Winter Waters |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Big Delight. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og vösum. Stærð S - XXXL.
DROPS 216-42 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3, A.4 og A.5). SKIPT UM ÞRÁÐ: Til að litaskiptin í Big Delight verði falleg þegar skipt er um dokku, er mikilvægt að finna dokku sem byrjar á þeim lit sem sú fyrri endaði á. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 2) = 37. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 37. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi ca 36. og 37. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2½-3 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 9½-10-8½-9-9½-9½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Lesið SKIPT UM ÞRÁÐ! KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-84-88-92-96-100 lykkjur á hringprjón 4,5 með Big Delight. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum í garðaprjói. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 2-6-10-10-14-18 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 86-90-98-102-110-118 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 3 cm frá prjónamerki, prjónið mynstur og aukið út þannig: FYRSTA ÚTAUKNING: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð (= 19-20-22-23-25-27 mynstureiningar með 4 lykkjum), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 124-130-142-148-160-172 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 125-130-145-150-160-175 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð S, L, XL, XXXL er aukið út um 1-3-2-3 lykkjur og í stærð M og XXL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður til) – munið etir ÚTAUKNING/ÚRTAKA. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 7-8-9-9-9-10 cm aukið út þannig: ÖNNUR ÚTAUKNING: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2 þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð (= 23-24-27-28-30-33 mynstureiningar með 5 lykkjum), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, eru 171-178-199-206-220-241 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður jafnt til 170-180-200-208-220-244 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð S er fækkað um 1 lykkju, í stærð M, L, XL og XXXL er aukið út um 2-1-2-3 lykkjur og í stærð XXL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður út). Haldið síðan áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 11-13-15-15-15-17 cm, prjónið mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S, M og L: Prjónið nú mynstur og aukið út þannig: ÞRIÐJA ÚTAUKNING: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2 þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð (= 32-34-38 mynstureiningar með 5 lykkjum), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 234-248-276 lykkjur í umferð. Haldið áfram með sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður þar til stykkið mælist 18-20-22 cm. Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Prjónið nú mynstur og aukið út þannig: ÞRIÐJA ÚTAUKNING: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.3 þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð (= 33-35-39 mynstureiningar með 6 lykkjum), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 274-290-322 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 276-290-325 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð XL og XXXL er aukið út um 2-3 lykkjur og í stærð XXL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður út). Haldið áfram með sléttprjón. Þegar stykkið mælist 21-21-214 cm, er prjónað þannig: FJÓRÐA ÚTAUKNING: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 3-2-3 mynstureiningar A.5, prjónið 1-1-1 mynstureiningar A.4 *, prjónið *-* 9-13-11 sinnum, síðan er prjónað sléttprjón yfir næstu 14-7-7 lykkjur, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 294-316-347 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón þar til stykkið mælist 24-26-28 cm. Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan. ALLAR STÆRÐIR: Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 37-39-43-46-49-54 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 48-50-57-59-64-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 64-70-76-84-90-99 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 48-50-57-59-64-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 37-39-43-46-49-54 lykkjur (= vinstra framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 150-164-178-192-204-227 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 18 cm í öllum stærðum – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið fyrstu 14-16-18-19-21-22 lykkjur eins og áður og setjið næstu 20 lykkjur á þráð fyrir vasa, fitjið upp 20 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið næstu 82-92-102-114-122-143 lykkjur, setjið næstu 20 lykkjur á þráð, fitjið upp 20 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 14-16-18-19-21-22 lykkjur sem eftir eru eins og áður = 150-164-178-192-204-227 lykkjur í umferð. Prjónið nú fram og til baka eins og áður, en yfir 20 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir vasa er prjónað mynstur A.6. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað sléttprjón yfir allar lykkjur með kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 29 cm, aukið út um 22-24-26-28-28-33 lykkjur jafnt yfir = 172-188-204-220-232-260 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður. Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. VASI (annar helmingur á vasa): Setjið til baka 20 lykkjur af þræði á prjón 5,5 og prjónið sléttprjón fram og til baka þar til vasinn mælist 10 cm. Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Saumið vasann að innanverðu á peysu með ósýnilegu spori. Prjónið hinn vasann á sama hátt. ERMI: Setjið 48-50-57-59-64-70 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-65-67-72-80 lykkjur – munið eftir SKIPT UM ÞRÁÐ, finnið stað í dokkunni með sama lit og síðasta lit sem prjónaður var á berustykki, þannig að það myndist eðlileg litaskil á litum. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur í hlið undir ermi (= 3-4-4-4-4-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5½-4½-3-2½-2-1½ cm millibili alls 7-8-11-11-13-16 sinnum = 40-42-43-45-46-48 lykkjur. Prjónið með sléttprjóni þar til ermin mælist 39-38-36-34-33-31 cm (styttri ermi í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-2-5-3-6-4 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 45-44-42-40-39-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (2)
Heckmann wrote:
Bonjour Pourquoi avez-vous abandonné la laine de qualité BIG DELIGHT qui était très agréable à tricoter, très chaude et avec des coloris dégradés magnifiques . Merci Bonne journée
12.11.2023 - 16:26DI LULLO ANNA RITA wrote:
Modello semplice e pratico
05.06.2020 - 20:18