Aneta wrote:
Mamma mia proprio non riesco comminciare non capisco niente. Poi ho filo piu fino ...😭
12.02.2021 - 00:20DROPS Design answered:
Możemy pisać po polsku? Nie znam włoskiego niestety
12.02.2021 - 09:38Maria wrote:
Kjolen. Jeg er nået til ryg og forstykke og er i tvivl om, om jeg skal hækle tilbage med fastmasker eller jeg skal hoppe over på højre bagstykke og hækle videre derfra? Håber I forstår 🙏🏻
03.01.2021 - 11:07DROPS Design answered:
Hej Maria, ikke helt sikker på hvad du mener. Men du skal nu hækle med start fra midt bagpå, og hækle 1 omgang fastmasker hele vejen rundt fra retsiden inden du følger opskriften fra 1.OMG God fornøjelse!
14.01.2021 - 13:31Sandra Torchia wrote:
I am having great difficulty with the chart. The row 1 appears to have “1 picot: 3 chain stitches, 1 double crochet in the first chain stitch worked” the chart show this stitch between two single crochets in the previous row. How do you do that?
18.10.2020 - 20:15DROPS Design answered:
Dear Mrs Torchia, could you please tell us which diagram you are talking about? I'm not sure to understand what you mean here sorry. Thanks for your comprehension.
19.10.2020 - 09:34Maren wrote:
Hei, jeg har litt problemer med å forstå starten når det kommer til trådmarkeringene? er det noen som har bilde eller video av hvordan/hvor de settes, for det jeg har prøvd ser ikke riktig ut.
12.09.2020 - 00:45DROPS Design answered:
Hei Maren. Litt usikker på hva du mener. Når du hekler bærestykket og har 70-74-78 (78) fm på raden, settes det 4 merketråder. Tell de maskene som står i oppskriften og sett et merke i de aktuelle maskene. I de maskene med merketråd skal det økes til raglan. Fremdeles problemer, send oss en ny melding og da gjerne hvilken str du hekler og mer nøyaktig problemstilling. God Fornøyelse!
14.09.2020 - 10:30Joy Niklas wrote:
Making the hat. The edging instructions say to increase half doubles evenly spaced, but the total number of stitches does not change. What should the total be? Thanks.
11.09.2020 - 03:49DROPS Design answered:
Dear Mrs Niklas, in the first 2 sizes, there is no increrase on this row, that's the reason why the number of sts is the same at the end of this row (you increase only in the 3rd and 4th size). Happy crocheting!
11.09.2020 - 08:12Jennifer wrote:
Hi, just double checking, but we are increasing 57 every time we repeat round 5?
03.08.2020 - 18:35DROPS Design answered:
Dear Jennifer, no, these 57 increases will be worked only once, ie when you work the round 5 - then work A.1A at the beg of round + repeat A.1B a total of 16 times in the round to the end. Happy crocheting!
04.08.2020 - 09:27Svava wrote:
Hvað á heklið að mælast þegar búið er að auka 70 - 146 lykkjur í 0-6 manaða stærðinni til að sjá hvort að hekl flestan sé rétt?
28.07.2020 - 21:48DROPS Design answered:
Blessuð Svava. Mælingar passa við mælingu sem gefin er upp í mynsturteikningu í mælistikunni þegar þú mælir frá öxl og niður, svo fylgdu þeim 😊
30.07.2020 - 12:40Sandra wrote:
Kjolen 0-6 mrd: Jeg starter med at hækle 94 lm. 1 fastmaske i 2 lm. Og så 1 fastmaske i hver af de 3 næste luftmasker, spring over 1 luftmaske, rækken ud. Når jeg hækler de sidste 3 fm får jeg 1 lm tilbage, som jeg ikke ved hvad jeg skal gøre ved? Med den får jeg 71 fm og ikke 70. Jeg har talt og talt, og bliver ved med at få 71 fm. Hvad gør jeg forkert? Mvh Sandra
19.07.2020 - 22:04DROPS Design answered:
Hej Sandra, det er svært at vide hvor det går galt, men du må prøve at flytte en af fm, så du får 70, ellers vil resten af mønstret ikke stemme :)
31.07.2020 - 09:41Pia Vind wrote:
Jeg forstår ikke diagram A.1B. Hvordan skal række 2,3,4 og 5 forståes?
25.05.2020 - 21:07DROPS Design answered:
Hej Pia, 2. række starter du med lm ifølge diagrammet hækler 1 fm i toppen af picot, 5 lm, 1 fm i toppen af picot, 5 lm osv. 3. række starter du med lm ifølge diagrammet, 1 fm om lm-buen, 8 stangmasker om lm-buen, 1 fm om næste lm-bue, 6 lm, 1fm om næste lm-bue og så 8 st om næste lm-bue igen osv... God fornøjelse!
27.05.2020 - 13:40
So Charming |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Kjól fyrir skírn eða nafnagjöf, heklaður ofan frá með laskalínu og opnu sólfjaðramynstri úr DROPS Safran. Hekluð húfa með blómaferningum og sólfjaðrakanti úr DROPS Safran. Stærð 0-2 ára.
DROPS Baby 29-3 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR (á við um kjól): Í byrjun hverrar umferðar með fastalykkjur er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Þegar heklað er í hring endar umferðin með 1 keðjuluykkju í loftlykkju frá byrjun umferðar. Þegar heklað er fram og til baka endar umferðin með 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar með stuðlum. Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Þegar heklað er í hring endar umferðin með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. Þegar heklað er fram og til baka endar umferðin með 1 stuðul í loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar með fastalykkju. HEKLLEIÐBEININGAR (á við um húfu): Í byrjun hverrar umferðar með hálfum stuðlum er fyrsta hálfa stuðlinum skipt út fyrir 2 loftlykkjur, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun umferðar. Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkju, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. ÚRTAKA: Fækkið um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur saman þannig: Heklið 1 fastalykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næstu fastalykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fastalykkju. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 hálfan stuðul með því að hekla 2 hálfa stuðla í sömu lykkju. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 fastalykkju/stuðul með því að hekla 2 fastalykkjur/stuðla í sömu lykkju. ÚTAUKNING-2: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 136 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 57) = 2,4. í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis í ca aðra hverja og 3. hverja lykkju. ÁFERÐAMYNSTUR: * 1 umferð fastalykkjur, 1 umferð stuðlar *, endurtakið frá *-* (1 umferð fastalykkjur + 1 umferð stuðlar = 1 umferð áferðamynstur). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að aftan eftir klauf á baki, síðan er stykkið heklað áfram í hring að óskaðri lengd (venjuleg lengd á kjól eða síður kjóll) – sjá útskýringu að ofan. BERUSTYKKI: Heklið 94-99-104 (104) loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 3,5 með Safran. Fyrsta umferðin er hekluð þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, * 1 fastalykkja í hverja og eina af 3 næstu loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju *, endurtakið frá *-* þar til 0-1-2-2 loftlykkjur eru eftir og endið með 1 fastalykkju í hverja af 0-1-2-2 síðustu loftlykkjum = 70-74-78 (78) fastalykkjur í umferð. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig (byrjið við miðju að aftan – ATH: EKKI er heklað þegar prjónamerkin eru sett í): Hoppið yfir 10-11-12 (12) fastalykkjur (= hægra bakstykki, séð þegar flíkin er mátuð), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 13 fastalykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 20-22-24 (24) fastalykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 13 fastalykkjur (= ermi) og setjið síðasta prjónamerki í næstu fastalykkju (nú eru 10-11-12 (12) fastalykkjur í vinstra bakstykki á eftir síðasta prjónamerki. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM! LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið næstu umferð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, en í hverja fastalykkju með prjónamerki í eru heklaðir 2 stuðlar + 2 loftlykkjur + 2 stuðlar = 82-86-90 (90) stuðlar í umferð. Heklið nú ÁFERÐAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan (heklað er fram og til baka með 1 fastalykkju/stuðul í hverja lykkju frá fyrri umferð, en í hverja umferð með fastalykkjum frá röngu eru heklaðar 2 loftlykkjur yfir 2 loftlykkjur frá fyrri umferð í laskalínu). JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu (þ.e.a.s. í umferð með stuðlum) er aukið út fyrir laskalínu þannig: Heklið 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga í hverri laskalínu (= 16 stuðlar fleiri í umferð – ATH: Heklið um báða loftlykkjubogana). Endurtakið útaukningu í hverri umferð frá réttu, alls 4-5-5 (6) sinnum = 146-166-170 (186) lykkjur í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er hekluð 1 umferð með fastalykkjum frá röngu eins og áður (með 2 loftlykkjum yfir 2 loftlykkjur frá fyrri umferð). Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 20-23-24 (26) stuðlum (= hægra bakstykki), hoppið yfir næstu 33-37-37 (41) fastalykkjur (= ermi), heklið 8-6-10 (10) LAUSAR loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 40-46-48 (52) fastalykkjum (= framstykki), hoppið yfir næstu 33-37-37 (41) fastalykkjur (= ermi), heklið 8-6-10 (10) LAUSAR loftlykkjur og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 20-23-24 (26) fastalykkjum (= vinstra bakstykki). Berustykkið er nú tilbúið og stykkið er nú heklað í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Byrjið frá miðju að aftan með réttuna út (byrjun á umferð = miðja að aftan) og heklið 1 umferð með fastalykkjum (heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul frá fyrri umferð og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju undir hvorri ermi – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR) = 96-104-116 (124) fastalykkjur í umferð. Heklið nú þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, en aukið út 6-4-4 (8) stuðla jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 og 2 = 102-108-120 (132) stuðlar. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul. UMFERÐ 3 (= gataumferð fyrir silkiborða): * 1 stuðul í fyrstu/næstu fastalykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 34-36-40 (44) stuðlar með 2 loftlykkjur á milli hverra. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga = 136-144-160 (176) fastalykkjur. UMFERÐ 5: Heklið fastalykkjur og aukið út 57-61-57 (53) fastalykkjur jafnt yfir = 193-205-217 (229) fastalykkjur. Heklið nú mynstur hringinn eins og útskýrt er í A.1, þ.e.a.s. heklið A.1A yfir fyrstu lykkju, heklið nú 16-17-18 (19) mynstureiningar með A.1B. Þegar umferð 1-5 hefur verið hekluð einu sinni, endurtakið umferð 2-5 þar til stykkið mælist ca 23-28-32 (37) cm frá öxl ef kjólinn er heklaður sem er með venjulegri lengd eða þar til stykkið mælist ca 35-40-44 (49) cm frá öxl ef kjóllinn er heklaður langur – ATH: Passið uppá að endað sé eftir eina heila mynstureiningu á hæðina. Heklið nú þannig (fylgið útskýringum fyrir kjól með venjulegri lengd eða síðum kjól): KJÓLL MEÐ VENJULEGRI LENGD: Endurtakið umferð 2-5 í A.2A og A.2B alveg eins þar til heklaðar hafa verið alls 3 mynstureiningar á hæðina með A.2 (eða að óskaðri lengd). Klippið frá og festið enda. Kjóllinn mælist ca 35-40-44 (49) cm frá öxl og niður. SÍÐUR KJÓLL: Endurtakið nú umferð 2-5 í A.2A og A.2B alveg eins þar til heklaðar hafa verið alls 8 mynstureiningar á hæðina með A.2 (eða að óskaðri lengd). Klippið frá og festið enda. Síður kjóll mælist ca 67-72-76 (81) cm frá öxl og niður. BÁÐIR KJÓLARNIR: JÖFNUN Í HÁLSMÁLI: Til að flíkin passi betur er hekluð smá upphækkun aftan við hnakka. Setjið 1 prjónamerki í lykkjuna í hverju “horni” í hálsmáli, þ.e.a.s. í byrjun á hverri laskalínu og 1 prjónamerki við miðju að framan. Heklið með heklunál 3,5 með Safran þannig: Byrjið við miðju að aftan og heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til eftir er 1 lykkja á undan lykkju með prjónamerki í, heklið 1 hálfan stuðul í næstu lykkju, 1 stuðul í lykkju með prjónamerki í og 1 hálfan stuðul í næstu lykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til eftir er 1 lykkja á undan næstu lykkju með prjónamerki í, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, 1 stuðull í lykkju með prjónamerki í og 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, heklið nú 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til eftir eru 4-5-5 (5) lykkjur á undan prjónamerki við miðju að framan. Snúið stykkinu og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju til baka að miðju að aftan, en við hvert prjónamerki eru heklaðar 3 fastalykkjur saman, þ.e.a.s. heklið 1 fastalykkju í hálfa stuðulinn, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fastalykkju í næsta hálfa stuðul, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar 4 lykkjur á heklunálinni (= 2 fastalykkjur færri). Klippið nú frá og endurtakið frá miðju að aftan að miðju að framan og til baka aftur að miðju að aftan í hinni hliðinni. TÖLUKANTUR AÐ AFTAN: Heklið meðfram vinstra opi á miðju baki þannig: 1 fastalykkja um hverja fastalykkjuumferð og 2 fastalykkjur um hverja stuðlaumferð. Heklið alls 4 umferðir fastalykkjur fram og til baka, klippið frá og festið enda. Meðfram hægra opi við miðju að aftan eru hekluð hnappagöt þannig (byrjið frá réttu við hálsmál): Heklið 3 fastalykkjur (1 fastaalykkja í fastalykkjuumferð og 2 fastalykkjur um stuðlaumferð), 4 loftlykkjur (= 1 hnappagat), hoppið yfir ca 1 cm, heklið síðan fastalykkjur að ca miðju á kanti að framan, 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið fastalykkjur þar til eftir er 1 cm á kanti að framan, 4 loftlykkjur og festið með 1 fastalykkju í síðustu lykkju. Klippið frá og festið enda. Saumið tölur í kantinn í vinstri hlið. PICOTKANTUR Í KRINGUM HÁLSMÁL: Heklið í kringum hálsmál þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn, klippið frá og festið enda. SÓLFJAÐRAMYNSTUR Í KRINGUM ERMI: Heklið í kringum op á ermi þannig: 1 fastalykkja í hverja af 8-6-10 (10) lykkjur mitt undir ermi og 1 fastalykkja í hverja og eina af 33-37-37 (41) fastalykkjur yfir ermi = 41-43-47 (51) fastalykkjur í umferð. Heklið síðan þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, en aukið 1-5-1 (0) stuðla jafnt yfir = 42-48-48 (51) stuðla. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul. UMFERÐ 3 (= gataumferð fyrir silkiborða): * 1 stuðul í fyrstu/næstu fastalykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 14-16-16 (17) stuðlar með 2 loftlykkjum á milli hverra. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga, en 7-3-3 (7) sinnum í umferð er einungis heklaðar 2 fastalykkjur um loftlykkjuboga = 49-61-61 (61) fastalykkjur. Heklið nú mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.1A og A.1B alveg eins og á fram- og bakstykki = 4-5-5 (5) sólfjaðrir í umferð. Þegar umferð 1-5 hefur verið hekluð einu sinni, klippið frá og festið enda. Endurtakið í kringum hina ermina. SILKIBORÐI: Þræðið silkiborða upp og niður í gegnum gataumferð undir berustykki – byrjið og endið við miðju að framan og hnýtið slaufu við miðju að framan. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Húfan samanstendur af 3 blómaferningum sem saumaðir eru saman í lengju. Síðan er heklaður hringur sem verður aftan á húfunni og er saumaður að sjálfri húfunni. Síðan er heklaður kantur neðst á húfuna áður en sólfjaðrakantur er heklaður framan á húfuna. BLÓMAFERNINGUR: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3 með Safran og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan í hring eins og útskýrt er í A.3 – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR OG ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.3 hefur verið heklað til loka eru 22 hálfir stuðlar meðfram hverri hlið og 2 loftlykkjur í hverju horni. Ferningurinn mælist ca 11 x 11 cm og endar nú í stærð 0/6 + 6/12 + 12/18 mán. Klippið frá og festið enda í þessum stærðum. Í stærð 2 ára er hekluð ein umferð til viðbótar eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ (2) ÁRA: Heklið 2 loftlykkjur (jafngilda 1 hálfur stuðli), heklið síðan 1 hálfan stuðul í hvern hálfan stuðul frá fyrri umverð (um loftlykkjuboga í horni eru heklaðir 2 hálfir stuðlar + 2 loftlykkjur + 2 hálfir stuðlar), endið umferð með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun umferðar. Nú eru 26 hálfir stuðlar meðfram hverri hlið og 2 loftlykkjur í hverju horni. Ferningurinn mælist nú ca 12 x 12 cm. Klippið frá og festið enda. Heklið 2 blómaferninga til viðbótar í öllum stærðum. Leggið 3 ferningana í röð á eftir hverjum öðrum og saumið saman tvo og tvo með smáu, fínlegu spori – saumið með einu spori í hverja lykkju. HRINGUR AFTAN Á HÚFU (þetta stykki er saumað við ferningana): Heklið 4 loftlykkjur og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan þannig – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR OG ÚTAUKNING: UMFERÐ 1: 9 hálfir stuðlar um hringinn. UMFERÐ 2: 2 hálfir stuðlar í hverja lykkju = 18 hálfir stuðlar. UMFERÐ 3: * 1 hálfur stuðull í fyrstu/næstu lykkju, 2 hálfir stuðlar í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 27 hálfir stuðlar. UMFERÐ 4: * 1 hálfur stuðull í hvora af 2 fyrstu/næstu lykkjum, 2 hálfir stuðlar í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 hálfir stuðlar. UMFERÐ 5: * 1 hálfur stuðull í fyrstu/næstu lykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 hálfir stuðlar með 2 loftlykkjum á milli hverra. UMFERÐ 6: * 2 hálfir stuðlar um fyrsta/næsta loftlykkjuboga, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 54 hálfir stuðlar. UMFERÐ 7: * 1 hálfur stuðull í hverja af 5 fyrstu/næstu lykkjum, 2 hálfir stuðlar í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 63 hálfir stuðlar. UMFERÐ 8: * 1 hálfur stuðull í hverja af 6 fyrstu/næstu lykkjum, 2 hálfir stuðlar í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 72 hálfir stuðlar. UMFERÐ 9: * 1 hálfur stuðull í hverja af 7 fyrstu/næstu lykkjum, 2 hálfir stuðlar í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 81 hálfir stuðlar. Stærð 0/6 mánaða endar hér (stykkið mælist ca 10 cm að þvermáli). UMFERÐ 10: * 1 hálfur stuðull í hverja af 8 fyrstu/næstu lykkjum, 2 hálfir stuðlar í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 90 hálfir stuðlar. UMFERÐ 11: * 1 hálfur stuðull í fyrstu/næstu lykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 45 hálfir stuðlar með 2 loftlykkjum á milli hverra. UMFERÐ 12: Heklið 2 hálfa stuðla um hvern loftlykkjuboga = 90 hálfir stuðlar. Stærð 6/12 + 12/18 mánaða endar hér (stykkið mælist ca 12 cm að þvermáli). STÆRÐ (2) ÁRA: UMFERÐ 13: * 1 hálfur stuðull í hverja af 9 fyrstu/næstu lykkjum, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 99 hálfir stuðlar. Stærð (2) ára endar hér (stykkið mælist ca 13 cm að þvermáli). FRÁGANGUR: Saumið aðra langhliðina á lengjunni með ferningunum við hringinn með 1 spori í hverja lykkju – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Nú á að vera op neðst niðri á húfunni 9-18-18 (15) lykkjur. KANTUR NEÐST NIÐRI Á HÚFU: Byrjið frá réttu með 1 keðjulykkju í ysta hornið á röðinni með ferningunum og heklið síðan meðfram öllum neðri kantinum á húfunni með 1 fastalykkju í hverja lykkju 57-66-66 (71) fastalykkja, snúið stykkinu. Heklið síðan 0-0-1 (2) umferðir með 1 hálfum stuðli í hverja lykkju JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-0 (1) hálfum stuðli jafnt yfir = 57-66-66 (72) hálfur stuðull. Heklið 1 umferð með stuðlum (heklið 1 stuðul í hverja lykkju). Að lokum er hekluð 0-0-1 (2) umferðir með hálfum stuðlum og 1 umferð með fastalykkjum. Klippið frá og festið enda. SÓLFJAÐRAKANTUR FRAMAN Á HÚFU: Byrjið frá röngu neðst niðri í horni framan á húfu og heklið þannig – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR: UMFERÐ 1 (= ranga): 1 keðjulykkja í ystu lykkju, 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli), heklið síðan 1 stuðul í hverja lykkju/umferð með hálfum stuðlum, 2 stuðlar um hverja stuðlaumferð neðst niðri á húfu og 1 stuðul um hvern loftlykkjuboga í hornum á ferningum = ca 80-80-84 (100) lykkjur, snúið við. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið eina umferð með fastalykkjum þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 81-81-81 (99) lykkjur (deilanlegt með 6 + 3) – LESIÐ ÚRTAKA/ÚTAUKNING. Heklið síðan sólfjaðrakant eins og útskýrt er í A.4. Þegar A.4 hefur verið heklað til loka. Klippið frá og festið enda. Þræðið silkiborða upp og niður í gegnum stuðlaumferð neðst niðri á húfu og alveg út að sólfjaðrakanti. Ef óskað er eftir meiri skreytingu þá er einnig hægt að þræða silkiborða upp og niður í gegnum stuðlaumferð framan á húfu. Þessi silkiborði er ekki hnýttur þannig að endarnir eru brotnir inn í húfuna og saumaðir niður á röngu á stykkinu. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Ditte wrote:
Hej! Jeg er lidt forvirret over det tegn i A.1A som række 2 og 3 starter med. Jeg synes ikke at jeg finder en helt magen til i beskrivelsen? Mvh. Ditte
03.08.2020 - 20:11