White Bay Ridge |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, klauf í hliðum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 250-24 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við, jafnframt því sem lykkjum er aukið út hvoru megin á stykkið þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 hlutum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni, prjónið mynstur samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 26-26-28-30-30-30 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Melody. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið, UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. Síðan er prjónuð UMFERÐ 2 og 3 þar til aukið hefur verið út alls 9-10-11-11-12-14 sinnum, á eftir síðustu útaukningu eru = 62-66-72-74-78-86 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er stykkið mælt! Prjónið síðan í sléttprjóni – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA – þar til stykkið mælist 8-9-9-9-10-10 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir ÚTAUKNING-1 og prjónið 13 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið umferð 1 og 2 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum = 66-70-76-80-84-92 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 11-12-12-13-14-14 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er framstykkið prjónað meðfram öxl – lesið útskýringu að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Legið bakstykkið flatt á borð með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði/hjálparprjóni snýr að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 18-20-22-22-24-28 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum upp prjónaða kanti. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið umferð 1 og 2 alls 4 sinnum = 22-24-26-26-28-32 lykkjur, (næsta umferð sem á að prjóna á að vera frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á hjálparprjón, nú er framstykkið prjónað meðfram hægri öxl – lesið útskýringu að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn við hálsmál þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 18-20-22-22-24-28 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum upp prjónaða kanti. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið umferð 1 og 2 alls 4 sinnum = 22-24-26-26-28-32 lykkjur, (næsta umferð sem á að prjóna á að vera frá réttu). Síðan eru framstykkin sett saman – lesið útskýringu að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 22-24-26-26-28-32 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 18-18-20-22-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan 22-24-26-26-28-32 lykkjur frá vinstra framstykki = 62-66-72-74-78-86 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 20-21-23-23-24-26 cm. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið umferð 1 og 2 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum = 66-70-76-80-84-92 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 23-24-26-27-28-30 cm, endið með eina umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 66-70-76-80-84-92 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 2-2-2-2-6-6 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir ermi – setjið einn merkiþráð mitt í þessar lykkjur), prjónið síðan 66-70-76-80-84-92 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 2-2-2-2-6-6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi – setjið einn merkiþráð mitt í þessar lykkjur) = 136-144-156-164-180-196 lykkjur í umferð. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið, byrjið umferð við merkiþráðinn, prjónið hringinn. Prjónið þar til stykkið mælist ca 24-26-27-27-28-29 cm, mælt frá handvegi. Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið á fram- og bakstykki, skiptið stykkinu við merkiþræðina með því að bíða með lykkjur frá bakstykki í smá stund og prjóna fyrst lykkjur frá framstykki fram og til baka – lesið útskýringu að neðan. FRAMSTYKKI: = 68-72-78-82-90-98 lykkjur í umferð Prjónið áfram í umferð 6 og prjónað er fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 5 lykkjur eru eftir – JAFNFRAMT er aukið út um 12-12-14-14-18-18 lykkjur jafnt yfir strofflykkjur, síðustu 5 lykkjur eru prjónaðar 2 lykkjur slétt og 3 lykkjur í garðaprjóni = 80-84-92-96-108-116 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8-8-8-9-9-9 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 49-52-54-56-58-60 cm frá öxl BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki. ERMAR: Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Miðja ofan á öxl er ekki sami staður og þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 6-6-7-7-7-8 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 7 og byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 46-48-52-56-60-64 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna til að ermin passi betur, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6-6-7-7-8-8 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Þegar stykkinu er snúið verður lítið gat – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina GERMAN SHORT ROWS – leitaðu í myndböndunum okkar, prjónið 6-6-7-7-8-8 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 8-9-6-7-6-6 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 8-9-6-7-6-6 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 5 og síðan: Endurtakið umferð 3 og 4 þar til snúið hefur verið við 0-0-1-1-2-2 sinnum í hvorri hlið (snúið hefur verið við alls 2-2-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er endurtekin, endið umferð með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, það á að nota merkiþráðinn þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur jafnframt því sem lykkjum er fækkað undir ermi þannig: Þegar ermin mælist 4-4-5-5-6-6 cm (mælt mitt undir ermi), fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA, fækkið lykkjum svona í hverjum 18-18-12-8-6-5 cm alls 2-2-3-4-5-6 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-40-39-38-37-35 cm frá öxl. Skiptið yfir á hringprjóna 6 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8-10-8-10-8-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 50-54-54-58-58-62 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8-8-8-9-9-9 cm, fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 48-48-47-47-46-44 cm frá miðju ofan á öxl. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón / sokkaprjóna 6. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna, prjónið upp 76 til 88 lykkjur innan við 1 lykkju, prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er e.t.v. jafnaður út - lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 9-9-9-11-11-11 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7 og fellið af aðeins laust. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Amalie wrote:
Hei! Hvilken størrelse er genseren til modellen på bildet?
17.04.2024 - 20:17DROPS Design answered:
Hei Amalie, Det finnes en målskisse på bunnen av oppskriften, med alle mål til de forskjellige størrelsene. Finn målene som passer og deretter strikk den størrelsen de tilsvarer. Da får du fasongen slik den er i bildet. God fornøyelse!
18.04.2024 - 07:00Kirsi wrote:
Hei, hihansuut joustimen silmukkaluku, ei valitettavasti ole neljällä jaollinen. 2 o2 n joustin ei mene tasan.
07.04.2024 - 20:12Iwi wrote:
Vielen Dank für die schnelle Beantwortung meiner letzten Frage. Hier kommt schon die nächste: warum wird mit einer kleineren Nadelstärke aber mit neu aufgenommenen Maschen das Bündchen gestrickt? Kommt das von der Breite her nicht auf das selbe hinaus? Oder geht es darum dass das Bündchen dann straffer ist? Vielen Dank auch grundsätzlich für die Möglichkeit Fragen zu stellen. Das ist top!
17.03.2024 - 13:02DROPS Design answered:
Liebe Iwi, das Bündchen mit den kleineren Nadeln braucht mehr Maschen als das Glattrechts mit den grösseren Nadeln, deshalb wird man vor dem Bündchen zunehmen. Viel Spaß beim Stricken!
18.03.2024 - 09:16Anne-Mari Röllike wrote:
Hej! I mönstret till modellen ovan står det under "FRAMSTYCKE:" "Sticka vidare på varv 6". Vad menas med det? Har det blivit något fel så det menas att man ska sticka vidare med stickor 6?? Hälsningar Anne-Marie Röllike 0703-545301
13.03.2024 - 08:45DROPS Design answered:
Hej Anne-Mari. Tack för info, det ska stå sticka 6. Detta har nu rättats. Mvh DROPS Design
13.03.2024 - 09:53Iwi wrote:
Ich verstehe die Maßangaben nicht ganz: das Rückenteil soll nach den Armausschnittzunahmen gestrickt werden, bis es eine Länge von 12 cm hat. Wenn es mit dem Vorderteil zusammengefügt wird, hat es dann aber nicht die 19 cm Armausschnitt wie in der Skizze. Wo ist der Denkfehler?
12.03.2024 - 20:00DROPS Design answered:
Liebe Iwi, 12 cm beim Rückenteil + 26 cm beim Vorderteil sind 38 cm insgesamt, dh 19 cm hoch. Die Schulter sind bei solchen Modellen schräg und bisschen hinten. Siehe Tab "Videos" für die europäische Schulter ganz oben im Kopfteil. Viel Spaß beim Stricken!
13.03.2024 - 07:55Annarita wrote:
Out and About
20.01.2024 - 13:22Viviana wrote:
Bello il taglio del modello
19.01.2024 - 12:00Patricia Bell wrote:
Strolling
18.01.2024 - 22:21Karin wrote:
Cosy
18.01.2024 - 21:13Dominika wrote:
Sail with me
18.01.2024 - 18:24