Cornelia skrifaði:
Habe 121Maschen ab 51/2 cm, in jeder zweiten rechte Masche 4 Maschen zunehmen. Ergibt bei mir 186 Maschen. Was mache ich falsch.
16.12.2024 - 17:33DROPS Design svaraði:
Liebe Cornelia, die Zunahmenreihe stricken Sie so: 5 Maschen kraus rechts, * 3 Maschen links, 1 Masche rechts, 3 Maschen links, 4 Maschen in der nächsten Masche zunehmen *, von *-* wiederholen bis noch 12 Maschen (=13 Mal insgesamt), 3 Maschen links, 1 Masche rechts, 3 Maschen links und 5 Maschen kraus rechts = so haben Sie: 5+ (3+1+3+5)x13 + 3+1+3+5=173 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!
17.12.2024 - 09:42
Mountain High skrifaði:
Superschöne Jacke! Könnte ich mir auch mit Color blockig vorstellen, z.B Orange und Pink.
06.06.2020 - 20:21
Nordic Trails#nordictrailsjacket |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, stroffi og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 218-10 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. AUKIÐ ÚT UM 4 LYKKJUR ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju slétt í slétta lykkju, en sleppið ekki lykkjum af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, en bíðið með að lyfta lykkjum af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, sleppið síðan lykkjunni af vinstri prjóni (= 4 lykkjur fleiri). ÚTAUKNING (jafnt yfir): Allar útaukningar eru gerðar frá réttu! Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 161 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 34) = 4,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu á eftir stroffi í hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 5-6-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-9 cm millibili. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur og saumaður saman í lokin. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 87-93-99-99-105-105 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með litnum beige. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið nú stroff þannig: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 10 cm, stillið af að síðasta umferð í stroffi sé prjónuð frá röngu. Setjið 1 prjónamerki hér, héðan frá er stykkið mælt. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir og endið með 2 lykkjur brugðið og 5 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með stroff og garðaprjón í kanti að framan eins og áður, en þegar stykkið mælist 1 cm er aukið út um 1 lykkju í öllum brugðnum einingum = 113-121-129-129-137-137 lykkjur. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í lok hverrar brugðinnar einingar, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. Haldið áfram með 3 lykkjur brugðið í öllum brugðnu einingum. Þegar stykkið mælist 5-5½-6-6½-7-7½ cm, prjónið þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, * 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið, AUKIÐ ÚT UM 4 LYKKJUR Í NÆSTU LYKKJU – sjá útskýringu að ofan *, prjónið frá *-* þar til 12 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið og 5 lykkjur garðaprjón = 161-173-185-185-197-197 lykkjur (aukið er út í annarri hverri sléttri lykkju). Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: 5 lykkjur garðaprjón, * 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. (Frá réttu eru nú prjónaðar 5 lykkjur garðaprjón, * 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur brugðið og 5 lykkjur garðaprjón). Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 10-11-12-13-14-15 cm frá prjónamerki í hálsi. Prjónið sléttprjón með 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið í 0-0-1-1-2-2 cm, stykkið mælist nú ca 10-11-13-14-16-17 cm frá prjónamerki. Haldið nú áfram með mynstur og aukið út lykkjur jafnt yfir í umferð með ör í mynsturteikningu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Sjá LEIÐBEININGAR og ÚTAUKNING! ÖR-1: Aukið út 34-38-42-50-54-62 lykkjur jafnt yfir = 195-211-227-235-251-259 lykkjur. ÖR-2: Aukið út 26-28-30-40-42-52 lykkjur jafnt yfir = 221-239-257-275-293-311 lykkjur. ÖR-3: Aukið út 18-24-30-36-36-42 lykkjur jafnt yfir = 239-263-287-311-329-353 lykkjur. ÖR-4: Aukið út 4-4-4-4-2-2 lykkjur jafnt yfir = 243-267-291-315-331-355 lykkjur. Nú er eftir 1 umferð í A.1 og stykkið mælist ca 19-20-22-23-25-26 cm. Prjónið síðustu umferð í mynsturteikningu frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 39-43-46-49-53-58 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-52-58-64-64-66 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 6-6-6-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 69-77-83-89-97-107 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 48-52-58-64-64-66 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 6-6-6-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 39-43-46-49-53-58 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 159-175-187-203-223-247 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig (fyrsta umferð = rétta): Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.2 og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. JAFNFRAMT eru lykkjur auknar út í hverri umferð með ör, þannig: ÖR-5: Aukið út 4-4-0-0-4-4 lykkjur jafnt yfir = 163-179-187-203-227-251 lykkjur. ÖR-6: Aukið út 4-0-4-0-0-0 lykkjur jafnt yfir = 167-179-191-203-227-251 lykkjur. ÖR-7: Aukið út 0-1-2-3-5-7 lykkjur jafnt yfir = 167-180-193-206-232-258 lykkjur. ÖR-8: Aukið út 0-5-4-3-1-5 lykkjur jafnt yfir = 167-185-197-209-233-263 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram með litnum beige, sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 26-27-27-28-28-29 cm, aukið út um 12 lykkjur jafnt yfir innan við 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið = 179-197-209-221-245-275 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm, fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-52-58-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-10-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-6-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónamerkið fylgir með í stykkinu og er notað við úrtöku undir ermi. Haldið síðan áfram hringinn með mynstur A.2. ATH! Vegna úrtöku undir ermi, kemur mynstureining í A.2 ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi. Lykkjur eru því ekki auknar út við örvar í A.2 eins og á fram- og bakstykki. Þegar stykkið mælist 4 cm, byrjar úrtaka undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5-4-3-2½-2-2 cm millibili alls 6-7-9-12-12-13 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið áfram með litnum beige og sléttprjóni. Haldið áfram þar til ermin mælist 35-35-34-34-32-32 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 0-1-2-0-1-2 lykkjur jafnt yfir = 42-45-48-48-51-54 lykkjur. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttara lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 40-40-39-39-37-37 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. Brjótið strofið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot og saumið saman hvora hlið á uppábroti við miðju að framan. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #nordictrailsjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.