DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 216-10
DROPS Design: Mynstur ai-283
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-400-400-450-500-550 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 10 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 2,5. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 1. og aðra hverja lykkju og aðra hverja og 3. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-2:
Fækkið lykkjum jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 og fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman þar sem prjónað er brugðið, eða 2 lykkjur slétt saman þar sem prjónað er slétt.

ÚTAUKNING:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón upp að ermakúpu. Prjónið síðan ermakúpu fram og til baka. Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka frá miðju ofan á öxl.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 99-107-115-123-139-147 lykkjur (meðtaldar 4 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Prjónið nú stroff þannig:
4 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 12-16-20-24-32-36 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 16 lykkjur, A.2 yfir næstu 31 lykkjur, A.3 yfir næstu 16 lykkjur, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 12-16-20-24-32-36 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur garðaprjón.
Haldið áfram svona fram og til baka og endurtakið fyrstu 2 umferðir í mynsturteikningu þar til stroffið mælist 5 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Prjónið nú næstu 2 umferðir í A.1, A.2 og A.3 og prjónið eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð.
Þegar umferð með stjörnu hefur verið prjónuð til loka, skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið nú mynstur frá réttu þannig: Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 10-14-18-18-26-30 lykkjur og fækkið jafnframt um 4-5-5-5-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 (= 6-9-13-13-18-22 lykkjur sléttprjón), brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur yfir næstu 4-4-4-8-8-8 lykkjur, prjónið síðan mynstur A.1, A.2 og A.3, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 4-4-4-8-8-8 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 10-14-18-18-26-30 lykkjur og fækkið jafnframt um 4-5-5-5-8-8 lykkjur jafnt yfir (= 6-9-13-13-18-22 lykkjur sléttprjón), 4 lykkjur garðaprjón.
Haldið svona áfram fram og til baka með mynstur. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, eru 95-101-109-117-127-135 lykkjur í umferð. Prjónið nú A.4 yfir A.1, A.5 yfir A.2 og A.6 yfir A.3. Lykkjur sem eru eftir, eru prjónaðar eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka, endurtakið mynstur á hæðina. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af 3-4-5-6-6-7 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-1-2-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 1-1-1-2-3-4 sinnum = 83-87-89-93-97-101 lykkjur. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður og prjónið 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið eins og áður yfir fyrstu 26-28-29-30-32-34 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 31-31-31-33-33-33 lykkjur, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað frá 31-31-31-33-33-33 lykkjur til 23-23-23-25-25-25 lykkjur – sjá ÚRTAKA-2 (= 8 lykkjur færri), prjónið eins og áður yfir næstu 26-28-29-30-32-34 lykkjur = 75-79-81-85-89-93 lykkjur.
Í næstu umferð eru felldar af miðju 23-23-23-25-25-25 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja fyrir hálsmáli = 25-27-28-29-31-33 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm (handvegur mælist 21-22-23-24-25-26 cm). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 21-23-24-25-27-29 lykkjur. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið mynstur á sama hátt og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið alveg eins og á bakstykki.
Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður og prjónið 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 48-50-51-53-54-56 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 31-33-34-35-37-39 lykkjur, prjónið eins og áður yfir næstu 21-21-21-23-23-23 lykkjur, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað frá 21-21-21-23-23-23 lykkjur til 13-13-13-15-15-15 lykkjur – munið eftir ÚRTAKA-2 (= 8 lykkjur færri), setjið 13-13-13-15-15-15 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli, prjónið síðustu 31-33-34-35-37-39 lykkjur eins og áður. Prjónið síðan axlir til loka hvora fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellið síðan lykkjur af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 25-27-28-29-31-33 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm (handvegur mælist ca 21-22-23-24-25-26 cm). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 21-23-24-25-27-29 lykkjur. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama átt.

ERMI:
Fitjið upp 60-60-64-64-68-72 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-9-11-10-12-14 lykkjur jafnt yfir = 50-51-53-54-56-58 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 9-9-9-9-8-8 cm, aukið út um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 5-4½-3½-3-3-2½ cm millibili alls 7-8-9-10-10-11 sinnum = 64-67-71-74-76-80 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 43-43-42-40-38-36 cm. Prjónið nú áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið fyrir ermakúpu þannig: Fækkið um 4-4-5-6-6-7 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-2-2-2-1-1 sinni, 1 lykkju 0-0-3-4-7-9 sinnum, 2 lykkjur 3-3-2-2-2-2 sinnum og 4-4-4-3-3-2 lykkjur 1 sinni = 28-31-31-32-32-32 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 50-50-51-50-50-50 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermum. Saumið hliðarsaum í ystu lykkjuna þannig að saumurinn verður flatur – byrjið undir ermi og saumið niður þar til ca 17 cm eru eftir (= klauf). Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið mitt ofan á öxl með Air og stuttum hringprjón 4,5 og prjónið upp 72-80 lykkjur frá réttu í kringum hálsmál (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 11 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið uppá stroffið efst í hálsi að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsi verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.10.2020
Leiðrétting: Mynsturteikning A.5 hefur verið uppfærð
Yfirfarið á vefsvæði: 08.11.2023
Mynsturteikning A.4 og A.6 hefur verið uppfærð.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat
symbols = þegar þessi umferð hefur verið prjónuð til loka á hæðina, skiptið yfir á hringprjón 5,5
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, setjið til baka ystu lykkjuna af kaðlaprjóni á vinstri prjón, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, setjið til baka ystu lykkjuna af kaðlaprjóni á vinstri prjón, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 6 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, setjið til baka ystu 2 lykkjurnar af kaðlaprjóni á vinstri prjón, prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 6 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, setjið til baka ystu 2 lykkjurnar af kaðlaprjóni á vinstri prjón, prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Renée Fijlstra wrote:

Beste meneer/mevrouw, In het patroon staat dat ik een aantal steken recht boven recht en averecht boven averecht moet breien. Wat wordt daarmee bedoeld? Is dat de ribbelsteek? Groetjes, Renée Fijlstra

13.03.2024 - 06:03

DROPS Design answered:

Dag Renée,

Hiermee wordt bedoeld dat je rechte steken breit boven de steken die op de vorige naald ook recht waren gebreid en averecht over de steken die op de vorige naald ook averecht waren gebreid. (Dus je breit eigenlijk zoals de steken zich voordoen.)

14.03.2024 - 22:10

country flag Renée Fijlstra wrote:

Beste meneer/mevrouw, Ik heb een vraag over het patroon: DROPS Design: Patroon nr. ai-283, Seafarers heart. Het gaat om deze zin: Zet 99 steken op (inclusief 4 kantsteken aan elke kant) Wordt er bedoeld dat er 2 steken aan het begin van de naald afgehaald moeten worden en aan het einde van de naald 2 recht breien? Of moet ik een kantsteek extra maken en gelijk beginnen met het patroon? In mijn geval de boordsteek. Groetjes, Renée

28.02.2024 - 15:16

DROPS Design answered:

Dag Renée,

Nee, je zet 99 steken op in totaal en daar zitten de kantststeken bij in. Je hoeft dus geen extra steken te maken of steken eraf te halen.

28.02.2024 - 20:18

country flag Margaretaqn wrote:

Novost

17.11.2023 - 09:40

country flag Evarda wrote:

Med

15.11.2023 - 08:54

country flag Robebl wrote:

Novost

14.11.2023 - 19:28

country flag Eldardom wrote:

Coin

12.11.2023 - 09:35

country flag Karen Hayden wrote:

Can this be knitted with 4ply yarn ? How many skeins would it require?

30.10.2023 - 17:25

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hayden, DROPS Air is a worsted yarn - ,read more here; you can use a 4ply yarn (= yarn group A) but you should then use 2 strands of yarn; use the yarn converter to see the alternatives and the new amount of yarn. Happy knitting!

30.10.2023 - 18:20

country flag Ann Steyn wrote:

The actual diagrams are correct in all the cables. I am referring to the diagram instructions. If you look at the instructions next to each diagram, the 4 cable (small one) instructions are opposite to the direction the cable should go. Eg in A.4 the first cable is to the right, but the instructions say to place the 2 sts on the cable needle at front which would result in left cable. Hope this helps explains better. Thank you for your awesome patterns.

02.10.2023 - 10:49

DROPS Design answered:

Dear Mrs Steyn, thanks for your feedback, I understand now - our design team will check. Happy knitting!

02.10.2023 - 16:05

country flag Ann Steyn wrote:

The diagram instructions for the 4 st cable in A.4 and A.5 are incorrect They have been switched so the first cable in A.4 would go left, when it should go right etc....

27.09.2023 - 14:25

DROPS Design answered:

Dear Mrs Steyn, in the large cable in A.4 you will cross the stitches to the right (slip stitches in front of piece) and in the large cable in A.5 they will be crossed to the left (slip sts behind piece) just as shown in diagram and in the last picture. Except if I'm misunderstanding your question.

02.10.2023 - 07:57

country flag Renée Fijlstra wrote:

Beste meneer /mevrouw, Ik wil graag het patroon DROPS 216-10 breien. Ik weet niet goed welke maat ik moet nemen. Ik heb mijn trui opgemeten. Die is 55 cm breed. Nu zou ik maat L moeten nemen. Maar mijn kledingmaat is maat XL. Ik hoop dat u mij kan helpen. Met vriendelijke groeten, Renée Fijlstra

31.08.2023 - 20:41

DROPS Design answered:

Dag Renée,

Dan zou je inderdaad maat L aan kunnen houden. Als je van oversized houdt, kun je maat XL aanhouden.

31.08.2023 - 21:35