Yvonne Eriksen skrifaði:
Jeg forstår ikke dette med økninger i A2b og A3b. Tror kanskje jeg da har strikket A2a og A3a på feil sted. Det er ingen økninger i diagrammet på A2b og A3b. Mine raglanøkninger har kommet før diagrammene A2a og A3a.
16.02.2021 - 10:32DROPS Design svaraði:
Hej Yvonne, du øger først ifølge diagram A.2a og A.3a, når du har strikket dem én gang i højden strikkes A.2b og A.3b. God fornøjelse!
16.02.2021 - 15:54
Helena Eben skrifaði:
Mit welcher Nadelgröße muss ich die Maschenprobe machen, wenn der Pullover in zwei verschiedenen Nadelgrößen gearbeitet wird?
14.02.2021 - 13:40DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Eben, die Maschenprobe muss mit den grösseren Nadeln gestrickt werden, dh mit den Nadeln Nr 5,5 - oder die Nadeln, die Sie benötigen, um die Maschenprobe zu bekommen. Viel Spaß beim stricken!
15.02.2021 - 09:02
Joke Sette skrifaði:
Ik ben op zoek naar een patroon voor een mannen turtleneck, maar ZONDER rondbreinaalden. Hebben jullie zo iets? :)
11.02.2021 - 19:10
Cecilie skrifaði:
Jeg vil gerne strikke den her i Bomuld-Linn, men jeg har (mindst) to spørgsmål: - Jeg ser, at mange, der strikker en hals som denne, ikke har held med at få den til at "stå selv" om på billedet. Er der nogen tricks, jeg burde kende til, der hjælper med at få det til at fungere? - Jeg ville gerne bruge blå og hvid Bomuld-Linn. Smitter den blå af i vask? Mvh Cecilie
22.01.2021 - 19:30DROPS Design svaraði:
Hej Cecilie, du kan altid strikke den dobbelt så lang og så bukke den ned, det er der mange som gør i øjeblikket :) Nej den skal ikke smitte af i vask når man vasker den ifølge vaskeanvisningen MEN man kan jo altid strikke en lille prøve og vaske først :)
27.01.2021 - 15:20
Astrid Longard Ich skrifaði:
Wie viele Knäule brauche ich für Größe M?
17.01.2021 - 20:39DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Longard, die Garnmenge finden Sie in jede Größe unter "Header", dh 650 g DROPS Nepal / 50 g das Knäuel DROPS Nepal = 13 Knäuel Nepal in die Größe M. Viel Spaß beim stricken!
18.01.2021 - 10:27
Janneke Den Nederlanden skrifaði:
Moeten er, om de raglan te breien, elke naald steken bij gemaakt worden? Ik heb dat nu gedaan, maar dan ben ik na 20 naalden klaar met de raglan en meet de pas nog maar ongeveer 10 cm. Moet ik dan gewoon doorbreien tot 21 centimeter? Of moet ik om de naald steken erbij maken? Als ik naar de foto's kijk, dan denk ik dit laatste.
21.12.2020 - 23:34DROPS Design svaraði:
Dag Janneke,
Het is inderdaad de bedoeling om om de naald (dus de ene naald wel en de andere naald niet) te meerderen voor de raglan en niet op iedere naald.
10.01.2021 - 12:03
Ineke skrifaði:
Kunt u mij aangeven waar ik de juiste instructievideo's vind van de herentrui, Nepalwol, Patroon nr. ne-328?
07.12.2020 - 13:36DROPS Design svaraði:
Dag Ineke,
Onderaan het patroon vind je een aantal relevante video's. In deze video's worden de diverse technieken uitgelegd die in het patroon voorkomen. Er is dus niet specifiek voor dit patroon een video, maar van de gebruikte technieken in het patroon.
11.12.2020 - 14:21
Claire skrifaði:
J'aime beaucoup ce modèle. Avez-vous envisagé une version femme? Merci pour votre réponse
03.12.2020 - 14:58DROPS Design svaraði:
Bonjour Claire, vous trouverez quelques astuces pour adapter un modèle femme pour homme, vous saurez les adapter dans l'autre sens pour adapter un pull homme en modèle femme. Bon tricot!
04.12.2020 - 08:12
Merethe Holden skrifaði:
Strikker Snow Trail. Skal det også økes før merke 1 og etter merke 4. dvs på bakstykket? Har begynt uten, men ser at forstykket blir jo mye større enn ryggen. Forstår det ikke ut fra mønsteret, og det er ikke bilder av genserens bakstykke. Håper jo jeg slipper å rekke opp igjen, og håper på raskt svar.
22.11.2020 - 14:16DROPS Design svaraði:
Hei Merethe, Du skal øke på begge sidene av all merkene. God fornøyelse!
23.11.2020 - 13:39
Elin Sandvold skrifaði:
Hei Jeg forstår ikke hvor / hvordan jeg skal begynne på mønster A2a og A3a. Hvor er den første masken mot merketråd, hvilken maske/diagram begynner jeg med...
17.11.2020 - 13:01DROPS Design svaraði:
Hei Elin, A.2a og A.3a er strikket etter du har økt 3-3-2-2-1-1 ganger til raglan. Da begynner du begge diagrammene fra bunnen. God fornøyelse!
18.11.2020 - 10:28
Snow Trail#snowtrailsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra með laskalínu úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 219-8 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚTAUKNING (á við um laskalínu): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Aukið svona út við öll prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þ.e.a.s. á bakstykki er prjónað í sléttprjóni, á framstykki eru útaukningar prjónaðar fyrst í sléttprjóni, síðan mynstur A.2a/A.3a og síðan í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um í hlið á fram- og bakstykki og ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kraginn og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KRAGI: Fitjið upp 80-84-88-96-96-104 lykkjur á hringprjón 4,5 með Nepal. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Byrjun á umferð = mitt að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 5-9-13-5-13-5 lykkjur jafnt yfir = 85-93-101-101-109-109 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig (setjið eitt prjónamerki á milli lykkja): Prjónið 13-15-17-17-19-19 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki, 14 lykkjur sléttprjón (= ermi), setjið 2. prjónamerki, 6-8-10-10-12-12 lykkjur sléttprjón, A.1 (=18 lykkjur), 6-8-10-10-12-12 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið 3. prjónamerki, 14 lykkjur sléttprjón (= ermi), setjið 4. prjónamerki, prjónið 14-16-18-18-20-20 lykkjur sléttprjón (= seinni helmingur af bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að auka út fyrir laskalínu hvoru megin við hvert prjónamerki. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 19-20-22-24-26-30 sinnum, en eftir að aukið hefur verið út 3-3-2-2-1-1 sinnum, aukið síðan út í mynstur á framstykki. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Þegar aukið hefur verið út 3-3-2-2-1-1 sinnum er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið og aukið út eins og áður að 2. prjónamerki, prjónið 1 lykkju sléttprjón, A.2a (= 1 lykkja) 7-9-10-10-11-11 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir 18 lykkjur eins og áður, 7-9-10-10-11-11 lykkjur sléttprjón, A.3a (= 1 lykkja), 1 lykkja sléttprjón (hér situr 3. prjónamerkið), prjónið og aukið út, út umferðina eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2a og A.3a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, aukið út eins og útskýrt er undir ÚTAUKNING (þ.e.a.s. útaukningar á framstykki er prjónaðar inn í sléttprjóni) þar til aukið hefur verið út alls 19-20-22-24-26-30 sinnum og A.2b og A.3b er prjónað yfir A.2a og A.3a (stillið af að kaðlarnir fléttist í sömu umferð og A.1) = 237-253-277-293-317-349 lykkjur. Stykkið mælist ca 19-20-22-24-26-29 cm frá prjónamerki mitt að aftan. Prjónið mynstur þar til stykkið mælist 20-21-23-25-27-30 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki hér: Prjónið yfir fyrstu 34-35-39-42-47-52 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-54-58-60-62-68 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið yfir næstu 72-74-82-88-98-108 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-54-58-60-62-68 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið yfir síðustu 35-36-40-43-48-53 lykkjur (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 161-165-181-197-217-237 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 10-10-10-12-12-12 nýjar lykkjur undir ermi (= í hliðum á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum. Haldið áfram hringinn með sléttprjóni og mynstri eins og áður. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 9 cm millibili alls 3 sinnum = 149-153-169-185-205-225 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-32-32-32-32-31 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt þar sem JAFNFRAMT er aukið út um 11-15-11-15-11-15 lykkjur jafnt yfir = 160-168-180-200-216-240 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 5 cm – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 36-37-37-37-37-36 cm frá skiptingu. ERMI: Setjið 48-54-58-60-62-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 10-10-10-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-64-68-72-74-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 10-10-10-12-12-12 nýjar lykkjur. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-4-5-5-5 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – munið eftir ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 10-12-13-15-15-18 sinnum = 38-40-42-42-44-44 lykkjur. Þegar ermin mælist 43-43-41-40-39-38 cm frá skiptingu, aukið út jafnt yfir 2-4-2-6-4-4 lykkjur = 40-44-44-48-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 5 cm – sjá AFFELLING! Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowtrailsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 219-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.