DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cable Road

Prjónuð peysa fyrir börn með köðlum og laskalínu úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Stærð 3-12 ára.

DROPS Children 37-10
DROPS Design: Mynstur z-043-bn
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
3/4 – 5/6 – 7/8 – 9/10 – 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-450-500-550 g litur 501, ljós grár

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 23 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4: fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PERLUPRJÓN (prjónað í hring):
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið síðan umferð 2.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 70 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 5) = 14. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 14. og 15. hverja lykkju slétt saman.

LASKALÍNA:
Fækkað er um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin sem skipta fram- og bakstykki og ermar (= fækkað er um 8 lykkjur í hverri umferð). Fækkið lykkjum hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri umferð, þessar 4 lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni við ermar og í perluprjóni við framstykki og bakstykki.
Fækkið lykkjum þannig: Prjónið sléttprjón eða mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Prjónið 4 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja og lykkjurnar eru prjónaðar í mynstri háð lykkjum í hvorri hlið, annað hvort 2 lykkjur perluprjón + 2 lykkjur sléttprjón eða 2 lykkjur sléttprjón + 2 lykkjur perluprjón). Prjónið 2 lykkjur saman (prjónið brugðið saman ef prjónað er perluprjón eða slétt saman ef prjónað er sléttprjón).

ÚTAUKNING (á við um ermi):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg, ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna upp að handveg. Síðan eru ermarnar settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki og berustykkið er prjónað í hring, skiptið yfir á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna eftir þörf.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 122-130-138-146-150 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt og setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = í hlið á stykki.
Prjónið stroff með 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið í 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 18-20-22-24-25 lykkjur PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Nú eru lykkjur auknar út og byrjað er á mynstri yfir næstu 25 lykkjurnar mitt framan á stykki þannig: Prjónið 3 lykkjur brugðið, prjónið 2 lykkjur í hverja og eina af næstu 2 lykkjum (prjónið í bæði fremri og aftari lykkjubogann í sömu lykkju) (= 2 lykkjur fleiri), prjónið 5 lykkjur brugðið, prjónið 2 lykkjur í hverja og eina af næstu 2 lykkjum (= 2 lykkjur fleiri), prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur í hverja og eina af næstu 2 lykkjum (= 2 lykkjur fleiri), prjónið 5 lykkjur brugðið, prjónið 2 lykkjur í hverja og eina af næstu 2 lykkjum (= 2 lykkjur fleiri) og prjónið 3 lykkjur brugðið. Prjónið 18-20-22-24-25 lykkjur perluprjón og setjið 1 prjónamerki í stykkið hér (= í hlið), prjónið perluprjón út umferðina = 130-138-146-154-158 lykkjur.
Prjónið síðan þannig: Prjónið 18-20-22-24-25 lykkjur perluprjón, prjónið mynsturteikningu A.1 yfir næstu 33 lykkjurnar og prjónið perluprjón út umferðina.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 23-25-28-31-35 cm fellið af 6 lykkjur í hvorri hlið, þ.e.a.s. fellið af 3 lykkjur hvoru megin við hvert prjónamerki = 63-67-71-75-77 lykkjur á framstykki og 55-59-63-67-69 lykkjur á bakstykki.
Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 29-31-31-33-35 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 2 þráðum Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff með 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið þar til stykkið mælist ca 5 cm.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5.
Prjónið sléttar lykkjur og aukið út 1 lykkju yfir fyrstu 10-11-11-12-13 lykkjurnar, byrjið mynstur og aukið út yfir næstu 8 lykkjur (= mitt á ermi) þannig: Prjónið 3 lykkjur brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt í hverja og eina af næstu 2 lykkjum (= 2 lykkjur fleiri) og prjónið 3 lykkjur brugðið. Prjónið síðustu 11-12-12-13-14 lykkjurnar slétt = 32-34-34-36-38 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og látið það fylgja með í stykkinu (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón með mynstri A.2 yfir 10 lykkjur sem er staðsett mitt á ermi. Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-8 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan. Aukið svona út með 2-2½-2½-3-3½ cm millibili alls 9-9-10-10-10 sinnum = 50-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 27-31-34-39-42 cm. Í næstu umferð eru felldar af 6 lykkjur mitt undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 44-46-48-50-52 lykkjur.
Geymið ermina og prjónið hina ermina alveg eins.

BERUSTYKKI:
Setjið ermarnar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af í hvorri hlið = 206-218-230-242-250 lykkjur.
Byrjið umferð í skiptingunni á milli bakstykkis og ermi.
Prjónið 1 umferð eins og áður (þ.e.a.s. perluprjón á bakstykki, perluprjón + mynstur A.1 á framstykki, sléttprjón + mynstur A.2 á ermi).
Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli framstykkis, bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki).
Í næstu umferð byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan.
Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 17-18-19-20-21 sinnum = 70-74-78-82-82 lykkjur.
Stykkið mælist ca 40-44-48-52-56 cm frá öxl og niður. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 5-5-5-9-7 lykkjur jafnt yfir í umferð = 65-69-73-73-75 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff með 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið þar til stroffið mælist ca 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppá stroff í hálsi að réttu þannig að það liggi tvöfalt, saumið niður kantinn með smáu spori. Saumið saman opiði á milli erma og fram- og bakstykki.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón á bakhlið á stykki, prjónið 2 lykkjur slétt og prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón á framhlið á stykki, prjónið 2 lykkjur slétt og prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 37-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag BRUSINI wrote:

Bonjour, concernant les augmentations des manches que veux dire \\\" augmentations sous la Manche ?\\r\\nCordialement

09.01.2023 - 21:26

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Brusini, vous devez augmenter au niveau du dessous de la manche, autrement dit, à la fin du tour + au début du tour pour que les augmentations se trouvent sous la manche (au niveau de la couture s'il y en avait une). Bon tricot!

10.01.2023 - 09:10

country flag Ilovedogs wrote:

Sto lavorando questo pullover , ma arrivata al punto di inserire le maniche non capisco proprio come posso fare : all\'inizio della lavorazione raglan non dovrei trovare le maglie per lavorare insieme le maniche? Lavorando un pullover top down nello sprone si lavorano anche le maglie, ad un certo punto da lasciare in sospeso, che poi diventeranno le maniche...Non riesco proprio a capire come fare. Spero che potrete aiutarmi. Comunque devo dire che questo sito è veramente bellissimo.

23.09.2022 - 20:21

DROPS Design answered:

Buonasera Ilovedogs, questo modello è lavorato dal basso verso l'alto, per cui si lavora la parte inferiore, poi le maniche e poi si uniscono le parti per lavorare lo sprone. Buon lavoro!

27.09.2022 - 22:03

country flag Mirella wrote:

Quanti meglio in ferro devo usare per fare una maglia da bambino 4 anni che veste da 5 anni

31.05.2022 - 08:17

DROPS Design answered:

Buonasera Mirella, in fondo alla pagina trova uno schema con le misure: lo confronti con un capo del bambino e scelga la taglia più appropriata. Buon lavoro!

31.05.2022 - 21:47

country flag Trudy Danvers wrote:

Er zijn op de foto wel erg veel fouten te zien. De kabel is onregelmatig en de gerstekorrel is ook vol foutjes gebreid. Ook de hals is naar mijn smaak slordig afgewerkt. Ik vind dat niet erg professioneel.

11.01.2022 - 12:49

country flag Anna wrote:

Vorrei sapere come lavorare le maglie diminuite del raglan nel giro successivo al giro delle diminuzioni Grazie

24.04.2021 - 08:44

DROPS Design answered:

Buonasera Anna, queste maglie vanno lavorate a maglia rasata verso le maniche e a grana di riso verso il davanti e il dietro. Buon lavoro!

24.04.2021 - 22:15

country flag Schmidt Mary Ann wrote:

English translation available?

16.10.2020 - 21:04

DROPS Design answered:

Dear Mrs Schmidt, sure ! click on the scroll down menu below the photo and choose the appropriate English (either UK with cm or US with cm/inches) required. Happy knitting!

19.10.2020 - 10:40