DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cabled Concerto

Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað með köðlum, gatamynstri, áferðamynstri og v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 216-38
DROPS Design: Mynstur u-903
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
700-750-800-900-1000-1100 g litur 65, gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir kaðla, gatamynstur og áferðamynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Marble NR 629: 5-5-5-6-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um v-hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu og lykkjum er fækkað innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan!
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 1 KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 1 KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG: Byrjið 2 lykkjum á undan kantlykkju og prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING-1 (á við um miðju undir ermum):
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í þannig: Prjónið fram að lykkju með prjónamerki mitt undir ermi, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki brugðið eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar snúnar, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur jafnóðum inn í A.9.

ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu í kraga):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja brugðið (séð frá réttu). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjón/stuttan hringprjón, neðan frá og upp að ermakúpu, síðan er afgangur af ermi prjónaður fram og til baka á hringprjóna.
Stykkið er saumað saman. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur fyrir kant að framan og kraga – þær eru prjónaðar í stroffprjóni.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 122-130-142-158-170-186 lykkjur á hringprjón 3,5 með Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 0-2-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni) = 122-128-140-156-170-186 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 1-4-2-2-1-1 lykkjur brugðið, prjónið A.1 yfir næstu 8-8-16-24-32-40 lykkjur (= 1-1-2-3-4-5 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.2 (= 16 lykkjur), prjónið A.3 (= 8 lykkjur), prjónið A.4 (= 14 lykkjur), prjónið A.5 (= 24 lykkjur), prjónið A.6 (= 14 lykkjur), prjónið A.1 (= 8 lykkjur), prjónið A.2 (= 16 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 8-8-16-24-32-40 lykkjur (= 1-1-2-3-4-5 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið 1-4-2-2-1-1 lykkjur brugðið og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm (og næsta umferð er prjónuð frá réttu), fækkið um 2-2-2-4-4-4 lykkjur í hvorri hlið með því að prjóna 4 lykkjur í hvern og einn af 1-1-1-2-2-2 ystu köðlum í hvorri hlið slétt saman 2 og 2 = 118-124-136-148-162-178 lykkjur eftir. Í næstu 2 umferðum, fellið af fyrir handveg með því að fella af 7-10-8-14-13-13 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum = 104-104-120-120-136-152 lykkjur eftir.
Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 lykkju brugðið (séð frá réttu) og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af miðju 20-20-20-20-26-26 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 41-41-49-49-54-62 lykkjur eftir.
Þegar 2 umferðir eru eftir þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (og næsta umferð er prjónuð frá réttu), fækkið um 7-7-9-9-10-12 lykkjur á öxl með því að prjóna lykkjur í hvern og einn af köðlum í A.1/A.3 og A.4/A.6 slétt saman 2 og 2 = 34-34-40-40-44-50 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Bakstykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 61-65-73-81-89-97 lykkjur á hringprjón 3,5 með Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið): 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 0-1-3-3-4-4 lykkjur jafnt yfir (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni) = 61-64-70-78-85-93 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið): 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 1-4-2-2-1-1 lykkjur brugðið, prjónið A.1 yfir næstu 8-8-16-24-32-40 lykkjur (= 1-1-2-3-4-5 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.2 (= 16 lykkjur), prjónið A.3 (= 8 lykkjur), prjónið A.4 (= 14 lykkjur), prjónið A.7 (= 11 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað/felldar af fyrir v-hásmáli og handveg eins og útskýrt er að neðan.

V-HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fækkið lykkjum fyrir V-HÁLSMÁLI við miðju að framan – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í 4. hverri umferð alls 9-9-9-9-11-11 sinnum og síðan í 6. hverri umferð alls 2-2-2-2-3-3 sinnum.

HANDVEGUR:
JAFNFRAMT þegar 2 umferðir eru eftir þar til stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm (og næsta umferð er prjónuð frá réttu), fækkið um 2-2-2-4-4-4 lykkjur í hlið með því að prjóna 4 lykkjur í hvern og einn af 1-1-1-2-2-2 ystu köðlum við hlið slétt saman 2 og 2. Í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir handveg með því að fella af fyrstu 7-10-8-14-13-13 lykkjur í umferð. Eftir allar úrtökur/affellingar fyrir v-hálsmáli og handveg, eru 41-41-49-49-54-62 lykkjur eftir. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 lykkju brugðið (séð frá réttu) og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar 2 umferðir eru eftir þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (og næsta umferð er prjónuð frá réttu), fækkið um 7-7-9-9-10-12 lykkjur á öxl með því að prjóna lykkjur í hverjum kaðli í A.1/A.3 og A.4 slétt saman 2 og 2 = 34-34-40-40-44-50 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – munið eftir AFFELLING! Framstykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 61-65-73-81-89-97 lykkjur á hringprjón 3,5 með Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að framan): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni að hlið.
Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 0-1-3-3-4-4 lykkjur jafnt yfir (kantlykkjurnar eru prjónaðar í garðaprjóni) = 61-64-70-78-85-93 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að framan): 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.8 (= 11 lykkjur), prjónið A.6 (= 14 lykkjur), prjónið A.1 (= 8 lykkjur), prjónið A.2 (= 16 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 8-8-16-24-32-40 lykkjur (= 1-1-2-3-4-5 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið 1-4-2-2-1-1 lykkjur brugðið og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hlið. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað/felldar af fyrir v-hálsmáli og handveg eins og útskýrt er að neðan.

V-HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fækkið lykkjum fyrir V-HÁLSMÁLI við miðju að framan – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í 4. hverri umferð alls 9-9-9-9-11-11 sinnum og síðan í 6. hverri umferð alls 2-2-2-2-3-3 sinnum.

HANDVEGUR:
JAFNFRAMT þegar 2 umferðir eru eftir þar til stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm (og næsta umferð er prjónuð frá réttu), fækkið um 2-2-2-4-4-4 lykkjur í hlið með því að prjóna 4 lykkjur í hvern af 1-1-1-2-2-2 ystu köðlum í hlið slétt saman 2 og 2. Í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir handveg með því að fella af fyrstu 7-10-8-14-13-13 lykkjur í umferð. Eftir alla úrtöku/affellingu fyrir v-hálsmáli og handveg, eru 41-41-49-49-54-62 lykkjur eftir. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 lykkju brugðið (séð frá réttu) og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar 2 umferðir eru eftir þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (og næsta umferð er prjónuð frá réttu), fækkið um 7-7-9-9-10-12 lykkjur á öxl með því að prjóna lykkjur í hverjum kaðli í A.1/A.3 og A.6 slétt saman 2 og 2 = 34-34-40-40-44-50 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

ERMI:
Fitjið upp 40-44-44-48-48-52 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með Karisma. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 6 cm, setjið 1 prjónamerki í umferð.
Þetta prjónamerki merkir hvar ermin er brotin upp og ermin er mæld síðar frá þessu prjónamerki.
Þegar stroffið mælist 10 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir = 42-46-46-50-50-54 lykkjur.
Setjið 1 nýtt prjónamerki í stykkið – í fyrstu lykkju í umferð. Þetta prjónamerki merkir mitt undir ermi og lykkja með prjónamerki er prjónuð brugðið í hverri umferð.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið lykkju með prjónamerki brugðið, prjónið A.9 þar til 1 lykkja er eftir í umferð og prjónið síðustu lykkju eins og fyrstu lykkju í A.9 (þannig að mynstrið byrjið og endi eins hvoru megin við lykkju með prjónamerki). Haldið svona áfram með mynstur.
JAFNFRAMT þegar ermin mælist 10-10-8-6-10-10 cm frá fyrra prjónamerki sem var sett, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 2-2-2-2-1½-1½ cm millibili alls 17-17-19-19-21-21 sinnum = 76-80-84-88-92-96 lykkjur.
Þegar ermin mælist 46-46-46-44-43-42 cm frá fyrsta prjónamerki, prjónið ermakúpu fram og til baka á hringprjón frá miðju undir ermi – A.9 heldur áfram eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið til loka (þ.e.a.s. lykkja með prjónamerki og síðasta lykkja í umferð er prjónuð í garðaprjóni).
Prjónið þar til ermin mælist 50-51-49-50-48-46 cm frá fyrra prjónamerki (og ca 56-57-55-56-54-52 cm frá uppfitjunarkanti), þ.e.a.s. það er klauf ca 4-5-3-6-5-4 cm efst á ermi. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma á framstykki og bakstykki frá handveg og niður þar sem stroffið byrjar, þannig að það myndist klauf ca 6 cm neðst í hvorri hlið – saumið hliðarsauminn í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur.
Saumið ermakúpu við handveg innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram handveg. Saumið síðan opið efst á ermi við botninn á handveg – sjá teikningu.

KANTUR AÐ FRAMAN OG KRAGI Í VINSTRA FRAMSTYKKI:
Notið hringprjón 3,5 og Karisma, byrjið frá réttu mitt aftan í hnakka og prjónið upp ca 152-156-160-168-172-180 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram hálsmáli aftan í hnakka og síðan niður meðfram framstykki (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með
4). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón.
Þegar stroffið mælist 3 cm, setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 33-33-33-41-41-41 lykkjur frá miðju að aftan. Í næstu umferð frá réttu eru auknar út 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið frá miðju aftan í hnakka og niður að prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 = 4-4-4-5-5-5 lykkjur fleiri.
Þegar stroffið mælist 5 cm, aukið út þær 2 lykkjur brugðið sem eftir eru til 3 lykkjur brugðið frá miðju að aftan og niður að prjónamerki = 4-4-4-5-5-5 lykkjur fleiri.
Þegar stroffið mælist 6 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING!

KANTUR AÐ FRAMAN OG KRAGI Í HÆGRA FRAMSTYKKI:
Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki og prjónið upp jafn margar lykkjur eins og á vinstri kanti að framan og kraga, frá neðri kanti mitt aftan í hnakka.
Prjónið stroff á sama hátt og á vinstra framstykki og aukið út á kragastykkinu á sama hátt og á vinstra framstykki.
JAFNFRAMT þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af fyrir 5-5-5-6-6-6 hnappagötum jafnt yfir. Efsta hnappagatið er staðsett ca 1 cm neðan við úrtöku þar sem v-hálsmálið byrjaði og neðsta hnappagatið er ca 6 cm frá neðri kanti.
1 hnappagat =sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 lykkjur saman. ATH: Fallegast er að fella af í brugðinni einingu (séð frá réttu).
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Saumið tölur í vinstri kant að framan og saumið kragann saman við miðju að aftan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.11.2020
Leiðrétting: ERMAR:... Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og fyrsta umferð er prjónuð þannig:...
Yfirfarið á vefsvæði: 22.12.2020
Leiðrétting: Úrtaka og affelling fyrir handveg hefur verið leiðrétt á bakstykki og báðum framstykkjum

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Doris Belz wrote:

Ich brauche Hilfe beim Diagramm sind das nur die hinreihen ich verstehe das sonst nicht bitte Hilfe. MfG.Doris Belz

09.12.2023 - 08:01

DROPS Design answered:

Liebe Frau Belz, alle Reihen sind im Diagram gezeichnet, die Hin-Reihen lesen Sie rechts nach links und die Rückreihen links nach rechts; die leere Kästchen werden glatt rechts gestrickt und die schwarze Quadraten werden glatt links gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

11.12.2023 - 07:52

country flag Josee wrote:

Hallo, ik ben net begonnen met dit patroon maat M. Na de ribbelsteek begint het patroon als volgens: 2 kantsteken, 4 averecht, A1, A2, ….., 4 averecht, 2 kantsteken. De 4 averecht steken moeten ook averecht gebreid worden op de retour naald? (Dus het wordt een soort ribbel steek van af een averecht steek) Of het is de bedoeling om ze recht te breien op de retour naald? Al vast bedankt

12.11.2023 - 10:35

DROPS Design answered:

Dag Josee,

Het staat inderdaad niet goed aangegeven, maar die 4 steken brei je recht aan de verkeerde kant.

12.11.2023 - 17:30

country flag Carol McMillan wrote:

I'm having an issue with the decreasing on the back for size XL I have 156 sts , I've decreased the 8 sts in the cables (156-8=148 sts) The pattern says to Bind off 12 sts on next two rows (148-24=124 sts) I have 24 sts. Pattern says I should have 120 sts The pattern says Bind off middle 20 sts (124-20 = 104 sts) I have 52 sts each shoulder The pattern says Bind off 1 st (neck edge) 52-1= 51 sts I have 51 sts. The pattern says I should have 49 sts

06.11.2023 - 18:24

DROPS Design answered:

Dear Mrs McMillan, you decrease a total of 8 sts (4 sts on each side) = 156-8=148 sts, then cast off the first 14 sts (instead of 12, the US pattens will be edited) at the beg of next 2 rows = 120 sts left. You then cast off the middle 20 sts = 50 sts for each shoulder, cast off 1 st at the beg of next row from neck = 49 sts left. Happy knitting!

07.11.2023 - 08:25

country flag Lucy Smith wrote:

Following on from the question about the sleeve increases, I can see you have purl as the midline stitch and before it the first stitch of A.9 and after it also the first stitch of A.9 So it goes purl , purl (the midline one), purl. When the increase comes do you end up with the second stitch of A.9, purl, the last stitch of A.9? If this happened to be on the first row of A.9 this would be knit, purl(midline stitch), knit Have I understood this correctly? Thanks

06.07.2023 - 19:42

DROPS Design answered:

Dear Lucy, we have a purl middle stitch, which helps introducing the pattern. We will insert the new stitches before the purl middle stitch (1st, 2nd, 3rd, 4th) and right after it (4th, 3rd, 2nd, 1st). Happy knitting!

10.07.2023 - 15:43

country flag Samya Ali wrote:

I would like to make this jacket for someone but they have a bust sizeof 48 inches. Does this pattern have positive ease? If I was to increase the cast on for the large size to 146 on the back and 75 on each size, what changes would I need to make for the cable patterns?

06.06.2023 - 16:13

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ali, measure a garment the person has and likes the shape and compare these measurements to the one in the chart, you can than decide the required ease. Read more about chart here. Happy knitting!

07.06.2023 - 08:52

country flag Lorna wrote:

Please explain the back decreases. The shoulder decreases occur after the back neck cast off? I do not understand the directions, please help.

05.06.2023 - 19:40

DROPS Design answered:

Dear Lorna, you first cast off the middle stitches for neck on back piece, then continue each shoulder separately casting off one stitch at the beg of next row from neck. Then approx. 2 cm after casting off the middle stitch for neck, you will decrease in the cables to keep correct width (you need more stitches for cable than for stocking stitch reason why you have to decrease before casting off). In this video we show how to decrease in cables and cast off at the same time, for this pattern you will first decrease then work 1 extra row and cast off on next row. Happy knitting!

06.06.2023 - 08:57

country flag Elisabet wrote:

Jag stickar denna kofta i M till min dotterdotter som är mycket smal (höftmått 92cm).Min stickfasthet är normal (19 m per 10 com). Trots detta blir koftan alldeles för smal ca 76 cm inkl kant. Vad göra?

04.03.2023 - 13:41

DROPS Design answered:

Hej Elisabeth, Strikker du i DROPS Karisma? Du har 130 m på bagstykket og 64mx2 på forstykkerne = 258 m/20=129 cm (hvor der forsvinder nogle cm til snoningerne) + de 6 cm forkant i hver side.

08.03.2023 - 08:09

country flag Marcia wrote:

The bands are done in ribbing and the ribbing pulls up at the bottom so it's shorter than the body. This shows in the pattern pictures too, What can be done to correct this? I'd like the bottom of the band to line up properly with the body of the sweater.

02.03.2023 - 16:33

DROPS Design answered:

Dear Marcia, you can block it using pin to let the bands being straight as you'd like them to be. Enjoy!

02.03.2023 - 16:43

country flag Kerstin Reich wrote:

Ich möchte diese Jacke stricken. Wenn ich mir die Maschenzahl und Maße ansehe, wird das Vorderteil so viel breiter wie die später angestrickte Kante. Ist das richtig?

12.01.2023 - 18:18

DROPS Design answered:

Liebe Frau Reich, beachten Sie, daß Ihre Maschenprobe (= 20 Maschen x 26 Reihen glatt rechts mit den grösseren Nadeln = 10 x 10 cm) stimmt, und so wird die Arbeit die richtigen Maßen haben. Beim Rippenmuster (und kleineren Nadeln) sowie für die Zöpfe braucht man mehr Maschen als für glatt rechts. Viel Spaß beim stricken!

13.01.2023 - 08:30

country flag Boucle501 wrote:

A lovely pattern!

02.12.2022 - 17:08