Nerea skrifaði:
Buongiorno Mi piace questa mantella e ne ho fatte due. Vorrei fare il berretto sempre con lo stesso motivo. So che ci sono tanti berretti sul vostro sito Ma io vorrei sapere se posso fare un berretto con questo modello Grazie
04.02.2021 - 07:02DROPS Design svaraði:
Buongiorno Nerea, se vuole provare a fare un cappello da questo modello può provare a riadattare il motivo: noi purtroppo non possiamo aiutarla. Buon lavoro!
04.02.2021 - 13:26
Nerea skrifaði:
Buona sera. Ho già fatto questo coprispalle x una bimba di sei anni con la lana Snow. È venuto benissimo. Si può fare il berretto sempre per questa bimba, sempre con lo stesso motivo ma leggendo il grafico da sopra a sotto? Grazie
03.02.2021 - 21:16DROPS Design svaraði:
Buonasera Nerea, ci sono tanti modelli di cappelli per bambini su nostro sito. Buon lavoro!
03.02.2021 - 22:28
Sima skrifaði:
Bonjour est ce que vous pouvez faire une petite vidéo sur le diagramme surtout ce point : = 1 maille envers. Tricoter maintenant encore 1 fois la maille juste tricotée ainsi: avec l'aiguille gauche, relever le brin gauche de la maille, de l'arrière vers l'avant et tricoter 1 maille envers dans le brin avant (= on a augmenté 1 maille) merci
27.01.2021 - 15:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Sima, tricotez cette maille ainsi: tricotez la maille endroit à l'envers, et lâchez la maille endroit de l'aiguille gauche, puis, avec l'aiguille gauche, reprenez cette maille endroit mais de l'arrière vers l'avant, et tricotez ensuite cette maille à l'envers, en piquant dans le brin avant, lâchez maintenant la maille de l'aiguille gauche. Vous avez augmenté 1 maille en tricotant 2 fois la même maille à l'envers, 1 fois dans le brin avant (comme normalement) et une fois dans le brin arrière. Bon tricot!
28.01.2021 - 08:59
Sima skrifaði:
Bonjour, j'ai un petit Soussi je tricote avec des aiguilles 5 et 6 et je veux adapter mon tricot à mes aiguilles j'ai beaucoup glairer pouvez vous m'aider. merci, sachant que mon échantillon par rapport au modèle proposer est 14 mailles sur 20 rangs merci beaucoup
27.01.2021 - 14:28DROPS Design svaraði:
Bonjour Sima, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, vous pouvez changer de laine en trouvant une alternative si besoin ou bien consultez nos modèles correspondant à votre échantillon - exemples de pulls avec 14 m = 10 cm). Bon tricot!
28.01.2021 - 10:08
Marie skrifaði:
Réalisez vous les modèles sur commande?
12.01.2021 - 23:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Marie, contactez nos différents magasins DROPS, ils pourront probablement vous renseigner. Bon tricot!
13.01.2021 - 07:13
Barbara skrifaði:
Superbe!
07.01.2021 - 12:21
Sharon Simmons skrifaði:
Gorgeous, how do I know when it will be available?
20.09.2020 - 01:57
November Woodland#novemberwoodlandsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með háum kraga og hringlaga berustykki úr DROPS Polaris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 216-24 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. GALDRALYKKJA: Ef prjónað er í hring á hringprjón sem er of langur fyrir lykkjufjöldann, er hægt að galdralykkju þannig: Færið lykkjurnar að miðju á hringprjóni (mitt á snúru). Deilið lykkjufjölda ca í miðju og dragið snúruna út á milli 2 lykkja. Færið síðan lykkjurnar að þeirri hlið sem prjónað er frá fram að oddi á prjóni og prjónið fram þar sem snúran var dregin út. Dragið út miðju á snúru á milli 2 nýrra lykkja í gagnstæðri átt áður en prjónað er áfram alveg eins, haldið svona áfram þar til auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur svo hægt sé að prjóna hringinn eins og venjulega. ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermar): ATH: Til að úrtakan komi til skiptis í hægri og vinstri hlið á stykki er lykkjum fækkað þannig: Fækkið lykkjum til skiptis í byrjun og í lok umferðar sem á að fækka lykkjum í. Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum frá röngu þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna og saumaðar saman í lokin. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 34-36-38-40-42-44 lykkjur á sokkaprjóna 12 með Polaris. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 12 cm. BERUSTYKKI: Lesið GALDRALYKKJA í útskýringu að ofan. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Skiptið yfir á hringprjón 15 og prjónið mynstur A.1 hringinn – sjá þína stærð í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 102-108-114-120-126-154 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-4-2-8-10-2 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan = 102-112-116-128-136-156 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 24-26-28-30-32-34 cm frá prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 15-16-17-19-20-23 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 21-24-24-26-28-32 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 30-32-34-38-40-46 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 21-24-24-26-28-32 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 15-16-17-19-20-23 lykkjur (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 68-72-76-84-92-104 lykkjur. Prjónið í hring í sléttprjóni þar til stykkið mælist 22 cm frá skiptingu í öllum stærðum. Skiptið yfir á hringprjón 12 og prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm í öllum stærðum. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl. ERMI: Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna og saumaðar saman í lokin. Setjið 21-24-24-26-28-32 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjóna 15 og fitjið upp 2-2-2-2-3-3 nýjar lykkjur í hvorri hlið = 25-28-28-30-34-38 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka, jafnframt í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1-0-0-0-0-0 lykkjur (lykkjum er einungis fækkað í stærð S) með því að prjóna 2 ystu lykkjur í vinstri hlið á stykki slétt saman = 24-28-28-30-34-38 lykkjur. Þegar stykkið mælist 4-2-2-4-4-2 cm fækkið um 1 lykkju í hægri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum til skiptis í vinstri og hægri hlið á stykki í annarri hverri - annarri hverri - annarri hverri – hverri – hverri - hverri umferð alls 8-12-12-14-14-18 sinnum (= 4-6-6-7-7-9 sinnum í hvorri hlið) = 16-16-16-16-20-20 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 34-33-32-30-28-26 cm frá skiptingu. (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Skiptið yfir á hringprjón 12. Prjónið fram og til baka með stroffi (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saum undir ermum í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki of þykkur – deilið gjarna þræðinum þannig að hann verði þynnri þegar sauma á saman. Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #novemberwoodlandsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.