetting!

17.07.2023 - 14:50

country flag Heike Reinen wrote:

Was heißt Maschen überspringen? Zum Beispiel: Die nächsten 34 Maschen überspringen. Dankeschön

01.05.2023 - 05:44

DROPS Design answered:

Liebe Frau Reinen, diese 34 Maschen soll man nicht häkeln, deshalb werden sie übersprungen werden - an welche Stelle meinen Sie das? Sollte es für die Teilung der Passe, kann Ihnen dann sicher dieses Video (ab Zeit 09:42) helfen (hier werden aber nur 33 M in die 1. Größe für die Ärmel übersprungen). Viel Spaß beim häkeln!

02.05.2023 - 09:24