Hanna skrifaði:
Har en fråga till, ska börja sticka halsen. Ska man avmaska alla maskor och sedan plocka upp nya maskor? Vad menas med sticka upp ca 29 till 35 maskor fram i halsen, var ska dessa maskor plockas upp?
04.12.2020 - 14:32DROPS Design svaraði:
Du börjar sticka halsen direkt efter oket, utan att maska av maskorna på stickan. De maskor som ska stickas upp plockar du upp längs halsen på framstycket och där ingår maskorna på tråden.
07.12.2020 - 18:23
Renee skrifaði:
Vraag 1:Heb dit patroon en wol van mijn dochter gekregen om voor haar zoontje te breien. Nu staan er verschillende leeftijden aangegeven. Bij de aanhefstart het patroon bij 5/6 jaar en bij de beschrijving 3/4 jaar. Wat is de goede maat nu?\r\nvraag 2:\r\n(er zijn 4 steken recht midden voor, dus deze naald begint niet aan de zijkant). Dit is toch geen gezicht bij een boord. Hoe moet ik dit opvatten/lezen??\r\nvr.gr Oma Renée
01.12.2020 - 11:00
Hanna skrifaði:
I beskrivningen står det att man ska sticka en viss längd och sedan påbörja halsminskningen. Men vill man inte att halsminskningen och raglan ska sluta samtidigt, dvs efter att man gjort raglan 26 ggr?
01.12.2020 - 09:09DROPS Design svaraði:
Hej Hanna, du er ikke klar med raglan når du starter på halsminskningen, men det er ikke sikkert at du kan få det til at stemme med at du bliver klar med både raglan og halsminskning nøjagtig samtidigt og det gør ikke noget. God fornøjelse!
07.12.2020 - 14:06
Pat skrifaði:
Check your seizes don't make sense
23.10.2020 - 00:10DROPS Design svaraði:
Dear Pat, we are using the standard for sizes, but you can always check the required size by measuring a similar garnment the child has and like the shape and compare these measurements to those in the measurement chart. Read more about charts here. Happy knitting!
23.10.2020 - 09:11
Winter Clouds#wintercloudssweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu og köðlum úr DROPS Karisma eða DROPS Lima. Stærð 5-14 ára.
DROPS Children 37-12 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um ermi): Aukið út lykkjur hvoru megin við 2 lykkjur á neðri hluta á ermi. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 2 miðju lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum hvoru megin við öll 4 prjónamerkin (= 8 úrtökur í hverri umferð). Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Stykkin eru sett saman og berustykkið er prjónað í hring héðan. Eftir að lykkjum hefur verið fækkað fyrir hálsmáli er prjónað fram og til baka. Kantur í hálsi er prjónaður í hring á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 158-166-174-182-190 lykkjur á hringprjón 3 með Karisma eða Lima. Prjónið 1 umferð slétt, haldið áfram með stroff þannig: * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir 20 lykkjur, 2 lykkjur slétt, prjónið frá *-* út umferðina (það eru 4 lykkjur slétt mitt að framan, þ.e.a.s. að þessi umferð byrjar ekki í hlið). Þegar stykkið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið næstu umferð þannig: 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið í hverja og eina af næstu 2 lykkjum (= 4 lykkjur brugðið), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið 2 lykkjur í hverja og eina af 2 næstu lykkjum (= 4 lykkjur slétt), 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónið 2 lykkjur brugðið í hverja og eina af 2 næstu lykkjum (= 4 lykkjur brugðið), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (= mitt að framan), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið í hverja og eina af 2 næstu lykkjum (= 4 lykkjur brugðið), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt í hverja og eina af næstu 2 lykkjum (= 4 lykkjur slétt), 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið í hverja og eina af næstu 2 lykkjum (= 4 lykkjur brugðið), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið. Afgangur af umferð er prjónuð í mismunandi stærðum þannig: STÆRÐ 5/6 ÁRA: Prjónið 1 lykkju slétt, * 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* út umferðina. STÆRÐ 7/8 ÁRA: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* út umferðina. STÆRÐ 9/10 ÁRA: Prjónið 8 lykkjur slétt, * 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* út umferðina. STÆRÐ 11/12 ÁRA: Prjónið 7 lykkjur slétt, * 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 6 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* út umferðina. STÆRÐ 13/14 ÁRA: Prjónið 6 lykkjur slétt, * 2 lykkjur slétt saman, 6 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* út umferðina. ALLAR STÆRÐIR: Nú eru 160-168-176-184-192 lykkjur. Haldið áfram þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 60 lykkjurnar (þ.e.a.s. A.1a yfir fyrstu 14 lykkjurnar, A.1b yfir næstu 4 lykkjur, A.1c yfir næstu 24 lykkjur, A.1d yfir næstu 4 lykkjur og A.1e yfir síðustu 14 lykkjur), og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Teljið 14-16-18-20-22 lykkjur út hvoru megin við A.1 og setjið 1 prjónamerki (þetta merkir hliðar), nú eru 72-76-80-84-88 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 24-27-30-33-34 cm, fellið af 6 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 148-156-164-172-180 lykkjur í umferð. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 40-44-44-48-48 lykkjur á sokkaprjóna 3 með Karisma eða Lima. Prjónið 1 umferð slétt, haldið áfram með stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið í 5 cm. Setjið 1 prjónamerki á milli 2 fyrstu lykkja (= mitt undir ermi). Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 8-8-9-9-10 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING í útskýringu að ofan. Endurtakið útaukningu með 3-3½-3-3½-3 cm millibili alls 7-7-9-9-11 sinnum = 54-58-62-66-70 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-37-40-44-47 cm, fellið af 6 lykkjur undir ermi (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 48-52-56-60-64 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki, þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handvegi = 244-260-276-292-308 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. ATH! Úrtaka fyrir hálsmáli byrjar áður en öll úrtaka fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka, LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Haldið áfram með mynstur A.1 og sléttprjón eins og áður, en prjónið 1 lykkju í sléttprjóni hvoru megin við hvert prjónamerki. Í 2. umferð byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 19-21-23 24-26 sinnum. Þegar stykkið mælist ca 35-39-43-47-49 cm (stillið af að það sé umferð með 6 lykkjum slétt mitt framan í mynstri), prjónið 14 miðju lykkjur að framan saman 2 og 2 = 7 lykkjur (þær 6 miðjulykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2, þær 4 lykkjur hvoru megin við kaðal eru prjónaðar brugðið saman 2 og 2). Í næstu umferð eru 17 miðjulykkjur settar á 1 þráð fyrir hálsmáli (= allt A.1c). Stykkið er prjónað til loka fram og til baka frá miðju að framan – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum. Þegar öll úrtaka fyrir laskalínu og hálsmáli hefur verið gerð til loka eru ca 56-56-56-64-64 lykkjur í umferð. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3, prjónið upp ca 29 til 35 lykkjur fram í hálsmáli (meðtaldar lykkjur af þræði) = ca 85 til 99 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt jafnframt er lykkjufjöldinn jafnaður til þannig að það verða 8 lykkjur yfir hvorri ermi, 24-28-28-32-32 lykkjur yfir bakstykki og 35-35-35-43-43 lykkjur yfir framstykki (ekki fækka lykkjum eða auka út yfir 17 miðjulykkjur) = 75-79-79-91-91 lykkjur í umferð. Prjónið stroff hringinn þannig: Þær 2 lykkjur yfir hverri laskalínu halda áfram í 2 lykkjur slétt, síðan eru prjónaðar 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið yfir hvorri ermi, lykkjur á bakstykki eru prjónaðar inn í 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, á framstykki eru 17 miðjulykkjur prjónaðar þannig: 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, aðrar lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar inn í 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Þegar kantur í hálsmáli mælist 2-2-2-2-3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintercloudssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 37-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.